Tíminn - 09.12.1994, Síða 10

Tíminn - 09.12.1994, Síða 10
10 Wnátm Föstudagur 9. desember 1994 Tjaldað til einnar nætur jónína Leósdóttir: Þríleikur. Fróbi hf. 172 bls. Þríleikur er fyrsta skáldsaga Jónínu Leósdóttur. Áður hefur hún skrifaö tvær samtalsbækur og vinsæla unglingabók, Sundur og saman, sem kom út í fyrra. Þríleikur er saga þriggja systra, Ásu, Signýjar og Helgu. Þær lifa í nútímanum og segir sagan frá lífi hverrar þeirra í 12 köflum. Höf- undur sér inn í huga allra aöal- persóna sinna, en samræður eru veigalítill þáttur og af skornum skammti. Lesandinn fylgist með sjón- varpsfréttakonunni Ásu, hús- móðurinni Signýju og ævintýra- manneskjunni og viðskiptafræð- ingnum Helgu. Þær takast á við ótrúlega fjölbreyttan veruleika, þar sem ótrúlega hávaxnir menn BÆKUR BjÖRN ÞORLÁKSSON og flestir mjög klofnir og brjóst- umkennanlegir koma við sögu. Sjálfar em systurnar þrjár jafn ólíkar og hægt er og eiga ekkert annað sameiginlegt en að vera systur. Ása er fráskilin, tveggja barna „karríer-kona", sem fór fyrst að lifa eftir að hún skildi við kvensama lækninn sinn. Signý hefur, líkt og Ása, látib sinn kaíl troba á sér fram eftir öllu, en er að kvikna til vitundar um hlut- skipti sitt, en Helga hefur frá upphafi verið ofursjálfstæð kona og reyndar svo að henni er nán- ast ómögulegt ab tjalda lengur en til einnar nætur. Og þannig er með bók þessa í heild; þab er tjaldab til einnar nætur við samningu hennar. Hún hefur lítið sem ekkert fagur- fræðilegt gildi, en ágætis afþrey- ingargildi. Sem reyfari er hún að mörgu leyti forvitnileg, enda í nógu að snúast hjá systrunum allan tímann og lesandanum haldið við efnið. Auk þess greið- ist úr flækjunum í lokin, þannig að enginn þarf aö kvíða vondum endi. Annmarkarnir em þó augljósir, enda trúverðugleiki bókarinnar enginn. Sem dæmi má nefna fréttastörf Ásu, en þar byggist allt upp á hraða og hörku og verður hið heimóttarlega íslenska sam- félag ótrúlega heimsborgaralegt og spennandi: „Þú þarft að hafa upp á þessum þingmanni fyrir ÞRILEIKUR JÓNÍNA LEÓSDÓTriR NÚTÍMASAGA mig. í einum grænum. Ef hann er hvorki heima né niðri á þingi er hann ömgglega að gamna sér meb hjákonunni. Neðsta númer- ið á þessum lista er leynisíminn hjá henni. Drífðu þig!" (bls. 15). Þá er sífellt verið að segja frá hinu augljósa, líkt og lesandinn sé hálfviti. Þannig má nefna: „Þegar dyrabjöllunni var hringt um níu- leytiö hrökk hún í kút. Eitt and- artak hvarflabi það að henni að nú væri Jean-Paul mættur í eigin persónu. Síðan áttaði hún sig. Hann hefði ekki getað komist svona fljótt yfir hafib nema í Concorde þotu. Og slíkar flugvél- ar vom ekki í fömm á milli Frakk- lands og íslands" (bls. 48-49). Þema bókarinnar er torfundið, enda heyrir hún sem fyrr segir undir hreinar afþreyingarbók- menntir. Framhjáhald, afbrigði- legt ástarlíf, nauðgun, ferbalög, útlendir sjarmörar, hæstaréttar- lögmenn, drykkjusjúklingar, prófessorar, yfirlæknar o.s.frv. nægja til að hvetja lesandann áfram uns lestri bókarinnar er lokið og þar með er tilganginum væntanlega náð. Hitt veldur von- brigöum ab metnaður höfundar hafi ekki verib meiri en raun ber vitni, því nokkrar væntingar vom gerðar til hennar eftir vel- heppnaba unglingabók síðasta árs. ■ UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Happamót Bridgesambands íslands: Sigurður og Gylfi höfbu tæpan sigur Helgina 3.-4. desember var haldiö fjáröflunarmót í Þöngla- bakka 1, í nýju og glæsilegu húsnæði BSÍ, til fjáröflunar vegna kaupanna. Vegleg verðlaun voru í boði, þar á meðal ferð fyrir tvo á Evr- ópumót í tvímenningi sem haldið verður í Róm í mars nk. auk annarra ferðavinninga og fjölda happavinninga sem dregnir voru út í hverri lotu. Auk þess voru flokkaverðlaun í flokki yngri spilara, kvenna, para og eldri spilara. 