Tíminn - 09.07.1993, Side 6

Tíminn - 09.07.1993, Side 6
6 Tíminn Föstudagur 9. júlí 1993 rm.:. : , ■■■■.....................\ ... Lalknir frá Reykjavfk, sem spilar (4. deildarkeppninni ( knattspyrnu, hefur ekki yfir miklu æfingaplássi að ráða, vegna mikilla framkvæmda sem standa nú yfir á Leiknisvellinum. Á völl- inn á að koma gervigras. Meist- araflokkur félagsins hefur leyst þetta vandamál með þv( að æfa á grasbalanum fyrir framan blokkirnar (Vesturberginu ( Breiðholti. Án efa hafa aldrei eins margir áhorfendur verið á æfing- um félagsins, þv( Ibúar blokk- anna fylgjast spenntir meö og jafnvel horfa fleiri á æfingarnar heldur en á leiki félagsins! ... DrengJalandsllAIA (knatt- spyrnu hefur lokið keppni á Olympluleikum æskunnar og lenti (5. sæti eftir stórsigur á Ge- orgíu 8-3. Mörk Islands skoruðu Þorbjörn Sveinsson 3, Arngrlmur Arnarson 2, Lárus Long 2 og Rúnar Ágústsson 1.1 riðlakeppn- inni sigruðu (slendingar Lúxem- borgara 6-0, en töpuðu fyrir Hol- lendingum 0-2 og Úkralnu 1-2. ... LandsliA Kamerún, sem þekkt er fyrir að standa sig vel á HM (knattspyrnu, gæti lent (erf- iðleikum mað aö komast til Bandaríkjanna á HM næsta ár. Kamerún, sem sigraöi Argentínu (fyrsta leik HM 1990 1-0, er nú ( ööru sæti (slnum riðli (Afrlku- keppninni, stigi á eftir Gabon þegar tveir leikir eru eftir. Það eru tólf riölar (Afrlkukeppninni og efsta liöið úr hverjum riðli kemst áfram I úrslitakeppnina. Kamerún hefur tvisvar unnið Afríkutitilinn. ._ Benflca frá Portúgal, sem oft hefur verið Ifkt við stórlið eins og AC Milan, Real Madrid, Barcel- ona og Manchester United, er nú (miklum fjárhagskröggum og lík- legt er að liöiö þurfi að selja alla s(na bestu menn til aö komast hjá gjaldþroti. Benfica hefur varla getað borgaö leikmönnum laun og t.d. hefur Paulo Futre verið seldur frá félaginu eftir aðeins sex mánaða veru hjá fólaginu, en hann kom frá Atletico Madrid. ... Hökkvi Mir Jónsson, körfuknattleiksmaðurinn snjalli, hefur skrifað undir samning við UMFG, en eins og við greindum frá á þriðjudaginn, þá voru miklar Kkur á þvl að svo myndi fara. Ivar Ásgrlmsson og Einar Einarsson hafa skrifað undir samninga við nýliða Akraness 1 körfunni, eins og kom einnig fram (blaðinu á þriðjudag. Það má segja að and- stæöingar lA verði teknir á sál- fræðinni, þv( Ivar er langt kominn meö nám (sálarfræði I Háskólan- um! ... Vésteinn Hafsteinsson náði s(num besta árangri ( kringlukasti (ár, þegar hann kastaði 63.52 metra. Mótið fór fram I Helsingborg, en lágmarkið fyrir HM I Stuttgart er 63 metrar. Frjálsar íþróttir: Lið íslands í fjölþraut valið Lið íslands, sem tekur þátt í Evrópubikarkeppni í Qölþraut 10. og 11. júlí í Belgíu, hefur verið valið. Karlarnir taka þátt í tugþraut og þeir sem keppa eru: Ólafur Guðmurtdsson Sel- fossi, Auðunn Guðjónsson HSK og Friðgeir Halldórsson USAH. Konumar, sem keppa í sjöþraut, eru Þuríður Ingvars- dóttir Selfossi, Sunna Gests- dóttir USAH og Ingibjörg ívars- dóttir HSK. Karlalíðið mætir liðum Búlg- aríu, írlands, Portúgals og Sló- veníu. Kvennaliðið mætir lið- um frá Belgíu, írlandi og SI6- veníu. Hvert lið er skipað þremur einstaklingum og gild- ir samanlögð stigatala þeirra sem lokaútkoma iiðsins. Þjálf- ari liðsins í ferðinni verður Gfsli