Tíminn - 10.03.1994, Side 11
FimrTitudagur 10. mars 1994
Um írland og djöfulinn
jiirgen Elvert: Geschichte Irlands. Orlgina-
lausgabe. Deutscher Taschenbuch Verlag
1993.
Alfonso di Nola: Der Teufel — Wesen,
Wirkung, Geschichte. Mit einem Vorwort
von Felix Karlinger. Aus dem Italienischen
iibersetzt von Dagmar Turck-Wagner.
Deutscher Taschenbuch Verlag 1993.
Höfundur írlandssögunnar
kennir við Kielarháskóla, sagn-
fræöi. Græna eyjan á sér langa
sögu — harmsögu oft á tíðum —
vestasti útvöröur Evrópu, ísland
er sá nyrsti. Saga írlands og at-
buröir sögunnar lifa enn á vorum
tímum í átökum, sem eiga sér
kveikju fyrir mörgum öldum. Nú
á dögum búa um 4,5 milljónir á
eynni, þar af 3 milljónir í Eire og
1,5 milljónir á Norður-írlandi,
sem telst undir bresku krúnunni.
Um 90% íbúa írska lýðveldisins
eru kaþólskir. Á Norður-írlandi
eru um 50% mótmælendur og
um 35% kaþólskir. Elstu byggð á
írlandi má rekja aftur á 8. öld f.
Krist, þá miö steinöld þar, frá 6.
til 3ju aldar verður landnám Kelta
rakiö og síðan segir höfundur
byggðasögu írlands áfram. Karþa-
gómenn komu til írlands, Tacitus
minnist á írland og svo líöur tím-
inn. Höfundur kemur síöan aö
vikingum, strandhöggi og búsetu
norrænna manna á Irlandi, þeim
fylgdi kaupskapur og rán og
stofnun verslunarstöðva. Eng-
lendingar koma síöar, löngu síðar
og þá hefst harmsaga írlands á 17.
öld meö Cromwell og hans fylgj-
umm, sem settust að á jörðum Ira
og hröktu þá brott. Höfundur rek-
ur söguiia mjög nákvæmlega allt
fram á okkar tíma. Þetta er viða-
mikiö rit, alls rúmlega 500 blað-
síöur og er nýjasta handhæga rit-
ið sem fjallar um þessa sögu. Bók-
fræðilistinn er 15 blaðsíður í
smáu letri. Þetta er vönduð og vel
unnin saga, greinargóö og ítarleg.
Rit Alfonso di Nola kom út á
ítölsku 1987 og heitir á fmmmál-
inu: „11 diavolo. Le forme, la stor-
ia, le vicende di Satana e la sua
universale e malefica presenza
presso tutti i populi, dall'anticita
ai nostri giorni", gefiö út af New-
ton Compton editori í Rómaborg.
Hér segir frá djöfli og öllum hans
Fréttir af bókum
SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON
myndbreytingum frá upphafi
mannheima. Meðal allra þjóða og
allt fram til vorra daga. Þetta er
viökvæmt efni mörgum, því víða
er djöfull á róli og oftar en ekki í
dulargervi eða incognito. Hann á
það til að bregöa sér í engils líki,
koma fram sem hræsnisfullur
guðsmaður fullur af kærleika og
umhyggju, jarmandi um jöfnuð;
einnig bregöur kauði sér í gervi
illyrmisins og prikar þá um jörö-
ina sem týrann og óþokki, kúg-
andi þjóðir og álfur. En tilgangur-
inn er samkvæmt kristnum kenn-
ingum, að spilla sköpunarverkinu
og þá fyrst og fremst kórónu
sköpunarverksins, manninum
sjálfum, spilla honum og fylla
hann með falsi og lygi og etja
honum til hinna verstu verka —
þjófnaðar, níöingsháttar og
morða — eða gera hann að inn-
antómu fífli sem dansar á mark-
aöstorgum hégómleikans og leit-
ar sér afþreyingar í eftirsókn fáf-
engilegra hluta og trúðleika.
Djöfull hefur fylgt mönnunum
frá upphafi, löngu fyrir daga
kristninnar, eins og höfundur
rekur í ritinu. Meðal fmmstæðra
þjóöa, meöal Grikkja og Róm-
verja, Germana og Kelta og í Eg-
yptalandi og Mesópótamíu. Síöan
koma til kenningar Gyðinga.
Hann starfaði einnig í Japan og
Kína.
Höfundur ræðir um Antikrist,
djöflatrú og galdrafáriö, um þá
sem haldnir em djöfli og aðferðir
til þess aö reka hann út. Djöfull
þjóðsagnanna og djöfullinn í
íslömskum trúarbrögðum. Loka-
kaflinn er um djöfulinn og geröir
hans og áhrif nú á dögum.
