Tíminn - 10.01.1995, Page 9

Tíminn - 10.01.1995, Page 9
Þri&judagur 10. janúar 1995 9 UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . Eldur í Forsetahöllinni í Téténíu undir haröri hríö rússneska hersins: Téténar neita ab gefast upp en Grosní nan- ast fallin Moskvu/New York/Osló - reuter Rússneskar hersveitir sóttu hart aö Téténum byltingarsinnum í umsetnu borginni Grosní í gær. Forsetahöllin varö fyrir þungum árásum og loguöu eldar eftir sprengjur rússneska hersins, auk þess sem linnulaus vélbyssuskot- hríð var framan við höllina. Allt aö 75 skriðdrekar bættust við her- afla Rússanna viö átakasvæðin í borginni í gær. Samkvæmt Interfax og reuter- fréttastofunni hafa Rússar nú borgina nánast á valdi sínu og var í gær taliö hreint tímaspursmál hvenær Grosní yrbi á valdi þeirra. Téténar hyggjast þó ekki gefast upp heldur halda til fjalla ef borg- in fellur og stunda þaöan skæru- hernað, samkvæmt einum bar- áttumanninum í forsetahöllinni. Mannfall er mikiö Og er talið ab um 300 rússneskir hermenn hafi látist en fjöldi fallinna Téténa var áætlaður 2.500 til 3000 manns í gærkvöldi. Þrátt fyrir aö Boris Jeltsín, for- seti Rússlands, hafi lofaö að hætta loftárásum á borgina, segja Tétén- ar að harðar loftárásir hafi staðið linnulaust. Varaforseti Bandaríkj- anna, A1 Gore, sagbi í gær að í desember sl. hefði hann varaö Jeltsín við aö ráðast inn í borgina og stefna fjölda mannslífa í hættu. „Ég sagði honum að þetta yrðu hræðileg mistök," sagði Qu- ale. Vestrænir leiðtogar hafa einn af öðrum fordæmt aðgeröir rúss- neska hersins og í gær hvatti norski utanríkisráðherann Bjoern Tore Godal Andrei Kozyrev, utan- ríkisráðherra Rússa, til að hætta árásum og hefja samningaviðræð- ur við byltingaröflin í Téténíu. Fjárhagsaðstob erlendra ríkja til Rússa kann að vera í hættu af þessum sökum. ■ Reynt aö komast í skjól Vopnabir Téténar eiga fótum sínum fjör ab launa þar sem rússneskar sprengjuflugvélar sveima yfir höfbi þeirra í hörbu áhlaupi Rússa á mibborg Crosní ígœr. Mikib mannfall er hjá bábum abilum í bardögunum. Clinton Bandaríkjaforseti og japanski forsœtisráö- herrann Murayma funda á morgun: Litlar vonir um árangur Washington - reuter Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Toiichi Murayma, forsætis- ráðherra Japans, munu hittast í Washington á morgun til að ræba iðnaöar- og efnahagsmál sem oft hafa valdið ásteitingi hjá þessum tveimur voldugu að- ilum. Frá þessu skýrðu banda- rísk yfirvöld í gær. Þab eru 50 ár liðin frá lokum heimsstyrjaldarinnar síbari og á það þátt í ab leiðtogarnir hittast á morgun. Fjallað verður um ýmis mál þar sem hallar á Bandaríkjamenn í viöskiptau- umsvifum landanna. Sumir hafa oröiö til ab vara við bjartsýni um árangur fund- arins og vitna til fundar Clin- tons við Morihiro Hosokawa, þáverandi forsætisráðherra Jap- ans, í febrúar í fyrra. Hvorki gekk né rak í viðræðunum þá og urðu afleiöingar fundarins m.a. titringur á fjármálamörkuðum sem veiktu stöbu dollarans. Sprengdi upp fjölskyldu sína meö flugeldum Kínverskur bóndi í Hubei lét lífið auk dóttur og sonar þegar ólögleg framleiösla flugelda stóð yfir á heimili hans á gamlárskvöld. Samkvæmt dagblaði staðarins hafði bónd- inn lesið sér eitthvað til um gerð flugelda og ákvað að kaupa sprengiefni og hefja framleiðslu án þess að hafa til- skilin leyfi. Síðla kvölds, 31. desember, sprakk svo heimili bóndans í loft upp er flugelda- framleiöslan stóð sem hæst og fórst hann auk tveggja barna sinna í sprengingunni. Eigin- kona hans og eldri dóttir lifðu af en þær eru mikið slasaðar samkvæmt dagblaðinu. Fangelsismálin í Bretlandi. Þremur föng- um náb en aörir þrír sluppu Vísítala jöfnunarhlutabréfa London - reuter Þremur sakamönnum tókst VINNIN LAUGA (T)( (2Í GSTÖLUR RDAGINN 7.1.1995 ~| l)(30) m) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.5 af 5 1 4.811.760 2. PSus5 í| 70.500 3. 4al5 135 6.300 4. 3 al 5 4.106 480 Heildarvinningsupphæd: 8.126.640 BIRT MED FYRIRVARA UM PRENTVILLUR aö sleppa úr bresku fangelsi í fyrradag, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að breska lögreglan handtók þrjá eftir- lýsta fanga sem struku úr einu rammgerðasta fangelsi landsins fyrir skömmu. John Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur legið undir vaxandi gagnrýni fyrir bágt ástand öryggismála í breskun fangelsum og mun síðasti flótt- inn ekki gera honum léttara fyr- ir. Fyrst komust þessi mál í svið- ljósið á nýársdag þegar „mann- ætunni" Frederick West tókst að hengja sig í öryggisklefa sínum. Því næst flúðu þrír stórhættu- legir Iífstíðarfangar úr „Alcatraz- fangelsi" Breta, Isle of Wight, en nú síöast opnuðust dyr Little- hey fangelsisins. Það er aöeins í 16 km fjarlægð frá heimili for- sætisráðherrans. Sumir hafa orðib til að krefjast afsagnar innanríkisráðherra Major. ■ Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1995 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. 1. janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1988 vísitala 2.192 1. janúar 1981 vísitala 247 1. janúar 1989 vísitala 2.629 1. janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1990 vísitala 3.277 1. janúar 1983 vísitala 557 1. janúar 1991 vísitala 3.586 1. janúar 1984 vísitala 953 1. janúar 1992 vísitala 3.835 1. janúar 1985 vísitala 1.109 1. janúar 1993 vísitala 3.894 1. janúar 1986 vísitala 1.527 1. janúar 1994 vísitala 4.106 1. janúar 1987 vísitala 1.761 1. janúar 1995 vísitala 4.130 Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.