Tíminn - 02.11.1993, Page 4
lOTíminn
Þriðjudagur 2. nóvember 1993
England
Úrvalsdeildin
Arsenal-Norwich...........0-0
Blackbum-Tottenham........1-0
Chelsea-Oldham ...........0-1
Coventry-Sheff. UTD.......0-0
Ipswich-Everton...........0-2
Liverpool-Southampton.....4-2
Man. UTD-QPR..............2-1
Newcastle-Wimbledon.......4-0
Sheff. Wed.-Leeds ........3-3
Swindon-Aston Villa.......1-2
Staðan
Man. UTD ... ...1311 1 127-10 34
Norwich ...13 6 5 2 21-12 23
Arsenal ...13 652 12-6 23
Blackbum... .. 13 6 5 2 18-13 23
Aston Villa .. ...13 6 5 2 15-10 23
Leeds ...13 64 3 20-16 22
Liverpool .... ...13 6 2 5 20-12 20
QPR ...13 6 2 5 24-21 20
Newcastle ... ...13 5 44 21-14 19
Tottenham... .. 13 5 4 4 19-14 19
Everton ...13 6 1 6 16-16 19
Wimbledon . ...13 4 5 4 13-19 17
Coventry .. 13 3 7314-16 16
Ipswich ...13 4 4 5 12-16 16
Man. City.... ...12 3 5411-10 14
Chelsea ...13 3 4 6 10-12 13
West Ham... ...12 345 6-1313
Sheff. UTD .. ...13 2 6 5 16-21 12
Oldham ...13 256 9-19 11
Sheff. Wed. . ...13 1 7 5 17-23 10
Southampton 13 2 2 9 15-24 8
Swindon ...13 0 58 11-30 5
1. deild
Birmingham-Miltwall.......1-0
Bolton-Derby..............0-2
Bristol City-Sunderland....2-0
Charlton-Oxford ...........1-0
C. Palace-Grimsby..........1-0
Luton-Leicester............0-2
Middlesboro-Peterboro.....1-1
Forest-Notts County.......1-0
Portsmouth-Tranmere ......2-0
Southend-Wolves...........1-1
Stoke-Bamsley.............5-4
WBA-Watford...............2-1
Staða efstu liða
Charlton......14 8 5 1 17-10 29
Leicester.... 12 8 13 20-11 25
C. Palace.... 12 7 3 2 23-11 24
TYanmere......14 73 4 20-1724
Middlesboro...14 6 5 3 25-16 23
Derby........13 72 4 24-19 23
Southend......13 6 3 4 25-17 21
Birmingham ...14 5 54 19-17 20
Skotland
Aberdeen-Dundee...........1-0
Dundee UTD-SL Johnstone ...2-0
Hibemian-Hearts...........0-2
Motherwell-Kilmamock......2-2
Partick-Raith.............1-1
Rangers-Celtic............1-2
Staðan
Aberdeen........14 6 6 2 17-9 18
Hibemian........13 6 4 3 18-12 16
Motherwell..13 6 4 3 16-13 16
Kilmamock.. 14 4 7 3 14-12 15
Celtic......13 4 6 3 15-12 14
Rangers ......13 5 4 4 17-15 14
Hearts......14 5 4 5 17-15 14
Dundee UTD......14 3 8 3 13-15 14
Partick...........14 3 7419-19 13
St. Johnstone ..14 3 6 5 14-19 12
Raith.........142 75 16-25 11
Dundee............142 3 9 10-17 7
Frakkland
Angers-Marseille...........0-1
Auxerre-Cannes.............0-0
Caen-Lille.................2-3
Lens-Mónakó................3-3
Lyon-St Etienne............1-0
Martigues-Le Havre.........3-0
Metz-Toulouse .............1-0
Montpellier-Strasbourg.....4-0
Paris S.G.-Nantes..........1-0
Sochaux-Bordeaux...........2-2
Staða efstu liða
ParisS.G.....15 103 2 21-8 23
Bordeaux......15 843 21-1120
