Tíminn - 27.01.1994, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.01.1994, Blaðsíða 7
 íim^fu^íir^'janíiarT^'í f Helmingur erlendra feröamanna gistir í tjaldi en abeins um 12% á hóteli: Bændurair með álíka marga nætur- gesti og öll hótelin Spurðir álits á gæðum gisti- þjónustu á Austurlandi gáfu erlendir ferðamenn bænda- gistingunni besta einkunn. „Mjög góð/góö" var umsögn- in hjá nærri 80% þeirra sem gistu hjá bændum í fjórð- ungnum. Kringum 70% voru ánægð með hótelin en minna en helmingur með tjaldstæð- in, sem voru þó langsamlega algengustu gististaöir útlend- inga. Nær 90% íslenskra ferða- manna gáfu aftur á móti hót- elum bestu einkunn (nema Eddu-hótelum sem aðeins 60% gáfu „gott"). En kringum 70% gáfu bændagistingu og tjaldstæðum toppeinkunn. Þá vekur athygli að bændur virö- ast nú fá álíka marga nætur- gesti og hótelin. Gistinætur útlendinga voru litlu fleiri á hótelum en hjá bændum og íslendingar áttu þriðjungi fleiri gistinætur hjá bændum en á hótelum. Þessar upplýsingar eru meðal niðurstaöna úr könnuninni „Góðir Austfirðingar" meðal erlendra og og innlendra ferðamanna á Austurlandi sumariö 1993. Um 75% gista í svefnpokum í ljósi þess hve hótel verða alltaf fyrirferðarmikil í allri umræðu og fjárfestingum í ferðaþjónustu vekur athygli hvað ferðamenn virðast gista lítiö á hótelum um sumartím- ann. Innan við fjórðungur (23%) erlendu ferðamann- anna reyndi hótelgistingu og aðeins 12% af öllum gistinótt- um þeirra var á hótelum. Um fimmtungur þeirra (20%) reyndi bændagistingu og þar sváfu þeir 10% allra gistinátta. Þetta gefur til kynna að út- Vilja B.S.-gráðu í skólann Á síbasta starfsdegi Alþingis nú fyrir jólin afhenti formab- ur Skólafélags Samvinnuhá- skólans á Bifröst mennta- málarábherra, Ólafi G. Einars- syni, skjal frá nemendum skólans þar sem skorab er á hann ab beita sér fyrir því af alvöru ab veitt verbi fjármagn til starfrækslu framhalds- deildar vib skólann. Fyrirhugað er að framhalds- deild þessi taki til starfa næsta haust ef til þess fæst fjármagn. Nám í framhaldsdeildinni mun taka heilt námsár og útskrifast nemendur með B.S.-gráðu í rekstrarfræöi aö því loknu. Framhaldsdeild þessi er hugsuð sem valkostur fyrir þá nemend- ur sem útskrifast sem rekstrar- fræðingar eftir tveggja ára nám á Bifröst, sem og aðra með sam- bærilega menntun. Nemendur jafnt sem skólayfir- völd telja það brýnt hagsmuna- mál að framhaldsdeild þessi taki sem fyrst til starfa, helst í haust. Lónssveit. Af þessu má sjá að A-Skaftafellssýslan virðist hafa langmesta aðdráttaraflið. íslendingar njóta sumarhúsa og vina Sumarhúsin og vinimir gera stóra muninn þegar athugað- ur er gistimáti íslensku ferða- mannanna. Um fjórðungur þeirra var í sumarhúsi og hlut- fall gistinátta þar var ennþá hærra. Meira en fjórðungur hafði þegið næturgistingu hjá vinum. Um helmingur íslenskra ferðalanga hafði eytt nótt í tjaldi, meirihlutinn á tjald- stæðum. Um þriðjungur allra þeirra gistinátta þeirra var þannig utandyra. Islendingar nota líka farfuglaheimilin og svefnpokapláss um helmingi minna en útlendingar. Þá vekur athygli að tjaldstæð- in fá miklu betri einkunn hjá íslendingum, hvar af 2/3 segja þau góð eða mjög góð. Þar á móti fá Eddu-hótelin mun slakari umsögn hjá íslending- um en útlendingum. Einnig vekur athygli að helstu gististaðir em í annarri röð meöal íslendinga. Um 20% gistu á Egilsstöðum og álíka hópur annars staðar á Héraöi, sem var þannig lang- samlega algengasti gististaður- inn. Aðeins um sjötti hver gisti á Höfn og heldur færri á Skaftafelli, en innan við tíundi hver tilnefndi einhvem