Tíminn - 29.12.1993, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.12.1993, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 29. desember 1993 tímlnn 5 Um 54% ungra og aldraðra undir skattleysismörkum Um 3.600 hjón og 3.700 einhleypir yfir „hátekju- skattsmörkunum'" 1992 Tekjum er misskipt milli lands- manna, eins og öðrum lífsins gæðum. Pannig sýna t.d. skatt- skýrslur síðasta árs að rúmlega 7.300 einstaklingar og hjón voru með tekjur yfir .hátekjuskatts- mörkum" (200 og 400 þús.kr. á mán.), en á hinn bóginn um tíu sinnum fleiri, eða rúmiega 73.000 framteljendur, með tekj- ur undir skattleysismörkum (60 þús.kr. á mánuði). íslendingar 16 ára og eldri voru um 193.400 á síðasta ári. Af þeim voru hátt á sjötta þúsund alveg tekjulausir, hvar af meira en helmingurinn voru giftar kon- ur. Rúmlega 73 þúsund framtelj- endur reyndust með tekjur undir skattleysismörkum, þ.e. undir 721.000 kr. árstekjum. Meðal þeirra voru drjúgur helmingur (54%) allra á aldrinum 16-30 ára og einnig sama hlutfall allra sem orðnir voru eldri en sjötugir. Sömuleiðis kom í ljós að helmingur allra giftra kvenna hafði tekjur undir skattleysis- mörkum, en aðeins um 11 % gif- tra karla. Pá vekur athygli að ríf- lega fjórðungur (27%) allra ein- stæðra foreldra var með tekjur undir skattleysismörkum í fyrra, þ.e. lægri en 60.000 kr. á mán- uði. Þessi hlutföll snúast við, þegar kemur að tekjumörkum hátekju- skatts — 200 þúsund kr. mánað- artekjum einhleypra og 400 þús.kr. mánaðartekjum hjóna. Ríflega fjórðungur allra giftra karla var yfir 200 þús.kr. mark- inu, en hins vegar aðeins rúm- lega 1% giftra kvenna. Og aðeins 3,5% einstæðra foreldra lentu í þessum hóp. Þegar tekur voru lagðar saman, reyndust aðeins 6,7% hjóna (um 3.600 hjón) yfir 400 þús.kr. markinu í fyrra. Álíka margir einhleypir voru yfir 200 þús.kr. tekjum á mánuði. -HEI Guömundur Ami Stefánsson heilbrigöisráðhen-a óskar Þórarni Tyrfingssyni, formanni SÁA, til hamingju meö afmæliö. Viö hliö þeirra er Ólafur Ólafsson landlæknir. Tlmamynd Ami Bjama Ellefu þúsund farið í áfeng- ismeðferð hjá SÁA Sjúkrastöð Vogs 10 ára í gær SÁÁ hélt upp á tíu ára afmæli sjúkrahússins Vogs í gær, 28. desem- Leiðakerfi SVR endur- skoðað frá grunni Til greina kemur að fjölga ferðum og breyta aksturs- leiðum til að auka farþega- fjöldarm, segir fram- kvæmdastjóri stjómar- nefndar um almennings- samgöngur Forsvarsmenn Strætisvagna Reykjavíkur ætla að standa fyrir heildarskoðun á leiðakerfi vagn- anna á næsta ári. í framhaldi af því verða væntanlega teknar ákvarð- anir um breytingar á kerfinu og jafnvel á tíðni ferða. Farþegum SVR hefur fækkað stöðugt síðast- liðna þrjá áratugi, og sé aðeins tek- ið mið af síðustu tveimur áratug- um hefur þeim fækkað um helm- ing. Hörður Gíslason, framkvæmda- stjóri stjómamefndar um almenn- ingssamgöngur, segir að menn séu mjög opnir fyrir því að skoða Farþegum SVR hefur fækkað ár frá ári og nú telja stjómendur fyrirtækisins tímabært að endurskoöa leiöakerfi og tlöni feröa. Borgarráð samþykkir 8,4% lág- marksutsvar Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að leggja til við borgarstjóm, að útsvarsgreiðsla í staðgreiðslu árið 1994 verði 8,4%. Hér er um að ræða lágmarks- prósentu samkvæmt lögum, sem sett vom fyrir jól og breyttu lögum frá 1990 um tekjustofna sveitarfélaga. Áður en þessi breyting var gerð var sveitarfé- lögum í sjálfsvald sett hvað út- svarsprósentan væri há. breytingar á leiðakerfinu. „Það er áformað að gera heildarskoðun á leiðakerfinu á næsta ári. Það þýðir ekki aðeins að leiðimar, sem vagn- amir aka, verði skoðaðar, heldur verður allur pakkinn skoðaður og þar með tíðni ferðanna. Það er til dæmis hægt að auka tíðnina á þeim tíma dagsins sem vagnamir em mest notaðir.' Hörður bendir á að kannanir sýni að til þess að fólki finnist það ekki þurfa að bíða eftir vögnunum megi ekki líða meira en fimm til sex mínútur á milli ferða. „Ég get ekki sagt til um hvort það komi til greina að fjölga ferðum svo mikið hér á álagstímum, enda þarf til þess mjög mikinn vagnakost.' Hörður segist álíta að fargjöldin skipti ekki miklu máli. „Fargjöldin em það lág héma að það borgar sig að taka strætó, þótt menn eigi b£l. Samkvæmt talningu á notkun græna kortsins er meðalfargjaldið með því undir fimmtíu krónum.' Margt hefur þegar verið gert til að reyna að fjölga farþegum, að sögn Harðar. „Á þessum tveimur áratugum hefur aksturinn sífellt ber. Forsvarsmenn SÁÁ em ánægðir með árangurinn sem náðst hefur þennan áratug, bæði árangurinn