Tíminn - 27.11.1993, Side 13

Tíminn - 27.11.1993, Side 13
Laugardagur 27. nóvember 1993 I Kina „spretta skýjakljúfar upp eins og gorkúlur,' sagði maður fyrir skömmu nýkominn þaðan að austan. ráðum kommúnista. Má af því nefna andstöðu Kínverja utan Kína við kommúníska valdhafa þess, menningarbyltingu svokall- aða með hörðum áróðri gegn kenningum Konfúsíusar (sem voru ríkissiður í Kína um Iangán aldur), eyðileggingu menningar- minja í þeirri sömu byltingu o.fl. Jafnhliða þessu er mikið atriði að miklu fleiri Kínveijar en Japanir eru erlendis og þá sérstaklega í Suðaustur-Asíu, aðalvettvangi keppninnar þeirra á milli. Þegar fjallað er um komandi kínverskt risaveldi í efnahags- málum, væri því e.t.v. réttara að tala um Kínverja en Kína. Þ.e.a.s. Kínvetja jafnt í Kína, í „þremur litlu tígrunum (eða drekunum)' Tævan, Hongkong og Singapúr og „í dreifingunni'. fólk kínverskrar ættar sem fjöl- mennt er sérstaklega í Suðaust- ur-Asíulöndum og má sín mikils þar í fjár- og efnahagsmálum. Annar heimshluti hefur nýlega orðið mikilvægur vettvangur fyr- ir dreifingarkínveija með mikl- um innflutningi þeirra: Norður- Ameríka. í fjölmiðlum er nú tal- að um „Stór-Kína' og þá átt við Kína sjálft, fyrrnefnd þijú kín- versk smáríki og Kínveija í dreif- ingunni. Á alþjóðavettvangi er reiknað með að allir þessir aðilar standi að vissu marki saman á þjóðernisgrundvelli, hvað sem viðhorfum í stjórnmálum og til .hugsjóna' líði. Samkvæmt einni heimild búa nú um 55 milljónir Kínveija ut- an Kína og kváðu þeir þegar eiga meiri gjaldeyrisforða en Japan. Meðal dreifingarkínverja eru fjölmennastir þeir, sem ættaðir eru frá strandfylkjum Suður- Kína. Kínverjar utan Kína hafa þegar fjárfest þar tvisvar til þrisv- ar sinnum meira en Japanir og Bandaríkjamenn samanlagt. Mest af fjárfestingunum frá „litlu tígrunum' og dreifingarkínveij- um er í syðri strandfylkjunum. Ættarböndin milli íbúa þeirra og landa þeirra í dreifingunni skipta í því sambandi miklu máli. íbúar Guangdong Iíta þegar á fylki sitt sem efnahagslega þungamiðju Kína. Stöðugleikasinnar Kína, Hongkong og Tævan hafa aukið sameiginlega hlutdeild sína í heimsversluninni (verslun- in þeirra á milli, sem þrefaldaðist á sl. 15 árum, ekki meðtalin) úr 1,8% í 5% síðan 1980 og Banda- ríkin, Japan og Þýskaland eru einu ríkin sem á þeim vettvangi eru verulega ofar Kínveijum. J Stór-Kína sameinast kunnátta Taívanmanna í tækni og stjóm- un, Ieikni Hongkongmanna sem miðlara í fjármálum og verslun, ódýrt vinnuafl og auðlindir Kína og aðgangur að vaxandi smá- sölumarkaði og markaði fyrir iðnaðarvörur í Indónesíu, Singapúr og Tælandi. Allt þetta tengist saman af sameiginlegri menningu og víðtækum fjöl- skylduböndum," skrifar austur- asíufræðingur einn. Hann telur líkur á að þetta fjölþætta veldi eigi eftir að eflast að mun og aö í keppni við það muni Japan ekki standa ýkja vel að vígi. Ljóst er á hinn bóginn að mörg Ijón em í vegi „Stór-Kína" og þá einkum gífurlegt rask og kerfis- vandamál í Kína sem fylgt hafa hraðri þenslu í efnahagsmálum. Þrátt fyrir ófáar blikur á lofti er ætlan allmargra að tiltölulega h'til hætta sé á „alvarlegum' átökum í Austurlöndum fjær á næstunni. Það stafar af því, er sagt, að þar hafa efnahagsmálin algeran for- gang og þeim sem ráða ferðinni þar er að því skapi annt um að viðhalda stöðugleika og forðast átök af áhættusamara taginu. 13 Með sínu nefi Nú styttist í 1. desember, fullveldisdaginn, og því er ekki úr vegi að vera aðeins á þjóðlegu og hátíðlegu nótunum í a.m.k. öðm lagi þáttarins í dag. Þess vegna varð „Þingvallasöngur' fyrir val- inu sem fyrra lagið að þessu sinni, en ljóðið er eftir Steingrím Thorsteinsson og lagið eftir Helga Helgason. Seinna lagið hins vegar á ættir sínar að rekja til Vestmanna- eyja, til tvímenninganna Áma úr Eyjum og Oddgeirs Kristjáns- sonar, en þetta er lagið „Vor við sæinn' sem hefur í áraraðir verið með vinsælustu sönglögum. Góða söngskemmtun! ÞINGVALLASÖNGUR c Öxar við ána F G7 C árdags í ljóma F C G7 C D G upp rísi þjóðhð og skipist í sveit. C Skjótum upp fána, D7 G skært lúðrar hljóma, D7 G Em C D7 G skundum á ÞingvöII og treystum vor heit. C Fram, fram, aldrei að víkja! F Dm G Fram, fram, bæði menn og fljóð! C Tengjumst tryggðarböndum, F tökum saman höndum, G7 C stríðum, vinnum vorri þjóð! VOR VIÐ SÆINN G Bjartar vonir vakna E7 Am í vorsins ljúfa blæ, D7 bjarmar yfir björgum G við bláan sæ, C fagur fuglasöngur C7 G nú fyllir loftin blá, E7 Am bijóstin ungu bifast D7 G af bhðri þrá. C í æðum ólgar blóð G í aftansólarglóð, D7 G ég heyri mildan hörpuslátt. C Ég heyri huldumál, G er heiha mína sál A7 D7 við hafið svaít og sahrblátt. Komdu vina kæra, ó, komdu út með sjó, bylgjur klettinn kyssa í kvöldsins ró. Viltu með mér vaka, þú veist ég elska þig. Komdu, vina kæra, og kysstu mig. c E7 t.: < >< ► ; ! f : T l l l I I i 0 2 3 14 0

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.