Tíminn - 27.11.1993, Side 14

Tíminn - 27.11.1993, Side 14
14 Laugardagur 27. nóvember 1993 Hörður Tryggvason bóndi Svartárkoti, Bárðardal t MINNING Hann Hörður frændi er dáinn. Við slíka fregn fyllmnst við sökn- uði, en þannig er ávallt þegar kallið kemur. Hörður föðurbróð- ir okkar fæddist 13. júlí árið 1909 að Víðikeri í Bárðardal. Hann var sonur hjónanna Sig- rúnar Ágústu Þorvaldsdóttur og Tryggva Guðnasonar, er þar bjuggu rausnarbúi. Þau hjón eignuðust tíu böm, þijú þeirra dóu í frumbemsku, en upp kom- ust sjö og er Hörður frændi þriðji bróðirinn sem fellur frá. Látnir eru Egill og Höskuldur. Hin systkinin em Helga, Kári, Kjart- an og Sverrir. Eins og sjá má skírðu Víðikershjónin börn sín rammíslenskum nöfnum forn- kappanna. Hörður ólst upp í hópi glað- værra systkina og á heimilinu var bóklestur og kveðskapur í heiðri hafður, þó vinnutími væri oft langur, eins og þá tíðkaðist. Ungur fór Hörður til náms í Laugaskóla og var þar í tvo vet- ur. Árið 1935 kvæntist Hörður hinni ágætustu konu, Guðrúnu Önnu Benediktsdóttur frá Stórási í Bárðardal, og bjuggu þau sam- an í ástríku hjónabandi í tæp 60 ár. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau í Víðikeri í þrí- og fjórbýli með bræðmm Harðar, Kára og Kjartani, og fjölskyldum þeirra og móður hans og bræðrunum Agli og Sverri. Þó Víðikershúsið hafi verið stórt og reisulegt á þeirra tíma mælikvarða var oft þröng á þingi, en sambýlið sér- staklega gott og heimilisfólkið samhent. Guðrún og Hörður eignuðust þijú börn: Hauk fjármálastjóra hjá RALA, kvæntan Sigrúnu Steinsdóttur; Tryggva bónda í Svartárkoti, kvæntan Elínu Bald- vinsdóttur, og Steinunni hús- freyju á Húsavík, gifta Daníel Jónssyni. Bamabömin urðu sjö og bamabamabömin em tvö. Árið 1947 fluttu Guðrún og Hörður í Svartárkot, sem er syðsti bær í Bárðardal. Bærinn stendur við Svartárvatn þar sem Svartáin fellur úr vatninu. Þama er rómuð náttúmfegurð, fögur Qallasýn, fjölskníðugt fuglalíf og jaðar Ódáðahrauns nær að tún- garði. Góð silungsveiði er í á og vatni. Hörður stundaði mikið veiðar í vatninu með börnum sínum og síðar barnabörnum, bæði í net og á dorg og orðlagður var reykti silungurinn hans. Hörður frændi var mikill nátt- úmunnandi, þekkti öll blóm og jurtir, einnig fugla og fylgdist vel með háttum þeirra. Öll sumur var mikið um gesti í Svartárkoti, vini og vandamenn og innlenda sem erlenda ferðamenn. Gest- risni var mikil og ekki spillti glaðværð húsráðenda. Það var jafnan siður þeirra hjóna að ganga út með gestum og sýna þeim umhverfið og .blómagarð- inn', en svo nefndi Hörður stundum Tunguna sunnan við ána. Sannarlega kunnu þau hjónin að meta landið sitt og alls staðar var sama snyrtimennskan bæði úti og inni. Hörður frændi var mjög greind- ur maður og las mikið alla sína ævi. Hann hafði sérstaklega skemmtilega og lifandi frásagn- argáfu og varð allt að ævintýr- um. Minnumst við systur ótal ævintýra er hann sagði okkur þegar hann bjó í Víðikeri. Það eru okkur ógleymanlegar stundir þegar hann var að spinna á spunavélina og sagði okkur bömunum sögur á meðan, m.a. Múnchhausensögur og söguna um Hati-hati. Reyndar var hann óþreytandi að segja okkur sögur, hvar og hvenær sem færi gafst. Svo ríkur var þessi siður að alla tíð síðan og alveg fram á síðustu ár höfurn við beðið Hörð frænda um að segja okkur sögur er við hittumst, ekki síst söguna um Hati-hati. Það er ómetanlegt að hafa átt slíkan frænda. Hörður og Guðrún bjuggu góðu búi og fyrstu árin þeirra í Svart- árkoti byggðu þau heimilisraf- stöð. Seinna, þegar Tryggvi son- ur þeirra og Elín kona hans hófu búskap í sambýli með