Tíminn - 13.07.1993, Síða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 13. júlí 1993
Umsækjandi óhæfur til að
kjósa í úthlutunarnefnd
„Stjómarmaður Kvikmyndasjóðs,
sem ákveðið hefur að sækja um fé
úr sjóðnum, er ekki hæfur til þess
að taka þátt í kosningu manna í út-
hlutunamefnd Kvikmyndasjóðs."
Þetta er ein af niðurstöðum í álits-
gerð varðandi starfsreglur um út-
hlutanir úr Kvikmyndasjóði ís-
lands, sem samin var á vegum Lög-
fræðistofnunar H.í. að ósk fram-
kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs.
Lagastofnun fól þeim Birni Þ. Guð-
mundssyni prófessor og Páli
Hreinssyni, aðstoðarmanni um-
boðsmanns Alþingis, að semja álit-
ið. í niðurstöðum eru raktar ástæð-
ur sem koma í veg fyrir að Iq'ósa
megi menn í úthlutunamefndina
og sömuleiðis ástæður sem geta
gert nefndarmann vanhæfan til
veitingar fjár úr sjóðnum. Ríkis-
endurskoðun vitnar til álitsgerðar-
innar í skýrslu sinni um Hrafn
Gunnlaugsson. Álitsbeiðnin varðar
nefnd þá sem úthlutar fjármunum
Kvikmyndasjóðs, sem fjallað er um
í 6. gr. laga frá 1984 um kvik-
myndamál. Lagagreinin er svo-
hljóðandi:
„Úthlutun úr Kvikmyndasjóði ann-
ast þriggja manna nefnd, kosin af
stjóm sjóðsins, og mega nefndar-
menn ekki eiga hagsmuna að gæta
við úthlutunina. Nefndarmenn
skulu kosnir árlega og nánari reglur
settar um kosningu þeirra og starfs-
svið í reglugerð."
Þetta er eina lagaákvæðið um út-
hlutunamefndina. Og nánari reglur
vantar ennþá því reglugerðina sam-
kvæmt iagaákvæðinu hefur ráð-
herra aidrei sett.
Um atriði sem álitsgjafar segja að
komi í veg fyrir kjörgengi í úthlut-
unamefndina segir svo: Ekki má
kjósa í úthlutunamefndina menn
sem:
a) vitað er að muni sækja um fé úr
sjóðnum.
b) sem em skyldir eða tengdir þeim
sem vitað er að muni sækja um fé úr
sjóðnum.
c) að öðm leyti hafi einstaklegra
fjárhagslegra hagsmuna að gæta af
úthlutun úr sjóðnum.
Óvináttan skal sann-
anleg...............
Um ástæður vanhæfis segir svo:
Nefndarmaður er vanhæfur til með-
ferðar máls og ákvörðunar um veit-
ingu fjár úr sjóðnum, ef hann:
a) er skyldur eða mægður
umsækjanda svo náið sem systk-
inabam eða nánar.
b) er fyrirsvarsmaður umsækjanda.
c) er óvinur umsækjanda.
d) hefúr einstaklegra fjárhagslegra
hagsmuna að gæta af fjárveitingu úr
sjóðnum.
Hvað óvináttu við umsækjanda
varðar segir að svo óvinátta valdi
vanhæfi verði að vera um að ræða
einhverjar sannanlegar hlutlægar
ástæður sem almenn verði taldar til
þess fallnar að draga megi óhlut-
drægni nefndarmanns í efa. Að um-
sækjandi álíti úthlutunarnefndar-
Kálfur snaraöur með relöhjólsdekkl. Úr heimlldakvlkmyndlnnl Kúrekar noröurslns.
mann sér fjandsamlegan sé ekki
næg ástæða.
Síðan segir: „Verði neftidarmaður
úthlutunamefndar vanhæfur ber
honum að víkja sæti við úthlutun
umrætt ár og varamaður hans að
taka sæti." Uthlutunamefnd skuli
úrskurða um sérstakt hæfi nefndar-
manns og megi hann taka þátt í at-
kvæðagreiðslu þar sem afl atkvæða
ráði úrslitum.
í álitinu segir jafriframt, að í gild-
andi lögum sé æskilegt að hæfis-
reglur verði settar í reglugerð. Verði
lög um Kvikmyndasjóð endurskoð-
Bruni í Mosfellsbænum:
Maðurléstaf reykeitrun
Kl. 19:23 að kvöldi sunnudags barst slökkviliðinu í Reykjavík til-
kynning um að reyk legöi úr húsinu Sótvöllum við Reykjaveg I
Mosfellsbæ. Þaö er steinhús á einni hæö með kjallara.
Þegar að var komið var húsið orðið
fúllt af reyk. Nágranni kom með
lykla og hleypti slökkviliðinu inn í
húsið. Reykkafarar komu fljótlega að
fúllorðnum manni liggjandi á gólf-
inu og bám hann út þar sem læknir
úrskurðaði hann látinn.
Eldur var ekki verulegur og virðist
hann hafa komið upp í frystikistu í
kjallara og borist þaðan í vegg og
loft. Var eldurinn slökktur og húsið
reykræst. -GKG.
uð væri til bóta að setja nánari
ákvæði um hæfnisskilyrði nefndar-
manna í lögin sjálf.
