Tíminn - 27.11.1993, Page 15
Laugardagur 27. nóvember 1993
Annarskonar
ævisaga
BÓKMENNTIR
Einar E. Laxness
Einar Már Guðmundsson:
Englar alheimsins. Skáldsaga.
Almenna bókafelagið, 1993.
224 bls.
f alvarlegum geðsjúkdómum rofn-
ar vanabundið samband manns
við veruleikann, bæði hlutveru-
og félagslegan. Jafnframt þessu
tapast eða brenglast sjálfsmynd
einstaklingsins svo að breytingar
verða á persónuleikanum. Þannig
skýtur upp í kollinum á viðkom-
andi hugmyndum, sem flokkast
undir ranghugmyndir, en þessar
ranghugmyndir eru af ýmsum
toga og geta birst í bæði kostuleg-
um og óhugnanlegum myndum.
Með þessar ranghugmyndir í koll-
inum kemur fram orðræða geð-
sjúklingsins sem stangast á við
hina vanabundnu orðræðu, þann-
ig að árekstur verður milli veru-
leika geðsjúklingsins og hins ytri
heims. Bent hefur verið á að hið
skáldlega mál sé náskylt orðræðu
hins sjúka óg þar búa eflaust ein-
hver sannindi að baki.
Sagan Englar álheimsins er sögð
af Páli, geðsjúklingi, sem er látinn.
En hann segir ævisögu sína frá
vöggu til sjálfsvígs síns. Þannig
verður þessi ævisaga hálfgerðar
játningar Páls og sýna upplifanir
hans og viðburði, þar sem fyrir
kemur urmull af persónum líkt og
í góðum ævisögum. Líta má þessa
sögu sem paródíu á ævisögur, því
hér er sögumaður geðsjúklingur
sem eflaust mundi ekki hæfa nú-
tímaævisagnariturum. Þannig lýsir
hann fyrri árum sínum, en jafn-
framt spinnast inn í þetta brot þeg-
ar Páll er að missa vitið eða er í
geðrofi.
Sögumaður eða Páll rifjar upp at-
burði og segir frá ýmsum persón-
um þar sem sögusviðið er Reykja-
vík. Stundum segir hann frá í nú-
tíð og þar með upplifir lesandi
textann á öðru plani en í venju-
Iegri ævisögu. Inn í textann bland-
ast svo brot sem lýsa ástandi og
upplifun sögumanns og þar ber oft
Einar Mór Guðmundsson
á ljóðrænum tilþrifum. Jafnframt
því birtist vel sú orðræða sem þar
á við um heim Páls, líkt og þegar
hann reynir að sjá samhengi milli
sín og draums sem móður hans
dreymir: ,Ég var bijálaður hestur í
auga eih'fðarinnar.'
Páll byijar sögu sína alveg á fyrsta
skeiði lífs síns og í raun fyrr, þann-
ig að þessi ævisaga nær því lengra
aftur en hefðbundnar ævisögur.
Þannig hefur Páll einskonar yfir-
sýn yfir allan sinn feril og sú hug-
mynd, sem hann hefur um þessa
ritun og setur fram, er: .... um að
enginn ætti að skrifa ævisögu sína
fyrr en ævi hans er öll.' Og við
þetta stendur sögumaður.
f upphafi koma vel fram tenging-
ar og hugmyndir sem einkenna
orðræðu hins geðveika, líkt og
þegar Páll segir hvar fæðingarstað-
ur hans var: „Ég er Reykvflcingur
— reykjandi víkingur'. En þó að
tengingar sögumanns séu oft á tíð-
um einkennilegar, þá hvílir yfir
þeim skyldleiki við tungutak sem
er fengið úr samtímanum og úr
þeirri heimssýn sem við blasir. Hér
má minnast á dægurlagatexta og
vísanir í bókmenntir. Sú skörun er
oft á tíðum vel gerð, lflct og þessi
tilvitnun sýnir: „Ólafur pabbi minn
gerði ekki ráð fyrir komu minni
fyrr en um miðjan aprfl, en ég hef
alltaf verið á undan tímanum og
apríl er grimmastur mánaða.'