Marseille....14 7 5 2 16-11 19
Auxerre........15 744 20-13 18
Mónakó........15 744 26-26 18
Cannes........15 66 319-16 18
Sviss
Servette-FC Zurich........4-2
Yverdon-Neuchatel Xamas.... 2-0
Kriens-Aarau..............0-1
Crasshopper-Luceme........2-0
Young Boys-Lausanne.......1-4
Sion-Lugano...............2-0
Staðan
Grasshopper ..16 10 4 2 31-10 24
Sion........16 8 6 2 24-10 22
Servette....15 74 4 29-27 18
Young Boys ...16 6 5 5 25-17 17
Lausanne....16 7 3 5 21-23 17
Lugano......15 64 518-1916
Luceme......16 6 4 6 20-25 16
FC Zurich...16 55621-1715
Enska knattspyrnan:
Fowler með þrennu
fyrir Liverpool
Eftir að hafa leikið fímm deildarieiki
í september án þess að skora mark,
hefur Liverpool loksins fundið leið-
ina í maririð, eða öllu heldur hinn 18
ára gamli nýliði í sókninni hjá liðinu,
Robbie Fowler. Þessi ungi drengur
skoraði þrennu fyrir Liverpool um
helgina í 4-2 sigri á Southampton og
þykir frammistaða Fowlers iofa góðu
um framtíð hans. Spennan á toppi
deildarinnar er ekki mikil. Man. UTI)
vann enn einu sinni um helgina á
meðan næstu lið, Arsenal og Nor-
wich, gerðu innbyrðisjafntefli á
Highbuiy, 0-0. Man. UTD hefur nú
ellefu stiga forskot og þarf mikið að
gerast ef þetta forskot meistaranna á
að minnka. Þeir eru einfaldlega með
langbesta liðið í ensku knattspyrn-
unni.
Robbie Fowler náði forystunni fyrir
Liverpool á 14. mínútu leiksins og
bætti svo öðm marki við á 29. mínútu
áður en Matthew Le Tissier setti mark
fyrir Southampton. Ian Rush skoraði
þriðja mark Liverpool, en Le Tissier
minnkaði aftur muninn á 79. mínútu.
En táningurinn Fowler fúllkomnaði
hins vegar þrennu sína á lokamínút-
um leiksins og tryggði Liverpool ör-
uggan sigur. Graeme Souness, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, sagði eftir
leikinn að Fowler gæti orðið afburða-
knattspymumaður sem gæti orðið
hvað sem hann vildi á vellinum.
„Hann hefur nú skorað 10 mörk í átta
leikjum, sem segir allt sem segja þarf
um Fowler. Auk markanna hefur
hann góðan skilning út á hvað fót-
boltinn gengur," sagði Souness.
Peter Beardsley, sem lék eitt sinn
með Liverpool, skoraði einnig þrennu
um helgina gegn Wimbledon í stór-
sigri, 4-0, og hefndi þar með ófaranna
frá því í síðustu viku í deildarbikam-
um þegar Wimbledon sló út Newc-
astle. Andy Cole gerði fjórða markið
og er hann nú markahæstur í Úrvals-
deildinni. Þessi 4-0 sigur Newcastle
var sá þriðji á þessu keppnistímabili.
Arsenal hefði sjálfsagt gefið mikið
fyrir aðeins eitt mark gegn Norwich,
en leikurinn endaði án marka. Þetta
var fjórða 0-0 jafntefli Arsenal á þessu
tímabili og eiga framherjar liðsins í
miklum erfiðleikum með að skora
þessa dagana. Sömu lið gerðu 1-1
jafntefli í síðustu viku í deildarbikam-
um.
