Tíminn - 09.07.1993, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.07.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn Föstudagur 9. júlí 1993 Stórfellt landbrot í Vík í Mýrdal. Frá árinu 1971 hefur sjórinn fært sig uppá skaftið sem nemur 300-400 metrum: Sjórinn nálgast nú kauptúnið óðfluga Frá árinu 1971 hefur átt sér stað stórfellt landbrot í Vík í Mýrdal. Á þessum 22 árum nemur landbrotið um 300-400 metrum og á síðustu 2-3 árum hefur sjórinn tekið um 100-150 metra af landi. Síðustu mánuði virðist þó landbrotið hafa hægt verulega á sér og hefur sjór- inn meira að segja skilað slatta til baka í formi mikillar sandfjöru. „Það, sem sjórinn hefur skilað til baka, er þó í miklu þynnra lagi en það sem hann tók. Með sama áfram- haldi og verið hefur síðustu ár, þá verður ekki lengt í það að sjórinn fari að nálgast kauptúnið. Það er til að mynda orðið fjandi stutt í fjöruna frá athafnasvæði Vegagerðar ríkis- ins,“ segir Hafsteinn Jóhannesson, sveitarstjóri f Vík. Eins og gefur að skilja er þetta stór- fellda landbrot af völdum sjávar verulegt áhyggjuefni meðal heima- manna í Vflc. En áhyggjur manna vegna landbrots eru þó ekki stað- bundnar við Vík, því verulegt land- brot hefur og á sér stað um nær gervalla suðurströndina og nægir í því sambandi að minna á ágang sjáv- ar við brúna við Jökullónið og á Höfn í Homafirði. Að mati þeirra, sem gerst þekkja, stafar landbrotið fyrst og fremst af langvarandi sunnan- og suðvestan- áttum. Sem dæmi um ágang sjávar má nefna að sandnámur við Vík, sem voru til þess að gera langt uppá landi, eru svo til horfnar í sjó fram. „Við fengum um tveggja milljón króna fjárveitingu í þetta á þessu ári. Það er verið að gera mælingar og rannsóknir á þessu hjá Vita- og haíharmálastofnun. Meðal annars er verið að athuga hvaða möguleika við eigum og hvar eigi að draga vamar- Iínuna og þá hvernig eigi að bregð- ast við, ef þetta heldur áfram. Hins- vegar virðist landbrotið hafa stöðv- Sjávarútvegurinn hefur gjaldfrjálsan aðgang að mikil- vægustu auðlindinni og þolir af þeirri ástæðu hærra gengi en ella. 45. Iðnþing: Stórfelídur ast síðustu mánuðina og á þeim tíma hefur bætt aftur í sandinn," segir Hafsteinn Jóhannesson. -grh Vík í Mýrdal. Talsvert atvinnuleysi á Króknum og í Skagafirði, þótt gefið sé í skyn að atvinnulífið sé í góðu horfi. Verkamannafélagið Fram: Bótagreióslur nema 15,6 millj. kr. frá áramótum Alls fengu 70 manns greiddar atvinnuleysisbætur frá fjórum verka- lýðsfélögum vegna fyrrihluta júnímánaðar, en alls hafa verið greiddar út 15,6 milljónir króna í atvinnuleysisbætur frá áramótum á Sauðárkróki og í Skagafirði. 1 ályktun verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki um atvinnu- mál kemur m.a. fram að þrátt fyrir að í opinberri umræðu sé gefið í skyn að atvinnulíf og atvinnu- ástand sé í góðu horfi á Króknum og í Skagafirði, þá sé það staðreynd að atvinnuleysi er og hefur verið talsvert. Hinsvegar sé því ekki að leyna að vöxtur hefur verið í ein- stökum atvinnugreinum og þá einkum þeim sem tengdar eru sjávarútvegi. Aftur á móti sé það umhugsunarefni hvaða áhrif afla- samdrátturinn muni hafa á atvinn- ustigið og fækkun starfa. Stéttarfélagið lýsir yfir áhyggjum sínum vegna stöðu skinnaiðnaðar hér á landi og þá sérstaklega eftir gjaldþrot íslensks skinnaiðnaðar á Akureyri. Að mati félagsins er mik- il hætta á að fyrirtækið Loðskinn verði einnig gjaldþrota, sem yrði verulegt áfall fyrir atvinnustigið. Stjórn verkamannafélagsins Fram skorar því á alla hlutaðeig- andi aðila að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til að tryggja áfram- haldandi starfsemi fyrirtækisins og minnir á að eitt starf í grunn- framleiðslu leiðir a.m.k. til tveggja starfa í þjónustu. -grh innflutningur á atvinnuleysi „Með innflutningi iðnaðarvöru fyrir u.