Tíminn - 27.10.1993, Side 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 27. október 1993
Framsóknarfélag Sandgerðis
heldur aðalfund (Verkalýðshúsinu 28. okt W. 20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing. ðnnur mðl.
Sgtfmto
Aðalfundur Framsóknarfélags
Seltjamamess
Aðalfundur Framsóknarfélags Seltjamamess veröur haldinn föstudaginn 29. okt
nk. Id. 20.30, að Melabraut 5, Seltjamamesi.
Á dagskrá eru venjuleg aöalfundarstörf og kosning fulltrúa á Kjördæmisþing.
Framsóknarfélag SeMjatnamess
Miðstjómarfundur SUF
verður haldinn 5. nóvember og hefst klukkan 18.00. Fundarstaður og dagskrá
fundaríns veröa auglýst slðar. Framkvæmdasyóm
AðaHundur miðstjómar
Aðalfundur miðstjómar Framsóknarflokksins verður haldinn dagana 5. og 6.
nóvember 1993. Fundarstaöur er Borgartún 6 I Reykjavlk og hefst fundurínn
föstudaginn 5. nóvember kl. 20.30.
FramsóknarHokkurinn
34. kjördæmisþing
framsóknarmanna á
Austuríandi
Haldiö ð Fðskrúðsfiröi dagana 29.-30. október 1993.
Dagskrð:
Föstudagur29. október
Kt 20.00 Þingsetning
Kl. 20.05 Kosning þingforseta og rítara,
kosning kjörbréfanefndar og nefndanefndar.
Kl. 20.15 Skýrslur og reikningar.
a) Skýrsla stjómar KSFA.
b) Skýrsla Austra.
c) Frð aöildarfélögum KSFA.
d) Umræður um skýrslur.
Kl. 21.45 Avörp gesta.
Kl. 22.10 Stjómmálaviöhorlið:
Steingrfmur Hermannsson,
Halldór Ásgrímsson,
Jón Kristjánsson.
Almennar umræöur.
Laugaidaaur 30. október
Kl. 09.00 Alit nefndanefndar.
XI. 09.05 Mál lögð fyrír þingið.
a) Drög að stjómmálaályktun.
b) Drög að flokksmálaályktun.
c) Framtfð (slenskrar matvælaframleiðslu.
Framsögumenn:
Jón Guðmundsson framkvæmdastjóri,
Jón Þóröarson deildarstjórí og
Jón Erlingur Jónasson fulltrúi.
Kl. 10.30 Nefhdastörf.
Kl. 12.00 Matarhlé.
XI. 13.30 Nefndir skila álití - umræður - afgreiðsla.
Kl. 16.00 Kosningar.
W. 17.00 Þingslit
Gestír þingsins:
Steingrímur Hermannsson, form. Framsóknarfl.
Siguröur Sigurðsson, formaður SUF.
Egill Heiðar Gislason, framkv.stj. Framsóknarfl.
Kristjana Bergsdóttír, formaður LFK.
jflú' Félag
framsóknar
J1 WtimS'mH kvenna í
Reykjavík I *
Sigmn Slv
Munið fundinn mánudagskvöldið 1. nóvember kl. 20.301 flokksskrífstofunni við
Lækjartorg.
Fundarefni: Hvað er framundan?
Sigrún Magnúsdóttír, borgarfulltrúi I Reykjavfk, og Siv Fríðleifsdóttír,
bæjarfulltrúi ð Seltjamamesi, ræða sveitarstjómarmál á breiðum grunni.
Takið með ykkur gestí. Stjómki
Mosfellsbær — Félagsvist
— 3ja kvölda keppni
Framsóknarfélag Kjósarsýslu heldur félagsvist I samkomusal félagsins að Há-
holtí 14, Mosfellsbæ, föstudagana 29. okL, 5. nóv. og 12. nóv. Id. 20.30 hvert
kvöld.
Verðlaun veitt eftír hvert kvöld. Heildarverðlaun: Iríandsferð.
