Tíminn - 27.11.1993, Blaðsíða 6

Tíminn - 27.11.1993, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 27. nóvember 1993 Toppslagur í Parma ITALSKI BOLTINN Sævar Hrei&arsson Á morgun fer fram 13. umferð ítalska boltans og stórleikur á dag- skrá í Parma. Þar fá heimamenn meistara AC Milan í heimsókn, en liðin eru efst og jöfn í deildinni með 18 stig. Stöð tvö sýnir beint frá leiknum og má búast við að margir sitji spenntir við skjáinn. CAGUARI-ROMA Cagliari lék á fimmtudag gegn Mechelen í Evrópukeppni félags- liða í Belgíu og sigraði 1-3. Liðið lék án þeina Josés Herrera, Franc- escos Moriero og Francescos Bellucci, sem allir voru í leik- banni. Á morgun leikur liðið án varnarmannsins Matteos Villa, sem er í leikbanni. Líklegt byrjunarlið: Fiori, Aloisi, Pusceddu, Bisoli, Napoli, Firicano, Herrera, Moriero, Valdes, Matte- oli, Oliveira. koma sigraði Lecce á Ólympíu- leikvangnum um síðustu helgi og er um miðja deild með 12 stig. Tengiliðurinn sterki Giovanhi Pia- centini lék ekki með vegna meiðsla, en er nú á batavegi. Hann hefur verið á séraefingum ásamt miðverðinum Marco Lanna og markverðinum Giovanni Cer- vone, sem einnig hafa átt við meiðsli að stríða, en vonast er til að þeir verði allir tilbúnir í slaginn á morgun. Sömu sögu er ekki að segja af framheijanum Ruggiero Rizzitelli, sem hefur ekkert æft þessa vikuna. Líklegt byrjunarlið: Cervone, Garzya, Benedetti, Mihajlovic, Lanna, Carboni, Hássler, Piacent- ini, Balbo, Giannini, Cappioli. INTER-JUVENTUS Leikur Inter og Juventus á San Siro er sjónvarpsleikur á ítah'u og því ekki leikinn fyrr en á sunnu- dagskvöld. Inter gerði góða ferð til Englands á miðvikudag og lagði Norwich í Evrópukeppni félagshða með marki Hollendingsins Dennis Bergkamp úr vítaspymu. Osvaldo Bagnoh þjálfari var ánægður með Uð sitt og sagðist ekki vilja breyta uppstillingunni. Hann verður þó að gera eina breytingu, þar sem fyrirUðinn, Giuseppe Bergomi, er í leikbanni. Inn í Uðið kemur An- tonio Manicone, sem var í leik- banni á miðvikudag, og Massimo Paganin færir sig í stöðu Bergom- is. Líklegt byrjunarlið: Zenga, M. Pag- anin, Orlando, Jonk, A. Paganin, Battistini, DeU'Anno, Manicone, Fontolan, Bergkamp, Sosa. Juventus átti ekki í miklum erfið- leikum með Tenerife á miðviku- dag þegar Uðin mættust í Evrópu- keppni félagsUða. Juve sigraði 3-0 með mörkum frá Andreas Möller, Roberto Baggio og Fabrizio Ra- vanelh. RavaneUi kom inn á sem varamaður fyrir Gianluca ViaUi í síðari hálfleik og það verður senrúlega hlutskipti hans á morg- un, þrátt fyrir að hann hafi skor- að. Roberto Baggio, Dino Baggio og Antonio Conte eiga við meiðsU að stríða eftir leikinn, en ekki er búist við að þeir missi af leiknum á morgun. Angelo Di Livio er ekki löglegur með liðinu í Evrópu- keppni, Giancarlo Marocchi tók stöðu hans og stóð sig mjög vel. Líklegt byrjunarlið: Peruzzi, Porr- ini, Fortunato, D. Baggio, Kohler, TorriceUi, Marocchi, Conte, ViaUi, R. Baggio, MöUer. LAZIOGENOA Lazio tapaði á heimavelli fyrir Torino um síðustu helgi og var það í fyrsta sinn sem þeir töpuðu á heimavelU á þessari leiktíð. Paul Gascoigne er farinn að æfa að nýju eftir meiðsU, en ólíklegt er að hann komi strax inn í Uðið. Bak- vörðurinn Giuseppe Favalli meiddist í leiknum og leikur sennilega ekkert næstu tvær vik- ur. Pá er varnarmaðurinn Luca Luzardi einnig meiddur, en hann hefur verið í léttum æfingum þessa viku. Tengiliðurinn