Tíminn - 27.11.1993, Page 2

Tíminn - 27.11.1993, Page 2
2 IÐARI Laugardagur 27. nóvember 1993 Þingmaður hefur spennt upp regnhlíf í ræðustól Alþingis og þannig vakið athygli á tillögu sinni til þingsályktunar um endurskoðim laga frá sjálfstæðis- árinu 1944 um þjóðfána íslend- inga. Slíkar regnhlífar voru gefnar þátttakendum á Norðurlanda- ráðsþingi, en á þeim eru myndir af fánum aðildarríkjanna. Sam- kvæmt íslenskum lögum er bann- að að nota þjóðfánann með þess- um hætti. Þingmaðurinn, Guð- mundur Hallvarðsson (Sjfl.), spennti upp regnhlífina til þess að leggja áherslu á fáránleika þessa banns. Aðferð þingmannsins til að vekja athygli á skoðun sinni verð- ur látin liggja milli hluta hér. Þó að einhverjir telji að hún sam- ræmist ekki þingsköpum á hinu háa og grafalvarlega Alþingi, hafði hún sannarlega tilætluð áhrif. Eins hljóta það að vera rök með þingsályktunartillögunni að hundakúnstir í ræðustól Alþingis veki meira umtal en ímynduð „óvirðing' Norðurlandaráðs við íslenska fánann með því að setja hann á regnhlíf. í fjórðu málsgrein 12. greinar laga um þjóðfánann er þess sér- staklega getið að óheimilt sé að nota fánann í firmamerki, vöru- merki eða á söluvaming, umbúðir um eða auglýsingu á vörum. Hjá Seinna fánamálið þingsályktunartillögunnar þeirrar skoðunar „að gæðavörur íslenskr- ar framleiðslu, sem til útflutnings eru ætlaðar, geti og eigi að bera glögg einkenni íslands' og að það sé „í hæsta máta eðlilegt og við hæfi að t.d. bæklingar til kynn- ingar á landi og þjóð og til upplýs- ingar fyrir ferðamenn séu áprent- aðir með íslenska þjóðfánanum". Þó að í 12. grein laga um fánann sé tekið fram að ekki megi „óvirða' fánann, hefur viðhorfið breyst á þeim árum, sem liðin eru frá setningu þeirra árið 1944. Lögin hafa þó ekkert breyst. ís- lenska þjóðfánanum hefði verið sýnd óvirðing með því að skilja hann útundan, þegar aðrir fánar voru settir á regnhlífar Norður- landaráðs. Fáninn er hafinn til frægðar og frama með notkun hans í landkynningar- og vöru- kynningarskyni. Honum er lyft til vegs og virðingar með almennari notkun en heimil er með lögum. Eins og sakir standa er þjóðfán- inn, tákn fullveldisins og „ímynd fegurstu hugsjóna þjóðarinnar', í reynd vanvirtur með of Iítilli notkun. Eða eins og flutnings- maður tillögunnar sagði á Al- þingi, þá hefur bann við óvirð- ingu þjóðfánans orðið þess vald- andi að virðingin við fánann hef- ur snúist upp í andhverfu sína. um er skiljanlegt að nýr þjóðfáni væri settur í svo hátt öndvegi, að strangar reglur væru látnar gilda um notkun og meðferð hans. Nú á dögum særir það hins vegar ekki þjóðarstoltið, þótt fáninn sé settur á regnhlíf með öðrum fán- um. Enda eru flutningsmenn Með regnhlíf að vopni hóf Guðmundur Hallvarðsson seinna fónamólið í ræðustól ó Alþingi. Mynd: RÚV- Sjónvarpið. frændþjóðum okkar þykir slík notkun á þjóðfánum aftur á móti sjálfsögð. Hvað skyldi líka auð- kenna íslenska vöru betur á er- lendri grund en fáninn? Lögin um þjóðfánann eru ein af mörgum fornleifum íslenskra laga. Sumar takmarkanir þeirra á notkun fánans eiga ekki lengur við rök að styðjast, enda sett á tímum þegar löggjafinn var upp- blásinn af þjóðarstolti og fjálgri virðingu fyrir einingartákninu. Ágreiningurinn um útht fánans hleypti þá einnig hita í máUð, hið svonefnda fánamál. Á þeim tím- Orka fallvatna og jarðhitasvæði f TÍMANS RÁS Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlis- fræðingur l. Orkubúskapur á íslandi er háður afkomu jökla, úrkomu á jökullausu landi, hitaflæði um jarðskorpuna og ýmsu fleira. Nýtanleg orka er einkum þrenns konar ef horft