Tíminn - 14.02.1995, Side 2
2
OMiEgn'H jg|
Þri&judagur 14. febrúar 1995
Tíminn
spyr...
Er ástæ&a til ab hafa áhyggjur
af samþjöppun og hringa-
myndun á svibi fjölmiblunar á
íslandi?
Bogi Ágústsson fréttastjóri á
Ríkissjónvarpinu:
„Nei ekki ab svo stöddu. Þessi
nýjustu tíðindi gefa ekki tilefni
til aö hafa áhyggjur af því. Ég vil
frekar að farið verði í kerfis-
bundna og víbtækari umræðu
um fjölmibla á íslandi en tilvilj-
unarkennda „upphrópunarum-
ræbu", sem verður til við einhver
svona tilefni."
Mörður Arnason, varaformað-
ur sibanefndar Blaðamannafé-
lags íslands
„Já það er aubvitað ástæba til
þess. Það er aubvitað ekki heppi-
legt að tveir þrír hringar ráði hér
stærstu fyrirtækjunum. Hins veg-
ar hlýtur maður aö virða þau rök
DV-manna og Stöðvar tvö, ab
fjölmiðlafyrirtækin verða líka að
búa sig undir aukna samkeppni á
landamæralausum markabi. Þessi
tíðindi sýna okkur hvað þaö er
mikilvægt að hafa fjölbreytt
þjóöarútvarp og þá minna þau
okkur vinstri menn á okkar öm-
urlegu frammistöðu á þessu
sviði."
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Al-
þýðublabsins:
„Eg tek undir orö Stefáns Frið-
finnssonar aö það sé kannski ekki
ástæða til að hafa áhyggjur á
meðan ab stórveldið Alþýðublað-
iö stendur traustum fótum. Hitt
er svo annab mál að þab er stað-
reynd að örfáar blokkir hafa nú
tangarhald á útbreiddustu og
valdamestu fjölmiölum landsins
og þab er vissulega ástæða til aö
hafa áhyggjur af því. Það vita það
allir ab fjármálamenn eru ekki í
útgáfu af því að þeim þykir svo
gaman aö lesa blöðin og það er
engin ab ætlast til að þefr hafi
hugsjónir. Þeir eru að því annars
vegar til ab græba og hins vegar
til ab hafa völd. Mér finnst full
ástæba til að skoða lagasetningu,
sem gæti reist skorbur vib um-
svifum einstakra fyrirtækja og
einstaklinga."
Tólftíma nœturbib í Austurstrœti eftir 155 utanlandsferbum á spottprís, — og árangurinn:
Því miður, allt uppselt!
Márus Árnason var búinn ab bíba alla nóttina, en þegar röbin kom ab honum hafbi síbasti mibinn verib seldur.
Hér má sjá hann eftir ab hafa fengib þau tíbindi.
Þegar röbin koma ab Márusi var hann hinn hressasti eins og sjá má, en
sú glebi varbi ekki lengi. Tímamynd: cs
Tugir manna lögðu þab á sig að
bíða í biðröð aðfaranótt mánu-
dagsins í Austurstræti til að
verða sér úti um farmiða til
hinna ýmsu staba í Evrópu á sér-
stökum vildarkjörum. Sam-
vinnuferðir-Landsýn bubu 155
sæti til sex staöa erlendis. og
verðið aðeins 7.900 krónur.
Samvinnuferöir fitjubu upp á
þessu nýmæli til ab fagna því ab
„himnarnir hafa opnast", það er
að segja að ýmis gömul ákvæði í
reglugerbum varbandi flugstarf-
semi og ferðalög hafa verib að
týna tölunni. Það þýðir meðal
annars ab nú er hægt ab bjóða
verð sem ábur hefðu stangast á
vib reglugerbafarganib. Því var
boðib upp á 240 sæti til útlanda
á hlægilega lágu verbi, 155 með
beinni sölu á mánudagsmorgun,
85 fara í einskonar happdrætti.
En ekki höfðu allir heppnina
meb sér. Til dæmis ekki hann Már-
us Árnason. Márus, 20 ára og at-
vinnulaus, nýstabinn upp úr fót-
broti sem hann varb fyrir í körfu-
knattleik meö ÍR í nóvember, var
fyrstur biöraöarfólksins til ab fá
svarið: „Því miður, allt uppselt!"
