Tíminn - 27.01.1994, Síða 4

Tíminn - 27.01.1994, Síða 4
4 Fimmtudagur 27. janúar 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmiöja Frjálsrar fjölmiblunar hf. Mánabaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 125 kr. m/vsk. Atvinna er mannréttindi Það er ekki ósjaldan sem opinber umræða hefst um mannréttindi og fram stíga ýmsir frömuðir í mann- réttindamálum, sem hafa sannleikann sín megin um hve mikilvæg slík réttindi séu þegnum hvers þjóðfé- lags. Ekki skal gert lítið úr mannréttindum eða þeirri umræðu yfirleitt. Hitt vekur þó nokkra furðu hve eitt svið verður útundan í mannréttindaumræðunni. Það eru atvinnumálin og það, sem á að vera réttur hvers þjóðfélagsþegns, að hafa atvinnu. Atvinnuleysið er mesta þjóðfélagsvandamálið um þessar mundir. Meðan þúsundir manna ganga at- vinnulausar mánuðum og árum saman, kemur fyrir lítið þótt viðskiptajöfnuður sé hagstæður og lítil verðbólga. Meðan svo háttar til í atvinnumálum sem nú, er ekki allt í lagi í þjóðfélaginu. Þótt atvinnuleysið í landinu sé nú þegar orðið eitt mesta útgjaldamál ríkissjóðs, er það ekki nema önn- ur hliðin á málinu. Hin hliðin er sú, sem er ennþá geigvænlegri. Það eru þau áhrif, félagsleg og efna- hagsleg, sem atvinnuleysi hefur á einstaklinga sem fyrir því verba. Það brýtur niður sjálfsímynd þeirra og sjálfsvirðingu og eflir tilfinningu fyrir því að þjóðfélagið hafi hafnað viðkomandi. Fólkið hættir að geta staðið við sínar skuldbindingar og það eykur vonleysi þess. Nú er svo langt um liðið síðan atvinnuleysi fór að gera vart við sig svo um munaði, ab þessi hliðaráhrif eru farin að koma fram af fullum þunga. Það er ekki lengur tíma- eða árstíðabundið, heldur varanlegt. Þetta eru gjörbreyttar aðstæður í þjóðfélaginu og það er skylda stjórnvalda á hverjum tíma að leita allra ráða til þess að snúa þessari uggvænlegu þróun við. En hvað er til ráða? Hvað getur orðið til þess að snúa þróuninni við, við þær aðstæður sem nú ríkja? Við þessum spurningum eru ekki til einföld svör, en eigi að síður skulu hér nokkur atriði gerð að umtals- ehii. í útgjöldum ríkissjóðs þurfa þau verkefni, sem auka atvinnu og tekjur, að hafa forgang. Því miður verður ekki séð ab nýsamþykkt fjárlög sýni slík forgangs- verkefni. Þau viðbótarútgjöld, sem ákveðin voru í kjarasamningum vegna atvinnumála, eru ekki farin að hafa áhrif nema að litlu leyti í atvinnulífinu. Helmingurinn af því fjármagni, sem kynnt var til þessara mála, voru ónýttar heimildir til fram- kvæmda frá árinu 1992. Þaö er óhjákvæmilegt, eins og ástandið er nú, að örva framkvæmdir með bein- um hætti með frumkvæði ríkissjóðs. Fjárfesting er sú minnsta frá stríðslokum og þess sjást merki meðal annars í hörmulegu atvinnuástandi í byggingariðn- aði og þjónustu á því sviði. Hana þarf að auka. Það er þó skammtímalausn, þótt óhjákvæmileg sé. Til lengri tíma litið verður að efla þróunar- og rann- sóknarstarfsemi og veita þeim, sem brjótast áfram með nýjungar, aðgang að fjármagni, til dæmis með þeim hætti að lánasjóðir séu hvattir til að kaupa hlutafé í nýjum fyrirtækjum, sem skapa atvinnu. Stööugur svartsýnisáróður stjórnvalda hefur haft skaðleg áhrif. Það er þó ekki nóg að láta af honum. Raunverulegar og varanlegar aðgerðir veröa að fylgja í atvinnumálum