Tíminn - 14.02.1995, Qupperneq 3
Þribjudagur 14. febrúar 1995
<wil )f
3
Hjúkrunarfrœöingar viö Sjúkrahús Suöurlands og
fleiri sjúkrahús telja sér hafa veriö sagt upp störfum
meö uppsögn á sérkjarasamningi:
Lausnar leitað
hjá Sighvati
velja íslenskt ef vör-
ur eru sambærilegar
Vestmannaeyjar:
Vinnslustöðin
kaupir Dranga-
víkina
Frá Þorsteini Gunnarssyni, fréttaritara
Tímans í Vestmannaeyjum:
Eftir margra vikna þóf var
gengiö frá því í síðustu viku að
Vinnslustöðin kaupir Drangavík
VE af íslandsbanka með 600
þorskígildum, þrátt fyrir óvissu
um að aflaheimildir fylgi bátn-
um. Drangavík var slegin ís-
landsbanka í desember sl.. og
hafa mörg tilboð borist í bátinn.
Nokkrum hefur verið hafnað,
m.a. tilboði frá Noregi og nokkr-
um aðilum í Eyjum, en loks
gengið til samninga viö Vinnslu-
stöðina. Sama áhöfn verður á
Drangavík til að byrja með og
eru skipverjar fengir að geta byrj-
að á að róa á ný eftir að hafa ver-
ib atvinnulausir á þribja mánuð.
Málefni Drangavíkur eru hins
vegar í dómskerfinu, en Sigurði
Inga Ingólfssyni, fyrrverandi eig-
anda bátsins, var stefnt af ís-
landsbanka þar sem hann er
krafinn um veibarfæri skipsins
og ógreidd laun. Veiöarfærin em
metin á 12 til 14 milljónir og
launakröfur áhafnarinnar em
um 18 milljónir.
Átökin um Drangavík hafa svo
flækst enn frekar, því Sigurbur
Ingi ætlar að berjast fyrir dóm-
stólum fyrir aflaheimildum
skipsins, sem hann telur sig eiga
rétt á, því ekki hafi veriö gert veö
í þeim. íslandsbanki er ekki á
sama máli, en fari svo að úr-
skurður dómstóla verði að Sig-
urður Ingi haldi aflaheimildum,
verbur það íslandsbanka að
finna lausn á aflaheimildum við
Vinnslustöðina. Bebib er eftir
dómsúrskurði með mikilli eftir-
væntingu, því málið hefur for-
dæmisgildi. ■
í nýrri viðhorfskönnun sem
gerð var á vegum átaksins „ís-
lenskt — Já takk" kemur fram
að 80% af þeim sem spurðir
voru velja íslenskt, þegar tvær
sambærilegar vörur eru í boði,
önnur íslensk og hin eriend.
Lína Atladóttir, hjá Samtök-
um iðnaðarins, segist vera
mjög ánægð meö niðurstöð-
urnar og segir að þetta gefi
vísbendingu um að átakið,
sem gert var fyrir síðustu jól,
hafi heppnast vel. Hins vegar
virðist slæm verðímynd á ís-
lenskum framleiðsiuvörum
vera föst í huga landsmanna
ab sögn Línu og kemur þaö
glöggt fram í könnuninni.
Könnunin var unnin á vegum
ÍM- Gallup í janúarmánuði síð-
astliðnum. Það voru 81% sem
völdu meðvitað íslensku vör-
una ef um sambærilega vöru var
að ræða, aðeins 0,4% völdu
frekar þá erlendu ,og 18,6%
spáðu lítið í það. Af þeim sem
svöruðu að þeir veldu frekar
innlendu vöruna sögbust um
60% gera það af þeim orsökum
að það skapaði íslendingum at-
vinnu og 18,7% sögðu að það
mætti rekja beint til átaksins.
