Tíminn - 27.11.1993, Page 3

Tíminn - 27.11.1993, Page 3
Laugardagur 27. nóvember 1993 Konur við stjórnvölinn ,Við, konur, viljum stýra og stjóma. Pótt við séum útivinnandi vUjum við jafnframt hafa alla þræði heimilislífsins í hendi okkar.' Petta segir Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fjölmiðlafræð- ingur. Jóhanna Vigdís stundaði meistaranám í blaðamennsku og fjölmiðlafræði við háskólann í Freiburg í Sviss. Lokaritgerð henn- ar sem fjallaði um sjálfsmynd ís- lenskra fjölmiðlakvenna vakti at- hygli í landi þar sem fæstar konur á barneignaaldri vinna úti. Fyrir ritgerðina fékk Jóhanna Vigdís verðlaun frá svissnesku kvenna- samtökunum og var fyrsti útlend- ingurinn til að fá þau verðlaun. „Pessi verðlaun’era veitt árlega í Sviss. Það era prófessorar við há- skólana sem velja ritgerðir frá sín- um nemendum og leggja þær fyrir dómnefnd. Hún velur síðan eina ritgerð sem fær verðlaunin. Ég fékk þessi verðlaun árið 1992 og það var sérstaklega stór áfangi af því að ég var útlendingur. Þetta var mikill heiður fyrir mig og ánægjuleg viðbót við námið.' Fjölmiðlakonur óánaegðar Ritgerð Jóhönnu Vigdísar fjaUar um starfsstöðu og viðhorf til starfs meðal íslenskra blaða- og frétta- kvenna. ,Ég sendi um 260 konum spurningalista en fékk svör frá tæplega helmingi þeirra. Það olli mér hálfgerðum vonbrigðum því ég hélt að íslenskar konur væru svo samviskusamar að þær myndu strax setjast niður og svara mér. Það gekk ekki alveg eftir. Spurningamar voru margar og mismunandi. Til dæmis spurði ég um viðhorf þeirra til starfsins, hvort starfið samræmdist vænting- um þeirra, um mismunun gagn- vart körlum, togstreitu á milli starfs innan og utan heimilis og fleira í þeim dúr.' Niðurstöður rannsóknar Jóhönnu Vigdísar era að langflestar íslenskar blaða- og fréttakonur eru óánægðar með starfsstöðu sína og með íslenska fjölmiðla almennt. Þeim finnst að of oft sé talað við sömu karlana um sömu málefnin og að skilin á milli einkalífs og starfs séu ekki nógu skýr. Togstreita milli starfa ,Það kom í ljós mikil togstreita vegna vinnu utan heimilis og inn- an. Við verðum að hafa í huga að fjölmiðlar eru starfsvettvangur þar sem konur ruddu sér braut í hefð- bundnum karlastörfum. Stærsti hópurinn sem ég talaði við hóf störf eftir árið 1985 þannig að við sjáum að þetta er ung stétt meðal kvenna. Mikið af mínum niður- stöðum á samt við um mörg önn- ur störf. Það eru ákveðin vanda- mál sem aUar útivinnandi konur standa daglega andspænis. Stærsta málið er auðvitað umönnun bam- anna. Heilsdagsskólinn var mikil framför en samt er ástandið engan , veginn viðunandi. Það vakti mikla athygli í Sviss að tæp 80% af kon- unum sem tóku þátt í rannsókn- inni eru mæður. í Sviss hætta flestár konur að vinna úti ef þær eignast börn og vinna ekki úti í um tuttugu ár. í sambærilegri svissneskri könnun vora innan við 15% af konunuin jafnframt mæð- ur.' Fréttamat karla ræður Jóhanna Vigdís segir að óánægja kvennanna með íslenska fjölmiðla hafi komið henni mest á óvart. ,Það var afdráttarlaus skoðun flestra þeirra að þær væru ekki ánægðar. Ég var spurð af því í Sviss af hverju þær gerðu ekkert til að breyta þessu fyrst þær væra svona óánægðar en það er auðvit- að ekki svo einfalt. Aðeins um 15% af konunum era yfirmenn á sínum vinnustað og þær verða að lúta ákveðnum vinnureglum. Rit- stjóramir og fréttastjóramir era í langflestum tilfeHum karlar og þeir ráða hvað er fjallað um. Ein konan sagði að uppástungur kvenna um fréttaefni fengju oft lélegar viðtök- ur hjá ritstjórunum. Þess vegna væru margar konur hættar að stinga upp á efnum sem þær hefðu sjálfar áhuga á.' Frekar ástkona en ritstjóri Þrátt fyrir þetta sýndu