Tíminn - 09.07.1993, Qupperneq 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELU 13-SlMI 73655
abriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
GJvarahlutir
Hamarshöfða 1
Mikil eftirspum eftir húsnæði í Kópavogi:
Land í Kópavogi
bráðum uppurið
Sala íbúða í Smárahvammslandi í Kópavogi gengur mjög vel og
eru fáar lóðir eftir. Birgir Sigurðsson, skipulagsstjórí hjá Kópa-
vogsbæ, segir að úthlutað hafi veríð jafnmiklu jarðnæði í landi
Kópavogsbæjar og allra hinna sveitarfélaganna á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu til samans.
í Smárahvammslandi eru tvö
hverfi, annað í Kópavogsdal en hitt á
Nónhæð. Engar lóðir eru á lausu í
Kópavogsdalnum en á Nónhæð eru
innan við 10 lóðir enn eftir.
Nokkur fyrirtæki keyptu land í
Kópavogi á sínum tíma: Hagkaup,
Ikea og Byko keyptu eitt landsvæði,
Frjálst framtak keypti annað og Toy-
ota það þriðja.
Hagkaup, Ikea og Byko hafa frestað
framkvæmdum á lóð sinni sem er
10 hektarar en eins og kunnugt er
var ákveðið að Ikea skyldi flutt í hús-
næðið þar sem Miklagarður var áð-
ur.
„Þetta kemur sér illa fyrir alla en
svona er bara þjóðfélagið í dag. Það
eru viðræður í gangi við þessa aðila
um hvemig þeir ætli að haga fram-
kvæmdum og það er til samningur
milli bæjarins og þessara aðila um
að framkvæmdum skuli lokið árið
1995,“ segir Birgir.
Hann hyggst halda fund með eig-
endum fyrirtækjanna þriggja um
framkvæmdir á landinu um miðjan
þennan mánuð.
Vegna þess hve sala jarða hefur
gengið vel hjá Kópavogsbæ er þegar
hafin skipulagning svæðis austan
Reykjanesbrautar við hesthúsin.
„Þar sjáum við fyrir okkur 3500
manna byggð. Hönnun gatna hefst
líklega í haust og ekki er útilokað að
úthlutun fari fram öðru hvoru meg-
in við áramót. Kópavogsbær er satt
að segja að verða lóðalaus sem er
náttúrulega slæmt," segir Birgir. Að
undanförnu hefur Frjálst framtak
auglýst til sölu skrifstofuhúsnæði í
tveimur húsum í Miðjunni sem fyr-
irtækið hefur byggt í samstarfi við
Faghús hf.
„Það hefur komið okkur skemmti-
lega á óvart hvað það er mikill áhugi
á þessu húsnæði miðað við það
kreppuástand sem ríkir. Þegar hafa
borist nokkur tilboð og einn eða
tveir samningar frágengnir," segir
Magnús Hreggviðsson hjá Frjálsu
framtaki.
Húsin eru tvö og er annað þeirra
þegar tilbúið en hitt er ennþá í
smíðum.
-GKG.
FOSSINN EIÐROFI er allsérstæður foss. Hann gín yfir Djúpuvík á
Ströndum sem eltt sinn var mikið sfldarpláss og athafnastaöur en lagðist í
dvala þegar síldin hvarf.
Nú er hins vegar farið að lifna yfir Djúpuvfk þvf hún er undir það sföasta
farin að seiða til sín feröamenn. Agætt hótel er nú rekiö f „Kvennabraggan-
um“ sem eitt sinn hýsti sfldarstúlkur. Timamynd GKG
Síldarverksmiðjur ríkisins orðnar að hlutafélagi. Ríkið á allt hlutaféð:
SR verður SR-mjöl
Stofnað hefur verið nýtt hlutafélag á Siglufirði um rekstur Síldar-
verksmiöja ríkisins og heítir það SR-mjöl hf. Félagið tekur viö
rekstrí verksmiöjanna 1. ágúst nk. Allt hlutafé SR-mjöls, 650 millj-
ónir króna, verður í eigu ríkisins og sjávarútvegsráðherra fer meö
eignarhlut þess í félaginu.
SR-mjöl yfirtekur rekstur Síldar-
verksmiðja ríkisins sem er á fimm
stöðum á landinu; Skagaströnd,
Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði
og Reyðarfirði auk vélaverkstæðis
á Siglufirði. Heimili og vamarþing
nýja félagsins verður á Siglufirði.
Hlutafélagið er stofnað í sam-
ræmi við Iög sem samþykkt vom á
Alþingi sl. vor. Fastráðnir starfs-
menn SR hafa samkvæmt lögun-
um rétt til starfa hjá SR-mjöli og
skal bjóða þeim sambærileg störf
sem þeir áður gegndu.
Á stofnfundi SR-mjöls vom kosin
í stjórn þau Amdís Steinþórsdóttir
Reykjavík, Arnar Sigurmundsson
Vestmannaeyjum, Hermann
Sveinbjörnsson Reykjavík, Pétur
Bjarnason Akureyri og Þórhallur
Arason Reykjavík. Á fyrsta stjóm-
arfundinum var Arndís Steinþórs-
dóttir kosin formaður stjórnar.
