Tíminn - 27.11.1993, Page 1
Laugardagur 27. nóvember 1993
77. árgangur
Verð í lausasölu 125 kr.
FREKAR ÁSTKONA
EN RITSTJÓRI
- HELGARVIÐTAUÐ
-sjá síðu 3
ÓENDANLEGT
BASL AÐ KÓMA
YFIR SIG ÞAKI -
HÚSALEIGUBÆTUR
ERU KRAFA UNGS
FÓLKS
-sjá síðu 5
ÍTALSKA
KNATTSPYRNAN
-sjá síðu 6
ÚTGERÐIN HUNS-
AR ÁTAKK)
JSLENSKT,
JÁ TAKK" OG
FLYTUR SKIPA-
SMÍÐAR ÚR LANDI
-sjá síðu 7
SKANDIA KEYPTI
STOLIN
HLUTABRÉF ÚR
DÁNARBÚI
-sjá baksíðu
LOGNIÐ UNDAN
STORMINUM -
ÓVEÐRIÐ
-sjá baksíðu
ÚTFLUTNINGS-
LEIÐIN, NÝ LEHE) í
ATVINNUMÁLUM
RÆDD Á ELLEFTA
LANDSFUNDI
ALÞÝÐUBANDA-
LAGSINS
-sjá síðu 4
Nú er rétt vika þar til spilavíti með spilakössum Háskóla Islands verða opnuð. Veitingamenn
hafa lagt út í miklar og kostnaðarsamar breytingar þrátt fyrir að enn sé nart deilt um hvort
vítisvélarnar séu löglegar eða ekki. Tímamynd Ámi Bjarna
Samningur um skiptingu
hagnaðarins ólöglegur
Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður segir að samningur Há-
skóla íslands annars vegar og Rauða krossins og annarra samtaka
hinsvegar, standist ekki lög um happdrætti Háskóla íslands. Þá segir
hann rekstur spilakassanna bijóta gegn hegningarlögum.
Háskólaráð hefur leitað eftir
lögfræðiáliti um hvort dómur
sem féll árið 1949 hafi fordæm-
isgildi í þessu máli, en Svein-
bjöm Björnsson háskólarektor
segir rekstur spilakassanna
byggðan á breytingu á lögum
um Happdrætti Háskólans frá
1986. Lagagreinin hljóðar svo:
„Dómsmálaráðherra er ennfrem-
ur heimilt að veita Háskóla ís-
lands einkaleyfi til rekstrar
skyndihappdrættis með peninga-
vinningum og peningahapp-
drættis sem ekki yrði rekið sem
flokkahappdrætti. Ágóða af rek-
stri þessa skal varið tU starfsemi
Háskóla íslands svo sem segir í
E-Iið fyrstu málsgreinar.'
Hróbjartur Jónatansson hrl.
segist ekki geta séð að spUakass-
arnir samræmist almennri skil-
greiningu happdrættis. Hann
segir að túlka verði happdrættis-
lögin þröngt og þá út’frá ákvæð-
um hegningarlaga. „Fjárhættu-
spil er bannað skv. hegningar-
lögum og ég get ekki séð að
starfsemi spilakassana samrýmist
183. grein hegningarlaganna um
fjárhættuspU.'
Hróbjartur segir ennfremur að
Háskólinn hafi einkaleyfi til
reksturs peningahappdrættis í
landinu og það sé samkvæmt
lögunum ekki framseljanlegt. Því
sé samningur Háskólans við
önnur félög um skiptingu ágóð-
ans ólöglegur.
„Ágóðinn á allur að fara tU Há-
skólans og hann getur ekki gert
samning við hvern sem er um
framsal hans. Þá má spyija hvort
öU fjársöfnun, hvaða nafni sem
hún nefnist, falli undir happ-
drættislög.' -PS
Byggðastofnun vill 300 millj. í
atvinnulíf á Vestfjörðum
Rfkisstjómin tekur afstöðu til tiUagna Byggðastofnunar á þriðjudaginn
Byggðastofnun hefur farið fram
á það við ríkisstjórnina að hún
veiji 300 mUljónum króna tU að
styrkja atvinnulíf á Vestfjörðum.
Ríkisstjómin ræddi málið á fundi
sínum í gær. Stefnt er að því að
stjómin taki formlega afstöðu tU
málsins á þriðjudaginn.
Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar, segir að
Byggðastofnun hafi enga mögu-
leika á að bregðast við vanda at-
vinnulífs á Vestfjörðum án at-
beina stjórnvalda. Þess vegna
hafi stjóm stofnunarinnar skrifað
ríkisstjóminni bréf þar sem staða
málsins sé skýrð og beint á tUlög-
ur til úrbóta. Hann vildi ekki
upplýsa hvað fælist í bréfi
Byggðastofnunar, en samkvæmt
ömggum heimildum Tímans fer
Byggðastofnun fram á að ríkis-
stjómin veiti 300 mUljónir tU að
styrkja atvinnuh'f á Vestfjörðum.
Atvinnuh'f á mörgum þéttbýlis-
stöðum á Vestfjörðum á í mikl-
um erfiðleikum. Nægir að minna
á BolungarvUc, BUdudal, Flateyri,
Þingeyri, Tálknafjörð og fleiri
staði. Tillögur Byggðastofnunar
ganga út á að veija atvinnulíf á
þessu stöðum frekari áföUum.
í bréfi Byggðastofnunar er bent
á þá staðreynd að frá árinu 1971-
1992 hafa 3.152 menn flust frá
Vestfjörðum umfram aðflutta, en
þessa flutninga megi beint og
óbeint rekja til erfiðleika í at-
vinnumálum. Atvinnuleysistölur,
en atvinnuleysi á Vestfjörðum
hefur lengi verið um eða innan
við 1%, gefi því ekki rétta mynd
af stöðu atvinnulífs á Vestfjörð-
um. Lítið sé um atvinnulaust fólk
á Vestfjörðum einfaldlega vegna
þess að það flytjist burt þegar það
missi vinnuna. -EÓ
ifi TÍMANS
W RÁS
f SIÐA 2
BAKSVIÐ
SIÐA 12-13
0
ÚTVARP
SÍÐA 16-17
Fsakamál
9 SIÐA 9