Tíminn - 27.10.1993, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 27. október 1993
Tíminn 9
DAGBÓK
Karlakórinn Fóstbræóur í tónleikaferó um Vesturland
Karlakórinn Fóstbræður heldur í tónleikaferð um Vesturland um naestu helgi, 29.-31.
október. Kórinn mun halda fema tónleika á nokkmm stöðum á Vesturlandi þessa
daga.
Fyrstu tónleikar kórsins verða í Dalabúð, Búðardal, föstudaginn 29. október kl. 20.30
og á laugardag 30. október syngur kórinn í Ólafsvíkurkirkju kl. 15 og í Stykkishólms-
kirkju kl. 20.30.
Síðustu tónleikar kórsins á þessari söngferð verða í Logalandi, Borgarfirði, kl. 16 á
sunnudag, en þeir tónleikar eru á vegum Tónlistarfélags Borgaríjarðar.
Stjómandi Fóstbræðra er Ámi Harðarson píanóleikari, en hann hefúr stýrt kómum
undanfarin ár. Undirleikari kórsins í ferðinni er Bjami Þ. Jónatansson, píanóleikari og
tónlistarkennari við Nýja Tónlistarskólann. Að þessu sinni er einnig með í för kórsins
Þorgeir J. Andrésson óperusöngvari, en hann syngur einsöng með kómum og einnig
flytur hann nokkur einsöngslög við undirleik Bjama. Auk Þorgeirs syngja nokkrir kór-
félagar einnig einsöng með kómum.
Efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt, bæði af sígildum íslenskum karlakórslögum
sem og af efni eftir erlenda höfunda. Kórinn mun m.a. flytja nokkur lög úr kvikmynd-
inni „Karlakórinn Hekla", en Fóstbræður lögðu til allan söng „kórsins" í myndinni.
Breiðfhröingafélagiö
Félagsvist á morgun, fimmtudag 28.
október, kl. 20.30 f Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14. Allir velkomnir.
Áttunda Náttúruvemdarþing
Athygli er vakin á að áttunda Náttúru-
vemdarþing verður haldið á Hótel Loft-
leiðum 29. og 30. október. Á þinginu
verður lögð fram skýrsla um störf Nátt-
úruvemdarráðs 1991-1993 og drög að
stefnu f náttúruvemd, sem Náttúm-
vemd Ieggur fram sem umræðugrunn á
þinginu.
Þingsetning er kl. 9 f.h. þann 29. októ-
ber og að henni lokinni (kl. 9.15) mun
umhverfisráðherra flytja ávarp. Þá er
vakin athygli á ræðu formanns og fram-
kvæmdastjóra Náttúruvemdarráðs og
gestafyrirlesara.
Fyrirfestur viö KHÍ
Fimmtudaginn 28. október kl. 16.30
mun Keith Humphreys, lektor við Uni-
versity of Northumbria í Englandi, flytja
fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnun-
ar Kennaraháskóla íslands. Fyrirlestur-
inn nefnist JVppraisal: Evaluating the
practlce and development of teachers".
Þar fjallar Humphreys um mat á starfi
kennara til mats á eigin starfi og leggur
þær niðurstöður til grundvallar í fyrir-
Iestri sínum.
Fyrirlesturinn verður í stofu M-201 í
Kennaraháskóla íslands og er öllum op-
inn.
Tónleikar í Borgarneskirkju
Fimmtudaginn 28. október heldur TVio
Borealis tónleika í Borgameskirkju.
Flutt verður tríó op. 11 eftir Beethoven,
klarínettusónata eftir Francis Poulenc,
Adagio og allegro fyrir selló og píanó eft-
ir Schumann og tríó op. 115 eftir
Brahms.
TVio Borealis skipa þau Einar Jóhannes-
son klarínettuleikari, Richard Talkowsky
sellóleikari og Beth Levin píanóleikari.
Þau hafa nú leikið saman f þrjú ár og
haldið tónleika á íslandi, meginlandi
Evrópu og Bandaríkjum Norður-Amer-
fku við ágætan orðstír.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Fyrsti ráösfundur ITC
m. Ráð ITC á íslandi heldur fyrsta ráðs-
fund starfsársins laugardaginn 30. okt
nk. kl. 10 árdegis á Hótel Sögu, A-sal.
ITC-deildin Eik Reykjavík skÍDuleggur
fúndinn, sem er öllum opinn. Á dagskrá
er m.a. athyglisverð kynning á nýrri
tækni, „Alexanderstækni".
Forseti III. Ráðs starfsárið 1993-1994 er
Jóm'na Þ. Stefánsdóttir ITC Fífu og í III.
Ráði eru starfandi sex deildir.
Upplýsingar veitir umsjónarmaður
fundarins, Svava Gísladóttir, eftir kl.
17.30 í sfma 682352 og Jónína Amdal í
síma 687275.
Listasafn íslands:
Tvehn sýningum lýkur
um helgina
Sýningum á grafíkverkum Braga Ás-
geirssonar og safni Markúsar ívarsson-
ar, sem nú standa yfir í Listasafni (s-
lands, lýkur sunnudaginn 31. október.