Þá var spurt hvort almennt
séð þætti viðkomandi íslenskar
vörur betri að gæðum en þær er-
lendu og voru 42,3 á þeirri skoð-
un. 51% sögðu þær vera álíka að
gæðum, en 6,7% sögbu þær
verri. Ef teknar eru tölur úr sam-
bærilegri könnun frá 1992, þá
voru aðeins 29,9% á þeirri skob-
un að íslensku vörurnar stæbu
þeim erlendu framar að gæbum.
Þegar spurt var út í verðþátt-
inn kvað hins vegar við annað
hljóð, því 72,8% þótti verð á ís-
lenskum vörum lakara en á
þeim erlendu. Lína Atladóttir
sagði að sér kæmi þetta á óvart,
því verðlag á íslenskum vörum
hafi á undanförnum árum farið
lækkandi miðað við þær er-
lendu og lauslegar verbkannan-
ir sýndu að verð á íslensku vör-
unum standi þeim erlendu fylli-
lega snúning. Hún sagbi að
kannski mætti skýringa leita til
verðkannanna, sem sagt hefði
verið frá hér á landi og gerðar
hafi verið í erlendum verslun-
um. Slíkt væri hins vegar ekki
sambærilegt.
í könnuninni kemur einnig í
ljós að yngra fólk velur síbur ís-
lenskt, en hins vegar velja tekju-
lágir frekar íslenskar vörur. Þab
segir Lína að rekja megi til þess
að láglaunafólk sé oft meðvit-
aðra um gildi þess ab velja ís-
lenskt með atvinnusjónarmið
aö leiðarljósi og oft betur í
tengslum við atvinnulífið. Það
sama megi segja um lands-
byggðarfólk.
A blaðamannafundi, sem
haldinn var í gær, kom fram að
þessar niðurstöður væru hvatn-
ing til ab áfram á þeirri braut
sem Samtök iðnaðarins hafa
verið á síðustu árum, en tvíveg-
is hefur verið ráðist í átakið Is-
lenskt — Já takk. Það þýddi þó
ekki endilega að það yrði með
sama sniði og verið hefur. ■
íslenskir vinnuveitendur tilhliörunarsamir viö starfsmenn sína:
Fuiltrúar rekstrarstjórna nokk-
urra sjúkrahúsa á landsbyggð-
inni áttu í gær fund með Sig-
hvati Björgvinssyni heilbrigðis-
ráðherra og hans mönnum, þar
sem leitað var leiða í samnings-
deilu vib hjúkrunarfræðinga á
sjúkrahúsunum á Selfossi og
Akranesi.
Hjúkrunarfræöingar við
Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi
láta af störfum um næstu mán-
aðamót. Þeir telja sér hafa verið
sagt upp störfum með uppsögn
rekstrarstjórnarinnar á sérkjara-
samningi við sig í desemberbyrj-
un. Miðað við eðlilegan þriggja
mánaða uppsagnarfrest ætla
þeir að óbreyttu að láta af störf-
um 1. mars næstkomandi, hafi
samningar ekki tekist þá. Sam-
bærilegt mál er nú í gangi við
Sjúkrahúsið á Akranesi. Stjórn
sjúkrahússins þar sagði upp sér-
kjarasamningi við hjúlaunar-
fræðinga í nóvember sl. og
hjúkrunarfræðingarnir ætlubu
að hætta störfum þann 1. febrú-
ar. Aðgerðum var hinsvegar
frestað. Líklegt er að sama staða
komi upp við nokkur önnur
sjúkrahús út um land.