Meistarar Manchester United lentu
Alan Shearer skoraði sigurmark
Blackbum um helgina gegn Totten-
ham og virðist vera búinn að ná sér
eftir meiðsli sem höföu hrjáð hann I
langan tíma.
undir í viðureign sinni gegn QPR á
heimavelli, þegar Bradley Allen skor-
aði strax á áttundu mínútu fyrir gest-
ina. Manchester sýndi hins vegar
mjög góðan leik í seinni hálfleik og
uppskar þá sanngjaman sigur. Eric
Cantona skoraði jöfnunarmarkið á
53. mínútu og aðeins fjómm mínút-
um síðar kom sigurmarkið og það
gerði Mark Hughes. Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Man. UTD, sagði
eftir leikinn að þótt lið hans hefði ör-
ugga forystu í deildinni, þá væri að-
eins þriðjungur búinn af deildarleikj-
unum. „Það segja allir að við séum
búnir að vinna deildina. En það finnst
enginn hér á Old TYafford sem heldur
því fram.“ Ferguson sagði seinni hálf-
leikinn gegn QPR lofa góðu um leik-
inn gegn Galatasary á morgun í
seinni leik liðanna í Evrópukeppn-
inni, en þann leik verður Man. UTD
að vinna ef þeir ætla sér að komast
áfram.
Oldham vann annan sigur sinn í Úr-
valsdeildinni á þessu keppnistímabili
þegar liðið sótti öll þrjú stigin á
Stamford Bridge, heimavöll Chelsea.
Darren Beckford gerði sigurmarkið í
fyrri hálfleik. Báðir sigrar Oldham
hingað til hafa verið á útivöllum.
Sheffield Wednesday og Leeds gerðu
jafntefli 3-3 í fjömgum leik. Chris
Waddle skoraði á 2. mínútu leiksins
með glæsilegu marki beint úr auka-
spymu. Chris Fairclough jafnaði met-
in, en aðeins mínútu síðar, á 43. mín-
útu, kom Ryan Jones Sheff. Wed. aft-
ur yfir. í seinni hálfleik gerðu Rod
Wallace og Gary Speed fyrstu mörkin
og komu Leeds yfir, en Mark Bright
jafriaði 3-3 þegar hálftími var til Ieiks-
loka.
Dalien Atkinson skoraði sigurmark
Aston Villa gegn Swindon og hélt því
liðinu í toppbaráttunni.
David Batty lék mjög vel í fyrsta leik
sínum með Blackbum í 1-0 sigurleik
gegn Tottenham. Alan Shearer gerði
sigurmarkið á 15. mínútu, en yfir-
burðir Blackbum í leiknum vom
miklir og hefðu þeir átt að skora mun
fleiri mörk en raunin varð. Sigur
Blackbum var sá fyrsti á heimavelli
síðan 21. ágúst.
Ipswich tapaði nokkuð óvænt á
heimavelli fyrir Everton. Stuart
Barlow og Peter Beagrie gerðu mörk
Everton í sitthvomm hálfleiknum.
í Skotlandi heldur Aberdeen topp-
sætinu eftir 1-0 sigur á botnliðinu
Dundee. Duncan Shearer skoraði
markið er gerði gæfumuninn og er
hann nú markahæstur í Skotlandi.
Lou Macari byrjar vel sem nýr fram-
kvæmdastjóri Celtic, en lið hans gerði
góða ferð á heimavöll erkifjendanna
Rangers og vann 1-2 þar sem sigur-
markið kom á síðustu mínútu leiks-
ins. Varamaðurinn Brian O’Neil setti
sigurmarkið.
Guðmundur Torfason og félagar
hans í St. Johnstone lutu í lægra haldi
fyrir Dundee United, 0-2.
Evrópska knattspyrnan:
Endasprettur Sampdoria
ævintýri líkastur
Ruud Gullit sýndi forráðamönnum
AC Milan hverju þeir voru að missa af
þegar hann var seldur frá félaginu
síðastliðið vor. Hann gekk í raðir
Sampdoria og skoraði sigurmarkið í
3-2 sigri gegn sínu gamla liði eftir að
AC Milan hafði haft yfir í hálfeik 0-2.
Þessi tapleikur AC Milan var sá fyrsti
á útivelli í tvö og hálft ár og fyrsti tap-
leikurinn í deildinni síðan í október
1991.
AC Milan byrjaði viðureignina betur
og eftir aðeins ellefú mínútna leik lá
boltinn í neti Sampdoria. Miðjuleik-
maðurinn Demetrio Albertini skoraði
það mark og stundarfjórðungi síðar
skoraði Daninn Brian Laudrup annað
mark AC Milan og Sampdoria virtist
ekki eiga sér viðreisnar von.