landsmanna, undir þeim formerkj- um að atvinna sé mannréttindi. Heimatrúbob sjónvarpsins Haukur Halldórsson upplýsti um áhugaveröa hluti í um- ræöuþætti í fyrrakvöld á veg- um skrifstofu framkvæmda- stjóra sjónvarps, en þaö fer að verða afkastamesta fram- leiðslueining innlends dag- skrárefnis hjá RÚV. Það kom fram hjá Hauki að framleið- endur svokallaörar heimilda- myndar, sem ríkissjónvarpið lét gera um landbúnað í land- inu, komu að máli við for- mann Stéttarsambandsins og sögðust vilja fá viöbrögð viö gagnrýni, sem þeir hefðu safn- að hjá óánægðum bændum á ferð sinni um landið. Báru þeir síðan upp gagnrýni þessara bænda. Skilningur þáttagerð- armannanna á gagnrýninni var þó ekki meiri en það, að Haukur þurfti aö útskýra fyrir þeim í hverju hún fólst, enda á formaðurinn gTeinilega vel heima í umkvörtunum og um- ræðunni, sem á sér stað í land- búnaðinum. Fréttastofa úti í kuldanum Augljóst er af þessu litla dæmi að sérþekking á landbúnaðar- kerfinu eða þeim málum, sem heimildarmyndir eru gerðar um fyrir ríkissjónvarpið, er ekki talin vera slíkt aðalatriði að eftir slíku sé leitað, þegar fengið er fólk í verkið. Sannlega er þetta raunaleg staðreynd, þvi verið er að kaupa efni dýrum dómum fyr- ir skattfé, á sama tíma og ágæt- is fagþekking, bæði í notkun myndmiðilsins og á málefnum landbúnaðar, er fyrir hendi innan sjónvarpsins sjálfs. GARRI Þannig hefði t.d. fréttastofa sjónvarps auðveldlega getað búið til mjög frambærilega heimildarmynd um íslenskan landbúnað, þar sem tekið væri af þekkingu og sanngimi á málum. Fréttastofunni hefði heldur tæplega farist þab verr úr hendi að stjóma umræðu- þætti í kjölfar slíkrar myndar. Eflaust hefði líka verið hægt að koma því þannig fyrir, þó að umsjón með þættinum hefði verið á hendi fréttastofu, að mamma framkvæmdastjórans fengi tækifæri til að tjá sig um uppgræðslu, ofbeit og hlutverk hrafna og annarra fugla him- ins í landgræðslu á íslandi. Spillingu sáð, spilling uppskorin Sannleikurinn er auðvitað sá að sú dagskrárgerð, sem nú er strmduð frá skrifstofu fram- kvæmdastjóra sjónvarps, lýtur ekki hefðbundnum lögmálum eðlilegrar og faglegrar sjón- varpsvinnu, heldur er hún pól- itískt heimatrúboð. Þess vegna hefur fréttastofan verið útilok- uð frá þessum hluta starfsemi sjónvarpsins, þrátt fyrir aö augljósir faglegir yfírburðir starfsmanna þar gefi tilefni til að verkin séu unnin þar. Þvert á móti er fréttastofan höfð í fjárhagslegu og verkefnalegu svelti, en labbakútar úr söfn- uði framkvæmdastjórans úti í bæ látnir vinna verkin sam- kvæmt boðorðum æöstaprests- ins. Svo vill til að landbúnaður er eitt af því, sem ekki er í náð- inni hjá pólitískum fram- kvæmdastjóra ríkissjónvarps- ins, og því telur hann sig þess umkominn að verja almanna- fé í að friðþægja hvötum sín- um og einkavina sinna. Þegar menn velta fyrir sér þessum vinnubrögðum, er hollt að minnast þess hvemig framkvæmdastjórinn fékk starf sitt og hvers vegna hann er í þeirri aðstöðu sem hann er nú. í þessu sannast rétt einu sinni að pólitísk spilling er ekki afmarkað fyrirbæri hjá ís- lenskum stjómvöldum þessa dagana. Hún gegnsýrir jafnt vinnubrögð þeirra, sem útdeila bitlingum, og þeirra sem þiggjaþá. Garri Félagslegur stórhugur íslandsstiginn er dágóö