Tíminn - 09.08.1994, Side 13
Þriðjudagur 9. áqúst 1994
19wr£
wltWIIW
13
Faðir okkar
Kristján Magnússon
fyrrum bóndi að Ferjubakka
Mýrarholti 14, Ólafsvík
lést á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 7. ágúst. Jarðarförin tilkynnt síð-
ar.
Börnin
Frændi minn og vinur
Sigurjón Einarsson
áður bóndi N-Mörk
lést 7. ágúst á Hjúkrunar og dvalarheimilinu Klausturhólum.
Útför hans verður gerð frá Prestbakkakirkju laugardaginn 13. ágúst kl.
14.00.
F.h. aðstandenda
Björgvin Óiafsson
Vélstjórar
Vélstjóra vantar á b/v Ljósafell SU 70, sem er
skuttogari 539 brt og er með 2300 hö aðalvél.
Skriflegar umsóknir sendist til Kaupfélags Fá-
skrúðsfirðinga, Skólavegi 59, 750 Fáskrúðs-
firði.
Dýrahirðir
Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða dýrahirði í
fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal.
Auk almennrar dýrahirðu felst starfið í kennslu
skólabarna og uppfræðslu almennings um dýr
og umhverfismál.
Óskað er eftir búfræðingi eða sambærilegum
starfskrafti.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra, Frí-
kirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir
þriðjudaginn 16. ágúst 1994.
Nánari upplýsingar gefa Sigurjón Bláfeld eða
Tómas Guðjónsson í síma 684640.
VINNUEFTiRLIT RÍKISINS
Bíldshöfða 16 - Pósthólf 12220 -132 Reykjavík
Asbest
Innöndun asbestsryks getur valdið
alvarlegum sjúkdómum
Samkvæmt reglugerð nr. 74/1983 er allur innflutningur
og notkun á asbesti bannaður. Vinnueftirlit ríkisins getur,
að höfðu samráði við Hollustuvernd ríkisins, veitt undan-
þágu frá banninu, ef önnur efni geta ekki komið í stað
asbests. Engar undanþágur eru í gildi frá ofangreindu
banni. Sérstaklega er vakin athygli á að bannið gildir
einnig um allan búnað í vélar og bifreiðar. Sækja verður
um leyfi til innflutnings og notkunar í hverju tilviki fyrir
sig, ef önnur efni geta ekki komið í stað asbests. Sam-
kvæmt reglum nr. 75/1983 um asbest er öll vinna með
asbest og þar á meðal niðurrif á byggingum, byggingar-
hlutum og búnaði bönnuð nema með leyfi Vinnueftirlits
ríkisins.
Vinnueftirlit ríkisins veitir upplýsingar í sambandi við
heilsufarshættu vegna asbests og undanþágu á notkun
þess.
LÁTTll EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Mótmœlaaögeröir gegn klámstyttunni
Allt of sexý
jomfru?
Víöa getur klámið leynst. í
kaþólsku Sankti Páls kirkjunni
í Burlington í Kanada er stytta
af Maríu mey, sem hefur fariö
mjög fyrir brjóstiö á hreintrú-
uöum kirkjugestum. Sumum
hverjum aö minnsta kosti.
Þeim finnst styttan vera alltof
kynþokkafull, einkum þykja
brjóstin á henni vera of áber-
andi og glöggskyggnir þykjast
meira aö segja sjá móta fyrir
geirvörtum á hinni helgu
mey.
Lucia Amodeo er málsvari
hóps mótmælenda sem berst
fyrir því aö styttan veröi fjar-
lægö úr kirkjunni hiö fyrsta.
Hún segir karlmenn, sem leita
til kirkjunnar í trúarlegum er-
indagjöröum, veröa fyrir trufl-
andi áhrifum af styttunni:
„Hvernig á nokkur karlmaður
aö geta legiö á bæn fyrir fram-
an hana án þess aö á hann
leiti kynferðislegar hugsanir."
Helst vildi hún aö styttunni
yrði varpað í gólfið svo hún
mölvist í þúsund mola.
Ekki eru allir í söfnuðinum
sammála Amodeo og félögum
hennar. Og prestinum finnst
styttan bara vera ljómandi fal-
leg, en segir þó aö ef til vill
geti breytt lýsing fyrir ofan
hana gert brjóstin eitthvað
minna áberandi.
Amodeo er þó ekki á því að
láta undan. Hún hefur þegar
skrifaö páfanum bréf og íhug-
ar nú aö leggja upp í ferðalag
til Vatíkansins til aö fá áheyrn
hjá hans heilagleika vegna
þessa mikilvæga máls.
Eiginmaðurinn
orðinn að vinkonu
Susan og Larry voru einu sinni gift og áttu saman fjög-
ur börn. Þá gerðist þaö, eftir 13 ára hjónaband, að
Larry ákveður að skipta um kyn. Nú heitir hann Hilary
og er ekki lengur hann heldur hún. Susan var sem von
var mjög brugðið og hjónabandiö fór í rúst. En ekki
leið þó á mjög löngu áður en Susan og Hilary voru
orðnar bestu vinkonur. Og er ekki annaö að sjá en vin-
skapurinn eigi eftir að endast töluvert lengur en
hjónabandið.