Tíminn - 27.01.1994, Page 10
10
Fimmtudagur 27. janúar 1994"
Aöalstöövar Stasi í Austur-Berlín: bákn sem hmndi nœstum viönámslaust.
Af þeim, sem spáöu í
framtíðina á öldinni
sem bráöum er ljðin,
eru tveir rithöfundar, Bretinn
George Orwell (1903-1950) og
Sovétmaöurinn Andrej Amal-
rik (1938-1980) meðal þeirra
þekktustu. Sá síðarnefndi sótti
raunar innblástur í spádóms-
verk hins fyrrnefnda, 1984, er
hann ritaði sitt spádómsverk,
Verða Sovétríkin enn til 1984?
Eigi aö síður voru þeir síður
en svo á einu máli um hvað
framtíðin bæri í skauti sér. Á
dögum Orwells var völlurinn
sem mestur á fasisma og
kommúnisma. Sá fyrmefndi
tapaði að vísu heimsstyrjöld
nokkrum ámm fyrir dauða Or-
wells, en vegur kommúnism-
ans var þá meiri en nokkm
sinni fyrr. Árið áöur en Orwell
lést hafði hann lagt Kína und-
ir sig og Stalín, fyrirmynd að
félaga Napóleoni í Dýrabœn-
um (Animal Farm), annarri
þekktri bók eftir Orwell, og
Stóra bróður í 1984, var aídrei
voldugri.
Tæknin snerist
gegn harb-
stjórnum
Meö hliðsjón af þessu hafði
Orwell litla trú á aö frelsið ætti
mikla framtíð fyrir sér. Hann
gerði ráð fyrir að framfarimar í
tækni yrðu alræðisríkjum í
hag, að þeim yTði með tækn-
ina á valdi sínu í lófa lagið að
hafa svo nákvæmt eftirlit með
hverjum einstaklingi að ekkert
smáatriöi í lífi einstaklingsins
gæti farið fram hjá öryggis-
þjónustu ríkisins. Þannig er
þab í framtíðarríkinu sem lýst
er í 1984. Aðalpersónan Win-
ston Smith þorir ekki annaö
en iðka leikfimi heima hjá sér,
Sá síöarnefndi
reyndist sann-
spárri, enda þekkti
hann alrϚiskerfi
Sovétríkjanna inn-
an frá
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
þar eð ríkið hefur fyrirskipað
það; láti hann það hjá líða
kemst ríkið undireins að því
með hátækni sinni. Teldist
einhver hafa brotið boð ríkis-
ins, urðu örlög hans óhjá-
kvæmilega fangelsanir, pynd-
ingar, heilaþvottur, útþurrk-
un, sama hve lítið brotið var
og jafnvel þótt það væri ómeð-
vitað eða kæmi ekki fram í
öðm en óvenjulegri breytni í
einhverju tilliti.
Varla verður því haldið fram
að þessi framtíðarsýn Orwells
hafi verið alveg út í hött, en
hann sá ekki fyrir að hvað
tækninni viðvíkur snemst
vopnin ab talsverðu leyti í
höndum harðráðra stjórna,
þannig ab tæknin gerði and-
stæðingum þeirra mögulegt að
komast framhjá eftirliti þeirra,
með þeim árangri ab harð-
stjórnin varð síður skilvirk.
Síðasti íranskeisarinn hafði á
að skipa leyniþjónustu, er
skipulögb var og tæknivædd
með bandarísku CIA sem fyrir-
mynd og með hennar hjálp,
auk þess sem hún hafbi frjáls-
ari hendur við störfin en fyrir-
myndin. En kassettum með
ræðustúfum Khomeinis aja-
tolla, sem þá sat í París í skjóli
franskra yfirvalda, var smygl-
að inn í íran, þar sem þær æstu
fólk upp með alkunnum af-
leiðingum. Athyglin, sem
sjónvarpsstöðvar heimsins
sýndu Suður-Afríku, átti drjúg-
an þátt í að kollvarpa apart-
heid-kerfinu. Teleföxin, sem
stúdentar í Peking fengu frá
kínverskum stúdentum á Vest-
urlöndum, áttu að líkindum
Orwell: svartsýnn fyrir frelsisins hönd.
verulegan þátt í að koma af
stað uppreisninni þar 1989.