Diego Fuser var varamaður um síðustu helgi, en verður hugsanlega not- aður sem hægri bakvörður gegn Genoa. Eigandi félagsins, Sergio Cragnotti, er nú í haldi lögreglu, sakaður um að hafa greitt nokkr- um háttsettum stjórnmálamönn- um mútur, þar á meðal er Andre- otti, fyrrverandi forsætisráðherra ítaUu. Líklegt byrjunarlið: Marchegiani, Fuser, Bacd, Di Matteo, Bonomi, Cravero, Winter, DoU, Boksic, Di Mauro, Signori. Genoa keypti Lajos Detari frá Fer- encvaros í Ungverjalandi fyrir skömmu, en hann fékk ekki að spUa með Uðinu um síðustu helgi, þar sem FIFA hefur ekki samþykkt félagaskiptin. Ferencvaros fékk Detari frá Ancona í sumar, en hef- ur ekki greitt umsamið verð, þannig að Ancona fór fram á að salan gengi til baka. Genoa sigraði Inter um síðustu helgi með marki frá Gennaro Ruotolo, sem Inter hafði áhuga á fyrir skömmu. Fyr- irliðinn Gianluca Signorini lék ekki með vegna meiðsla, en er nú farinn að æfa af fullum krafti að nýju. Það er þó óvíst hvort hann kemur inn í liðið eftir góða frammistöðu hins tvítuga Luca Cavallo í miðri vöminni. HoUend- ingurinn John van't Schip kom inn í liðið gegn Inter og stóð sig með miklum ágætum. Roberto Onorati, Roberto Lorenzini og Tomas Skuhravy áttu allir við smávægUeg meiðsli að stríða, en verða sennilega til í slaginn á morgun. Líklegt byrjunarlið: Berti, Petrescu, Galante, Caricola, Torrente, Ca- vallo, Ruotolo, Bortolazzi, Van't Schip, Skuhravy, Onorati. NAPOU-REGGIANA Napoli var óheppið að tapa fyrir AC MUan á San Siro um síðustu helgi. Svíinn Jonas Them kom þá inn í liðið að nýju eftir meiðsli og átti stórleik. í vikunni lék Napoli æfingaleik gegn áhugamannaliði og sigraði 3-2. Mario Massimo Camso skoraði tvö mörk og Fau- sto Pari eitt, en hvomgur hefur átt sæti í liðinu að undanförnu. Á morgun leikur Napoli án aðal- markvarðar síns, Giuseppes Tagli- alatela, sem er meiddur, en Raffa- ele Di Fusco stóð sig vel gegn AC Milan. Pá er framheijinn Giorgio Bresdani einnig meiddur og óvíst hvort Eugenio Corini getur leikið með. Líklegt byrjunarlið: Di Fusco, Ferr- ara, Francini, Gambaro, Canna- varo, Bia, Di Canio, Caroso, Fonseca, Them, Pecchia. Reggiana virtist hafa gert góð kaup þegar félagið fékk þá Paolo Futre og Dorin Mateut tU liðsins. Futre var maðurinn á bak við sig- ur liðsins á Cremonese um síðustu helgi, skoraði fyrra markið og Mateut það síðara í 2-0 sigri. En Futre varð fyrir meiðslum undir lok leiksins og leikur sennilega ekkert næstu þrjá mánuði. Á morgun verður liðið einnig án leikstjórnandans Giuseppes Sci- enza, sem er í leikbanni. Líklegt byrjunarlið: Taffarel, Parl- ato, Zanutta, Accardi, Sgarbossa, De Agostini, Morello, Esposito, Padovano, Picasso, Mateut. PIACENZA-FOGGIA Piacenza mun sennilega eiga í miklum vandræðum með Foggia á morgun. Tveir leikmanna liðsins eru í leikbanni og mesti marka- skorari liðsins er meiddur. Þeir Pasquale Suppa og Agostino Iaco- belli eru í leikbanni vegna gulra spjalda, og framherjinn Antonio De Vitis hefur ekkert getað leikið að undanfömu vegna meiðsla. Pá hefur framheijinn Marco Ferrante einnig verið meiddur, en vonast er til að hann geti leikið á morgun. Líklegt byrjunarlið: Taibi, Polonia, Brioschi, Ferrazzoli, Maccoppi, Lucci, Turrini, Papais, Ferrante, Moretti, Piovani. Foggia virðist aldrei ná að leika leik án þess að einhver leikmanna liðsins sé í leikbanni og á morgun er það vamarmaðurinn Giordano Caini sem fær