Tíminn - 09.12.1994, Qupperneq 5

Tíminn - 09.12.1994, Qupperneq 5
Föstudagur 9. desember 1994 5 Unnur Stefánsdóttir: Jafnari tekjuskipting Þaö sem umfram annaö ein- kennir feril núverandi ríkis- stjórnar er aöför hennar aö vel- feröarkerfinu og heimilunum í landinu. Atvinnuleysiö meö öllum þeim vandamálum, sem því fylgja, hefur haldiö innreiö sína, skattar á almenning hafa veriö stórhækkaöir og álögur í formi þjónustugjalda í heil- brigöiskerfinu eru látnar bitna á sjúklingum, öryrkjum og ellilíf- eyrisþegum. Allt þetta hefur rýrt svo kjör og skert ráöstöfun- artekjur heimilanna aö ekki veröur komist hjá sérstökum björgunaraögeröum, ef foröast á stórslys. Lífskjarajöfnun Á 23. flokksþingi framsóknar- manna, sem haldiö var í lok nóvember, var samþykkt ítarleg ályktun um jöfnun lífskjara. I ályktuninni segir m.a. aö til þess aö koma í veg fyrir þá hol- VETTVANGUR skeflu gjaldþrota, sem nú blasir viö og gera muni þúsundir fjöl- skyldna heimilislausar og hafa í för meö sér gífurlega eignaupp- töku, þá þurfi megininntak komandi kjarasamninga aö vera jöfnun lífskjara. Virkasta leiöin til lífskjarajöfnunar er í gegnum skattakerfiö, sem markvisst hef- ur veriö snúiö almenningi í óhag í tíö núverandi ríkisstjórn- ar. I ályktun flokksþingsins er m.a. bent á eftirtalin atriöi, sem gætu veriö framlag ríkisvaldsins til aö greiöa fyrir komandi kjarasamningum: - persónuafsláttur hjóna og sambýlisfólks veröi millifæran- legur aö fullu; - ónýttur persónuafsláttur veröi endurgreiddur; - endurskoöuö veröi ákvæöi um staögreiöslu námsfólks og þeirra sem hefja störf aö af- loknu námi; persónuafsláttur verði hækkaður; - persónuafsláttur unglinga 16-20 ára, sem eru í námi, veröi millifæranlegur, séu fjölskyldu- tekjur undir tilteknu lágmarki; - vaxtabætur og barnabætur verði hækkaðar. Raunveruleg kjarajöfnun Eins og að framan er rakiö hefur „kjarajöfnun" núverandi ríkisstjórnar aöallega verið í því fólgin að auka álögur á þá sem lakar eru settir, á sama tíma og ekki hefur mátt hreyfa við há- tekjufólki og þeim sem fjár- magnið eiga. Til þess aö um raunverulega kjarajöfnun geti orðið að ræða, má ekki fara aft- ur í gamla farið og innheimta viðbótarskatta af þeim sem ver- ið er aö hjálpa. Þess í stað verð- ur að gera alvöru úr því að inn- heimta hátekjuskatt og skatt af fjármagnstekjum. Möfundur tekur þátt í prófkjöri fram- sóknarmanna á Reykjanesi 10. des. og stefnir á 2. sætib. Frá mörgu er aö segja Vilhjálmur Hjálmarsson: Mannakynni. Frá öbru fólki og athöfnum þess. Æskan 1994. í þessari bók segir Vilhjálmur á Brekku frá ýmsu fólki sem á vegi hans hefur orðið heima og heiman, fyrr og síðar. Kynnin eru aö mestu leyti í aldursröð frá bernsku sögumanns fram á efri ár. Einna veigamestir eru þætt- irnir um Sigdór Brekkan og Svein Benediktsson. Má vel vera aö ráöið hafi úrslitum um að þessi bók er orðin til, aö sögu- manni hafi þótt sér skylt aö gjalda þeim gamla skuld. Það vissi ég áöur, meðal ann- ars af frásögn Lúðvíks Jóseps- sonar, aö skóli þeirra Valdimars Valvessonar Snævarr og Sigdórs Vilhjálmssonar Brekkan var merkileg uppeldisstofnun. Ástæöa er til aö fagna þættinum um Sigdór í þessari bók. BÆKUR HALLDÓR KRISTJÁNSSON Sveinn Benediktsson var barnakennari í Mjóafirði ára- tugum saman og oddviti sveit- arinnar í 28 ár. Auk þess gegndi hann fjölda annarra trúnaöar- starfa. Vilhjálmur segir m.a. um hann: „Æviferill hans var sem skóla- bókardæmi um þá þjóðfélags- gerö sem hér er vikið aö og brátt heyrir sögunni til." Þannig hefur höfundur séö að meö þættinum um Svein, sem var kennari hans í 7 vetur, var hann að fjalla um merkan þátt í þjóðarsögunni. Á þann veg féll það saman aö minnast kennar- ans og oddvitans, sem var