Seinni hálfleikur var hins vegar alger
eign heimaliðsins og þar var Ruud
Gullit fremstur í flokki og sýndi frá-
bæran leik. Á 57. mínútu sendi hann
góða sendingu fyrir á Slóvenann
Srecko Katanec sem skallaði glæsilega
í netið. Á 72. mínútu fengu Sampdoria
vítaspymu og fyrirliðanum Roberto
Mancini urðu ekki á nein mistök og
staðan því orðin jöfn. Það var síðan
Gullit sem batt endahnútinn á ævin-
týralegan seinni hálfleik Sampdoria,
þegar hann skoraði sigurmarkið
skömmu fyrir Ieikslok og fagnaði að
vonum innilega. Fabio Capello, þjálf-
ari AC Milan, var ekki ánægður með
dómarann í leiknum og sagði eitthvað
hafa verið athugavert við öll mörk
Sampdoria, en dómarinn hafi átt slak-
andag.
Juventus komst í efsta sætið með
auðveldum sigri á Genúa. Roberto
Baggio átti stórleik og er nú marka-
hæstur með átta mörk í ítölsku knatt-
spymunni.
Parma missti af gullnu tækifæri til að
komast í efsta sætið, en liðið tapaði
fyrir Inter Milan á útivelli. Ruben Sosa
fYá Úrugvæ sá um að skjóta Parma
skelk í bringu, þar sem hann skoraði
öll þrjú mörk Inter Milan. Fyrirliða
Inter, Giuseppe Bergomi, var vikið af
velli skömmu eftir upphaf seinni hálf-
leiks og var sigur Inter því sætari fyrír
bragðið.
Stórlið Barcelona tapaði óvænt fyrir
Atletico Madrid í spænsku knattspym-
unni 4-3 eftir að hafa komist í 0-3. Ro-
mario skoraði öll mörk Barcelona,
sem komu í fyrri hálfleik á aðeins 20
mínútna kafla. Romario er nú marka-
hæstur á Spáni. Atletico Madrid lék
hins vegar stórkostlega vel í seinni
hálfleik og uppskáru þá fjögur mörk
gegn meisturunum.
Real Madrid virðist vera að koma til
og færist nú hægt og bítandi upp töfl-
una. Um helgina vann Madrid 2-0 sig-
ur á nágrönnum sínum, Rayo Vallec-
ano. Ivan Zamorano gerði mörkin í
sitt hvorum hálfleiknum.
Feyenoord hélt áfram sigurgöngu
sinni í hollensku knattspymunni og
lagði um helgina Maastricht að velli 4-
0. John van Loen gerði eina mark fyrri
hálfleiks, en síðustu þrjú mörkin
komu þegar fimmtán mínútur voru
eftir af leiknum. Ulrich van Gobbel,
Rob Witschge og Amold Scholten sáu
um að skora þau mörk. Ekki var
minnst á Amar Gunnlaugsson í frétta-
skeytum.