er fram hjá brenn- anlegu eldsneyti: Orka faUvatna, jarðhitaorka og orka fengin með vindmyllum; tveir fyrstnefndu þættimir eru mikilvægastir. H. Meðalúrkoma á fermetra á fs- landi í heild er talin um 2000 miUimetrar á ári. Hluti hennar er snjór sem ekki verður að vatni fyrr en eftir nokkra dvöl í jöklun- um. Umrædd meðalúrkoma skU- ar sér tíl umhverfisins eftir þrem- ur leiðum. Um 1600 mm verða að yfirborðsvatni sem rennur til sjávar (með ám og lækjum) um 350 mm gufa upp en um 50 mm verða að grunnvatni en það nær misdjúpt í jörðu og skilar sér smám saman í átt tU sjávar. m. Yfirborðsvatn og hálendi eru undirstaða vatnsorku. Liðlega helmingur landsins er hærri en 400 metrar yfir sjó. Hálendið og 1600 mm meðalúrkoma (1,6 kg) á ári á fermetra tryggja mikla vinnanlega vatnsorku. Á 50 þús- undum ferkílómetra lands (50 mUljörðum fermetra) falla hvorki meira né minna en 100 mUljónir tonna af vatni á ári og 80 mUljón- ir skila sér í rennsli yfirborðs- vatns. Vatnið hefur stöðuorku vegna þess að það er í tUtekinni hæð yfir sjó og þegar það rennur (og hæðin minnkar) breytist stöðuorka þess í hreyfiorku. Hún er grunnurinn að raforkufram- leiðslunni. Á öllu landinu er af- rennslið um 160 mUljónir tonna og reiknað hefur verið út að ork- an sem í úrkomunni felst sé ná- lægt 250.000 gígavattsstundum á ári en heUdarorkuframleiðslan er um 4200 GWst/ár. Tæknilega virkjanleg vatnsorka er sögð um 64.000 gígavattssundir á ári en hagkvæmt er að virkja um 45.000 GWst á ári. Af því hafa menn nú þegar virkjað tæplega tíunda hluta. Enn má bæta miklu við en þá koma tU álita umhverf- isþættir, hagrænir þættir o.fl. IV. Grunnvatn og hitaflæði frá kviku og heitum undirlögum landsins eru undirstaða jarðhita- orku. Um fimm mUljarðar tonna af vatni bætast í grunnvatnsforð- ann í jarðlögum landsins á ári og er hann ærinn fyrir. Vatnið sem Ekki er mikil orka fólgin í einum leirhver en samanlögð jarðhitaorka Islendinga er geysimikil auðlind; miklu meiri en vatnsorkan. (Mynd: Á Reykjanesi. A.T.G.) dýpst fer hitnar í heitum jarðlög- um þar sem víða er 100-300 stiga hiti á um 1000-2000 metra dýpi og reyndar grynnra sums staðar. Varmaforði í jarðskorpu íslands er um 28 milljarðar gígavatts- stunda, miðað við þrjá efstu kfló- metra skorpunnar. Með borhol- um er tæknilega unnt að hirða tæpan mUljarð gígavattsstunda af jarðvarmaorku en hagkvæmt ætti að vera að beisla 10-20% ejða aUt að 100-200 mUljónum GWst. AU- ar borholur, hitaveitur og varma- orkuver landsins virkja nú um 9.000 gígavattsstundir sem er að- eins brotabrot af hagkvæmustu orkukostunum. Þama er því mik- U ónýtt orka fyrir hendi en verð- ur auðvitað aðeins virkjuð með tilliti til umhverfisþátta, hag- rænna þátta o.fl. V. Menn harma oft að ekki finn- ist hér plía. Þótt það svarta guU sé torfengið er nóg af hvítu gulli sem er vatn, heitt og kalt. Gleym- úm því ekki heldur að vetni verð- ur ef tU viU framtíðarbrennsluefni og þá er gott að hafa næga orku og vatn til að framleiða eftirsótta vöm. TÍMINN Ritstjóri: Þór Jónsson • Aðstoóarritstjóri: Oddur Ólafsson • Fréttastjóri: Stefón Ásgrímsson Utgefandi: Mótvægi hf • Stjórnarformaður: Bjarni Þór Öskarsson • Auglýsingastjóri: Guðni Geir Einarsson. Ritstjórn og skrifstofur: Hverfisgötu 33, Reykjavík Póstfang: Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Aðalsími: 618300 Póstfax: 618303 Auglýsingasími: 618322, auglýsingafax: 618321 • Setning og umbrot: Tæknideild Timans • Prentun: Oddi hf. • Útlit: Auglýsingastofan Örkin • Mónaðaróskrift 1400 kr. Verð í lausasölu 125 kr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.