það hlutskipti. En í hans stað í liðið kemur David Bi- anchini, sem var í leikbanni í síð- ustu umferð. Pierpaolo Bresdani hefur ekki æft með félögum sín- um í vikunni vegna meiðsla, en ætti að vera tilbúinn á morgun. Líklegt byrjunarlið: Mancini, Nicoli, Sjónvarpsleikur: PARMA-AC MILAN Parma getur stillt upp sínu sterk- asta liði, að Belganum Georges Grun undanskildum, en hann leikur ekkert næstu mánuðina. Liðinu hefur gengið mjög vel það sem af er og varla hægt að finna veikan hlekk í liðinu. Luca Bucd kom frá Reggiana í sumar og hef- ur staðið sig best allra markvarða í deildinni, að mati ítalskra blaða. AJlir vamarmennimir hafa verið viðloðandi landsliðshóp ftala, og Antonio Benarrivo er á góðri leið með að tryggja sér stöðu hægri bakvarðar hjá Arrigo Sacchi. Sví- inn Tomas Brolin hefur leikið sem tengiliður að undanfömu og átt frábæra leiki ásamt Massimo Crippa á miðjunni. f fremstu víg- línu em svo Faustino Asprilla og Gianfranco Zola. Asprilla hefur slegið í gegn í vetur og þykir nú í hópi bestu leikmanna heims og Zola nýtur sín vel rétt fyrir aftan hann. Ekkert pláss hefur verið fyrir Alessandro MeUi í liðinu að undanförnu og gamla kempan Daniele Zoratto hefur haldið honum fyrir utan Uðið. Líklegt byrjunarlið: Bucci, Ben- arrivo, Di Chiara, Minotti, Apoll- oni, Sensini, Brolin, Zoratto, Crippa, Zola, Asprilla. AC Milan lék á miðvikudag gegn Anderlecht í Belgíu í Evrópu- keppni meistaraliða og gerði markalaust jafntefli. Útlit er fyrir að tveir þekktir leikmenn leiki ekki oftar í treyju AC Milan. Marco van Basten hefur átt við erfið meiðsli að stríða og læknar hafa tjáð honum að óráðlegt sé fyrir hann að Ieika knattspyrnu næstu mánuðina. Pví er talið lík- legt að Van Basten leggi skóna á hilluna. Dejan Savicevic er mjög óánægður í herbúðum Milan eftir að Frakkinn Marcel Desailly var keyptur á dögunum. Hann hefur gagnrýnt stjómendur liðsins og á meðan félagar hans voru að keppa í Belgíu æfði hann með unglingaliði félagsins í Milanello, höfuðstöðvum félagsins. Á morg- un leikur Milan án Demetrios Al- bertini, sem er í leikbanni; má búast við að Marcel Desailly taki stöðu hans og leiki með Roberto Donadoni á miðjunni. Alessandro Orlando verður sennilega á vinstri kanti og Daninn Brian Laudmp á hægri, en hann þótti slakur á móti Anderlecht. f fremstu víglínu verða sennilega Jean-Pierre Papin og Marco Sim- one, en einnig er hugsanlegt að Rúmeninn Florin Raducioiu fái tækifæri. Gaman verður að fylgj- ast með hvort Gianluigi Lentini fær tækifæri til að spreyta sig, en hann hefur verið á bekknum að undanförnu eftir að hann náði sér af meiðslum. Líklegt byrjun- arlið: Rossi, Panucci, Maldini, Desailly, Costacurta, Baresi, Don- adoni, Orlando, Papin, Laudmp, Simone. Asprilla hefur slegið í gegn með Parma og það ver&ur fróolegt að sjá hvað hann gerir gegn meisturum AC Milan á sunnudag, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Chamot, Di Biacio, Bianchini, Bucaro, Bresciani, Seno, Koly- vanov, Stroppa, Roy. SAMPDORIA-CREMONESE Sampdoria leikur án bakvarðarins Marcos Rossi á morgun, en hann tognaði á læri gegn Foggia um síð- ustu helgi. Varnarmaðurinn sterki, Moreno Mannini, hefur ekki getað æft af fullum krafti þessa viku vegna veikinda og Ruud Gullit og Vladimir Jugovic eiga við smávægileg meiðsli að stríða, en allir verða þeir með á morgun. Fyrirliðinn Pietro Vierc- howod kemur inn í liðið að nýju eftir