þ.b. 20 milljarða króna, sem væri hægt aö framleiða innanlands, er í raun verið að flytja inn at- vinnuleysi á þúsundum atvinnutækifæra. Hér verður þróun að taka við af öfugþróun," segir í ályktun 45. Iðnþings íslendinga, sem haldiö var ekki alls fyrir löngu. í ályktun þingsins kemur m.a. fram sú skoðun að aldrei fyrr í 49 ára sögu lýðveldisins hafi verið þrengt eins mikið að íslenskum vinnumarkaði og almennri af- komu og þvf aldrei fyrr verið jafn augljós nauðsyn þess að byggja upp sterkan iðnað. Iðnþingið hvetur stjómvöld og alla landsmenn til að snúa bökum saman og standa einhuga að upp- byggingu atvinnulífs 21. aldarinn- ar. Þá þurfi að skapa iðnaðinum skilyrði til að taka við drjúgum hluta þeirra 20 þúsund nýrra at- vinnutækifæra, sem talið er að þurfi að skapa á næstu sjö árum. Jafnframt er lögð áhersla á að ís- land sé og verði samfélag smáfyrir- tækja og nauðsynlegt að stjórn- málamenn og aðrir viðurkenni þá staðreynd. 45. Iðnþing íslendinga leggur þunga áherslu á jafnrétti atvinnu- veganna og telur það löngu tíma- bært að látið verði af þeirri áráttu að „mismuna atvinnugreinum eft- ir ímynduðu mikilvægi". Þingið telur einnig æskilegt að festa sé í gengismálunum, en jafn- framt sé löngu tímabært að viður- kenna að sjávarútvegurinn þolir hærra gengi en ella, sökum þess að hann hefúr gjaldfrjálsan aðgang að mikilvægustu auðlind þjóðarinn- ar. í ályktun þingsins er lögð þung áhersla á að efla þurfi iðnmennt- unina og auka almennan skilning á iðnnámi. Sömuleiðis þurfi að efla rannsóknir og nýsköpun f iðnaði og viðurkenna f verki að iðn- menntun sé lykill að aukinni hag- sæld, eins og í öðrum tæknisamfé- lögum. -grf» Stofnfundur samtaka sjúklinga með myasthenia gravis: Stofnað MG-félag á íslandi Þann 29. maí síðastliðinn var hald- inn stofnfundur MG félags íslands, en það eru samtök sjúklinga sem þjást af myasthenia gravis (vöðva- slensfár), aðstandenda þeirra og vel- unnara. Fundurinn var haldinn í húsnæði Öryrkjabandalags íslands og var nokkuð vel sóttur, en stofnfé- lagar voru 38 talsins. Á fundinum flutti dr. Sigurður Thorlacius fyrir- lestur um sjúkdóminn, sem er dæmigerður sjálfsofnæmissjúkdóm- ur. Ólöf Eysteinsdóttir var kjörin for- maður félagsins og önnur í stjóm voru kjörin þau Guðrún Þorgeirs- dóttir gjaldkeri og séra Hjalti Guð- mundsson ritari, auk Steinunnar Guðmundsdóttur sem er varamaður. Stjóm MG félags fslands. Frá vlnstri: Séra Hjaltl Guðmundsson, Ólöf Eystelnsdóttlr formaður og Guðrún Þorgeirsdóttir. Á myndina vantar Steinunni Guðmundsdóttur, sem er varamaður í stjóm. Mörk gaf plöntur að Bjark- arási Gróðrarstöðin Mörk færði Styrktar- félagi vangefinna plöntur að gjöf í tilefni af 25 ára afmæli Markar. Plöntunum var valinn staður við hæfingarstöðina Bjarkarás í Stjörnugróf og gjöfin formlega af- hent um miðjan júní, sama dag og gróðurhús við Bjarkarás var tekið í notkun. Gréta Bachmann, forstööukona Bjarkaráss, og Pétur N. Ólason frá Gróörarstöðinni Mörk.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.