Tíminn - 27.11.1993, Page 5
Laugardagur 27. nóvember 1993
5
Húsaleigubætur
eru krafa ungs fólks
Húsaleigubætur eru ein helsta
krafa ungs fólks í húsnæðis-
málum í dag. Fólk dvelur æ lengur
í foreldrahúsum og er ein ástæða
þess sú að erfiðara er að eignast
þak yfir höfuðið en oft áður. Sam-
kvæmt upplýsingum frá LÍN búa
nú um 40% lánþega hans í for-
eldrahúsum og hefur þeim fjölgað
hratt undanfarin ár. Samkvæmt
könnun sem framkvæmd var árið
1985 fara íslendingar seinna að
heiman en ungt fólk í Danmörku
og Svíþjóð.
Séreignaformið er algengasta
húsnæðisform á íslandi. Eftir til-
komu húsbréfakerfisins getur fólk
fengið lcmgtímalán til húsnæðis-
kaupa fyrir allt að 65% af kaup-
verði íbúðarinnar. Það þýðir að
fólk þarf að eiga eða útvega sér á
annan hátt 35% af verði íbúðar-
innar. Ef keypt er íbúð á fimrn og
hálfa milljón er því að hámarki
hægt að fá húsbréf að verðmæti
3.575.000 krónur. Mismuninn eða
1.925.000 krónur verður fólk því
að eiga eða útvega á annan hátt.
Ýmsir hafa bent á nauðsyn þess að
lánshlutfall í húsbréfakerfinu verði
hækkað fyrir þá sem eru að kaupa
sína fyrstu íbúð. Ætía má að kraf-
an um 35% eigið fé sé ein helsta
orsök þess að ungt fólk ráði ekki
við húsnæðiskaup. Ungt fólk sem
er nýbúið í námi á flest lítið sparifé
jafnvel þótt það sé í fríu húsnæði
og fæði í foreldrahúsum. Þeir sem
eru í þeim sporum en eru samt yf-
ir tekjumörkum í félagslega kerf-
inu eiga því margir þann eina kost
að leigja sér húsnæði.
Á ráðstefnu um húsnæðismál
ungs fólks sem haldin var á mið-
vikudag kom fram sterk krafa
unga fólksins um að teknar yrðu
upp húsaleigubætur, meðal annars
til að auðvelda lei'gjendum að
leggja fyrir. Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra tók undir
þessa kröfu. Hún sagði að þær
yrðu að veruleika, spumingin væri
aðeins hvenær það yrði.
Búseturéttaríbúðir eru tiltölulega
nýr kostur á íslenskum húsnæðis-
markaði. Innan búsetakerfisins eru
þrír möguleikar sem miðast við
tekjur og eignir viðkomandi. Bæði
er inn að ræða félagslegan búsetu-
rétt og almennan og hægt er að fá
langtímalán fyrir allt að 90% af
íbúðaverðinu. Innan félagslega
kerfisins hefur orðið töluverð upp-
bygging síðastliðin ár en samt eru
félagslegar íbúðir ennþá aðeins um
9% af íbúðum á íslandi. Annars
vegar er um að ræða félagslegar
eignaríbúðir og hins vegar félags-
legar kaupleiguíbúðir. Almenn
skilyrði til að eiga rétt á úthiutun
frá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
eru þijú: Að viðkomandi eigi ekki
íbúð fyrir; að hann sé innan við
ákveðin tekjumörk (1,7 milljónir
fyrir einstakling og 2,1 milljón fyr-
ir hjón) og eigi lögheimili í
Reykjavík 1. júlí það ár sem sótt er
um. Auk þess verður að sýna fram
á greiðslugetu sem er metin hjá
húsnæðisnefnd sveitarfélaga.
Byggingasjóður verkamanna lánar
90% af kaupverði félagslegra eign-
aríbúða þannig að útborgunin er
aðeins tíundi hluti kaupverðsins.
Lánin eru til 43 ára og bera 2,4%
vexti. Vextimir era endurskoðaðir
með vissu árabili og heimilt er að
hækka þá í samræmi við breyting-
ar á tekjum kaupandans. Umsókn-
ir um félagslegar íbúðir eru að
jafnaði mun fleiri en íbúðirnar
sem eru í boði. Þeir ganga fyrir
með íbúðir sem eiga við erfið hús-
næðis- og/eða félagsleg vandamál
að stríða. Einnig skiptir greiðslu-
geta miklu máli. -GK
FRÉTTASKÝRING
Guðfinna
B. Kristjáns-
dóttir
Ásdis og Tommi, sonur hennar, vilja eignast eigiS heimili
Tímamynd Ami Bjarna
Þrjú í ein-
staklings-
íbúð
Asdís Elvarsdóttir er ung reykvísk móðir. Á ung-
lingsárunum bjó hún með föður sínum í leigu-
íbúð. Þegar íbúðin var seld ákvað hún að reyna að
kaupa sér íbúð á eigin spýtur. ,Ég vildi ekki fara út á
leigumarkaðinn. Mér fannst óásættanlegt að borga
jafnmikið í leigu á mánuði og fólk, sem er að kaupa,
borgar í afborganir. Mér fannst ég alveg eins geta fleygt
peningunum. Ég átti ekki mikla peninga eða um þijú
hundruð þúsund krónur sem var skylduspamaðurinn
minn. Ég fékk hálfa milljón í bankalán og fann mér
litla einstaklingsíbúð, um 23 fermetra sem kostaði
rúmar tvær milljónir. Það hvíldu á henni 700 þúsund
og restina fékk ég með húsbréfum. Þessi íbúð var ágæt
fyrir mig eina en þegar ég missti vinnuna réð ég ekki
við að borga af lánunum. Eina leiðin fyrir mig eftir það
var að flytja heim til mömmu og stjúpa míns og leigja
íbúðina mína út. Þegar hér var komið sögu átti ég von
á bami og þess vegna reyndi ég ekki að leita mér að
vinnu.
