Tíminn - 28.10.1994, Síða 1
SIMI
631600
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
STOFNAÐUR 1917
78. árgangur
Föstudagur 28. október 1994
203. tölublað 1994
Sjávarútvegsráöherra ósammála utanríksirábherra um inngöngu aö nýju í Alþjóöa hvalveiöiráöiö:
„Óttast ab þetta veiki
samningsstöðu íslendinga"
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráöherra óttast aö yfirlýs-
ing utanríkisráöherra á þingi í
gær, um ab æskilegt sé ab ís-
land gerist aftur meölimur Al-
þjóöa hvalveiöiráösins, veiki
málstab íslendinga á sviöi
hvalveiöa.
jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráöherra lét ummælin
falla í umræðum um skýrslu ut-
anríkisráðherra á Alþingi í gær.
Sjávarútvegsráðherra segir þetta
persónulega skoðun utanríkis-
ráðherra. Engin breyting hafi
orðið á stefnu ríkisstjórnarinnar
í hvalveiðimálum.
„Ég sagði um leið og við sögð-
um okkur úr ráðinu, að það gæti
komiö til álita aö við gengjum
þar inn aftur ef forsendur
breyttust. Segja má að örlað hafi
á nýjum viöhorfum á síðasta
ársfundi ráðsins. Enn sem kom-
ið er hafa engar grundvallar-
breytingar átt sér stað og litlar
líkur á að hvalveiðibanninu
verði aflétt."
Þorsteinn segir hins vegar for-
sendu til að endurskoða afstöðu
íslendinga, takist að tryggja
okkar hagsmuni meb samning-
um vib þær þjóbir innan Al-
þjóða hvalveiðiráðsins sem
mestu ráða. Þer er fyrst og
fremst átt við samkomulag við
Bandaríkjamenn um að íslend-
ingar geti tekið upp að nýju
hvalveiðar innan hóflegra
marka. Sjávarútvegsráðherra
telur grundvöll fyrir slíkum
samningum í kjölfar breyttra
viðhorfa sem Bandarikjamenn
hafi látið í ljósi. Aftur á móti sé
yfirlýsing utanríkisráðherra ekki
heppileg við þessar aðstæður.
„Eg óttast ab yfirlýsing af þessu
tagi núna veiki samningsstöðu
okkar að þessu leyti," sagði Þor-
steinn. „Við höfum fengið
ákveðin skilaboð frá bandarísk-
um stjórnvöldum og ég tel að
það sé rétti tíminn núna til þess
að leita eftir samtölum. Ekki síst
á grundvelli upplýsinga sem að
við höfum fengið frá Washing-
ton," sagði Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsrábherra.
Ögmundur Jónasson endurkjörinn formaöur BSRB
v7ð þingslit í gœr:
Krefjast umtals-
verðra kjarabóta
.. \\ • 'ÍÉI /'
„Skilaboöin frá þessu þingi til
ríkisstjórnarinnar, sveitar-
stjórna og atvinnurekenda eru
skýr og afdráttarlaus: í stab þess
ab stefna til þeirrar fortíbar þeg-
ar misskipting var mikil í þjób-
félaginu eins og hér hefur verib
á undanförnum árum viljum
vib breyttar áherslur. Vib vilj-
um þjóbfélag sem útrýmir fá-
tækt, þjóbfélag sem líbur ekki
atvinnuleysi.
Við viljum þjóðfélag jafnaðar og
réttlætis. Þetta er krafa BSRB og
henni verður fylgt eftir." Þannig
mæltist Ögmundi Jónassyni, ný-
endurkjörnum formanni BSRB,
vib slit þings samtakanna í
Reykjavík í gær. Þingfulltrúar
brugbust við þessum orðum for-
mannsins með dúndrandi lófa-
taki enda greinilegt að Ögmund-
ur skynjaði rétt stemmningu fé-
lagsmanna sinna þegar hann
sagði að nú „kraumaði undir í
kjaramálunum".
Kjaramálin voru mál málanna á
þinginu sem samþykkti mjög
haröa kjaramálaályktun. Það
kemur m.a. fram að „BSRB krefst
þess ab í komandi kjarasamning-
um náist fram umtalsverðar
kjarabætut og beinir því til aðild-
arfélaga að gera hnitmiðabar
kröfur og fylgja þeim eftir."