58 pör spiluðu fyrstu lotu á laugardeg- inum og 54 pör lotu tvö. 16 efstu pörin komu áfram í úr- slitabarómeter sem hófst kl. 11 á sunnudag, en aöeins 23 pör spilubu þriðju mitchell-lotuna sem spiluð var kl. 13 á sunnu- deginum. Barómeterkeppnin var spennandi allan tímann, en Sigurður B. Þorsteinsson og Gylfi Baldursson, sem unnu undankeppnina á laugardegin- um, enduðu einnig sem sigur- vegarar í abalkepninni með þó aðeins 43 stig. Þeir hlutu þar með farmiða og þátttökugjald á Evrópumeistaramótiö í Róm. Tvö pör voru hnífjöfn í 2.-3. sæti. Innbyrðis seta réb úrslit- um um að Kristján Blöndal og Stefán Gubjohnsen hlutu ann- að sætib með 40 stig og helgar- ferð með Dublin með Sam- vinnuferðum. Hallgrímur Hall- grímsson og Haukur Ingason hlutu 3. sætið og ferð innan- lands með Flugleiðum í verð- laun, einnig með 40 stig. í fjórða sæti enduðu Guð- mundur Páll Arnarson og Þor- lákur Jónsson með 38 stig. Flokk 25 ára og yngri unnu Steinar Jónsson frá Siglufirði og Magnús Magnússon og þar með ferb með Flugleiðum á yngri spilara-mót í Hollandi í byrjun janúar 1995. Símon Símonarson og Björn Theódórsson unnu flokk eldri spilara og ferð meb Flugleiðum innanlands. (Þess má geta til gamans að Björn Theódórsson er framkvæmdastjóri Flug- leiða). Guðlaug Jónsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir unnu kvennaflokkinn og ferð með Flugleiðum á Schiphol- mótib í Hollandi næsta vor. í paraflokki varð að draga um sigurvegara þar sem tvö pör, Gubrún Jóhannesdóttir og Björgvin Már Kristinsson og Ólöf H. Þorsteinsdóttir og Sveinn R. Eiríksson urðu ná- kvæmlega jöfn að stigum. Dregin voru spil til að úrskurða um siguvegara og dró fyrr- nefnda parið tígulfjarka en hitt tígulsexu! Sveinn og Ólöf hlutu þar með ferðavinning í leiguflugi Samvinnuferða að verbmæti 30.000 kr. Kristján Hauksson og Jó- hanna Katrín Kristjánsdóttir sáu um keppnisstjórn og út- reikning en Helgi Jóhannsson, forseti BSÍ, og Elín Bjarnadótt- ir, framkvæmdastjóri BSÍ, af- hentu verðlaunin í mótslok. Stjórn Bridgesambands ís- lands þakkar þeim spilurum sem mættu og sýndu stuðning sinn í verki við húsakaupin en þeir hefðu vissulega mátt vera fleiri. Símon í sínu essi Símon Símonarson hefur lengi verib í hópi bestu bridgespilara hérlendis. Hann er löngum í ess- inu sínu í úrspilinu og fær oft einum slag meira en gengur og gerist þegar hann er í sagnhafa- sætinu. Lítum á dæmi um þetta úr Happamótinu: Norður gefur/NS á hættu A 765 ¥ ÁT2 ♦ K63 + K972 ♦ KG43 N V A * D92 ¥ 96 ¥ DGS ♦ ÁGT8 ♦ D974 + ÁG 4 ÁT8 * D84 ¥ K8743 ♦ 52 * T54 Norður Austur Suður Vestur pass pass pass 1 grand pass pass pass Happamót BSÍ fór fram um síbustu helgi helgi til fjáröflunar hins nýja glœsilega húsnæbis BSÍ, ab Þönglabakka 1. Hér fylgjast áhugasamir bridgeunnendur meb úrslitaleiknum í bikarkeppninni, vígsluhelgina. „Ég á mikið af dömum," sagði Björn Theódórsson er hann lagði upp blindan en grand Símonar hafði lofað 13- 15 punktum. Norbur lagði af stað með lauftvistinn, fjóröa hæsta, og laufdrottningin var vart komin á boröið þegar Sím- on teygði sig í hana og henti á borðið. Subur setti fimmið en Símon sexuna. Næst leyfði Símon tígulníunni að rúlla og norbur drap með kóng. Eftir umhugsun spilabi norður aftur litlu laufi og gaf þar með sjálf- um sér núllið en Símoni topp- inn, þar sem hann fékk 9 slagi alls í spilinu. En hvers vegna spilaði norbur aftur laufi? Jú, það gat ekki veriö „rétt" spila- mennska með