„Þetta var nú skondið maður. Ég
var sá fyrsti sem ekkert fékk," sagði
Márus, þegar Tíminn hafði sam-
band við hann upp úr hádeginu í
gær. Márus tók þessu létt þrátt fyr-
ir allt og sá ýmislegt jákvætt við
biöröðina í næturkulinu. Hann
sagðist til dæmis hafa komist í
skemmtileg kynni við fimm
krakka á sínum aldri, en ekkert
þeirra fékk ferð á afsláttarkjörum.
Márus byrjaði að bíða kl. 9 á
sunnudagskvöldið og var þá núm-
er 68 í röbinni. Hann fékk stað fyr-
ir framan Bókaverslun ísafoldar.
Þegar hann komst aö afgreiðslu-
boröinu hjá Samvinnuferbum-
Landsýn var hann númer 40, því
margir höfðu hætt biöinni upp úr
miðnætti og þegar leið á nóttina,
vegna kulda eða lítillar vonar um
ódýra ferb.
„Þetta var bara spurning um
sekúndur. Ég frétti að það heföu
veriö biðraðir á Hótel Sögu, Akur-
eyri og Keflavík, en aðalbibröðin í
Austurstrætinu. Þar var mesti
möguleikinn, enda sex söluborö.
Auðvitað varö ég fjandi fúll, þegar
tölvan sagöi að allt væri selt. Ég
brunabi út á Hótel Sögu, en þar
var heldur enginn séns," sagöi
Márus. Hann sagði að núna stólabi
hann á ab fá vinning úr pottinum,
þegar dregib verður í lok mánaðar-
ins, þar eru 85 sæti til viðbótar.
En ekki var biðin alveg tilgangs-
laus:
„Við vorum þarna krakkar, ein
sex, sem mynduöum félagsskap,
Gústi, Helgi, Jón Gunnar, Celesta,
sem er frá Spáni, Dabba og Kata.
Þetta var stuðhópur sem var vak-
andi og hélt lífinu í fólki. Vib
þekktumst ekkert ábur, en náðum
vel saman og sungum allskonar
drykkjulög. Það var gaman ab
þessu þó ab ekkert okkar fengi far-
miða," sagöi Márus og sagðist ekk-
ert gefast upp. Framundan hjá sér
væri að komast á lappirnar og í úr-
slitakeppnina með ÍR, fá vinnu og
safna fyrir utanlandsferð.
„Fólk byrjaði að bíða hérna við
dyrnar hjá okkur strax klukkan
fjögur á sunnudaginn og smám
saman jókst röðin. Það var ekki
annað að sjá en að allir væru
hressir og kátir þegar fariö var aö
afgreiða fólkib," sagði Kristín Sig-
urðardóttir, markaðsfulltrúi hjá
Samvinnuferðum-Landsýn, þegar
Tíminn ræddi við hana í gær. Hún
sagði aö í biðrööinni um nóttina
hefði ríkt galsi og verið spilað á
gítar og sungið.
Kristín benti á að ekki væri öll
nótt úti. Þeir sem ekkert heföu
fengiö ættu von, sem og aörir sem
ekki áttu þess kost að fara í bibröð-
ina á mánudagsnóttina. Enn eru
85 sæti eftir til Dublin, Kaup-
mannahafnar, Óslóar, Þrándheims
og Berlínar. Þeir miðar veröa settir
í pott og dregið um nöfn hinna
heppnu. Fólk þarf þá ab nálgast
umsóknarmiba á söluskrifstofum
Samvinnuferða og hjá umboðs-
mönnum og nægir ab skila þeim
útfylltum fyrir föstudaginn 17.
febrúar. Dregið verður úr innsend-
um nöfnum 27. febrúar. as
Þotur Flugleiba í góbu leibi:
Nánast fuku
til Kaup-
mannahafnar
Afar hagstætt leiöi myndaðist á
fiugleiðinni Keflavík-Kaup-
mannahöfn í byrjun síðustu
viku. Á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag nánast fuku Flug-
ieiðaþoturnar til Kaupmanna-
hafnar og farþegar komust til
borgarinnar viö Sundiö á nokk-
uð skemmri tíma en venjan er.
Einar Sigurðsson, blaðafull-
trúi Flugleiða, sagði í gær að
þotur félagsins hefðu hreppt
góðan byr þessa daga. Á þriðju-
dag flaug þota félagsins á 2 tím-
um og 24 mínútum til Hafnar.
Einar sagði að meðaltalsflugtími
á leiðinni væri um 2 tímar og 45
mínútur. Hins vegar hefði
heimferðin þessa daga dregist á
langinn um sama tíma í tals-
verðum mótvindi.
Ekki vitum við hvert hraða-
metið er á þessari flugleib. ■