Spilastjóri: Agúst Óskarsson. Stjórrki
Ragnar V. Björgvinsson
Valgerður Sveinsdóttir
HISnHMltMOmil
Langholl II • 801 Selfoss • lceland
Tel: 354 (9)8-21061
Fox: 354 (9)8-23236
- HESTAFERDIB - SALA
TOURS-
70 ára:
Jón Hjörleifur Jónsson
Ég frétti um daginn að í þessum
mánuði verður Jón Hjörleifur Jóns-
son kennari 70 ára. Þótt ég geti ekki
rakið ætt hans og uppruna, langar
mig til að skrifa fáein orð til að
minnast gamals og góðs vinar og
fyrrverandi kennara. Jón Hj., eins og
hann er venjulega kallaður, er ætt-
aður af Norðurlandi. Ungur að árum
fór hann „suður" og settist að á Suð-
vesturlandi. Hann stundaði nám við
Kennaraskóla íslands. Hann fór líka
til frekara náms í Bandaríkjunum og
var þá á Atlantic Union College í
Massachusetts-ríki á austurströnd
landsins. Þegar hann var þar, kynnt-
ist hann eiginkonu sinni, Sólveigu
Ásgeirsson, en faðir hennar var
bróðir Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrver-
andi forseta íslands. Enda þótt Sól-
veig væri borin og uppalin í Banda-
ríkjunum, var hún íslensk í allar
ættir og hinn besti kvenkostur
sanns íslendings sem Jón Hj. er. Þau
giftust og fluttust til íslands. Varð
Jón stundakennari á Hlíðardalsskóla
í Ölfusi í Árnessýslu. Kenndi hann
m.a. tungumál og málfræði og krist-
in fræði. Sólveig kenndi vélritun og
var hún einnig hjúkrunarkona skól-
ans, en hún er hjúkrunarfræðingur
að mennt. Hún spilaði einnig undir
fyrir kórinn, sem Jón venjulega
stjómaði, en hann hefur alltaf verið
í tónlist af ýmsu tagi og er hann af-
bragðs tenórsöngvari.
Ég kynntist Jóni fyrst 1958, þegar
ég fór fjórtán ára gamall í gagn-
fræðaskólann að Hlíðardal. Mér leist
vel á Jón frá því við fyrstu sýn. Þar
var smávaxinn, kraftalegur og
snaggaralegur maður, sem var
snöggur í hreyfingum, og manni
fannst að hann vissi alltaf hvert
halda skyldi. Hann var dálítið ráð-
ríkur, eins og margir íslendingar
eru, og vildi jaftian fara sínu fram.
Ég man vel eftir þegar hann sat
stundum yfir nemendunum í lestr-
arstund í kennslustofunum og var
að gæta að því að þeir gerðu heima-
verkefnin sín. Stundum var hvíslast
á, en því lauk fljótlega þegar Jón,
sem sat við kennaraborðið, þrum-
aði: „Þögn á salnum please."
Fyrsta árið mitt á Hlíðardalsskóla
var það ánægjulegt að deila herbergi
með fjómm öðmm strákum niðri í
kjallara í kennarabústað Jóns og
Sólveigar. Það er vel hægt að
ímynda sér að fimm 14-15 ára strák-
ar, sem em í sama herbergi, geta
braskað í hinu og öðru, sem ekki er
í frásögur færandi. Man ég nöfn
þeirra vel, enda þótt það séu yfir 35
ár síðan. Kumpánamir vom þeir
Jón Holbergsson sem býr nú í Hafn-
arfirði, Heiðar Reykdalsson sem býr
í Seattle, Washington, USA, Henrý
Stefánsson sem býr í Florida, USÁ,
Guðni Friðbergsson sem býr í Ósló,
Noregi, Karl Vignir Þorsteinsson
sem býr í Reykjavík, og ég. Þau vom
ófá skiptin, sem Jón þurfti að koma
niður í kjallara og þagga niður í
okkur og þá dugði: „Þögn í herberg-
inu please.“
Þeir okkar sem vom á HDS, eins og
Hlfðardalsskóli er venjulega kallað-
ur, minnast ömgglega með mikilli
ánægju okkar kynna við Jón Hj. og
Sólveigu. Jón var alltaf framfara-
samur og leit alltaf fram í tímann.
Einu sinni var hann að spekúlera í
þvf að ef það væm nokkurs konar
járbrautarteinar, sem væri hægt að
setja upp á veggina hringinn í
kennsiustofunni, þá gæti hann haft
nokkurs konar sófa sem hann gæti
legið á og ferðast svona um alla
kennslustofuna, heldur en ganga
milli borða nemenda. Já, dagar mín-
ir á HDS em alltaf geymdir í minn-
ingunni með tregablandaðri
ánægju. Þar fór maður í skóla með
unglingum, sem létu seinna til sín
taka á Islandi. Get ég minnst á Garð-
ar Cortes ópemsöngvara og Hákon
(Konna) Waage, sem seinna varð
leikari.
Minnist ég einnig annarra kennara,
sem kenndu með Jóni, þeirra Sig-
urðar Bjarnasonar, Theódórs Guð-
jónssonar, séra Helga Sveinssonar,
Björgvins Snorrasonar og fleiri. Ég
á persónulega Jóni Hj. og hinum
kennumnum mikið að þakka frá
fjögurra ára dvöl minni á HDS.
Jóni og Sólveigu varð fjögurra
bama auðið, 3 stúlkna og 1 drengs.