Aðsókn að sýningunum hefur verið mjög
góð og hafa fjölmargir nýtt sér kynningu
félaga f íslenskri grafík, samtökum ís-
lenskra grafíklistamanna, sem annast
sýnikennslu á hinum ýmsu hliðum graf-
fldistarinnar í fyrirlestrasal safnsins á
sunnudögum.
f veitingastofu safnsins hefur verið
komið fyrir nýjum grafíkverkum eftir
Braga, og em þar á boðstólum fjöldi
nýrra smárétta og gómsætar tertur.
Listasafn íslands, sýningarsalir og veit-
ingastofa, er opið kl. 12-18 alla daga
nema mánudaga. Bókasafn Listasafnsins
er opið frá þriðjudegi til föstudags kl. 13-
16.
Eina eiginkona Raymonds Burr skildi viö hann:
Hann var hommi!
Nýlega dó Raymond Burr, sá
sem frægastur varð fyrir að leika
Perry Mason áratugum saman,
og var þá auðvitað farið að
gramsa í 76 ára fortíð hans. Þar
kom fram að hann hefði verið
þrígiftur og eignast einn son.
Fyrsta og þriðja konan hefðu dá-
ið, en skilnaður bundið enda á
hjónaband nr. 2.
Eftirlifandi fyrrum eiginkona
Burrs er Isabella Ward, 73ja ára.
Hún býr í Delaware ásamt 100
ára gamalli móður sinni.
Isabella Ward kynntist Raymond
í Hollywood þar sem hún var að
leita frægðar í kvikmyndum rétt
eins og hann. Frægðin lét hins
vegar ekki sjá sig og hún fór aftur
til heimahaga eftir misheppnað
hjónaband sem henni er óljúft að
tala um.
„Það var strax eftir að við gift-
um okkur,“ segir Isabella. „Hann
átti ungan vin og það var augljóst
hvernig í pottinn var búið.“ Á
þeim tíma gekkst Ieikari á frama-
braut ekki við því að hann væri
samkynhneigður. Síðar á ævinni
fór Raymond ekki dult með það
og síðustu 30 ár ævinnar bjó
hann með Robert Benavides.
En brúðurin unga gat ekki sætt
sig við að deila brúðguma sínum
með öðrum og það karlmanni,
svo að hún yfirgaf mann sinn
með það sama.
Isabella segist hafa verið eina
eiginkona Burrs. Hinar tvær, sem
nefndar eru til sögunnar, nafn-
greindar og ártöl talin upp til
sönnunar, hafi verið hugarfóstur
kvikmyndafélaganna. En sá til-
búningur hafi tekist vel og nú sé
haft fyrir satt í ævisögum Raym-
onds Burr að hann hafi gifst
fyrstu eiginkonunni, Annette
Sutherland, sem síðar týndi lífi í
flugvél við Portúgal sem nasistar
skutu niður 1943 (breski leikar-
inn Leslie Howard á að hafa verið
í sömu flugvél) og þau hafi eign-
ast saman son. Þriðja eiginkon-
an, Laura Morgan, hafi dáið úr
Raymond Burr.
krabbameini 1955. En hann hafi
skilið við eiginkonu nr. 2, leik-
konuna Isabellu Ward.
Isabella Ward er oröin 73 ára og
hefur þagað yfir skammvinnu
hjónabandi sfnu og Raymonds Burr
(Perry Mason) 145 ár. Nú hefur hún
fengist til aö segja frá ástæðu skiln-
aöarins.
10. janúar 1948 voru þau gefin saman í hjónaband, Isabella Ward og
Raymond Burr. Athöfnin var látlaus, fór fram á heimili systur Raymonds, og
gestirnir fáir. Hjónabandiö var skammvinnt og 1952 gekk löglegur skilnað-
urígildi.
ÞÆR SETTU SVIP Á 20. ÖLDINA
MARIA
CALLAS
Maria Callas, hin fræga óperu-
stjarna, fæddist í New York
1923. Foreldrar hennar voru
grískir. Hún stundaði nám við
tónlistarháskólann í Aþenu og
kom fram í La Gioconda í Ver-
ona 1947 þar sem hún vann
þegar stórsigur. Þaðan hélt hún
áfram að heiila óperuunnendur
um allan heim með gallalausri
kólóratúrrödd og fjölbreyttu
efnisvali. Hún sameinaði ein-
staka sópranrödd og tilfinningu
fyrir því harmræna, og átti sínar
stórkostlegustu stundir í sýn-
ingu La Scala á La Traviata
1955. Því miður tóku kröfúmar
um einkalíf fyrir opnum tjöld-
um, endalausar söngæfingar og
megrunarkúrar allt saman toll
af rödd hennar og stöðvuðu á
endanum tónlistarflutning
hennar. Maria Callas dó 1977. A
myndinni er „La Callas" í sjón-
varpsupptöku árið 1959.
í speoli
Timans