Kristján Már Gunnarsson, for-
mabur rekstarstjórnar Sjúkra-
húss Suðurlands, sagði í samtali
vib Tímann ab á fundinum í
fyrradag með ráðherra og hans
mönnum hefði verið farið vítt
og breitt yfir stöbuna í þessu
máli. Skipuð hefði verið nefnd
rábuneytismanna og fram-
kvæmdastjóra sjúkrahúsa til að
móta heildstæða stefnu gagn-
vart mótaðilanum, sem er Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
-SBS, Selfossi
Frá blaöamannafundi á vegum átaksins „ísienskt — já takk". T.h. Helga Gubrún jónasdóttir, forstöbumabur
upplýsingaþjónustu landbúnabarins og Lína Atladóttir frá Samtökum Ibnabarins. Tímamynd gs
Viöhorfskönnun á vegum átaksins „íslenskt — Já takk":
81% landsmanna
Um 83% karla og 68% kvenna
„skreppa" oft úr vinnunni
Abeins sjötti hver karl (tæp
17%) og þribjungur (32%)
kvenna sagðist sjaldan eöa
aldrei geta brugðib sér frá í
vinnutíma, t.d. til ab skreppa
í búb eba banka, samkvæmt
nýrri skýrslu Jafnréttisrábs
um launamyndun. Nærri 30%
allra karla og 22% kvenna
„skreppa" mjög eða frekar oft
frá og 54% karla og 46%
kvenna stundum. ÞesSar at-
hygliveröu niðurstöbur
bregða ljósi á hvernig þab get-
ur gengiö upp að starfrækja
heilu atvinnugreinarnar, í
þjónustu sérstaklega, þannig
ab þjónustu þeirra sé abeins
hægt að nálgast eða kaupa á
þeim tíma dagsins sem mikill
meirihluti fólks er einmitt í
vinnunni sinni.
Skýrslan byggir á svörum hátt
á sjöunda hundraðs starfs-
manna átta opinberra og einka-
fyrirtækja. Þetta fólk er bæði
með litla menntun og mikla og
í háum stöbum og lágum. Og
þar kemur fram nokkuð áber-
andi munur, sérstaklega milli
kvennahópanna. Allflestir há-
skólamenntabir og/eba í há-
launuðum störfum geta greini-
lega „skroppið" frá í vinnutím-
anum (t.d. til rakarans, í bank-
ann, með bílinn í skobun, til
sýslumanns eftir vottorði, til
læknasérfræbings o.sv.frv.).
Raunar virðast allflestir karl-
menn í öllum stéttum hafa svo
frjálslegan vinnutíma ab þeir
(70-95% þeirra) segjast stund-
um geta „skroppið" frá. Það geta
á hinn bóginn aðeins þær konur
sem aflað hafa sér menntunar
eða virðulegra starfa.
Þeir sem sjaldan eða aldrei
geta „skroppiö" úr vinnunni,
eru fyrst og fremst lítt skóla-
gengnar konur í láglaunastörf-
um. Þannig sögðust 75%
kvenna í iðnaðarstörfum sjald-
an eða aldrei geta brugöið sér
frá, þótt aðeins 20% starfs-
bræðra þeirra væru svo bundn-
ir. Það sama átti líka vib um
helming verkakvenna en aöeins
sjötta hvern verkakarl. Og þótt
nærri 40% kvenna í þjón-
ustu/afgreiðslustörfum gæti
sjaldan eða aldrei skroppib frá,
þá voru abeins 14% samstarfs-
karla þeirra sem em svo ríg-
bundnir í vinnunni. ■
Eggert Haukdal:
Kynnir lista
sinn í dag
Eggert Haukdal mun kynna
framboð sitt „Suburlands-
lista — lista utan flokka" í
dag. Boðað hefur verið til
blaðamannafundar þar sem
listinn verður kynntur. í
samtali við Tímann stab-
festi Eggert það sem greint
var frá fyrir helgi hér í blab-
inu, ab hann myndi sjálfur
skipa efsta sæti listans, Sig-
urður Ingi Ingólfsson út-
gerbarmaður yrbi í öðru
sæti og Móeiöur Ágústsdótt-
ir á Stokkseyri í því þriðja.
Um skipan listans að ööm
leyti vísabi Eggert til fund-
arins í dag. - SBS, Selfossi