Þýskaland
Stuttgart-Schalke ........3-0
Hamburg-Köln..............2-4
B. Munchen-Kaiserslautem.. 4-0
Leverkusen-Werder Bremen ..2-2
Wattenscheid-Frankfúrt....0-0
Duisburg-Niimberg.........1-0
Leipzig-Karlsruhe.........1-0
Dortmund-Gladbach.........3-0
Dynamo Dresden-Freiburg...1-2
Staðan
Frankfurt.....14 9 4 1 32-13 22
B. Miinchen.. 14 7 5 2 37-15 19
Werder Bremen 14 7 5 2 26-26 19
Duisburg .....14 6 6 2 21-16 18
Kaiserslautem..l4 7 3 4 26-19 17
Hamburg.......14 8 1 5 27-22 17
Leverkusen....14 6 4 4 28-21 16
Dortmund .....14 6 3 5 22-10 15
Köln..........14 6 3 5 19-18 15
Stuttgart.....134 5 4 20-2413
Freiburg .....14 4 4 6 23-26 12
Karlsruhe ....1335 514-1711
Dresden.......14 3 5 6 15-26 11
Numberg.......144 2 818-26 10
Cladbach...... 14 3 4 7 22-31 10
Leipzig.......14 2 6 6 11-25 10
Wattenscheid ...14 1 7 6 18-25 9
Schalke...... 14 14 9 10-29 6
Ítalía
Cagliari-Torino............2-1
Foggia-Cremonese...........1-1
Inter Milan-Parma..........3-2
Juventus-Genoa.............4-0
Lazio-Udinese..............2-1
Lecce-Atalanta.............5-1
Piacenza-Napoli ...........1-1
Reggiana-Roma..............0-0
Sampdoria-AC Milan.........3-2
Staðan
Juventus......10 6 3 1 21-9 15
Sampdoria.....10 71 2 20-13 15
Parma.........10 6 2 2 15-7 14
ACMiIan.......10541 12-5 14
Inter Milan ..10 54 1 11-6 14
Napoli........1044 212-10 12
Cremonese ....10 4 3 3 10-8 11
Lazio.........103 5 2 7-8 11
Torino........104 2 413-12 10
Cagliari......10 4 2 4 15-16 10
Foggia........10 1 7 2 7-9 9
Roma..........10 3 3 4 9-12 9
Piacenza......10 2 44 7-12 8
Udinese.......102 2 6 7-12 6
Reggian.......1006 4 4-11 6
Genoa.........10145 4-11 6
Atalanta......10 2 2 6 13-21 6
Lecce ........10 1 2 7 10-15 4
Holland
FC Groningen-SC Heerenv.... 2-2
FC Volendam-Willem II.....0-3
Feyenoord-Maastricht......4-0
FC TVvente-Sparta Rotterdam 0-0
Cambuur-PSV...............1-3
RKC Waalwijk-Go Ahead ....1-2
Nac Breda-Ajax............0-5
Roda JC-FC Utrecht........4-0
Staða efstu liða
Feyenoord ..12 10 2 0 25-6 22
Ajax.........12 9 2 1 29-6 20
Vitesse......12 81 3 25-10 17
PSV..........12 73 2 21-9 16
RodaJC.......12 72 3 23-15 15
FCTwente ...11 62 420-13 14
Willem II....11 61518-1113
Belgía
Waregem-Club Brugge.......0-1
Ostend-Lommel.............1-1
Cercle Brugge-Charleroi...0-1
FC Liege-Beveren..........0-2
Seraing-Mechelen..........1-0
Genk-Molenbeek............1-4
Anderlecht-Lierse ........1-0
Gent-Standard.............0-0
Antwerpen-Ekeren..........1-1
Staða efstu liða
Anderlecht...13 11 1 1 38-15 23
Club Brugge ..13 7 5 1 21-10 19
Seraing.......13 73 3 21-9 17
Antwerpen....13 6 5 2 16-12 17
Charleroi.....13 72 4 20-1416
Lommel ......13 6 4 3 20-17 16
Ostend ......13 4 8 1 19-14 16
Beveren .....13 5 6 3 16-14 14
Ekeren........13 4 5 4 19-19 13
Mechelen.....13 3 7316-1313
Spánn
Valencia-Celta..............3-0
Lerida-Sevilla..............0-3
Coruna-Osasuna .............3-1
Atletico Madrid-Barcelona...4-3
Tenerife-Real Sociedad .....2-1
Rayo Vallecano-Real Madrid ..0-2
Racing Santander-Albacete ....1-1
Logrones-Sporting Gijon.....1-2
Real Oviedo-Real Zaragoza ....2-1
Atletico Bilbao-Real Vallad. ...3-0
Staða efstu liða
Valencia........9 6 2 1 17-8 14
Sevilla..........9 53 1 16-6 13
Coruna...........9 53 1 11-2 13
Barcelona.......9 5 2 2 17-8 12
Real Sociedad ....9 5 2 2 13-10 12
Atletico Bilbao ...9 513 16-1111
Real Madrid.....94 2 314-10 10
Atletico Madrid ..9 3 4 2 15-14 10