Tíminn - 21.12.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 21.12.1994, Blaðsíða 9
Mi&vikudagur 21. desember 1994 9 hafnaö á Mjóafiröi þar sem þótti votta fyrir sólsteik á roöi hans. Skyldi hún leggja fisk- inn inn í ljósaskiptunum og mundu Seyðfirðingar varla gera kvenmanninn afturreka svo langt aö kominn! Fiskmatið varð að fram- kvæma á vissum tímum og hefur þab áreiðanlega oft rek- ist á önnur störf manna sem allir stunduðu matið í hjá- verkum. Skal ég tilfæra eitt at- vik sem til þess bendir og varð ofurlítið broslegt. Það var verið að skipa út fiski á sunnudegi. Fiskitöku- skipib lá fyrir föstu undan Höfðanum í góðu veðri. Sveinn var um borð, taldi pakkana og fylgdist með lest- un. Nokkrir fleiri úr landi unnu um borð, meðal annars sonur Sveins, Benedikt, sem var heljarmenni, en Sveinn var þá roskinn. Nú ber svo til að bóndi nokkur setur ofan skektu sína og tekur stefnu á Hlíð að vitja um ábyrgðarbréf sem hann hafði fengið meb síðustu póst- ferb. Bréfið er þá læst inni í peningaskáp og Sveinn með lykilinn úti í skipi. Bóndi bregður sér þá um borð og tekur að jaga póstafgreiðslu- manninn fyrir ab vera ekki vib. Hann gegnir fáu en segir þó að það sé sunnudagur í dag og engin skylda að afgreiða póst. Bóndi tekur þessu illa og hefur hátt. Þá er það að Bene- dikt á að hafa gengið til mannsins og þétt upp að hlið- inni á honum og sagt meb þungri áherslu: „Á ég ab fleygja þér hérna út fyrir borð- stokkinn?" — Ekki þáði mab- urinn þetta boð heldur fór sjálfur niður í skektu sína og reri til lands. Nokkru síbar Fiskþurrkun hjá Konrábi Hjálmars- syni á Mjóafirbi um 1910. Ljósm. Ingimundur Sveinsson ar, hugsanleg sólsteik. Allt þetta og sjálfsagt miklu fleira þurfti að gaumgæfa. Og svo var það stærðarflokkunin: málsfiskur, millifiskur, stórla- bri, labri, handfiskur. Oft eba oftast var stærðin auðséð. En þegar með þurfti var kvarðan- um brugðib á með æfðu handtaki. Hakið næst hand- fangi nam við fiskinn milli þunnildis og hnakka. Hins vegar var mibað við sporð- blöðku. Málsfiskur var yfir 20 tommur, millifiskur 18-20, la- brador- eða vorðfiskur 12-18 og handfiskur undir 12 tommum. Auk stærðarflokk- unar var svo vitanlega gæba- flokkun, labri I, labri II, „rag" og svo framvegis. Handfiskur var þó ekki greindur í gæða- flokka. Hér þarf ab skjóta inn orða- skýringum. Máls- og millifisk- ur var ristur allt á sporðblöbku en labri aðeins á miðja stirtlu. Labri dró nafn sitt af Labra- dorskaga (vegna ámóta handtéringar hér og þar). Hann var stundum líka kall- aður vorðfiskur og var það heiti dregið af nafni bresks fiskkaupanda, Wards að nafni. Sá fiskur, sem ekki taldist hæf- ur til útflutnings, fór í rag. Af einstökum atriðum varð- andi matiö hafa hringormarn- ir sennilega tekið lengstan tíma. Væru þeir fáir mátti skera þá úr. Og þeir gátu orðið svo margir í fiski og fiski að hann færi í rag. Baráttan við hringorminn var háð af alúð, eljusemi og einbeitni og það voru notuð gleraugu í viðureigninni við þennan ófögnuð. — Sveinn setti líka ævinlega upp gler- augu þegar hann borðaði fisk og grandskobaði hvern munn- bita því hann var á móti hringormum. Skopleg atvik Varla hefur farið hjá því að starfi matsmannsins fylgdi eitthvert þras. Man ég þó ekki til að talað væri um sérstaka árekstra út af matinu enda treystu víst allir Sveini til rétt- dæmis. Aftur á móti gekk sú gaman- saga ab maður nokkur hefði reynt að senda konu sína til Seyðisfjarðar á mótorbátnum (þó ekki eina) með nokkur skippund af þurrkuðum salt- fiski. Hafbi fiskinum verið ® OG FARSÆLT KOMANDI ÁR MEÐ ÞÖKK FYRIR ÁNÆGJULEG SAMSKIPTI ÁÁRINU KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AKUREYRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.