Sá partur, sem tilheyrir bamæsku
Páls, minnir óneitanlega á fyrri
sögur Einars Más, þ.e. Riddara
hringstigans og Vængjasláttinn í
þakrennum, en þó er þessi texti
mun jarðbundnari. Aftur á móti
þegar annað skeið tekur við í lífi
Páls, eða unglings- og fullorðinsár,
þá verður textinn fjölbreyttari og
nær hugarflugi Páls. Stundum nær
frásögnin að vera á þrem plönum
líkt og þegar Páll rifjar upp atvik
frá bemsku sinni: „... og horfir dol-
fallinn á þessa tvo heima, raun-
vemleikann í raunvemleikanum
og raunvemleikann í myndinni ...
og man þetta allt löngu síðar,... ég
sjálfur allur útataður í málningu,
grænn og blár á fingmnum, engu
að síðar sannfærður um að ég sé
Vincent van Gogh endurborinn.
Mig verkjar í eyrað.'
Sá drungalegi heimur, sem líf
geðsjúklings er, endurspeglast í
lýsingu Páls á þeim hrakningum
sem hann á við að glíma frá Kleppi
í fangaklefa, frá gistiheimilum til
endastaðarins eða öryrkjablokkar.
Jafnframt þessu kemur vel fram sá
raunveruleiki sem geðsjúklingar
þurfa að horfast í augu við, en það
em lyf. En í orðum Páls ber oft á
húmor og kaldhæðni, en þó ein-
lægni þegar hann lýsir áhrifum
„lyfjaskýsins' sem hangir yfir vit-
um hans. Þannig er atburðarásin
raunsæisleg á yfirborði, en yfir
textanum hvflir þó alltaf léttleiki
og húmor. Það er helst í hinum
ljóðrænu bútum sem hið þunga
yfirbragð liggur yfir textanum.
í sögunni kemur fyrir fjöldinn
allur af persónum sem em misvel
gerðar, en einna áhugaverðastar
eru aðrir sálufélagar sögumanns.
Hér má nefna Pétur sem er kom-
inn með Kína á heilann í geðvefld
sinni og keðjureykir útí eitt. Þann-
ig tekst Einari oft að spinna saman
raunsæisleg atriði og fjarlægari
hugmyndir, sem þó eiga heima í
ranghugmyndaheimi þessara
manna.
Með þessari sögu tekst Einari Má
að skapa skáldverk með ákveðnu
tvísæi, þar sem tungutak skáld-
skaparins og þess geðsjúka skarast
á lifandi hátt. Þannig að útkoman
verður oft á tíðum mjög áhuga-
verð fyrir þær sakir hvað orðræða
nútímans blandast heimi hins vit-
firrta á skáldlegan hátt.
Hver er
grímumaðurinn?
BÓKMENNTIR
Jón Þ. Þór
Stefán Júlíusson:
Grímumaðurinn.
Skáldsaga.
Bókaútgáfan Björk 1993.
187 bls.
Sagan af grímumanninum gerist
í upphafi heimskreppunnar
miklu, um 1930. Sögusviðið er
lítfll bær, sem Hraunfjörður heit-
ir, en kunnugir lesendur þurfa
vart að velkjast lengi í vafa um
við hvaða bæ er átt.
Aðalpersóna sögunnar er ungur
piltur, Ámundi Guðmundsson.
Hann er af fátæku foreldri og
þegar sagan hefst er fjölskylda
hans komin í fjárhagskröggur,
sem eiga rætur sínar að rekja tfl
kreppunnar. Heimilisfaðirinn
hefur gengið atvinnulaus um
skeið, matarreikningurinn hjá
kaupmanninum hækkar stöðugt
og lítt gengur að greiða af íbúð-
inni, sem keypt var á meðan bet-
Stefón Júlíusson
ur áraði. Ámundi er á hinn bóg-
inn dugnaðarforkur og til þess
að létta undir með foreldrum
sínum og skapa sjálfum sér
möguleika á skólagöngu tekur
hann að sér ýmis viðvik fyrir
Þórð kaupmann Jónsson, þann
hinn sama og heldur föður hans
í helgreipum og getur neitað fjöl-
skyldunni um úttekt þegar hon-
um sýnist. Flest þessara viðvika
eru hins vegar á mörkum þess
löglega og þannig er grímumað-
urinn til kominn.