sýslu- nefndarmaður, símavörður, póstafgreiöslumaöur og fisk- matsmaður, og gefa lesendum fræðslu um hverfandi þjóölífs- mynd. Þáttur Sunnmýlinga í þessari bók er aö vonum mjög áber- andi. Sum félagsmálin voru bundin takmörkun sýslunnar. Flestum forustumönnum innan hennar í samtíð höfundar munu gerö nokkur skil. Trúlega veröur oft til þessarar bókar vitnaö þegar fjallað veröur um menn og málefni Sunnmýl- inga. Vilhjálmur minnist veru sinnar á Laugarvatni og kenn- ara sinna þar. Og hann segir frá kynnum sínum á Alþingi viö þingmenn og starfsfólk. Það er ástæöulaust aö eyöa oröum til aö kynna Vilhjálm á Brekku sem rithöfund. Bækur hans, 10 á undan þessari, hafa kynnt hann. Hann er vinsæll og vandaður sögumaöur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Glöggur og gamansamur þegar þaö á við og kann vel að fara meö einstök dæmi svo mann- lýsing er í. Hins skal geta aö þessi skýrsla um mannakynni hefur á sér öll hin fyrri einkenni sögumannsins. Um það þarf ekki fleiri orö. ■ Öfgamenn meb hvíta flibba Ekki alls fyrir löngu hélt sá merki félagsskapur Landvernd, ráð- stefnu um auðlindir hafsins. Ýmsum aöilum, innan lands og utan, var boðin þátttaka, þ.á m. L.Í.Ú. Landvernd fór þess á leit við þessi heildarsamtök íslenskra útgerðarmanna, aö þau sendu á ráðstefnuna einhvern þeirra út- geröarmanna, sem leggja stund á veiöar í Smugunni. Nokkur áhugi mun hafa verið fýrir þátt- töku meðal einstakra útgeröar- manna. Þaö dugði þó ekki til, enda höfnuðu forystumenn L.Í.Ú. boöinu. í fjölmiölum mátti á þeim skilja, aö ástæðan væri sú aö þeir teldu Landvernd öfgasamtök og hefðu þarafleið- andi ekkert við þann félagsskap aö ræöa. Tungumál bjóða upp á marga túlkunarmöguleika einstakra orða. Þó em viss atriði, sem óneitanlega koma upp í hugann, séu ákveðin orö nefnd. í mínum huga er þaö ljóst, að öfgamenn eiga eitt sameiginlegt, nefnilega þaö að forheimskun þeirra mein- ar þeim aö rökræöa þau málefni, sem öfgar þeirra beinast aö. Vissulega mátti forystu L.Í.Ú. vera ljóst, að Landvernd heföi ýmislegt viö Smuguveiöarnar að athuga. Eigi að síður vildi félagiö bjóöa útgeröarmönnum til skrafs og ráðageröa um málið. Þetta sannar, að Landvernd getur ekki talist til öfgasamtaka. Ef forystu- menn L.Í.U. hefðu haft burði til að haga sér aö siöaöra manna hætti, hefðu þeir þegið boðið meö þökkum. En eins og allir öfgamenn, stungu þeir höfðinu í sandinn og neituðu öllum við- ræöum. Því miður er þetta ekki eina dæmi þess, að forystumenn at- vinnurekenda fylli flokk öfga- manna. Fyrir skömmu fór fram umræðuþáttur í Ríkissjónvarp- inu og var vaxandi efnaleg fá- tækt á íslandi umræöuefni þátt- arins. Fram kom, aö Vinnuveit- endasambandi íslands hafði ver- ið boðiö að senda mann á staðinn. En, nei, þar á bæ töldu menn sig yfir umræðuefnið hafna, í það minnsta létu þeir ekki sjá sig. Þó er ekki laust viö, að ýmsir telji aö í herbúöum vinnuveitenda sé aö finna skýr- SPJALL PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON inguna á a.m.k. hluta' ört vax- andi fátæktar hér á landi. Skyldi þó aldrei vera, aö samviskan hafi eitthvað fariö aö naga blessaöa „máttarstólpa atvinnulífsins", þegar þeim bauðst að ræða af- leiöingar gjörða sinna frammi fyrir alþjóö? Stundum er sagt, að á íslandi séu aö myndast tvær þjóöir, hin ríka þjóö og sú snauða. Þetta er vitanlega ekki alls kostar rétt. Hér hafa efnahagslegar forsend- ur alltaf myndað gjá milli manna. En gjáin sú arna hefur verið misbreið. Síöustu árin hef- ur hún því miöur bæði breikkaö og dýpkað. Afleiðingin er sú, aö tveggja þjóöa talið á nú viö meiri rök aö styðjast en oft áöur. Þetta er óviöunandi ástand, ekki aö- eins fyrir hálf launalausa alþýðu, heldur einnig fyrir þá efnameiri. Því þegar