fjölmiðla- 3 Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Tímamynd Ámi Bjarna. inu Fróða en vinnur nú hjá Vöku- HelgafeUi þar sem hún veitir for- stöðu matarklúbbi fyrirtækisins, Nýjum eftirlætisréttum. .Starfið felst meðal annars í því að ritstýra klúbbritinu og því nýtist námið mér mjög vel.' Verðum að velja og hafna Undanfarin ár hefur mikið verið talað um bakslag í kvennabarátt- unni. Talað er um að ungar konur séu áhugalausar og að staða kvenna hafi lítið batnað. Jóhanna segir að nauðsynlegt sé að styrkja sjálfsímynd kvenna tU að þær nái lengra. ,Það er mín skoðun að konur séu smámunasamari en karlar. Þær era haldnar fullkomn- unaráráttu á meðan karlar eru ósmeykari við að vaða áfram. Þetta kemur meðal annars fram í því að jafnvel þar sem tiltölulegt jafnræði er inni á heimilum vilja konumar hafa alla þræði í sínum höndum. Þær vUja stjóma uppeldi barnanna og heimilunum. Þessu hugarfari er auðvitað erfitt að breyta en konur verða sjálfar að reyna að vega og meta mikUvægi verkefnanna til að geta skipulagt vinnu og einkalíf. Við getum ekki búist við að ná langt ef við verðum að ná fullkomnun á öUum svið- um.' -GuSfinna B. Kristjánsdóttir konurnar ekki mikinn áhuga á að komast í hærri stöður innan fjöl- miðlanna. Um þriðjungur sagðist ekki vilja komast í stjórnunarstöðu og um 70% telja karla vera frama- gjarnari en konur í þessari stétt. „Skýringar flestra eru að þær ótt- ast að fjarlægjast blaðamennskuna sjálfa. Þær eru ánægðar í faginu þótt sama sé ekki hægt að segja um starfsstöðu þeirra. Það kemur meðal annars fram í því að konur virðast sjaldan hætta í faginu. Þær fara frekar á milli miðla. Ein konan sagði í bréfi sem ég fékk að ef hún væri barnlaus væri hún löngu orðin ritstjóri! Þetta er samt ekki einfalt mál því það kom fram að að metnaður hennar beindist frekar að því að vera góð móðir og ástkona en ritstjóri. Hug- takið metnaður getur þannig tekið á sig aðra mynd í hugum kvenna en karla.' Þurfum konur ó toppana Jóhanna Vigdís segir að sér hafi ekki komið á óvart að konunum fyndist þær tala við sömu karlana aftur og aftur. „Þetta er svo lítið þjóðfélag að endurtekningar eru óhjákvæmilegar. ímyndaðu þér hvað það yrði mikil framför ef konur kæmust í stöðu fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bandsins, forseta ASÍ og formanns BSRB. Það er talað við einhvern af þessum þremur körlum í einhverj- um miðli svo tíl daglega. Það hlýt- ur því að vera eitt helsta baráttu- mál okkar að koma konum í þess- ar toppstöður í valdapíramítan- um.' Heit sumur og góðir vetur Jóhanna kom heim úr námi árið 1992. Hún er eini íslendingurinn sem hefur numið við blaðamanna- deUd háskólans í Freiburg en lætur mjög vel af skólanum og dvölinni ytra. „Það var mjög gott að vera í Sviss. Þar fær maður heit sumur og góða vetur. Húsaleigan er stærsti útgjaldaliðurinn þar en þegar maður kemur frá íslandi finnst manni ekkert vera dýrt. Það era tvö opinber mál í kantónunni Freiburg; þýska og franska, og fóUc velur á hvora málinu það lærir. Ég er með BA-próf í þýsku frá Há- skóla íslands og valdi þess vegna þýskuna. Námið í deildinni er sambland af fjölmiðlafræði og blaðamennsku. Maður lærir líka almannatengsl, siðfræði og sögu og hluti af náminu er starf inni á fjölmiðlum. Ég starfaði í nokkra mánuði á dagblaði og eins héldu fyrirlestra hjá okkur ritstjórar margra stórra fjölmiðla. Fyrir fólk sem talar þýsku er þetta mjög góð- ur skóli. Ég held að það sé betra að læra blaðamennsku í Evrópu en í Bandaríkjunum því evrópskir fjöl- miðlar era líkari okkar en banda- rískir.' Eftir heimkomuna starfaði Jó- hanna Vigdís hjá útgáfufyrirtæk-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.