Er djöfullinn til, er hið alilla til?
Afleiðingar og áhrif þess, sem
nefnt er illt, em vissulega til og
hafa verið frá öndveröu. Djöfull-
inn er persónugervingur illskunn-
ar og höfundur telur hann vera
„prójektion" — frávarp —
mennskrar ímyndunar. Hann er
„ekkert", en það, sem menn kalla
Sálir fordœmdra fœröar í ríki djöfulsins.
djöful og ekkert er, verður hlut-
gervingur í sálardjúpunum og
veröur sem fráhvarf í „ekkert", en
þetta ekkert verður tákn hins
djöfullega og ill verk em talin
þaðan komin.
Bók di Nola er 460 blaðsíöur
með miklu myndefni og ágætri
biblíógrafíu. Höfundur skrifar
mjög skýrt og vel og hér er að
finna skoðanir manna og kenn-
ingar um þessa „persónu". Áhug-
inn á dulhyggju, dulfræöum og
allskonar okkúltisma hefur farið
mjög vaxandi síöustu tvo áratugi
og víða hafa djöfladýrkendur
færst í aukana. Fyrirmyndimar í
illsku og óþverraskap manna hafa
aldrei verið jafn augljósar og látið
jafn mikið aö sér kveða og á þess-
ari öld, svo það er ekki að undra
þótt pokurinn veröi mörgum
hugstæöur. Og ekkert kemur
kauöa eins vel og vera álitinn
„ekkert", hugarburður, duldar
hvatir, sem taka á sig þessa mynd,
svo hann getur valsaö um eins og
honum best hentar. ■
DAGBÓK
ayiViVlViVVi
Fimmtudaqur
10
mars
69. daqur ársins - 296 daqar eftir.
10. vlka
Sólris kl. 8.04
sólarlag kl. 19.13
Dagurinn lengist
um 7 mínútur
Fétag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, kl.
13 í dag í Risinu.
Breiðfirbingafélagiö
Félagsvist verður spiluð í kvöld,
fimmtudaginn 10. mars, kl.
20.30 í Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14. Allir velkomnir. Verð-
launaveitingar.
Kattavinafélag íslands
heldur aðalfund sinn sunnu-
daginn 20. mars n.k. kl. 14 að
Kattholti, Stangarhyl 2 í Ártúns-
holti.
ísland í augum
Hvítrússa
Sýningin „ísland í augum Hvít-
rússa" verður opnuö í húsa-
kynnum MÍR, Vatnsstíg 10, nk.
laugardag 12. mars kl. 14.
Á sýningunni em myndverk
eftir hvítrússneska listamann-
inn Arlen Kashkúrevitsj, en
hann dvaldist hér á landi ásamt
Ljúdmilu konu sinni í 3 vikur á
sl. sumri og hélt þá sýningu sem
vakti verðskuldaða athygli
þeirra sem sáu. Á sýningu MIR
að þessu sinni em allmargar
andlitsmyndir af íslendingum,
sem hann teiknaði hér á landi,
þ.á m. myndir af Auði og Hall-
dóri Laxness. Þá em sýndar
myndskreytingar Arlens við
Eddukvæöi hin fomu og Atóm-
stöð Halldórs Laxness. Einnig
prentuö gögn tengd listamann-
inum, m.a. greinaflokkur sem
hann og kona hans rituðu í
menningartímarit í Minsk, höf-
uðborg Hvítarússlands, um ís-
landsferðina.
Sýningin „ísland í augum
Hvítrússa" verður opin á Vatns-
stíg 10 næsta hálfan mánuðinn,
á virkum dögum kl. 17-18, um
helgar kl. 15-18.
Norræna húsið:
Finnskur rithöfundur
les úr nýrri bók sinni
Hér á landi er nú staddur
finnski rithöfundurinn Henrik
Jansson. Hann hefur áður kom-
iö hingað til lands til að hitta ís-
lenska rithöfunda.
Nú er hann að semja nýja bók,
sem hefur viss tengsl við Island.
Hann nýtur styrks frá finnska
ríkinu til þessarar heimsóknar
nú.
í kvöld, fimmtudaginn 10.
mars, kl. 20 ætlar Henrik Jans-
son að lesa úr nýrri bók sinni,
Nattsmycken. Bókin hefur hlotið
góðar viðtökur og hrós gagn-
rýnenda í Finnlandi.
Auk þess aö lesa upp ætlar
Henrik að sýna myndband, sem
hann hefur gert við þrjá af text-
um bókarinnar og er þar ofiö
saman texta, kvikmynd og tón-
list.
Auk ritstarfa sinna hefur Hen-
rik Jansson skrifað bókmennta-
gagnrýni og fjallaö um rokktón-
list, auk þess sem hann hefur
gert tónlistarmyndbönd sem
hafa verið sýnd í finnska sjón-
varpinu.