Kjaramálaályktun BSRB ein-
kennist mjög af kröfum um auk-
inn jöfnuð og mótmælum gegn
vaxandi ójöfnuði og launamun í
þjóbfélaginu. Í henni segir m.a.
ab „BSRB lýsi fullri ábyrgö á
hendur stjórnvöldum og at-
vinnurekendum vegna vaxandi
misréttis í íslensku þjóöfélagi og
skorar á allt launafólk að fylkja sér
bak kröfum um kjarajöfnun og
réttlátara þjóðfélag. ■
Heilsubót í hádeginu.
Birna Petersen íþróttakennari
kann tökin á tilverunni og hleypur
oft um grasagarbinn í Laugardal í
hádeginu sér til heilsubótar. Birna
er landslibsspilari í Badminton og
mikil áhugamanneskja um heilsu-
rcekt og gœti sannarlega orbib
mörgum fyrirmynd íþeim efnum.
Tímamynd CS
MVr /WV^. y*' I V«r W'J
% ¥»• i-áafiiv?
Wvi, f m■■ I Qfi i
V.A - s
w?y.
• ‘'HW-
'• t '.v\tjji\iT í í? Aí \ 1
^ 7
1^^i|im t
Ráöherra ekki varinn vantraustí?
Líkur eru taldar á ab Alþingi
samþykki vantraust á Gub-
mund Árna Stefánsson félags-
málarábherra taki hann ekki
þá ákvörbun sjálfur ab bibjast
lausnar. Forsætisrábherra lýsti
því yfir í gær ab komi til þess
ab málefni Listahátíöar
Hafnafjaröar verbi kærb til fé-
lagsmálarábuneytis muni
hann beita sér fyrir ab Gub-
mundur Árni víki sem ráb-
herra á meban málib er í
rannsókn.
Þetta kom fram í umræðum
utan dagskrár um málefni fé-
lagsmálaráðherra á Alþingi í
gær, en þung stemmning var
ríkjandi í þingsölum eftir síð-
ustu ávirðingar á rábherrann.
Tilefni umræðnanna var um-
ræðuþáttur í Ríkissjónvarpinu í
vikunni þar sem Guðmundur
Árni og Magnús Jón Árnason,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, raeddu
um uppgjör Listahátíðar Hafn-
arfjarbar. í þættinum sagðist
Gubmudur Arni, sem félags-
málarábherra, vilja vara Magn-
ús Jón við því fari sem rába-
menn væru að festast í þar og
sagði þá þurfa að ræða um ýmis
mál, s.s. reynslusveitarfélög, til-
flutning grunnskóla, húsaleigu-
bætur o.fl.
Þetta túlkaði málshefjandi, Ól-
afur Ragnar Grímsson, formab-
ur Alþýðubandalagsins, og fleiri
þingmenn sem lítt dulbúna
hótun. Gubmundur Árni sagði
sjálfur í umræðunum í gær að
orð sín bæri ekki að skilja þann-
ig, en Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra upplýsti að hann teldi
ummælin óheppileg og að
hann hefði þegar rætt þau sér-
staklega við félagsmálaráð-
herra. Davíð sagði jafnframt að
verbi málefni Listahátíðar
Hafnarfjarðar kærð til félags-
málaráðuneytisins telji hann
eðilegt ab Guðmundur Árni
víki sem félagsmálaráðherra á
meðan. Ólafur Ragnar Gríms-
son segist gefa forsætis- og fé-
lagsmálaráðherra tíma til
ákvörðunar fram eftir næstu
viku.
„Mér finnst eðlilegt og mann-
eskjulegt að gefa Guðmundi
Árna nokkra daga til þess að
meta þetta í rólegheitunum
sjálfur og taka þá skynsamlegu
ákvörbun að biðjast lausnar,
eða gefa forsætisrábherra tíma
til ab vinna úr málinu," segir
Ólafur Ragnar.
„Gerist hvorugt er ég ákveðinn
í að beita mér fyrir vibræðum
milli þingmanna um flutningu
vantrausts á Guðmund Árna.
Ég mun ekki binda þær sam-
ræður við stjórnarandstööu-
flokkana eingöngu. Mér finnst
málið vera komið úpp úr far-
vegi stjórnar, stjórnarandstöðu,
eða einstakra flokka. Þetta er
málefni þingsins alls og þeirra
leikreglna sem vib viljum hafa í
íslensku stjórnkerfi." ■