Tíminn - 27.01.1994, Page 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland til Breibafjarbar og Subvesturmib til Breibafjarbar-
miba: Norblæg átt og dregur smám saman úr vindi í dag.
• Vestfirbir, Strandir og Norburland vestra, Vestfjarba- og Norb-
vesturmib: Hæg noröanátt og él í dag.
• Austfirbir og Austfjarbamib: Norban stormur eba rok í dag, held-
ur hægari síbdegis.
• Subausturland og Subausturmib: Norban hvassvibri eba stormur
og él austantil. Lægir neldur undir kvöld.
Fimmtudagur 27. janúar 1994
• Norburland eystra, Austurland ab Clettingi: Hvöss norbanátt og
él í dag.
Tillögur Þríhöföanefndar:
Verri vib-
brögö en
búist var viö
„Þessi vi&brögð eru heldur nei-
kvæðari en ég hafbi séö fyrir,"
segir Ámi Kolbeinsson, rábu-
neytisstjóri í sjávarútvegsrábu-
neytinu, um vibbrögb hags-
munabila vib tillögum Þrí-
höfbanefndar um kvótaþing.
Ámi er formaöur Þríhöfðanefnd-
arinnar en meðnefndarmenn em
þeir Ólafur Davíösson, rábuneyt-
isstjóri í forsætisráöuneytinu, og
Þorkell Helgason, rábuneytisstjóri
í vibskiptarábuneytinu. Ami segir
aö gagnrýni hagsmunaöila hafi í
sjálfu sér ekki komiö mikiö á
óvart.
„Þetta er embættismannatillaga,
sem yar ekki sett fram í ljósi þess
að hún væri fallin til vinsælda."
Eins og kunnugt er hafa hags-
munaaðilar í sjávarútvegi og sjáv-
arútvegsnefnd Alþingis haft til
umsagnar tillögur Þríhöföanefnd-
ar um kvótaþingið, eða tilbobs-
markað meö kvóta. Af viðbrögb-
um þeirra aö dæma viröast allir
hafna þeim sem lausn til að koma
í veg fyrir þátttöku sjómanna í
kvótakaupum.
Ámi segist ekki geta sagt neitt til
um þaö hvort eitthvert framhald
veröur á störfum Þríhöfðanefnd-
arinnar eöa ekki.
„Viö sendum þessar tillögur frá
okkur sem okkar fyrsta verk og ég
held að framhaldið hljóti algjör-
lega aö ráöast af því hvaöa viö-
brögð þær fá og hvaða ákvörðun
stjómvöld taka í framhaldi af
því," segir Ami Kolbeinsson.
Samkvæmt 1. grein bráðabirgöa-
laganna eiga tillögur og trndir-
búningur aö nauösynlegri lög-
gjöf, til að koma í veg fyrir að við-
skipti meö aflaheimildir hafi
„óeölileg áhrif á skiptakjör, aö
liggja fyrri eigi síðar en 1. febrúar.
-grh
Útgeröir sem skipta vib erlendan skipaiönaö:
Refsað með tak-
mörkun
Félag jámibnaðarmanna skor-
ar á Álþingi ab setja lög sem
takmarki sérstaklega afla-
heimildir þeirra útgerba sem
kjósa ab skipta vib erlenda ab-
ila fremur en íslensk fyrirtæki
í málm- og skipaibnabi.
Vignir Eyþórsson hjá Félagi
jámiðnaöarmanna segir þaö
skoðun félagsmanna aö kvót-
inn, óveiddur fiskur í sjó, sé
á kvota
sameigin landsmanna og því
ekkert einkamál útgerða. Af
þeim sökum eigi þær aö skila
einhverju af því til baka og þá
ekki síst meö því aö beina viö-
haldi flotans til innlendra þjón-
ustuaðila; fremur en erlendra.
Jafnframt beri nýta afrakstur
auölindarinnar í þágu þjóðar-
innar þannig aö öllum afla veröi
landað innanlands. -grh
Undirbúningur oð þátttöku íslenskra fribargœsiuiiba í samvinnu vib norska vamarmálarábuneytib var í höndum
utanríkis- og heiibrigbisrábuneytis. Þorsteinn Ingólfsson, rábuneytisstjóri í utanríkisrábuneytinu, og Sylvi Krogsœt-
er, yfirmabur starfsmannahalds norska varnarmálarábuneytisins, undirritubu samkomulagib ígœr fyrir hönd ríkj-
anna tveggja. Tímamynd c.s.
Söpulegt samkomulag viö Norömenn:
Islendingar til
friöargæslustarfa
í gær var undinitab sögulegt
samkomulag vib Norðmenn
um þátttöku íslendinga í starf-
semi norrænu fribargæsluher-
deildarinnar í Bosníu og Her-
segóvínu. Samkvæmt því munu
tveir íslenskir læknar og fjórir
hjúkrunarfræbingar starfa þar
ytra í sex mánubi. Gert er ráb
fyrir ab þjálfun þeirra hefjist í
Noregi í mars og þeir hefji störf
í Bosníu í apríl-maí.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem íslendingar taka þátt í friöar-
gæslustörfum og er þaö sam-
kvæmt ákvöröun ríkisstjómar frá
því í september. Gert er ráð fyrir
aö kostnaöur íslenska ríksins
vegna þessa nemi um 7,5 miljón-
um króna. Samkvæmt samkomu-
laginu viö Norðmenn munu ís-
lendingamir bera íslenskan fána á
norskum einkennisbúningum
sínum og starfa í norskri heilsu-
gæslusveit, sem er hluti norrænu
friöargæsluherdeildarinnar. Að
sögn Þorsteins Ingólfssonar, ráðu-
neytisstjóra í utanríkisráðuneyt-
inu, þykir þaö mjög óvenjulegt aö
þjóö samþykki að erlendur þjóð-
fáni sé á einkennisbúningi henn-
ar.