leikbann. Líklegt byrjunarlið: Pagliuca, Mannini, Dall'Igna, Gullit, Vierc- howod, Sacchetti, Lombardo, Jugovic, Platt, Mandni, Evani. Cremonese tapaði fyrir Reggiana um síðustu helgi og var það fyrsta tap liðsins á útivelli í vetur. Frí- herjinn Corrado Verdelli og tengi- liðurinn Stefano De Agostini meiddust á æfingu í vikunni, en ekki alvarlega og verða sennilega með á morgun. Alessandro Pe- droni var rekinn útaf gegn Reggi- ana fyrir að brjóta á Paolo Futre, en samkvæmt sjónvarpsmyndum kom hann ekki við Futre, þrátt fyrir góða tilraun. Líklegt byrjunarlið: Turd, Gualco, Lucarelli, De Agostini, Pedroni, Verdelli, Giandebiaggi, Nicolini, Dezotti, Maspero, Tentoni. TORINO-LECCE Torino endurheimtir króatíska bakvörðinn Robert Jarni eftir tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla. Hann kemur sennilega til með að vera eini útlendingurinn í liðinu, en Carlos Aguilera og Enzo Francescoli hafa átt erfitt með að tryggja sér sæti í liðinu. Þá hefur Roberto Mussi átt við meiðsli að stríða og leikur sennilega ekki með, en hann vann sér sæti í landsliði ítala fyrir skömmu. Líklegt byrjunarlið: Galli, Sergio, Jarni, Annoni, Gregucci, Fusi, Sordo, Fortunato, Silenzi, Car- bone, Venturin. Lecce tók upp gamla siði og tap- aði fyrir Roma um síðustu helgi. Liðinu hefur enn ekki tekist að næla í stig á útivelli í vetur og ólíklegt að það breytist á morgun. Framherjinn Paolo Baldieri er meiddur og leikur ekki með, en Stefano Trinchera, sem meiddist um síðustu helgi, ætti að vera bú- inn að ná sér. Liklegt byrjunarlið: Gatta, Biondo, Trinchera, Gerson, Ceramicola, Verga, Gazzani, Melchiori, Russo, Notaristefano, Ayew. UDINESE-ATALANTA Udinese hefur aðeins náð tveimur stigum úr síðustu fimm leikjum, en á möguleika á að bæta stöðu sína á morgun þegar liðið mætir Atalanta, sem hefur gengið ámóta illa. Helsti markaskorari liðsins, Marco Branca, hefur búið að meiðslum undanfarnar vikur, en ávallt leikið með og engin breyt- ing verður á því nú. Markvörður- inn Massimiliano Caniato missti af síðasta leik vegna meiðsla og Graziano Battistini tók stöðu hans og stóð sig mjög vel. Þá er pólski landsliðsmaðurinn Marek Kozm- inski búinn að vera veikur í vik- unni og leikur sennilega ekki með á morgun. Stefano Desideri hefur átt í erjum við stjómendur liðsins og lék ekki með um síðustu helgi, en þau mál virðast nú leyst. Líklegt byrjunarlið: Battistini, Pelle- grini, Rossini, Gelsi, Calori, De- sideri, Adamczuk, Rossitto, Branca, Pizzi, Statuto. Atalanta hefur ekki enn fengið stig á útivelli í vetur og er nú í næstneðsta sæti deildarinnar með sjö stig ásamt Udinese. Giuseppe Minaudo og Pierluigi Orlandini em tilbúnir í slaginn að nýju, en þeir léku ekki gegn Parma um síð- ustu helgi. Óvíst er hvort Roberto Rambaudi og Franck Sauzée geta leikið, en þeir eiga við meiðsli að stríða og það kemur ekki í ljós fyrr en á síðustu stundu hvort þeir verða með. Líklegt byrjunarlið: Ferron, Mag- oni, A. Poggi, Valentini, Minaudo, Montero, Orlandini, Sauzée, Ganz, De Paola, Scapolo. Getraunaspó: 1 Cagliari-Roma X 2 Inter-Juventus 1 3 Lazio-Genoa 1 4 Napoli-Reggiana 2 5 Parma-AC Milan 1 6 Piacenza-Foggia 2 7 Sampdoria-Cremonese 1 8 Torino-Lecce 1 9 Udinese-Atalanta 2 10 Brescia-Verona 1 11 Lucchese-Ascoli X 12 Padova-Cesena 1 13 Pescara-Pisa 1 Ath: Sölukerfi getrauna lokar kl. 20.30 í kvöld.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.