Núna er Tommi, sonur minn, orðinn níu mánaða og
við pabbi hans ætlum að reyna að stofna okkar eigið
heimili. Eftir að hafa athugað nokkra möguleika höfum
við ákveðið að flytja öll þijú í íbúðina mína þótt það
verði sennilega frekar þröngt um okkur. Okkur datt í
hug að sækja um hjá húsnæðisnefnd Reykjavíkur en
þar sem pabbi hans Torruna hefur lögheimili í Kópa-
vogi gekk það ekki upp. Kannski sækjum við um á
næsta ári. Ég er ekki að kvarta því ég hef það mjög gott
hjá mömmu en auðvitað vill maður eignast sitt eigið
heimili." -GK
1STOKKHÓLMUR -
Carl Bildt, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, mun
eiga fund með Clinton Banda-
ríkjaforseta og tíu nýbökuðum
bandarískum Nóbelsverðlauna-
höfum í Hvíta húsinu 1. des nk.,
en þá verður Bildt á heimleið
frá Rússlandi og dvelur aðeins
fáeinar klukkustundir á banda-
rískri grund.
JÓHANNESAR-
BORG- S-afríski nas-
istaleiðtoginn Eugene
Terre Blanche hvetur stuðnings-
menn sína til að stela skotvopn-
um og fá eiginkonum sínum til
vamar, en Nelson Mandela hef-
ur spáð því að þúsundir saklauss
hvíts fólks muni týna lífinu ef
hvítir hægrisinnar koma af stað
borgarastyijöld. .Vopnbúið kon-
ur ykkar, stelið byssum ef þess
gerist þörf, í nafni frelsis föður-
lands okkar,' sagði Blanche.
3WOLFSBURG,
Þýskalandi - Adam
Opel bflaverksmiðjumar,
dótturfyrirtæki General Motors,
saka Volkswagen-verksmiðjum-
ar um iðnaðamjósnir og að hafa
fengið Jose Ignatio Lopez, þá-
verandi starfsmann Opel og nú
framleiðslustjóra Volkswagen,
til að stela teikningum af nýrri
gerð smábíla sem verið er að
hanna. Samkvæmt rannsóknar-
skýrslu óháðrar skoðunarstofu,
sem Volkswagen afhenti frétta-
mönnum í gær, er ekki hægt að
finna neitt sem rennir stoðum
undir þessa fullyrðingu. Ferdin-
and Piech, stjórnarformaður
VW, sagði við þetta tækifæri að
tap samsteypunnar stefndi í um
tvo milljarða marka á þessu ári
og svipað af dótturfyrirtækinu
Seat á Spáni.
MARSEILLES
Franska Iögreglan hefur
handtekið 3 5 manns í
Marseilles og París sem gmnaðir
em um rán, morð, fjárkúgun og
aðra glæpastarfsemi á frönsku
Rívíerunni. Handtökurnar eru
gerðar í kjölfar lögreglurann-
sókna á a.m.k. 15 morðum og
fjölda vopnaðra rána sl. 10 ár í
S-Frakklandi, sem talin hafa
verið þáttur í uppgjöri glæpa-
flokka. Meðal hinna handteknu
eru glæpaforingjarnir Francis
Vanverberghe, sem kallaður er
.Belginn", og Jacky Imbert sem
kallaður er „Surtur'.
5MAASTRICHT - „Evr-
ópsk flugfélög, sem ekki
geta staðið undir sér, eiga
ekki tilverurétt. Ríkisstjórnir,
sem halda lífi í shkum félögum
með því að dæla fé í rekstur
þerra, hefta eðlilega endumýjun
og uppbyggingu flugs í álfunni,'
segir Peter Bow, forstjóri hol-
lenska flugfélagsins KLM. Bow,
sem situr í sérfræðinganefnd á
vegum Evrópuráðsins, segir að
hætta beri ríkisstyrkjum og rík-
isrekstri flugfélaga og þau beri
að einkavæða, enda tapi ríkis-
rekin flugfélög félaga mest.
6MOSKVA - Boris Jelt-
sín, forseti Rússlands,
hefur varað flokka og
samtök, sem taka þátt í kosn-
ingabaráttunni fyrir þingkosn-
ingamar í desember, við því að
allur kosningaáróður gegn
stefnu hans í sjónvarpi muni
verða stöðvaður og frjálsum
stöðvum, sem senda muni út
slíkt dagskrárefni, verði um-
svifalaust lokað. Mikhaíl Gor-
batsjov, frv. forseti Sovétríkj-
anna, lét í gær í ljósi áhyggjur
sínar yfir því að lýðræði væri
fótum troðið í Rússlandi.