Tómatsósa en
ekki sinnep
Ekki verður annað séð en ab
Amalrik hafi, þegar öllu er á
botninn hvolft, reynst meiri
spámaður en Orwell. Sovétrík-
in em ekki lengur til, enda
þótt þau drægju fram lífið
nokkrum ámm lengur en Am-
alrik hafði ætlað.
Hann var andófsmaður, eins
og sovéskir stjómarandstæð-
ingar vom þá kallaöir, og var
þar af leiðandi settur í fanga-
búðir og síðan neyddur til að
dveljast á afskekktum stööum.
Þannig fékk hann reynslu af
sovéska kúgunarkerfinu innan
frá. Það var ab vísu tröllaukið
og þunghent, en Amalrik þótt-
ist sjá að mikið vantaði á aö
það væri skilvirkt og taldi því
ólíklegt að það næði tilætluð-
um árangri til lengdar. Þegar
hann um síðir var sloppinn
vestur fyrir tjald (til heims Or-
wells), varð hann hissa og
hneykslaður á því hve margir
Vesturlandamenn virtust hafa
háar hugmyndir um sovéska
kerfið sem öflugt og stöbugt.
Vesturlandamönnum gafst
nokkuð skýr innsýn í eftirlits-
og kúgunarkerfi sovétblakkar-
innar eftir að austurþýska rík-
ið leið undir lok, en þá fengu
yfirvöld sameinaðs Þýskalands
aðgang ab skjalasafni austur-
þýsku öryggisþjónustunnar,
Stasi, eins og það lagöi sig.
Skýrslur þeirrar stofnunar frá
njósnumm og „eftirlitsmönn-
um" vom ekkert smáræöi,
enda mun hún hafa „fylgst
með" svo að segja hverjum
einasta borgara alþýðulýð-
veldisins. Og því fór fjarri að
það eftirlit væri aðeins í orði
kveðnu. Um rithöfund, sem
yfirvöld gmnuðu um andófs-
tilhneigingar, má t.d. lesa í
Stasi-skýrslum að hann hafi
gengið út kvöld eitt og keypt
sér pylsu í sölutuminum á
horninu og beðið um tómat-
sósu meö, en ekki viljað sinn-
ep. Ef ab líkum lætur, var Stasi
með skilvirkari stofnunum af
því tagi í sovétblökkinni. Þeg-
ar lesiö er um starfsemi henn-
ar, er ekki laust við að eitt og
annað í því minni á 1984 Or-
wells.
Vesturþýska
sjónvarpíb
Eigi að síður hmndi austur-
þýska kerfið svo að segja mót-
spymulaust. Meðal ástæðna til
þess má nefna vesturþýska
sjónvarpiö, sem þá var búið að
ná inn á flest austurþýsk
heimili áratugum saman. Það
var of vinsælt til þess að yfir-
völd treystu sér til að taka það
af fólki. Sjónvarpið var aðeins
á byrjunarstigi er Orwell lést.
Hann hefur því ekki séð fyrir
vinsældir þess og kannski ekki
heldur hugsað út í að oft em
takmörk fyrir því hve stjórnir
þora að vera harðráðar.
Ekki reyndist Amalrik að vísu
sannspár um allt. Hann taldi
þannig að þrýstingur utan frá,
sérstaklega frá Kína, yrði úr-
slitaástæðan til hmns Sovét-
ríkjanna. Vestrænir sovétfræð-
ingar yfirleitt virðast á hinn
bóginn þeirrar skoðunar aö
fjandskapur kommúnísku
stórveldanna tveggja hafi eflt
samstöðu með íbúum Sovét-
ríkjanna og þar með heldur
styrkt þau. En benda má á að
vigbúnaðarkapphlaupið varð
efnahagslífi Sovétríkjanna gíf-
urlegt álag, sem áreiðanlega
átti talsverðan þátt í að svo fór
sem fór. Fjandskapurinn á
milli ráðamanna í Peking og
Moskvu var meðal ástæðna til
þess vígbúnaðar, en aö vísu
líklega enn frekar kalda stríðið
við Vestrið. Afganistanstríðið,
sem varð Sovétríkjunum mik-
iö sálrænt áfall, gat Amalrik að
sjálfsögðu ekki séb fyrir.