Tíminn - 27.01.1994, Síða 9

Tíminn - 27.01.1994, Síða 9
Fimmtudagur 27. janúar 1994 9 Þr/r rábherrar sakabir um ab þiggja fé vegna þyrlukaupa: Mútumál ógnar stjórn Belgíu Guy Coeme, varaforsætis- ráöherra Belgíu, úr röö- um sósíalista, er á góöri leiö meö aö tryggja sér sess á spjöldum sögunnar fyrir hlut- deild sína í einhverju mesta mútuhneyksli sem komiö hefur upp í Evrópu. Ef Coeme getur ekki sannfært rannsóknamefnd þingsins um aö hann hafi hreinan skjöld í málinu, bendir allt til þess aö hann verði fyrsti ráöherra landsins sem þarf að svara til saka fyrir hæstarétti Belgíu, Co- ur de Cassation. Það gæti leitt til þess aö stjóm Jean-Lucs Deha- ene yrði aö fara frá við lítinn orðstír. Mál Guyanna þriggja, l'affaire des trois Guys, sem svo er kallað vegna sama skímamafns Coem- es og tveggja annarra háttsettra stjómmálamanna úr rööum sósíalista, snýst um þátt Guy- anna þriggja í mjög „hagstæö- um" þyrlusamningi, sem stjóm- völd geröu viö ítalskan fram- leiöanda. Yfirheyrslur rannsóknamefnd- ar þingsins yfir Coeme um at- hafnir hans sem vamarmálaráð- herra á árinu 1988 hófust í síö- ustu viku. Niðurstaðan úr yfir- heyrslunum verður látin ráöa því hvort saksóknari ber fram formlega kæm. Hinir Guyamir tveir em Guy Spitaels, forsætisráðherra hér- aösstjómarinnar í Vallóníu, og Guy Mathot, innanríkisráö- herra í stjóm Spitaels. Þeir hafa þegar veriö sviptir þinghelgi til að Véronique Ancia, sérskipað- ur saksóknari, geti yfirheyrt þá eins og óbreyttan almenning. Þremenningamir em gmnaöir um að hafa tekið við greiðslum í sjóði flokkanna, sem þeir em í, gegn þvj að koma í kring mikl- um þyrlúviöskiptum ítalska hergagnaframleiðandans Ag- usta og ríkisstjómar Belgíu. Kaupverö þyrlanna nam sem svarar 23 milljörðiun íslenskra króna. Ákvörðunin um aö semja um kaup viö Agusta var harðlega gagnrýnd á sínum tíma og keppinautar fyrirtækis- ins, franska fyrirtækið Aero- spatiale og þýska fyrirtækið Messerschmitt- Bölkow-Blohm, hafa ítrekað þá skoðun sína að ekki hafi verið staðið með eðli- legum hætti ab viðskiptunum. Að undanfömu hefur verið lekið í fjölmiðla efni skýrslu sak- sóknara vegna mútumálsins. í henni em þremenningamir sak- aðir um ab hafa unnið saman að því að tryggja Agusta við- skiptin. Ancia kemst að þeirri niðurstöðu að flest viðkomandi samningagerðinni stangist á vib lög og að meöferð Coemes á til- boðsgögnum fyrirtækjanna þriggja hafi verið meö endem- um. Ljóst væri að Coeme og starfsfólk vamarmálaráðuneyt- isins hafi haldiö fram hlut Ag- usta meb óeölilegum hætti. Samkvæmt heimildum breska vikublabsins The European komst saksóknari á spor Guy- anna, þegar hann vann að rannsókn á öbm máli á Ítalíu. Það mál snérist um morðið á André Cool, belgískum ráð- herra, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili unnustu sinn- ar í Liége. Helstu vitnin í máli Guyanna þriggja er sósíalistinn Philippe Moureaux, en hann keppti vib Spitael um formannsembættið í flokknum árið 1991, og Carol Lík belgíska sósíalistans Andrés Cool flutt af moröstaö. Rábherrann var myrtur fyrír utan íbúb unnustu sinnar. Morbinginn, sem var einn á ferb, komst undan. UTLOND Gluza, fyrrverandi formaöur Fé- lags málmiðnaðarmanna í Liége. Með þennan vitnisburð í far- teskinu snéri saksóknarinn aftur til Ítalíu í von um að geta aflað gagna til að byggja á kröfu um að þremenningamir yrðu svipt- ir þinghelgi. Þá hafði verið haf- in rannsókn á glæpsamlegum tengslum Agusta og ítalska sósí- alistaflokksins. Þremenningamir hafa hingaö til neitab öllum ásökunum og Coeme segist vera fómarlamb fjölmiðlaréttarhalda. Hann seg- ir að gögnin, sem fundist hafa um Agusta, séu einungis minn- ismiöar, óundirritabir og ódag- settir. Enn hafa engar sannanir verið lagðar fram um ab fé frá Agusta hafi verið lagt inn á bankareikn- inga belgíska sósíalistaflokksins. Sama er að segja um ásakanir um að Guy Mathot hafi byggt einbýlishús fyrir vinkonu sína fyrir mútuféð. Þab breytir því ekki ab íbúar Liége hafa látiö sannfærast um að Guyamir hafi óhreint mjöl í pokahominu. Spilling stjóm- málamanna í Vallóníu er land- læg og almenningur trúir flestu illu upp á rábamenn hérabsins. Það er líka ótrúlegt ab saksókn- ari hafi farið af stað með svona alvarlegar ásakanir án þess að hafa eitthvað imdir höndum, sem réttlætir slíkt. Flokkur sósíalista í Vallóníu er klofinn vegna málsins og ef fjár- málaspilling sannast á Coeme, er víst að ríkisstjóm Belgíu kem- ur til með að riða til falls. Flokkur sósíalista og flokkur kristilegra demókrata, flokkur Jean- Lucs Dehaene forsætisráð- hena, em stærstu flokkar þeirrar fjögurra flokka samsteypu- stjómar, sem kennd er vib miðju og vinstri væng belgískra stjómmála. Ef Sósíalistaflokkur- inn heldur áfram stuðningi sín- um vib Coeme, þó að á hann sannist fjármálamisferli, gæti svo farið að forsætisráðherrann sjái sig tilneyddan aö boða til kosninga. Margir stjómmálaskýrendur em þó þeirrar skoðunar að ótti stóm flokkanna tveggja við úr- slitin geri það að verkum að þeir reyni hvað þeir geti til að sitja út kjörtímabiliö, í von um að fymst hafi yfir hneykslið í hug- um kjósenda, þegar gengið verbur til kjörkassanna. The European/ÁÞÁ Skatthlutfall í staðgreiðslu breytist frá 1. feb. '94 me mæm Skatthlutfall -41,84% Skatthlutfall staðgreiðslu fyrir febrúar - desember 1994 verður 41,84%. Persónuafsláttur, sjómannaafsláttur og skatthlutfail barna hefur verið auglýst áður. Athygli er vakin á upplýsingatöflu ríkisskattstjóra sem birtist á laugardögum í Morgunblaðinu. yuj™ RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.