Sigurðsson. Mjólkurbikarkeppnin 16-liða úrslit: Valsmenn í kröppum dansi — mörðu sigur á UBK, 1-0 í framlengingu Valur-UBK 1-0 (0-0) Eftir jafnan leik náðu Valsarar að tryggja sigur sinn í framlengingunni þrátt fyrir að þeir léku einum færri í síðari hluta framlengingarinnar. Bikarmeistarar Vals voru meira með boltann í upphafi leiksins en samt fengu Blikar fýrsta færi leiksins þegar Willum Þór Þórsson skallaði rétt framhjá eftir homspymu Kristófers Sigurgeirssonar. Willum Þór Þórsson var aftur á ferðinni um miðbik hálf- leiksins þegar hann átti ágætis skot að marki Vals en Bjami Sigurðsson markvörður varði vel. Stuttu síðar varði Cardaklija vel fyrir UBK eftir skot Kristins Lárussonar. Amljótur Davíðsson átti hættulegasta færi Vals- manna í fyrri hálfleik þegar hann skallaði boltann í þverslá Blikanna eft- ir að Steinar Adolfsson hafði skallað inn í teiginn. Agúst Gylfason átti fyrsta verulega tækifæri seinni hálfleiks fyrir Val en skot hans úr miðjum vítateignum fór yfir. Sigurjón fékk hættulegasta færi UBK undir lok venjulegs tíma en Bjami Sigurðsson henti sér eins og köttur út í homið og varði glæsilega og var þetta síðasta færi leiksins. Leik- urinn fór því í framlengingu. Steinar Adolfsson skoraði þá eina mark leiksins með skalla og þá má segja að bikarheppnin hafi fleytt Vals- mönnum í 8-liða úrslit. Valsarinn Gunnar Gunnarsson fékk að Ifta rauða spjaldið í leiknum. Blikar voru ekki langt frá því að kom- ast áfram og frammistaða þeirra var mjög góð miðað við að Amar Grétars- son lék ekki með og Valur Valsson fór út af í fyrri hálfleik. ÍBK-Þór 1-0 (0-0) Fyrri hálfleikur ÍBK og Þórs var ekki vel leikinn. Liðin voru meira í því að sparka knettinum sín á milli heldur en á milli samherja og því urðu gæði spilamennskunnar lítil. Leikmenn tóku sig saman í andlitinu í seinni hálfleik og Páll Gíslason fékk fyrsta færið fyrir Þór á 52. mínútu þegar Ól- afur Gíslason hafði farið of langt út úr markinu en skot Páls fór framhjá. En það voru heimamenn úr Keflavík sem náðu forystunni á 63. mínútu. Gunnar Oddsson var þá staddur upp við víta- teig Þórs og lék þar á einn Þórsara og sendi boltann á Óla Þór Magnússon sem renndi boltanum undir Lárus Sigurðsson markvörð sem kom hlaup- andi út úr markinu. Þórsarar voru næstum búnir að gera sjálfsmark stuttu síðar en náðu að bjarga á línu og í hom. Þórsarar komu meira inn í leikinn eftir þetta og fengu tvö tæki- færi til að gera mark en Ólafur Péturs- son markvörður varði í bæði skiptin. Á 71. mínútu vildu Þórsarar fá víti þegar þeir héldu að einn vamarmaður Keflvíkinga hefði varið boltann á línu en Gylfi Orrason dæmdi ekki neitt. Hinum megin fékk Kjartan Einarsson dauðfæri á 80. mínútu eftir hræðileg vamarmistök vamarmanna Þórs en skot hans fór framhjá. Gunnar Oddsson var langbestur í liði ÍBK. Hann átti upphafið að flestum Valsmenn náAu að merja sigurá UBK f gærkvöldi. Ágúst Gylfason sem sést á myndinni átti ágætan leik fyrir Valsmenn. Timamynd Pjetur Háttvísiverðlaun KSÍ og VISA: IA og Valur prúðustu liðin — Kostic og Ragnheiður prúðustu leikmennirnir Knattspymusamband íslands hefur ákveðið, í samráði við VISA ísland, að veita þeim liðum og þeim leik- mönnum viðurkenningu, sem sýnt hafa framúrskarandi prúðan og drengilegan leik í