Tíminn - 21.12.1994, Síða 3
Miövikudagur 21. desember 1994
3
Gervijólatrjám fer fœkkandi en fleiri velja skógartré:
Jólatré á flest-
um heimilum
Nær allir íslendingar hafa jóla-
tré á heimili sínu á jólunum.
Samkvæmt nýrri Hagvangs-
könnun verba aöeins rúmlega
2% heimila án jólatrés í ár, eða
sama hlutfall og í könnun fyrir
fimm árum. Landsmenn hætta
því greinilega ekki að setja upp
jólatré, þó svo að aldurinn fær-
ist yfir — eða a.m.k. fram ab
ellilaunaaldri, en Hagvangur
spurði ekki eldra fólk en 67
ára. Jafnframt kom í ijós aö
vinsældir barrtrjáa hafa farið
vaxandi á undanförnum árum
en heimilum sem nota gervi-
jólatré fækkar. Gervitré eru þó
hlutfallslega miklu algengari á
landsbyggðinni.
„Hvort eruð þið yfirleitt meb
gervijólatré eöa lifandi jólatré
á ykkar heimili á jólunum?",
spurbi Hagvangur fólk úr
1.000 manna slembiúrtaki og
bar svörin saman við niður-
stöður sams konar könnunar
fimm árum áður. „Lifandi jóla-
tré" svöruðu rúmlega 57%
svarenda að þessu sinni, sem er
fjölgun úr 53% fyrir jólin
1989. „Gervijólatré" svaraði
tæplega 35% fólks nú, en rúm-
lega 41% fyrir fimm árum.
Gervijólatrjám hefur sam-
kvæmt þessu fækkað kringum
1/6 á aðeins hálfum áratug.
Þeim hefur hins vegar fjölg-
að (úr 3% í 6%) sem ekki vita
hvort jólatréð á heimili þeirra
er barrtré sagað niður úti í
skógi ellegar sé verksmiðju-
framleiðsla úr plasti.
Ef aðeins er litib á svör
þeirra sem hafa uppruna síns
jólatrés á hreinu kemur fram
verulegur munur á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæð-
is. Gervijólatré eru aðeins á
tæplega 30% heimila í höfuð-
borginni en á nærri helmingi
(49%)heimila á landsbyggð-
inni. Ekki ólíklegt að erfiðara
sé fyrir marga þar að útvega sér
lifandi tré fyrir hver jól. ■
V-Húnvetninga
Hvammstanga
Gleðileg jól
farsœlt komandi ár
Pökkum samstarf og viðskipti
á liðnum árum
óskar öllum
gleðilegra jóla
og gœfu á
komandi ári
. Þakkar. viðskiptamönnum
sínum og starfsfólki
gott samstarf
á liðnum árum
Kaupfélag
Langnesinga
óskar landsmönnum öllum
^ " gleðilegra jóla og
farsœldar á
komandi ári
Kaupfélag
Bitrufjarðar
Óspakseyri
■ j.
Pakkar gott samstarj
og viðskijjti á
Hiðnum>árum