af meðferðarstarfinu sem slíku og ekki síður þá viðhorfsbreytingu sem orðið hefur í þjóðfélaginu gagnvart áfengi og áfengissjúklingum. í afmælisfagn- aðinum sagði heilbrigðisráðherra það fjarri sanni að ósamkomulag ríkti á milli hans og SÁÁ. Frá því að Vogur var opnaður hafa innlagnir í afeitmn og meðferð verið alls um 25 þúsund og innlagnir í framhaldsmeðferð um 11 þúsund. Meðalaldur þeirra, sem leita sér meðferðar, er 35 ár. Alls hafa 11 þús- und manns farið í áfengismeðferð síðan SÁÁ hóf starfsemi árið 1977. Meðferðarstarf SÁÁ hófst í des- ember 1977 með starfrækslu lítillar móttökudeildar í Reykjadal í Mos- fellssveit til að afeitra áfengissjúk- linga og aðra vímuefnaneytendur og veita þeim fyrstu meðferð. Starfsem- in fluttist að Silungapolli tveimur ár- um síðar og var þar þangað til Vogur var tekinn í notkun þann 28. desem- ber 1983. Bygging sjúkrahússins var merkur áfangj í starfi SÁÁ og mikið átak lá þar að baki, enda kostaði hún tæpar 200 milljónir króna á núvirði. Byggingin var kostuð að tveimur þriðju með söfnunarfé, ríkið veitti byggingarstyrk, en afganginn fjár- magnaði SÁÁ með lántökum. í ræðu sinni í afmælisfagnaðinum í gær sagði Þórarinn Tyrfingsson, for- maður SÁÁ, að besti árangur starfs SÁÁ væri viðhorfsbreyting almenn- ings gagnvart áfengi og þeim vanda- málum sem því tengjast. Hann vitn- aði í kannanir frá árunum 1984 og 1988, sem leiddu í ljós að tæplega 60% þeirra, sem luku tíu daga með- ferð á Vogi og fjögurra vikna fram- haldsmeðferð, hættu að drekka, þ.e. af þeim sem voru í sinni fyrstu með- ferð. Þetta er góður árangur að mati Þórarins, en mikilvægi meðferðar- starfsins liggur ekki síður í því að þar safnast saman reynsla og þekking, auk þess sem starfsfólk getur betur en Oestir aðrir aflað upplýsinga um neyslu vímuefna í þjóðfélaginu. Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra flutti einnig ávarp. Hann sagði að samkvæmt ný- afgreiddum fjárlögum geti SÁÁ hald- ið uppi jafn umfangsmikilli starfsemi á næsta ári og á þessu. Hann sagði það vera fjarri sanni að ósamkomu- lag ríkti milli sín og SÁÁ, þrátt fyrir skoðanaskipti þeirra á milli að und- anfömu. -GK verið að aukast, bæði með því að ekið er inn í ný hverfi og með því að þétta kerfið annars staðar. Tíðni ferðanna var ekki breytt fyrr en 1991 og það var þá afleiðing af mikilli fækkun farþega. Á þessum tíma var vagnakosturinn líka mikið endumýjaður og núna bjóðum við upp á mjög góða vagna. Auk þess höfum við varið miklum pening- um í kynningar og auglýsingar- starf.' Samkvæmt tölum frá Hagstof- unni hefur farþegum strætisvagna fækkað stöðugt undanfama þrjá áratugi, um Ieið og skráðum fólks- bílum hefur fjölgað að sama skapi. Hörður segir að til að mæta auk- inni samkeppni við einkabílinn hafi þess verið gætt að kaupa alltaf bestu fáanlegu vagna. „Strætis- vagnamir geta aldrei keppt að öllu leyti við einkabílinn, en þeir eru ódýrari kostur og auk þess eru vagnamir mjög góðir. Forsendum- ar em þannig fyrir hendi og þess vegna viljum við komast að því af hverju fólk notfærir sér þessa þjón- ustu ekki í meiri mæli.' -GK Fiskar finna ekki til Það em hverfandi líkur á því að £ fiskar finni til í þeim skilniugi sem við leggjum í orðin,' segir Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma, í grein í síðasta tölublaði Eldis- frétta. Ástæða þess að fiskar finna ekki til sársauka er að mati Gísla eink- um sú, að í heila fiska er engirm heilabörkur og í miðtaugakerfinu er hvergi að finna „tilsvarandi stjómstöð sem gæti tekið að sér það hlutverk heilabarkarins að túlka þá skynjun sem við köllum sársauka.' Máli sínu til stuðnings vísar Gísli m.a. til rannsókna, sem benda til þess að fiskar séu tilfinninga- lausir gagnvart stungu og „bíta þeir þrálátlega aftur og aftur í hvassan öngul án þess að fælast í burtu við fyrstu lífsreynslu.' Auk fiska, þá telur Gísli að hverskonar sársaukaskynjun komi ekki til hjá ánamöðkum. Hann segir í grein sinni að maðkurinn sé heilalaus og taugakerfi hans sé að- eins byggt upp af skyn- og hreyfi- taugum. -GRH Nýir útvarpssendar Ríkisútvarpið hefur lokið upp- se setningu tveggja 100 watta FM-endurvarpssenda fyrir Þor- lákshöfn og Mosfellsbæ og ná- grenni. Sendarnir eiga að bæta hlustunarskilyrði á þessum svæðum. Sendir í Þorlákshöfn sendir út dagskrá Rásar tvö á 101,6 megar- iðum (MHz). Sendir fyrir Mos- fellsbæ og nágrenni sendir út dagskrá Rásar eitt á 88,3 megar- iðum og dagskrá Rásar tvö á 96,7 megariðum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.