Tíminn - 02.03.1995, Síða 5

Tíminn - 02.03.1995, Síða 5
Fimmtudagur 2. mars 1995 mre—t.._ WflHWl 5 Guömundur Jónas Kristjánsson: Miðjan er skynseminnar megin! Einar Karl Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðubanda- lagsins, skrifar grein í Tíman- um þann 24. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Hvoru megin er miðjan?" Hann hefur grein sína á því að lofsyngja Reykj- avíkurlistann svokallaða og vísar til ummæla formanns Al- þýðubandalagsins frá í sumar, að mynduð yrði breiðfylking svokallaðra félagshyggjuafíá gegn núverandi ríkisstjórn. Þ.e.a.s. R-lista módelið ætti að uppfæra á landsvísu'gegn nú- verandi ríkisstjórn. Einar Karl víkur í því sambandi einkum orðum sínum að Framsóknar- flokknum, sem hann segir að hafi sýnt samfylkingarhug- sjónum Ólafs Ragnars lítinn áhuga. Framsóknarflokkurinn legði nú mikla áherslu á þá skilgrein- ingu, að hann væri miðjuflokk- ur en ekki vinstriflokkur, og gef- ur í skyn að hjá Framsókn hafi orðið áherslubreyting eftir að Halldór Ásgrímsson tók við for- mennsku. Og Einar Karl lýkur grein sinni með þessum orðum: „Miðjupólitík Framsóknar- flokksins í formennskutíð Ólafs Jóhannessonar þótti alllangt til hægri. Nú er það spurningin, hvort miðja Halldórs reynist vera til hægri eða vinstri?" Vandræbagangur Það er ekki nema eðlilegt að framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins sé orðinn dálítið ruglaður á hugtökunum vinstri og hægri, í öllu því mikla umróti sem nú hefur gerst í heimspólitíkinni í dag, þ.á m. hér uppi á íslandi. En til að fela vandræðaganginn hjá forverum marxískra hug- mynda á íslandi, þá er ráðist á Framsóknarflokkinn fyrir hans raunsæju mibjupólitík gegnum árin, og spurt hvom megin sú miðja sé. En ef miðjupólitík Framsóknar- flokksins er eitthvað óljós í augum þeirra alþýðubanda- lagsmanna, hvað má þá segja um hina endurunnu vinstri- stefnu Alþýðubandalagsins sem það boðar nú í komandi alþingiskosningum, ásamt hópi óháðra í pólitík? Skyldi hún ekki vera miklu fremur óljós og ruglingsleg? VETTVANCUR „En til að fela vandrceða- ganginn hjá forverum marxískra hugmynda á ís- landi, þá er ráðist á Fram- sóknarflokkinn fyrir hans raunsœju miðjupólitík gegn- um árin, og spurt hvoru megin sú miðja sé. En ef miðjupólitík Framsóknar- flokksins er eitthvað óljós í augum þeirra alþýðubanda- lagsmanna, hvað má þá segja um hina endurunnu vinstristefhu Alþýðubanda- lagsins sem það boðar nú í komandi alþingiskosning- um, ásamt hópi óháðra í pólitík? Skyldi hún ekki vera miklu fremur óljós og ruglingsleg?" Miöjustefna Fram- sóknarflokksins Það er rétt sem Einar Karl Har- aldsson segir, að núverandi for- maður Framsóknarflokksins hef- ur lagt áherslu á að skilgreina Framsóknarflokkinn sem miðju- flokk en ekki vinstriflokk í ís- lenskum stjórnmálum. Þarna er formabur Framsóknarflokksins aðeins að gera skyldu sína í upp- hafi kosningabaráttu, og þarf þessi miðjuskilgreining í raun engum að koma á óvart, allra síst hérlendum sósíalistum. Því að Framsóknarflokkurinn hefur nefnilega ætíð barist gegn er- lendum óraunsæjum ismum í ís- lenskri pólitík, hvort sem þeir hafa verið af sósíalískum eba kapítalískum toga. Framsóknar- flokkurinn