upp er staðiö, líður þeim mönnum ekki vel, sem fastir eru með báöar hendur í annarra manna vösum. Islenskir atvinnurekendur og málpípur þeirra hafa jafnan átt erfitt með að skilja þaö einfalda markaöslögmál, aö til aö hægt sé aö tala um markaö nægir ekki aö hafa á boöstólum vöru og þjón- ustu. Þaö þarf einnig fólk, sem hefur efni á að kaupa þaö sem í boði er. Slíku fólki fer ört fækk- andi þessa stundina. Með núver- andi launastefnu hljóma hvatn- ingar til fólks, um að kaupa ís- lenskar vörur, eins og lélegur brandari. Fólk kaupir einfaldlega þaö sem það hefur efni á aö borga, annað ekki. Og er einhver ástæöa til þess aö styrkja sérstaklega ein- hverja öfgamenn, sem sjá ekki ástæöu til að greiða starfsfólki sínu mannsæmandi laun og telja það fyrir neðan virðingu sína aö ræöa við þá, sem hafa eitthvað við slíkt háttalag ab athuga? ■ FÖSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES SÍÐASTI MÓHÍKANINN Líklega er Reynir Pétur göngu- garpur frá Sólheimum síbasti jafnaöarmaöurinn á íslandi. Kannski sá eini í fimmtíu ár og jafnvel frá landnámi. Ab minnsta kosti frá stofnun Alþýöuflokksins. í ágætum sjónvarpsþætti Hemma Gunn á mibvikudags- kvöld átti Reynir Pétur sér eina ósk: að jafna launabilið í landinu. Aö svo mæltu tók þessi einstaki íslendingur á rás og skundaði hlæjandi á brott, hreifur af aö- ventuglebi jólanna. Af hverju hefur Reyni Pétri ekki orðið ab ósk sinni frá því land byggðist og menn hófu að mæla tekjur fólksins? Þab er góð spurn- ing og svarið er fólgib í þeim sannleika ab íslendingar eru ekki jafnaðarmenn í hjarta sínu. Land- námsmenn þjóðarinnar sigldu úr fjörbum Noregs á vit óvissunnar á íslandi, frekar en borga kóngin- um skatta. Þeir vildu engan fjandans jöfnuð og fyrir löngu er komið í Ijós ab afkomendum þeirra kippir í kyniö. Hvarvetna í þjóbfélaginu blasir ójöfnuöur vib og hrópandi sund- urþykkja: Stjórnendur stærri fyrir- tækja og stofnana ríkis og sveit- arfélaga búa flestir vib öruggt umhverfi hinna vernduðu vinnu- staba. Þeir þykja hálfdrættingar í eigin hópi ef þeir ná ekki fjórföld- um launum undirmanna sinna og ber þó enginn þeirra ábyrgö þegar í harbbakkann slær. Henni er jafnóbum velt yfir á almenn- ing eba ríkissjóö, eins og rándýr dæmin sanna. Þessir miðaldra frjálshyggjusvein- ar eru kostulegustu kapítalistar á Vesturlöndum. Þeir ríghalda í barnatrúna aö borga fólkinu lág laun og skynja ekki ab rífleg laun eru forsenda neysluþjóðfélagsins. Annars getur fólkið engu eytt og ekkert keypt. Þeir tryggja sér ósvífin eftirlaun meö þvf aö semja vib sína líka í stjórnum fyr- irtækja og stofnana og hafa til skamms tfma náö aö halda vöxt- um í hámarki til aö ávaxta betur eftirlaunin sín. Forystumenn launþega eru því miður ekki hótinu skárri. Enginn þeirra tekur sjálfur laun eftir þeim launaflokkum sem þeir semja um fyrir félagsmenn sína. Enginn þeirra býr sjálfur í því félagslega húsnæbi sem þeir láta ríkissjóð reisa fyrir félagsmenn sína. En all- ir dvelja þeir í sumarhúsunum sem þeir láta orlofssjóöina reisa fyrir sig og sína. Þennan rangláta veruleika skynj- ar Reynir Pétur betur en annab fólk og nú vill hann breyta. Ekki fyrir sig heldur náunga sinn og skyldu menn þó ætla aö ýmsar heimsins lystisemdir stæöu hjarta hans nær á óskastundu. En þvf miöur er langt f land að göngu- garpinum veröi ab ósk sinni. Islensk fyrirtæki hafa aldrei efni á aö borga starfsfólki sínu eðlileg laun á meöan topparnir fleyta sjálfir rjómann í laun og starfs- lokasamninga. íslenskir verka- lýðsforingjar hafa enga buröi til ab semja um kaup og kjör fyrir félagsmenn sína á meban þeir þiggja sjálfir hærri laun en taxtar félagsmanna hljóba upp á.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.