—sá
IfTTi
Vinn ngstölur , — miövikudaqinn: 7. júlí 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
El 63,6 2 / á (slandi 0 25.154.000.-
BV 5 af 6 LÍB+bónus 0 1.126.080.-
3 5af6 3 99.611.-
H 4af6 293 1.622,-
n 3 af 6 fj+bónus 953 213.-
Aðaltölur:
Heildarupphæð þessa viku:
27.257.148.-
áísi : 2.103.148.-
UPPLVSINGAR, SlMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 -TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
.ERLENDAR FRETTIR...
DENNI DÆMAL AUSI
TÓKÝÓ
3 milljarðar dollara til Rússa
Auöugar iðnaöarþjóöir hafa sett á fót
3 milljarða dollara sjóð til aö létta und-
ir meö einkavæöingu stórra rlkisfyrir-
tækja I Rússlandi og hraöa umbreyt-
ingu efnahagslifsins frá kommúnisma
til kapitalisma, aö sögn háttsettra
bandarlskra embættismanna I gær.
TÓKÝÓ —Bóris Jeltsin forseti kom
til Tókýó til aö taka viö boöum um lán
frá leiötogum heimsins, en sagði aö
Rússland myndi sjálft vinna til stööu
sem „stórrlki" I heimsmálum.
TÓKÝÓ — Franski utanrlkisráöherr-
ann Alain Juppe sló á sæluvlmu við-
skiptafélaga sinna meö þvl aö itreka
aövörun um aö ný lota GATT-viö-
ræöna I Genf þýöi að brjóta veröi upp
viöskiptasamning Bandarikjanna og
Evrópubandalagsins um landbúnaö-
arvörur.
BELGRAD
Tíminn að renna út
Tlminn fyrir málamiölunarsamninga
um borgarastrföiö I Bosnlu er aö
renna út og takist ekki aö ná samn-
ingum gætu bardagamir oröiö grimmi-
legri, sagöi Thorvald Stoltenberg, al-
þjóölegur friðarsáttasemjari, I gær.
TÓKYÓ — Leiötogar helstu iönrlkj-
anna sjö (G7) hótuöu ótilgreindum
strangari aögeröum gegn Serbum og
Króötum ef þeir búta niöur Bosnlu án
samþykkis múslima.
GENF — Heilbrígöisstofnun Samein-
uöu þjóöanna (WHO) sagöi aö sjúkra-
húsþjónusta I Sarajevo væri I þann
veginn aö hrynja saman og varaöi viö
þvi aö hörmuleg ógæfa blasti viö
borginni I þeim mæli sem ekki heföi
sést I Evrópu „siöan á dimmum dög-
um sföari heimsstyrjaldar'.
SARAJEVO — Sarajevo er I þann
veginn að veröa hörmungum aö bráö
og ekkert annaö getur komiö til bjarg-
ar en skjótar aögeröir S.þ. til að koma
aftur á orkuflutningi til höfuöborgarinn-
ar, aö sögn fimm alþjóölegra hjálpar-
stofnana.
KAlRÓ
Sjö herskáir múslimar
hengdir
Sjö herskáir múslimar, sem herdóm-
stóll I Egyptalandi sakfelldi fyrir árásir
á erienda feröamenn og samsæri um
að steypa rikisstjóminni, vom hengdir
I gær I fangelsi I Kalró. Þetta er
stærsti hópur fólks sem tekinn er af llfi
fyrir stjómmálaglæpi I landinu nú á
tlmum.
TBLISI
Þyrla með flóttamönnum
skotin niður
Frá ráöamönnum I Georgfu bámst
þær fréttir I gær að 20 farþegar og
þriggja manna áhöfn heföu látiö lífiö
þegar uppreisnarmenn Abkhaza
skutu niöur þyriu sem flutti flóttamenn
I aðskilnaöarhéraöinu við Svartahaf.
KATLEHONG, Suöur-Afriku
Inkatha og ANC reyna að
stöðva blóðbað
Hatrömmu andstæöingamir Inkatha
frelsisflokkurinn og Afríska þjóóarráö-
ið tóku I gær höndum saman og
reyndu aö stööva ofbeldi vegna
stjómmála I bæjum blakkra I grennd
viö Jóhannesarborg, þar sem 95
manns hafa veriö drepnir á viku.
LAGOS
Lífið gengur aftur sinn
vanagang í Lagos
Llfiö gekk aftur sinn vanagang I Lag-
os I gær eftir aö stjómmálamenn
komu sér saman um bráöabirgöarlkis-
stjóm til aö binda enda á óeiröir sem
lömuöu stærstu borg Nígeríu I þrjá
daga. Óháö dagblöö hermdu aö 75
manns heföu látiö llfiö og miklu fleiri
hlotið meiösl I berserksganginum.
BAGDAD
írakar hafa lokið förgun
efnavopnaútbúnaðar
Irösk yfirvöld hafa loks hlýtt kröfum
Sameinuðu þjóöanna og lokiö við aö
eyöileggja útbúnaö til aö búa til efna-
vopn aö sögn háttsetts vopnaeftiriits-
manns S.þ. I gær.
Jkf hverju eru allir lögregluþjónar I eins fötum?“
„Það er til þess að þeir handtaki ekki hver annan
þegar þeir brjóta lögin.u