Þessi skáldsaga Stefáns Júlíus-
sonar er létt og þægileg aflestrar.
Söguþráðurinn er einfaldur og
skýr og sama máli gegnir um
sögupersónumar. Hér er bmgðið
upp einfaldri, jafnvel einfaldaðri
mynd af htlu samfélagi á tíma-
mótum, þar sem stéttaskipting er
áberaundi. Sumir hafa allt tfl alls,
aðrir ekki neitt. Rómantíkin er
hins vegar höfð með í spilinu og
fyrir hennar tilverknað fer allt
vel að lokum.
Atburðarásin er þannig býsna
reyfarakennd og minnir um
margt á sögur, sem skrifaðar
vom á öldinni sem leið og fram-
undir fyrri heimsstyrjöld. Allt
um það er bókin hpurlega skrif-
uð og vísast ágætis afþreying fyr-
ir þá lesendur, sem ekki vilja
hafa alltof krefjandi rit á nátt-
borðinu.
15
Félagsvist á Hvolsvelli
Félagsvist verður ( Hvolnum sunnudagskvöldin 28. nóvember og 12. desember
kl. 21 (ekki 5. nóvember, eins og áður var auglýst). Góð kvöldverðlaun.
Framsóknarfélag Rangælnga
Aðalfundur
Framsóknarfélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn
29. nóvember n.k. I Hótel Lind kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Finnur Ingólfsson alþingismaður mun ræða stjómmálavið-
horfið.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna I Reykjavlk verður haldinn mánudag-
inn 6. desember n.k. I fundarsal A, Hótel Sögu, og hefst kl. 17.00.
Auk venjulegra aöalfundarstarfa fjallar fundurinn um borgarmál og stjómmálavið-
horfið. Nánari dagskrá verður auglýst slöar.
Stjóm fulltrúariðslns
Finnur
Auglýsing frá
Ábyrgðasjóði launa
Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að eingöngu þeir
launþegar, sem skráðir eru atvinnulausir á uppsagnar-
fresti, hafa rétt á bótum úr Ábyrgðasjóði launa vegna rift-
unar eða uppsagnar vinnusamnings þegar bú vinnuveit-
anda er tekið til gjaldþrotaskipta.
í d-lið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 53/1993 um Ábyrgðasjóð
launa vegna gjaldþrota segir
„Ábyrgð sjóðsins tekur til bóta vegna launamissis í allt
að þrjá mánuði vegna riftunar eða uppsagnar vinnu-
samnings, enda skal sá sem krefst bóta samkvæmt
þessum lið sýna fram á með vottorði vinnumiðlunar
að hann hafi leitað eftir annarri atvinnu þann tíma
sem bóta er krafist."
Aðeins þeir launþegar, sem skrá sig reglulega hjá vinnu-
miðlun á uppsagnarfresti, hafa því rétt á greiðslu launa í
uppsagnarfresti ffá Ábyrgðasjóði launa.
Ábyrgðasjóður launa,
Suðurlandsbraut 24,
Húsafriðunarsjóður
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir umsóknum til
húsafriðunarsjóðs, sem starfar samkvæmt lögum nr.
88/1989 og reglugerð nr. 316/1990.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og tækni-
legrar ráðgjafar.
- framkvæmda vegna viðhalds og endurbóta á friðuðum
húsum og húsum sem hafa menningarsögulegt og list-
rænt gildi
- byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar 1994 til
húsafriðunarnefndar ríkisins, Þjóðminjasafni íslands,
Suðurgötu 41, 101 Reykjavík, á umsóknareyðublöðum
sem þar fást.
Vakin er athygli á nýrri reglugerð um húsafriöunarsjóð
og nýjum umsóknareyðublöðum.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-622475 milli kl.
10.30 og 12 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Rósa Petra Jensdóttir
Bámgötu 37, Reyk|avik
verður jarösungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. nóvember kl. 13.30.
Ingibjörg S. Karlsdóttir
Sigurbjörg K. Kartsdóttir
Svanhildur Karisdóttir
og bamaböm
Sigfús Guðmundsson
Valdimar Runólfsson
Þórður Jónsson