hefur ætíð verið mál- svari blandaðs hagkerfis á ís- landi, og stutt það rekstrarform sem best hefur þótt henta ís- lenskum abstæðum á hverjum stab og tíma fordómalaust. Pólit- ísk kreddufesta um uppbyggingu íslensks þjóðfélags hefur aldrei verib í stefnuskrá Framsóknar- flokksins, ólíkt því sem var mjög áberandi hjá sósíalistunum forð- um, forverum Alþýðubandalags- ins og félögum Einars Karls Har- aldssonar. Því er það sem miðju- stefna Framsóknarflokksins hef- ur staðist tímans tönn, umfram aðrar stjórnmálastefnur á íslandi í dag, og ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að formaður flokksins vekji athygli kjósenda á því. Samfylkingu hafnað Framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins kvartar undan því ab menn hafi vikið sér undan áskorun Ólafs Ragnars um sam- fylkingu svokallaðra félags- hyggjuafla gegn núverandi rík- isstjórn í komandi alþingiskosn- ingum. Hvað Framsóknarflokk- inn varðar, þá er sá sem þetta ritar mjög ánægður yfir því að öllu slíku rugii hafi verið vísað frá meðal framsóknarmanna. Því ólíkari pólitíska blöndu á landsvísu er varla hægt að hugsa sér í einni samfylkingu en hinn frjálslynda, þjóðlega Fram- sóknarflokk, úreltar sósíalista- hugmyndir Alþýðubandalags- ins, deyjandi kvennalistapólitík og illskiljanlegan óánægðan sósíaldemókratisma Jóhönnu hjá Þjóðvaka. Þótt einhver slík samblanda hafi tekist til skamms tíma í borgarstjórn Reykjavíkur, þá eru áherslur allt aðrar í þjóðmálum og vita von- lausar í framkvæmd. Miðjan í sókn Eftir hina miklu pólitísku uppstokkun í heimspólitíkinni og endurmat á hinum mörgu pólitísku gildum eftirstríðsár- anna, er ekki nema eðlilegt að róttæklingar á borð við sósíal- ista á vinstri kanti og frjáls- hyggjumenn á hægra kanti séu komnir í ákveðið pólitískt tómarúm um þessar mundir. Þeir sjá að hin pólitíska mibja hefur sigrað og stendur nú upp úr sem hin sanna og raunsæja pólitík. Miðjan hefur m.ö.o. reynst vera skynsemismegin, og þess vegna er hún hvarvetna í sókn í dag. Miðjuflokkur eins og Fram- sóknarflokkurinn á því stóra möguleika og á mikib erindi við ísland nútímans og íslenska framtíð. Það voru því mistök að miðju- menn skyldu ekki bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum sl. vor. Þau mistök gerast ekki í komandi kosningum. Allir sannir miðjumenn munu því fylkja liöi um Framsóknarflokk- inn og gera sigur þjóðlegrar og frjálslyndrar miðjustefnu sem stærstan í komandi alþingis- kosningum. Höfundur rekur bókhaldsþjónustu. IHvoru megm er miO)an; ssíísrsi-, ?andstööunoktatma i iinuUF^erandlf«^5& &ygekk.U nhsvm ttisstefnu nkiss.l . Víb þessar abstæDur, ,dd voru komnar á sl. ari, ifwil almennur ahugi um sSksss® þ^ubandaltgfb ;‘mhoáfannaCumm:ams.arh. 'sama gerbi hópu' " awinnu. Formabur Alþýbn- ot?’fmmSí MmstMfltetnl s8tn'mbgegfín8yróm«y«ar^- — -hægri- <r* »Vanía»S S,iK«nnalis.lnnkvabuppúr “tínS, Wu. U1 ófo.mlegs eba form- mstarís i kosningunum. n í ijós ab enginn annar ,inda sig i samstarf. fyrir sérundan ib^Alþýhubandala’gfb'og Kvennaiistinn rrrKnWb^ r5 0 abskiigreinaslgfmhenniog vlldu hvorki ^nnas , vinstristefnu né.'