búbót fyrir Trátrappor ab í Nordsjö. Þab er sérhæft fyrirtæki, sem smíðar tréstiga. Stiginn, sem ber hróður íslands alla leið til Norð- ur- Svíþjóðar, er sérhannaður inn í nokkrar félagslegar íbúðir í Grafarvogi. Heitiö, sem er dýr- mæt landkynning, er gripnum gefið af framleiöandanum, sem smíöar stigana samkvæmt samningi viö Húsnæöisnefnd Reykjavíkur. Stigarnir eru 130 talsins og eru settir upp í félagsleg raðhús, sem ern 120-130 fermetrar að stærð. íslandsstigarnir eru áreiðanlega hinir vænstu aö allri gerð og sér- hönnun þeirra og smíði hin hagkvæmasta. Hitt vekur meiri athygli í frétt um íslandsstigann ab félagslega húsnæðiskerfið sé að byggja tveggja hæða stóríbúöir af þeirri fjöldagrábu og á sama stað sem um getur í frásögninni af stiga- smíðinni. Fyrir hverja? Aðstoðarmaður félagsmálaráb- herra, Grétar J. Gubmundsson, gefur kaupendum félagslegra íbúða gagnleg ráð í málgagni fasteignabraskara 21. jan. s.l. Þar skrifar hann að hjón, sem ekki hafa meiri tekjur en 150 þús. á mánuöi, ættu ekki að ráðast í íbúðakaup fyrir 6 millj. kr. nema þau eigi að minnsta kosti 1.5 milljón í handraöanum. Þeir, sem hafa 80 þús. í mánaöarlaun, veröa að eiga að minnsta kosti 2 millj. til að festa sér íbúð fyrir 6 millj. Síðar skrifar aðstoðarmaður- inn: „Við kaup á félagslegri eignaríbúð þurfa kaupendur ab greiöa 10% af kaupverðinu áður en flutt er inn. Þetta reynist mörgum þeirra, sem hafa lægstu launin, ofviða." Nú vaknar spumingin um fyrir hverja 130 íslandsstigar eru smíðaöir. Nú kemur hvergi fram hve mikib sérhönnuöu stigarnir frá Trátrappor ab kosta og enn síður hvaö tveggja hæöa raðhús upp á Á víbavangi 120-130 fermetra leggja sig á í félagslega íbúðakerfinu. En harla ólíklegt er aö 150 þúsund króna fjölskyldan ráði við slík kaup, nema eiga svo sem sex sinnum meira sparifé en dugir henni til kaupa á 6 milljóna íbúð. Þeir, sem lægstu launin hafa, eru vonlausir í þessu dæmi eins og öllum öðmm og réttast að tala ekkert um þá, fremur en óhreinu lágstéttirnar á Indlandi. Flottræflar Hafa hönnuðir félagslega íbúðakerfisins á islandi ekkert þarfara fyrir stafni eða annab við fjárframlögin og vaxtanibur- greiöslumar ab gera en aö byggja hundruð stór og rándýr raðhús? Hefur allt það fólk ekki hug- mynd um hvar skórinn kreppir í húsnæðismálum? Dettur þeim ömurlegu flottræflum aldrei í hug að það, sem þeir efnaminni þurfa fyrst og fremst á að halda, eru ódýrar og hagkvæmar íbúðir og að stærð og byggingarkostn- aður sé miðaður við greiöslu- getu þeirra sem þörfin brennur sárast á, en ekki þeirra sérgóðu byggingaraðila, sem hafa alltof lengi komist upp með að belgja sig upp með asnalegum stab- hæfingum eins og þeirri sem þeim dugar ávallt best: „íslend- ingar vilja búa veglega." Aldrei er spurt hvort þeir hafi efni á því og enn síður hvar á að hola þeim niður, sem aldrei komast yfir þau tekjumörk aö geta eignast eitt eða neitt. Á sama tíma og þúsundir fjöl- skyldna em að missa heimili sín undir hamarinn vegna greiðslu- erfiðleika og tekjur launafólks fara hríðlækkandi, dunda þursar félagslega íbúðakerfisins sér viö ab byggja stórt og veglega handa fólki, sem hlýtur að vera vel lobið um lófana, því ella gengi dæmið alls ekki upp.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.