fyrsta hluta ís- landsmótsins 1993 í Getraunadeild- inni og í 1. deild kvenna. Verðlaunin verða einnig veitt eftir miðbik móts- ins og svo eftir lokaumferðina. Að þessu sinni hlutu íslandsmeist- arar Skagamanna viðurkenningu fyrir prúðastan leik í liðakeppni karla, en Valsstúlkur í kvennaflokki. Luka Kostic ÍA og Ragnheiður Vík- ingsdóttir urðu fyrir valinu sem prúðustu leikmennimir. Ekki er nóg að vera prúður inni á vellinum til að hljóta einstaklingsverðlaunin, held- ur skiptir framkoma utan vallar líka miklu máli. Þessi mynd var tekin þegar verðlaunin voru afhent í gær. Frá vinstrí eru Þórður Jónsson frá VISA, Guörún Sæmundsdóttir Val, Luka Kostic ÍA, Ragnheiður Sæmundsdóttir Val, Guðjón Þórðarson ÍAog Eggert Magnússon, formaður KSÍ. Tímamynd Ámi Bjama sóknarlotum ÍBK en aðrir leikmenn voru ekki áberandi. Sveinbjöm Há- konarson var stórhættulegur í Þórs- liðinu og sá eini sem eitthvað gat í að- komuliðinu. Margrét Sanders ÍBV-KA 4-0 (1-0) Strekkingsvindur og rauð spjöld ein- kenndu þennan leik. Tveir leikmenn KA fengu að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik og Vestmannaeyingar tryggðu öruggan sigur í kjölfarið. KA-liðið fær því varla háttvísiverðlaun næst þegar þau verða afhent. Vestmannaeyingar léku undan sterk- um vindi í fyrri hálfleik og réðu þá að mestu ferðinni en náðu ekki að gera mark fyrr en á iokamínútum fyrri hálfleiks þegar Steingrímur Jóhann- esson skoraði eina mark hálfleiksins eftir góðan undirbúning Inga Sigurðs- sonar og var það vel eftir gangi leiks- ins þar sem ÍBV hafði verið ágengt upp við mark KA í töluverðan tíma þar á undan. Bjami Sveinbjömsson átti síðasta skot fyrri hálfleiksins en Haukur Bragason kom í veg fyrir að ÍBV bætti marki við fyrir leikhlé með góðri markvörslu. Það bar helst til tíðinda í upphafi seinni hálfleiks að Jóni H. Einarssyni var vikið af leikvelli eftir brot á Bjama Sveinbjömssyni sem var kominn einn í gegn. Fljótlega eftir þetta áttu KA- menn þrumuskot sem fór rétt yfir Eyjamarkið og hefði boltinn ekki þurft að vera mikið neðar til að hafna í net- inu. Ingi Sigurðsson bætti öðru marki ÍBV við á 76. mínútu eftir að hafa fengið stungusendingu. Ormarr Ör- lygsson hjá KA fékk síðan rauða spjaldið og þar með voru úrslitin end- anlega ráðin. Vestmannaeyingar voru þó ekki hættir og Steingrímur Jó- hannesson skoraði þriðja mark Eyja- manna og annað mark sitt í leiknum og Bjami Sveinbjömsson skoraði það fjórða og tryggði stórsigur ÍBV. ÍÞRÓTTIR UMSJÓN: KRISTJÁN GRÍMSSON Bikarkeppni kvenna: Stjarnan fékk Dalvík Það má segja að kvennalið Stjömunnar úr Garðabæ hafi dottið í lukkupottinn, þegar dregið var í undanúrslit í bikar- keppni kvenna. Stjarnan dróst á móti Dalvík, sem leikur f 2. deild, og Stjaman ætti að vera örugg í úrslitaleikinn, en leik- urinn fer fram á Dalvík. Hinn undanúrslitaieikurinn er viður- eign stórliðanna UBK og ÍA, sem fer fram f Kópavogi. Leik- irnir eru áætlaðir þann 28. júlí. í kvöld Knattspyma 2. deild karla ÍR-BÍ k!.20 2. deild kvenna Reynir S.-BÍ kl. 20 3. deild karla Selfoss-Völsungur kl. 20 Haukar-Skallagrímur kl. 20 Dalvík-Reynir S. kl. 20 4. deild karla Ægir-Hafnir kl. 20 Njarðvík-Leiknir R. kl. 20 Þrymur-KS kl. 20

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.