Hæfnisreglur og
Óskráð regla
Við úrlausn þessa verkefnis segja
álitsgjafar fyrst og fremst reyna á
hæfisreglur um stjómsýsluhafa
(stjómvald) samkvæmt stjómsýslu-
rétti. En þær fjalli um hin lagalegu
lágmarksskilyrði sem starfslið
stjómsýslunnar þurfi að uppfylla til
þess að fara með opinbert vald. f lög-
um finnist einnig neikvæðar hæfis-
reglur. Og einnig almenn óskráð
regla, sem í áliti umboðsmanns Al-
þingis sé þannig orðuð:
„Ganga verður út frá því, að sú
grundvallarregla gildi um almennt
hæfi nefndarmanna í opinberum
nefndum, að ekki skuli skipa þá
menn til nefndarsetu, sem annað
hvort er fyrirsjáanlegt að verði oft
vanhæfir til meðferðar einstakra
mála eða gegna stöðu, sem vegna
ákveðinna tengsla við nefndina veld-
ur sjálfkrafa að þeir geta ekki talist
hæfir til að fjalla um sömu mál í
báðum störfum."
Áberandi hvað Hrafn
varðar...
í niðurstöðum Ríkisendurskoðun-
ar segir m.a.: „Fyrir liggur að ein-
stakir stjómarmenn í Kvikmynd-
sjóði hafa tekið þátt í skipun manna
í úthlutunarnefnd þrátt fyrir að þeir
hafi sótt um eða ætlað sér að sækja
um styrki úr sjóðnum. Þetta er
áberandi hvað Hrafn varðar, sem
þarf reyndar ekki að koma á óvart í
ljósi þess hve oft hann hefur sótt um
styrki til sjóðsins á sama tíma og
hann sat í stjóminni....".
Hrafn Gunnlaugsson hefur setið í
stjóm Kvikmyndasjóðs síðan 1984. í
skýrslunni kemur fram að Hrafn
hefúr fengið úthlutað styrkjum úr
sjóðnum til stærri verkefna á hverju
ári frá því að úthlutanir hófust árið
1979, að undanskyldum þrem ámm,
1989, 1991 og 1993. Tvö þau fyrr-
nefndu þessara ára (1989 og 1991)
fékk Hrafn þó smærri styrki úr
sjóðnum, ferðastyrki og styrk til
námskeiðs í kvikmyndagerð. Sam-
tals nema styrkir Hrafns um 91,5
milljónum kr. reiknað á verðlagi
þessa árs.
Verðkönnun á framköllun,
stækkun Ijósmynda og
Ijósmyndafilmum:
numið allt
MikfU munur er i verði á fram-
köllun og stækkun Ijósmynda á
mllli fyrirtækja sbr. könnun
sem Samkeppnisstofnun hefur
gert á verði bjá 29 fyrirtækjum
i höfuðborgarsvæðinu og 5 á
landsbyggðinnL
Bónusframköllun Depluhólum
5 er með lægsta verðið á fram-
köllun og stækkun en híesta
verðið var hjá Framköllun á
stundinni, Ármúla 30 og og
verslunum Hans Petersen, Lita-
seli, Austurstræti 6 og Mynda-
smiðjunni.
Framköllun á 12 mynda filmu
og stækkun mynda miðað við 10
x 15 cm kostar 763 þar sem hún
er dýrust en 435 þar sem hún er
ódýrust Munurinn nemur 75%.
Bónusframköllun er jafnframt
með lægsta verðið á eftirtökum
eða 145 kr. fyrir hverja mynd
sem er 13x18. Ljósmyndabúðin
Sunnuhlíð Akureyri er raeð
hæsta verðið eða 250 kr. Munur-
inn er 72%.
38% munur er á lægsta og
hæsta verði á 24 mynda Kodak
Gold ljósmyndafilmu. Ódýrust
er filman hjá Radíóvirkjanum,
Borgartúni 22, þar sem filman
kostar 370 kr. en í Kyrr-mynd
Höfðabakka 1 kostar hún 510 kr.
-GKG.
Æskulýðssamband kirkjunnar
í Reykjavíkurprófastdæmi
býður bömum upp á:
Sumar-
búöir í
borg
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastdæmi býður upp á
sumarbúðir í borg fyrir böm á aldrin-
um 6-12 ára, dagana 19.-29. júlí.
Sumarbúðimar verða haldnar í Ár-
bæjarkirkju en undanfarið hafa þær
verið haldnar f Heiðarskóla í Borgar-
firði.
Meðal þess sem á dagskrá verður í
búðunum em leikir, söngur, fræðslaa,
smíði og helgihald. Auk þess verður
farið í sund og í stuttar ferðir. -GKG.
Alþjóðlegt kvenskátamót í
Danmörku:
Tekist á
við breytt-
an heim
Alþjóðlegt kvenskátamót var sett 1.
júlí í Danmörku og sitja rúmlega
500 skátar mótið frá 112 löndum.
Aðalverkefni mótsins er að móta
stefnu fyrir starfið næstu 3 árin og
er lögð áhersla á fræðslu og þjálfun
til að takast á við breyttan heim.
Frá Bandalagi íslenskra skáta fóru
þrír þátttakendur á mótið, þær Anna
Sverrisdóttir, Hafdís Ólafsdóttir og
Guðrún Nikulásdóttir. -GKG.