af fjöl- mörgum öðmm stöðum á Austurlandi. Til dæmis höfðu 3% átt nótt á Bakkafirði og 2% í Mjóafirði. -HEI lendingar á ferð um landið sofi minna en fjórðu hverja nótt í uppbúnu rúmi, en eigi þrisvar sinnum fleiri nætur í svefnpoka, utan- eða innan- dyra. Tjaldstæöin em langsamlega algengasti gististaðurinn þeirra. Um 55% erlendra feröamanna gistu á tjaldstæð- um og þar eyddu þeir um 44% allra sinna gistinátta. Að við- bættum þeim sem tjölduöu á víðavangi (12%) kemur í ljós að erlendir ferðamenn hafa sofið í tjaldi rúmlega helming þeirra nátta sem þeir áttu á Austurlandi. Þá gisti hátt í þriðjungurinn á farfuglaheim- ili og nærri fimmtungur í svefnpokaplássi. Minnihlutinn segir tjaldstæðin góð í ljósi þess að meira en helm- ingur erlendra ferðamanna Séb yfir tjaldstœbib á Egilsstöbum. gistir á tjaldstæöum sýnist eðlilegt að skýrsluhöfundar telji þab vemlegt áhyggjuefni að minna en helmingur þeirra telur tjaldstæðin góð (Þjóð- verjar þó óánægöastir allra). „Hlýtur aö vera brýnt að gera vemlega bragarbót í þessum efnum á næstu misserum og ámm," segir í skýrslunni. Það sé einnig umhugsunarefni hvort það nægi að 70%-75% svarenda séu ánægð með abra gistingu. Eðlilegt væri að setja markið hærra. Höfn reyndist langsamlega algengasti gististaður erlendra ferðamanna. Um 55% þeirra gistu á Höfn. Um 40% gistu á Skaftafelli og litlu færri á Egils- stöðum. Rúmlega 20% áttu nótt á Seyðisfirði en tæplega 20% á Djúpavogi, rúm 15% í Suðursveit og rúmlega 10% í Einar Þorláksson, formabur Skólafélags Samvinnuháskólans á Bifröst, afhendir Ólafi C. Einarssyni undirskríftirnar. Rúmlega 17.000 mál flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur Árib 1993 bárust Hérabsdómi Reykjavíkur 15.149 mál til af- greibslu, en óafgreidd mál frá árinu 1992 vom 2.143. Vom því alls til afgreibslu 17.292 mál á árinu. Af málum ársins 1993 vom 9.984 almenn einkamál, þar af 919 sem ákvebib var ab flutt yröu munnlega. Ákærur vom 794, aðfarar- beiðnir 1.931, þar af 148 út- buröarbeiðnir og 49 innsetn- ingarbeiðnir. Beiönir um úr- skurði vegna lögreglurann- sókna vom 244, beiðnir um úrskurbi um gjaldþrot vom 1.842, beiðnir um dómkvaðn- ingu matsmanna 134 og beiðn- ir um úrskurði vegna ágrein- ingsmála, sem upp risu vib stjómvaldsathafnir sýslumanns og skiptastjóra, 102. Abrir mála- flokkar vom miklum mun smærri. AUs vom afgreidd 14.954 mál á árinu 1993 og því var eftir að af- greiða 2.338 mál um síöustu áramót. Afgreidd vom 943 munnlega flutt einkamál, en 671 mál biðu flutnings um ára- mótin, sem er 24 málum færra en biðu flutnings um áramótin 1992/1993. Afgreiddar vom 804 ákærur, en 116 ákærur biðu af- greiðslu, sem er 10 ákæmm færra en biðu afgreiðslu um ára- mótin 1992/1993. Afgreidd vom 9.128 skriflega flutt einka- mál, en 782 einkamál vom til meðferðar á reglulegu dóm- þingi eða biðu áritunar, sem er 63 málum færra en vom til sömu meðferðar um áramótin 1992/1993. Afgreiddar vom 1.428 beiðnir um gjaldþrotaúrskurði og um síðustu áramót var eftir að af- greiba 664 beiðnir, sem er 414 beiðnum fleira en eftir var að af- greiöa um áramótin 1992/1993. Astæðan er sú að mikill fjöldi beiðna barst í nóvember og des- ember, sem ekki vannst tími til að afgreiða fyrir áramót. Athyglisvert er að fjölgun munnlega fluttra einkamála I Reykjavík hefur verið mikil allt frá árinu 1986, en þá vom höfð- uð 381 einkamál, sem vom flutt munnlega. Árið 1987 vom þessi mál 453, árib 1988 539, árib 1989 535, árið 1990 633, árib 1991 621, árið 1992 824, og ár- ið 1993 919 eins og fyrr segir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.