ÁGx heima ab stinga upp laufdrottningunni. Ef suður ætti kónginn, sem var mögulegt ef útspil norðurs var frá tíunni fjórðu, myndi Símon vera búinn að opna litinn og því ályktaði norður aö beiðni Símonar um drottninguna í fyrsta slag lýsti veikleika í litn- um. Einföld blekking og áhrifa- rík. Erfiður maður Símon. Öryggib á oddinn Annað áhugavert spil kom upp í fyrstu lotunni í spili 9: ♦ G7642 V G83 ♦ Á9 ♦ Á84 N S * KT93 ¥ ÁK * K8 * KGTS3 Sagnir urðu heldur villtar á einu borðinu og norður endaði sem sagnhafi í sex spöðum: Spilaáætlun eftir hjartaútspil? Útlitið er ekki glæsilegt. Bæbi misskilningur og létt spaðaopnun norburs í spilinu urðu til þess ab slemman var sögð en ef menn eru í henni veröur að reyna að vinna hana Sagnhafi drap á hjarta, tók hjartakóng og spilaði sig heim á tígulás. Hvað svo? Allt spilib: A G7642 V G83 ♦ Á9 * Á84 * - V T742 ♦ G76S432 * D9 N V A S * ÁD8S V D965 * DT * 762 + KT93 ¥ ÁK ♦ K8 + KGTS3 Nú urðu sagnhafa á afdrifa- rík mistök. Hann spilaði spaða- gosanum með þeim orðum að það væri fróðlegt að vita hve mörg prósent þessi slemma væri. Austur drap á ás og og þegar vestur sýndi eyðu byrjabi sagnhafi að naga sig í handa- bökin. Eins og lesendur sjá er rétta spilamennskan til ab vernda sig gegn 4-0 legunni að spila litlum spaða að heiman. Það gjörbreytir spilinu, því þá er hægt ab spila gosanum næst þegar sagnhafi er heima og spila þriðja spaðanum. Með því móti vinnst spilið ef sagn- hafi tapar ekki slag á lauf en hann hefur þrjár leiðir og tvær leiða til vinnings, annað hvort ab toppa laufið eða svína af vestri. Sú leið er örlítið betri þar sem vestur er líklegri til að eiga lengd í laufinu vegna 0-lit- arins í spaða. En hægan hægan. Austur spilaði tígli á kóng blinds eftir að hafa drepib á spaðaás og enn gat sagnhafi unnið spilið. Einfaldlega með því að spila lauftíunni, laufi á ás, svína spaða, laufi á áttuna og svína aftur spaða. Sú leib fannst hins vegar ekki og sagnhafi fór einn nibur. Það gaf tæran botn, þar sem ekkert hinna paranna fór í slemmuna, en hefði að sama skapi gefið gulltopp ef öryggis- spilamennskan hefbi verið notuð í spaðaíferðinni. Vetrarmitchell BSÍ Föstudaginn 2. desember var spilaður eins kvölds tölvu- reiknaður mitchell með for- gefnum spilum. 30 pör spil- uðu, 10 umferðir með 3 spilum og var meðalskor 270. Efstu pör: NS: 1. Halldór Þorvaldsson-Sveinn R. Þorvaldsson 318 2. Sigurður Ámundason-Jón Þór Karlsson 313 3. Una Árnadóttir-Kristján Jón- asson 298 4. Andrés Ásgeirsson-Ásgeir H. Sigurðsson 290 5. Björn Þorláksson-Þorsteinn Guöbjörnsson 288 AV: 1. Guðlaugur Sveinsson-Magnús Sverrisson 373 2. Kristinn Þórisson-Ómar Ol- geirsson 316 3. Gottskálk Guðjónsson-Árni H. Friðriksson 289 4. Erlendur Jónsson-Hjalti Berg- mann 289 5. Elín Jónsdóttir-Lilja Guðna- dóttir 286 Spilað er öll föstudagskvöld í húsnæði BSÍ að Þönglabakka 1. Spilamennska hefst kl. 19.00. Bridgefélag SÁÁ Þriðjudaginn 29. nóvember var spilaður eins kvölds tölvu- reiknaður mitchell með for- gefnum spilum. Meðalskor var 216. Efstu pör: NS: 1. Páll Þór Bergsson-Eysteinn Sigurðsson 270 2. Magnús Torfason-Guðni Kol- beinsson 256 3. Magnús Þorsteinsson-Guð- mundur Sigurbjörnsson 242 AV: 1. Rósmundur Guðmundsson- Páll Sigurjónsson 266 2. Björn Björnsson-Nicolai Þor- steinsson 256 3. Sturla Snæbjörnsson-Cecil Haraldsson 242 Aðalsveitakeppni félagsins fer fram á morgun, laugardag- inn 10. desember. Spilaöir verða sex 10-spila leikir með monrad fyrirkomulagi og sil- furstig í boði. Mótið hefst kl. 11.00. Spilasjabur Úlfaldinn og Mýflugan, Ármúla.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.