Allir em velkomnir á fyrirlest-
urinn og aðgangur ókeypis.
SKÁKÞRAUT
Stratil-Tozer, Oakham 1990.
Hvemig vinnur svartur?
a b c d e f g h
1........ Dxg5 vinnur mann, ef
Bxc6 þá FIxf4.
n
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og heJgidagavarsla apóteka í
Reykjavík frá 4. til 10. mars er i Laugavegs apóteki
og Holts apóteki. Þaó apótek sem fyrr er nefnt ann-
ast ertt vörsluna frá Id. 22.00 aö kvöldi til Id. 9.00 að
morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upp-
lýsingar um læknís- og lyQaþjónustu em gefnar (
sima 18888.
Neyöarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórtiátíöum. Simsvari 681041.
Hafnarfjöróun Hafnarfjaröar apótek og Noröurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá Id. 9.00-18.30 og ti skiptis
annan hvem laugardag Id. 10.00-13.00 og sunnudag Id.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyrí: Akureyrar apótek og Stjðmu apótek eru opin
virka daga á opnunartima búöa. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aö sinna kvöld-, nætur- og heJgidagavörslu. Á
kvöldin er opiö i því apóteki sem sér um þessa vörslu, tl Id.
19.00. Á helgidögum er opiö frá Id. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öömm timum er lyfjafræöingur á bakvakL Upplýs-
ingar em gefnar í sima 22445.
Apótek Keflavíkun Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kJ. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaö i hádeginu mili kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö ti kl. 18.30. Opiö er á laug-
ardögum og sunnudögum k). 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til kJ. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garóabær. Apótekiö er opiö mmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. mars 1994. Mánaöargreiöslur
Elli/örorkulifeyrir (gmnnlifeyrir).......... 12.329
1/2 hjónalífeyrir............................11.096
Full tekjutrygging ellilifeyrisþega.•......22.684
Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega........23.320
Heimilisuppbót............................. 7.711
Sérstök heimilisuppbót...................... 5.304
Bamalifeyrir v/1 bams ..................... 10.300
Meölag v/1 bams .......................... 10.300
Mæöralaun/feöralaun v/1 bams..................1.000
Mæöralaun/feöralaun v/2ja bama................5.000
Mæöralaun/feöralaun v/3ja bama eöa fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaöa .............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaöa ............11.583
Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329
Dánarbætur i 8 ár (v/sfysa)..................15.448
Fæöingarstyrkur..............................25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratiygginga...............10.170
Daggreiöslur
Fullir fæöingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstakJings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80
GENGISSKRÁNING
09. mars 1994 Id. 10.51 Oplnb. Kaup vtðm.gengl Sala Gengl tkr.fundar
Bandaríkjadollar 72,42 72,62 72,52
Sterlingspund ....107,99 108,29 108,14
Kanadadollar 53,45 53,63 53,54
Dönsk króna ....10,852 10,884 10,868
Norsk króna 9,765 9,795 9,780
Sænsk króna 9,049 9,077 9,063
Finnsktmark ....13,046 13,086 13,066
Franskur franki ....12,465 12,503 12,484
Belgiskur franki ....2,0580 2,0646 2,0613
Svissneskur franki. 50,47 50,63 50,55
Hollenskt gyllini 37,75 37,87 37,81
Þýsktmark 42,41 42,53 42,47
hölsk lira ..0,04288 0,04302 0,04295
Austum’skur sch 6,029 6,047 6,038
Portúg. escudo ....0,4109 0,4123 0,4116
Spánskur peseti 0,5135 0,5153 0,5144
Japansktyen 0,6886 0,6904 0,6895
....103,50 103,84 101,56 103,67 101,41
SérsL dráttarr. ....10Ú6
ECU-EvrópumynL... 81,91 82,17 82,04
Grísk drakma ....0,2923 0,2933 0,2928
KROSSGÁTA
1 2 3 1 * 5 6
7 8
9 10
11
12 13 14 15
16 1 n 7
18 19
34. Lárétt
1 beð 4 mild 7 bók 8 óvissa 9
framandi 11 upphaf 12 boðorð
16 ofna 17 fugl 18 elska 19 hóp-
ur
Lárétt
1 frestaöi 2 tré 3 steypibaðið 4
loki 5 þjálfa 6 kjaftur 10 síðdeg-
is 12 eyða 13 aftur 14 askur 15
drottinn
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt
I fró 4 fát 7 las 8 öri 9 áskonm
II öfl 12 kúptara 16 áti 17 sór
18 lin 19 tak
Lóðrétt
1 flá 2 ras 3 ósköpin 4 förlast 5
ám 6 tin 10 oft 12 kál 13 úti 14
róa 15 ark