Hann segir aö þetta friðargæslu-
verkefni sé vísir aö því aö Islend-
ingar axli fleiri byrðar í þessum
efnum. Aðspurður hvort frekari
verkefni af svipuðum toga væru á
döfinni sagöi hann aö þaö yrði
metið í ljósi þeirrar reynslu sem
fengist af þessum friöargæslu-
störfum.
íslensku þátttakendumir hafa
ekki enn verið valdir en þaö mun
verða gert í samráði við fagfélög
lækna og hjúkrunarfræöinga. I
Noregi mimu íslensku friðar-
gæsluliöamir fá þjálfun í meðferð
handvopna og læra til sjálfsvam-
ar.
Gert er ráö fyrir að íslendingam-
ir muni starfa á griðarsvæöinu í
Tusla í Bosníu og Hersegóvínu þar
sem aðrar norrænar sveitir eru
fyrir. -grh
Útlendingum fjölgar um nokkur hundruö á höfuöborgarsvœöinu en fcekkar annars staöar:
Útlendingum í Reykjavík fjölgar
fimmfalt hraöar en Islendingum
Erlendum ríkisborgurum bú-
settum á höfubborgarsvæbinu
fjölgabi um 108 á nýlibnu ári.
Flestir hafa þeir sest ab í Reykja-
vík. Erlendum ríkisborgurum í
Reykjavík fjölgabi um 4,2% á
árinu, eba hlutfaUslega nær
fimm sinnum hrabar en íslend-
ingum. Jafnmargir erlendir rík-
isborgarar áttu samt heimili á
íslandi í lok síbasta árs, 4.825
eins og ári ábur.
Á móti fjölguninni í Reykjavík
varð því samsvarandi fækkun á
öörum stööum á landinu, mest
um rúmlega 60 manns á Vest-
fjöröum, sem samsvarabi 20%
fækkun útlendinga í fjórbungn-
um á árinu. Þeim fækkaöi líka um
rúmlega 30 manns á Norðurlandi
eystra (10%) og tæplega 30
manns (8%) á Suðumesjum. Út-
lendingamir virðast þannig líka
famir að „flýja suöur" í stómm
stíl.
Hagstofan birtir árlega skrár um
mannfjölda á íbúaskrá eftir fæö-
ingarlandi annars vegar og ríkis-
fangslandi hins vegar. Rúmlega
10.400 íbúar landsins (3,9%) em
fæddir erlendis. Þar af er tæplega
helmingurinn (1,8%) erlendir rík-
isborgarar. Mismunurinn er að
hluta til vegna bama íslenskra
foreldra sem dvöldu ytra viö nám
og störf, en fluttu síöan heim, og
hins vegar vegna útlendinga sem
hafa öölast íslenskan ríkisborg-
ararétt. Tekiö er fram aö erlendir
sendiráðsmenn hér á landi og
varnarliðsmenn eiga ekki lög-
heimili á íslandi og em því ekki
meö í þessum tölum.
Fólk sem fætt er utan íslands býr
hlutfallslega flest í Reykjavík.
Rúmlega einn af hverjum 20
borgarbúum (5,1%) er fæddur er-
lendis, þar af er tæplega helming-
urinn (1 af hverjum 45) erlendir
ríkisborgarar. Hlutfall erlendra
ríkisborgara er hins vegar heldur
hærra (2,6%) á Vestfjörðum, þrátt
fyrir mikla fækkun á síðasta ári,
sem fyrr segir.
Þótt fjöldi erlendra ríkisborgara
hafi staðib í heild í staö er samt
töluverö breyting eftir ríkisfangi.
Borguram Noröurlandanna hefur
t.d. fækkaö töluvert nema hvaö
Færeyingum fjölgaöi um nær
fjóra tugi og Finnum um tug. Rík-
isborguram annarra Evrópulanda
fjölgaöi kringum 50 manns, sem
allir bera vegabréf Rússlands,
gömlu Sovétríkjanna og annarra
A-Evrópulanda.
Fólki meö ríkisfang í Asíulöndum
fjölgaöi líka um 30 manns. Þar á
móti fækkaöi borguram Eyjaálfu
(aðallega Nýsjálendingum) um
tæpa tvo tugi og fólki frá Afríku-
löndum um rúma tvo tugi. Græn-
höfðaeyingar era samt jafnmarg-
ir, 17 bæði árin.
Fólki sem fæddist erlendis fjölg-
aöi um 190 manns á síðasta ári
(hlutfallslega tvöfalt hraðar en
fæddum hérlendis). Allir hafa
þeir, og meira til, sest aö á Reykja-
víkursvæöinu, þar sem íbúum
fæddum í ööram löndum fjölgaði
um rúmlega 240 á árinu (3,4%).
í þessum hópi eins og hinum
fækkaöi fólki fæddu á Norður-
löndum öðrum en Færeyjum. Og
af þeim 90 sem fæddust í ööram
Evrópulöndum koma langflestir
frá löndum sem áöur vora austan
járntjaldsins. Fólki sem fætt er í
Asíulöndum fjölgaði um 60 á ár-
inu, eöa tvöfalt meira en ríkis-
borguram þeina landa, þannig aö
tugir þeirra hafa fengið ríkisborg-
ararétt á árinu. Fæddum í Banda-
ríkjunum fjölgaði um hálfan
fjóröa tug. Aftur á móti fækkaöi
heldur fólki fæddu í Eyjaálfu og
Afríku. Hérlendis búa aðeins tæp-
lega 200 manns fæddir í Afríku-
ríkjum. - HEI