þeim, var íbúðarhúsið stækkað, ný rafstöð byggð, einnig stórt fjárhús ásamt hlöðum og ræktun aukin til muna. Hörður var góður spila- maður og spOaði bridge. Var oft gripið í spil þegar gesti bar að garði og vom þeir feðgar í spda- klúbbi í Dalnum. Síðustu árin átti Hörður frændi við vanhedsu að striða og fyrir rúmu ári hættu þau búskap og fluttu á dvalar- heimili aldraðra að Hvammi á Húsavík. í sumar voru þau heima í Svartárkoti um tíma og greip þá Hörður stundum hrífu sína ef þurrkur var. Hann andað- ist að morgni 19. nóv. sl. og verður jarðsunginn frá Lundar- brekkukirkju laugardaginn 27. nóv. „Er syrtir að nótt, til sxngur er mál að ganga, sxt mun hvíldin eftir vegferð stranga.' og fyrr í sömu vísu: „En samt ergaman að hafa lifað svo langan dag.' (Öm Amarson) Elsku Rúna okkar, Haukur, Steinunn, Tryggvi og allt ykkar fólk. Við systumar og fjölskyldur okkar samhryggjumst ykkur innilega og biðjum góðan Guð að blessa ykkur. Hildur, Sigrún, Rannveig og Áslaug Káradxtur If Alúðar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vinar- hug við andlát og útför Péturs Þorsteinssonar fyrrverandl sýslumanns Sérstakar þakkir em færðar Dalamönnum. Björg Ríkarðsdóttir Jóna Lára Pétursdóttir Rfkarður Már Pétursson Þorstelnn Pétursson Þórhlldur Pétursdóttlr tengdasynlr og bamaböm Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa aö vera vélritaðar. Bridge UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON ^ Enn sigra Hjördís og Ásmundur Reykjavíkurmótið í tvímenningi fór fram um síðustu helgi með þátttöku 42 para. Sigurvegarar urðu Hjördís Eyþórsdóttir og Ásmundur Pálsson. Þetta er annað stórmótið á stuttum tíma sem þau vinna, en fyrir skemmstu sigruðu þau barómeter Bridgefélags Kópavogs. Hjördís og Ásmundur tóku snemma forustuna og héldu henni út allt mótið þótt stutt væri lengstum í Sigurð Vilhjálmsson og Hrólf Hjaltason sem lentu í öðru sæti með tuttugu stigum minna. Haukur Ingason og Sævar Þorbjömsson höfnuðu í þriðja sæti. Keppnisformið var barómeter og voru spiluð forgefin spil, tvö spil á milli para. Spilað var í Sigtúni 9 og keppnisstjóri var hinn röggsami Kristján Hauksson. Lítum á tvö spil úr mótinu. SpU 58, Austur gefur/allir NORÐUR A K653 y KG é DG6 * ÁD53 VESTUR AUSTUR + GT9 * ÁD4 V 8 V D75432 ♦ T9832 4 K7 * KT74 + 62 SUÐUR A 872 V ÁT96 ♦ Á54 + G98 Austur Suður Vestur Norður Guðjón Fríðjón Sponni Sigfús 1 * pass pass dobl pass lgrand allir pass Guðjón Bragason og Erlingur Amarson vom í vöminni gegn einu grandi Friðjóns Þorvaldsson- ar og þeir sýndu skemmtilega spretti í vöminni. Útspilið var tíg- ultía, drottning í blindum, kóngur hjá austri og suður dúkkaði. Guð- jóri skipti yfir í lauf, átta, tía og drottning í blindum átti slaginn. Þá kom hjartaás og hjartagosi sem fékk að eiga slaginn (vestur kast- aði spaða). Þá spilaði Friðjón laufi úr blindum á gosa og Erlingur átti slaginn á kóng. Því næst kom tí- gull sem sagnhafi drap heima með ás. Tíguldrottningin fylgdi í kjöl- farið og lauf á níuna heima þar sem sagnhafi vildi vera heima fyr- ir endaspilið. En það varð aldrei. NORÐUR + K653 v - ♦ - *Á VESTUR AUSTUR + GT + ÁD4 V - V D7 ♦ 9 ♦ - * 74 * - SUÐUR + 872 V ÁT ♦ - * - Þegar suður tók hjartaásinn kast- aði Guðjón drottningunni undir! Sagnhafi gat tekið á tíuna en varð síðan að gefa afganginn. Þar með græddust vöminni tveir slagir fyr- ir einn sem fómað var (blindur fær bæði slag á laufás og spaða- kóng ef austur fer inn) og afrakst- urinn varð 8 slagir, 120, sem var með minna móti á NS-spilin. MULTI-sögnin góða sýnir alltaf á sér fleiri og fleiri hliðar. Spil 73 NORÐUR + 8 ♦ 873 ♦ T8753 ♦ 7643 VESTUR AUSTUR + GT42 A 7653 V D76 M KT94 ♦ ÁK2 ♦ G86 + KD5 * 82 SUÐUR ▲ ÁKD9 ♦ ÁG4 ♦ D5 + ÁGT9 Suður var gjafari á jöfnum hættum og ákvað að opna á tveimur tíglum (sterkt jafnskipt eða veikur 6-litur í hálit). Hið átómatíska svar norðurs er hjarta, og þannig gengu sagnir út um allan sal, en Vignir Hauksson, með tíuna fimmtu í tígli og mikið msl, fann passið! Sú ákvörðun gaf 95% skor, þar sem spilið vannst á meðan gröndin (2-3 á flestum borðanna) vom vonlaus. Ekki vom sagnir einungis skrýtnar heldur framgangur spilsins einnig. Suður stóð spilið slétt, gaf fimm slagi og þar af fjóra á tromp! Útspil vesturs var lauf- kóngur sem sagnhafi drap og spil- aði strax tíguldrottningu. Vestur átti slaginn og tók laufkónginn og spilaði meira laufi sem vestur stakk. Þá kom hjarta (fullseint) og sagnhafi drap með ás, tók þijá efstu í spaða og kastaði tveimur hjörtum, spilaði síðan fjórða spað- anum og kastaði hjarta úr blind- um. AV áttu tvo trompslagi en 90- kallinn stóð eftir. Kauphallarmótið 1993 Kauphallarmót Bridgesambands íslands verður haldið á Hótel Sögu helgina 3.-5. desember nk. Mótið verður haldið í samvinnu við Verðbréfamarkað íslandsbanka sem mun reka Kauphöll á staðn- um eins og undanfarin ár og nú verða Eurocard kreditkort einnig í samstarfi. Ef pör em keypt með kortum frá Eurocard, getur við- komandi dottið í lukkupottinn í enda mótsins en þá verður eitt parið dregið út og kaupandi þess fær kaupverðið endurgreitt. Þetta gildir því aðeins að eitthvert af kortum Eurocard sé notað við kaupin. Mótið hest að venju með upp- boði föstudagskvöldið 3. desem- ber á Hótel Sögu, þar sem öll skráð pör verða að mæta. Allir karlmenn sem taka þátt verða að spila í jakkafötum með bindi og kvenfók í viðeigandi klæðnaði. Skráning í mótið er á skrifstofu BSÍ í síma 91-619360. Ef þátttaka fer yfir 32 pör verður valið úr pör- um eftir styrkleika. Þátttökugjald er 10.000 kr. á par og lágmarks- boð er einnig 10.000 sem viðkom- andi ábyrgist ef enginn býður hærra. Skráningarfrestur rennur út nk. mánudag 29. nóvember. Frábær vöm Það er oft auðvelt að blekkja andstæðinginn með litlum til- kostnaði. Lítum á dæmi um það úr sveitakeppni á Englandi fyrir nokkrum árum. Suður verður sagnhafi í 6 gröndum og útspilið er tígulnía. NORÐUR + ÁKD * ÁKD2 * KDT * DT5 VESTUR AUSTUR + 752 + 8643 V GT63 M 54 ♦ 987 ♦ 6543 * ÁG9 * 743 SUÐUR + GT9 V 987 ♦ ÁG2 * K862 Við sem sjáum öll spilin sjáum að laufgosinn liggur fyrir svíningu og 3-3 legan tryggir 12. slaginn En sagnhafi fór niður á spilinu eftir frábæra vöm vesturs. Suður drap útspilið heima á gosa og réðst strax á laufið. Hann spilaði tvisti, gosinn kom frá vestri, og drotm- ing í blindum. Ef samgangur hefði verið nægur hefði suður eflaust farið heim og spilað litlu laufi að heiman en eins og spilið er ákvað hann að spila lauftíunni. Austui og suður settu lítil spil og vestur drap á ásinn. Vestur spilaði sig út á tígli sem sagnhafi drap í blindum. Allt benti til að vestur hefði verið með ÁG í laufi og hægt væri að svína tíunni af austri. Samt sem áður var eðlilegt að athuga hina litina og reyna að fá talningu ef hjartað myndi ekki brotna. Þann- ig að sagnhafi (sem spilaði eins og stórmeistari allt spilið) tók þrisvar hjarta, vestur kastaði tígli í fjórða hjartað. Þá tígulslagir og eftir að spaða hafði verið spilað þrisvar virtist sem vestur ætti 13. spaðann. Sagnhafi svínaði því laufáttunni. Vestur fagnaði full- naðarsigri og átti tvo síðustu slagina, á laufgosann blankan og hjartagosann einnig. Tveir niður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.