éla8fst hlns | A'Þýb^n^g^ Itlansína, býbur nóbam^samt Si,g ,'if ábv a^verakallabir elgaréttSpv. As. I mibiumenn, noitksins, g—rhXf skiigrein- teggur áhejslu a p VKt). ingu, alveg el"Lstrgnafnbótlna skuldubu ,vl"5‘s steingrím- 1 W-S Sf hafb' ur Herma þetta er | ^rSnsngúamsóknan Talenta grafin úr jörb Sumra ríkisstjórna er minnst fyrir sérstök verk eða einarða stefnu. Sumar hljóta nafn í sögunni. Þannig var ein kölluð Nýsköp- unarstjórn og önnur Viðreisnar- stjórn. Ríkisstjórn Ólafs Jóhannesson- ar 1971-1974 færði út landhelg- ina og ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar, sem lét af störfum fyrir 4 árum, lauk því erfiða verki að kveða niður verðbólguna með dyggri aðstoð og í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins sem gerðu svokallaða Þjóðarsátt. Eftir Eldhúsdagsumræður og þinglausnir í síðustu viku hef ég velt því fyrir mér hvað sú ríkis- stjórn hafi gert, sem nú lætur senn af störfum. Ekki þurfti hún ab vinna á verð- bólgunni. Ekki jók hún vib fiskveiðirétt- indi. Ekki jafnaði hún lífskjörin í landinu. Ekki beitti hún sér fyrir réttar- bótum á neinu sviði og ekki hefur staba sjúkra batnað, nema síður sé. Það má reyndar frekar gefa frá- farandi ríkisstjórn einkunn fyrir það sem hún gerði ekki en að hennar verbi minnst fyrir verk sín. Af verkefnum, sem ekki var tek- ist á við, er helst ab telja atvinnu- málin, sem þó voru lang mikil- vægust fyrir þjóbarheill. Svo kemur líka í ljós að hag- vöxtur er minni á íslandi en ásættanlegt er. Hugsandi menn hljóta aö velta því fyrir sér hvab valdi. Frá mínum bæjar- dyrum LEÓ E. LÖVE Ab ríkisstjóm, sem ekki hefur glímt vib neinn sérstakan og ab- kallandi vanda, skuli bara ekkert hafa gert? Ef ég reyni að finna eitthvað já- kvætt við fráfarandi ríkisstjórn, væri það helst aö hún klúbraði ekki þeim árangri sem aörar ríkis- stjórnir höfðu náb á undan henni! Frægbarverkin eru engin, eins og ábur sagði, og oft hefur maður haft það á tilfinningunni aö í landinu væm margar ríkisstjórnir — eða eru þab eins konar sveitar- stjórnir? — þar sem rábherrarnir eru litlir einræðisherrar hver á sínu sviði og líður vel á valdastól- unum, hafa gott kaup, einkabíl- stjóra og baða sig í sviðsljósi frétt- anna. Þetta hefur maður fengib á til- finninguna með því að fylgjast meö ráðherrunum og stöðugri misklíð þeirra, hvort sem eru samflokksmenn eða ekki. Og það gengur meira að segja svo langt að ráðherrar ríkisstjórnarinnar virðast komast upp með að haga sér eins og þeim sýnist án athuga- semda. Menn yppta öxlum og segja eitthvað á þá leib, að þessi málaflokkur eba hinn sé á sviði þessa eða hins rábherrans og komi ríkisstjórninni ekkert við, hvernig sem það getur komið heim og saman. Ef vib líkjum þjóðfélaginu vib stórt fyrirtæki, eins og stundum er gert, hlýtur niðurstaðan að verða sú, ab þar séu margir deild- arstjórar en engin yfirstjórn. Þess vegna vantar stefnumörkun og samhæfingu. Þess vegna vantar líka árangur. Kjósendur eru herrar ríkis- stjórna. Þeir fólu núverandi ríkis- stjórn forsjá sameiginlegra mála þetta kjörtímabil. Nú vill ríkis- stjórnin fá nýtt umboö, grefur tal- entu sína úr jörð og sýnir herra sínum hróðug. Þab var ekki svona sem lands- menn vildu láta annast sín mál.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.