Em þau öll uppkomin og hin mann-
vænlegustu í hvívetna, eins og þau
eiga kyn til.
Jón starfaði mestan sinn starfsald-
ur í þágu aðventistasafnaðarins á ís-
landi, ekki aðeins sem kennarí f
Hlíðardalsskóla heldur einnig sem
skólastjóri, safnaðarprestur og í
ýmsum öðmm mikilvægum og
ábyrgðarríkum safnaðarstörfum. ÖIl
þessi störf leysti hann af hendi með
sóma, eins og venjulega. Á síðari ár-
um hafa Jón og Sólveig átt sitt
heimili á Reykjavíkursvæðinu. Ég
hefi heyrt að venjulega sé mann-
margt hjá þeim, enda er norðlensk
og íslensk gestrisni í hávegum höfð.
Ég óska ykkur báðum, Jón og Sól-
veig, hjartanlega til hamingju með
þennan kafla lífs og tíma og Guðs
ríkulegu blessunar á komandi ámm.
Ég tek svo undir með vestur- ís-
Ienska skáldinu honum K.N. Júlíus,
„Káinn", sem sagði eftirfarandi:
Engum leiðist, þó égþagni,
þörf er ekki meira að segja;
fáum varð mín fyndni að gagni,
flestir vilja sjá mig þegja.
Óðum þverrar andans kraftur,
eftir langar nœturvökur;
bráðum verð ég ungur aftur,
yrki fleiri og betri stökur.
Númi, í Moberley,
Missouri, USA
Kennslubók
í manntafli
Skák og mát! nefnist ný kennslu-
bók í manntafli, sem Fjölvi gefur út.
Hún hefur inni að halda alhliða leið-
sögn í skáklistinni, og telur höfund-
urinn Jón Þ. Þór að hún eigi að vera
nokkuð jafnt gagnleg fyrir alla ald-
ursflokka, því að þar er greint jafnt
frá einföldustu undirstöðuatriðum
og farið út í að útskýra ítarlega
margvíslegar byrjanir og fléttur.
Höfundur kveðst hafa samið bók-
ina, þar sem nú sé nokkur vöntun á
slíkri bók í tómstundastarfi og nám-
skeiðum, því að eldri bækur em
uppseldar.
Saman við kennsluna er blandað
ýmsum upplýsingum um sögu skák-
íistarinnar, sýndar og útskýrðar
skákir fremstu meistara á ýmsum
tímum, gerð yfirlit yfir heimsmeist-
arakeppni og Ólympíuskákmót frá
upphafi og sagt frá þátttöku íslend-
inga í þeim, sem og yfirlit yfir ís-
landsmeistara frá upphafi.
Bókin Skák og mát! er 144 bls. og
skiptist í 35 kafla. Auk ítarlegra lýs-
inga á skákbyrjunum, baráttu um
miðreiti, sóknum og yfirburðum á
væng og hinum ólíku endatöflum,
er þar að finna skákasöfn og skák-
þrautir. í bókinni eru um 125 stöðu-
myndir, unnar með nýrri tækni í
Jón Þ. Þór.
tölvum, miklu skýrari en venjulegt
er. Bókin er unnin í G.Ben Prent-
stofu. Kápu gerði Jean Posocco,
frankur listamaður búsettur hér á
landi.
(Fréttatilkynning)
Ný kennslubók í efnafræði
Mál og menning hefur gefið út
bókina Almenn efnafræði II —
Efnahvörf, eftir Hafþór Guðjóns-
son. Bókin er ætluð til efnafræði-
kennslu í framhaldsskólum og er
sjálfstætt framhald af bókinni Al-
menn efnafræði — Efriin og um-
hverfið, sem Mál og menning hef-
ur áður gefið út.
Megininntak bókarinnar er efría-
hvörf og útreikningar sem þeim
tengjast. Höfundur leitast við að
tengja efnafræðina sem best við
atriði úr nánasta umhverfi nú-
tímafólks. Grunnhugtökin, sem
bókin fjallar um, eru iðulega skýrð
í sögulegu ljósi, þannig að nem-
endur fá nokkra innsýn í sögu
efnafræðinnar. Bókin er búin ara-
grúa verkefna og lausnimar em
birtar í bókarlok. Með því að leysa
verkefnin jafnóðum geta nemend-
ur sjálfir sannreynt hvort þeir hafi
náð tökum á efninu. Fjölmargar
skýringarmyndir em í bókinni og
ýmsar gagnlegar töflur er að finna
í sérstökum viðauka.
Bókin er 204 bls., unnin í Prent-
smiðjunni Odda hf. Þorgerður
Hlöðversdóttir vann flestar skýr-
ingarmyndirnar.
(Fréttatilkynning)