Tíminn - 02.03.1995, Síða 9
Fimmtudagur 2. mars 1995
mte—i-
mmnm
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Góssið hrifs-
ab úr klóm
Skrímslisins
frá Corleone
Palermo - Reuter
Dómstóll á Sikiley hefur
komið höndum yfir ver&maeti
sem mafíuforinginn Salvatore
Riina hefur hingað til haft eign-
arhald á, en þau eru metin á
andvixði tæpra 400 milljóna ísl.
króna.
Náungi þessi gengur undir
gælunafninu „Tótó" í heima-
byggö sinni, en hann er borinn
og barnfæddur í Corleone,
þorpinu sem allir þekkja úr sög-
um og kvikmyndum um „Guð-
föðurinn."
Tótó á sér annað gælunafn,
þe. „Skrímslið", en þegar hann
var handtekinn fyrir tveimur
árum var hann sakleysið upp-
málað og kvaðst aðeins vera
„venjulegur bóndi."
Þau verðmæti sem yfirvöld-
um á Ítalíu tókst loks að hafa
upp á eftir tveggja ára þrotlausa
baráttu eru lönd og lausir aurar,
en góssið var skráð á hina ýmsu
mafíufélaga í Corleone-klí-
kunni, eiginkonu Skrímslisins
og aðra vandamenn.
Skrímslið er margdæmt í lífs-
tíðarfangelsi og mun ekki end-
ast ævin til að afplána alla þá
dóma. Munar því varla um einn
kepp í sláturtíðinni þótt hann
verði sannur að sök er hann
kemur fyrir rétt í Caltanissetta í
apríl, þar sem hann er sakaður
um að hafa fyrirskipað morðið
á dómaranum Falcone sem var
einhver röggsamasti andstæð-
ingur Mafíunnar fyrr og síðar.
Giovanni Falcone, kona hans
og þrír öryggisverðir létu lífið
1992, er bíll þeirra ók yfir
sprengju sem komið hafði verið
fyrir undir slitlagi á þjóðvegin-
um milli Palermo og fjölfarins
flugvallar í grennd við bæinn. ■
Þrjátíu brúð-
kaui
dru
Nýju Delí - Reuter
Óttast er að þrjátíu brúðkaups-
gestir hafi drukknað er rútubíll
hrapaði niður í árgljúfur í Bara-
mati-héraði í Vestur-Indlandi í
fyrradag. Hjálparsveitamenn
hafa þegar fundið 25 lík. Fimm
er enn saknað, en þar að auki
urðu 25 fyrir meiðslum í þessu
slysi. ■
Helsinki:
• •• m SM Reuh
Þessir samvoxnu tviburar
fœddust í Jakarta fyrir nokkrum dögum og bíba þess nú aö verba abskildir meb abgerb sem fyrirhug-
ub er fljótlega. Börnin fœddust í sjúkrahúsi, án lœknishjálpar, og tók venjuleg Ijósmóbir á móti þeim.
Baringsbanki:
Allt útlit fyrir ab
fleiri maðkar séu
í
bankamysunni
Lundúnum -Reuter
Rannsóknin á gjaldþroti Bar-
ingsbanka beinist nú einkum að or-
sökum þess að einn maður sem sat
fyrir framan tölvu í Singapore gat
komið því til leiðar að þessi rót-
gróna og virta peningastofnun tap-
aði öllu fé sínu í einu vetfangi og
varð gjaldþrota.
Málið hefur vakið spurningar um
stjórnendur bankans og hæfni
þeirra, svo og starfsemina í heild
sinni.
The Financial Times hefur það
eftir heimildarmanni sínum í Eng-
landsbanka að rannsókn málsins
hafi nú þegar leitt það í ljós aö hinn
28 ára gamli spákaupmaður, sem
hefur verið í aðalhlutverki í þessu
máli, hafi alls ekki getað komið
þessu hruni af stað meö því að hafa
samráð við einn mann utan Bar-
ingsbanka, í von um persónulegan
ávinning.
Bankamenn velta því nú mjög
Öskudag-
ur sem bar
nafn meb
rentu
Helsinki - Reuter
Ný lög sem munu vera
ströngustu tóbaksvarnalög í
allri Evrópu gengu í gildi í
Finnlandi á öskudaginn.
Löggjöfin útilokar að heita
má allar tóbaksreykingar á öll-
um vinnustöðum, bæði hjá
hinu opinbera og í einka-
rekstri, og er jafnvel ekki leng-
ur leyfilegt aö reykja þar í
mötuneytum.
Enn er leyfilegt aö hafa sér-
stakar reykingastíur á vinnu-
stöðum, en margir vinnuveit-
endur telja sig ekki hafa ráð a
að útbúa þær. Ekki er hægt að
skylda þá til að leggja til slíkar
stíur, þannig að vinnustaðir
þar sem fjárvana öfl eru viö
völd verða algjörlega reyklaus-
ir.
Nýju lögunum er ætlað að
koma í veg fyrir „óbeinar reyk-
ingar", en enn er ekki ljóst
hvernig ætlunin er að fram-
fylgja þeim.
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins í Helsinki segir að
enda þótt reykingar séu nú
bannaðar í húsakynnum ráðu-
neytisins muni starfsmenn
þess ekki rífa sígaretturnar út
úr tignum gestum, heldur
verði reynt að beita diplóma-
tískum aðferðum til að leysa
slík mál. ■
Tsétsenar ein-
beita sér að
skæruhemabi
Moskvu - Reuter
Rússneski varnarmálaráðherrann
heldur því fram ab einungis þrjú
vígi séu enn á valdi aðskilnaöar-
sinna í Tsétsenju og muni Rússar
ekki hafa mikið fyrir því ab taka þau
herskildi.
Frá Ingusjetíu, grannríki Tsét-
senju, berast þær fregnir að styrj-
öldin sé nú komin á nýtt stig og
héöan í frá muni Tsétsenar einbeita
sér að skæruhernaöi.
Eins og fyrri daginn einkennir
kokhreysti og áróbur allan frétta-
flutning af styrjöldinni í Tsétsenju.
Reyna báðir aðilar að koma koma á
kreik tröllasögum um mannfall í
liði andstæðingsins.
Borís Jeltsín forseti Rússlands
ræddi Tsétsenju-málið við Helmut
Kohl kanslara Þýskalands í gær.
Ekki fara sögur af því sem þeim fór á
milli, en Helmut Kohl hefur veriö
þeim hópi vestrænna þjóbarleiö-
toga sem harðast hafa gagnrýnt
framgöngu Rússa í Tsétsenju. ■
fyrir sér hvernig maðurinn hafi far-
ið að því aö fjármagna það stórtap
sem varb á viöskiptum hans vikum
saman án þess ab samstarfsmenn
hans yrðu þess varir. Yfirlýsing Ri-
c.iards Hu sem er fjármálaráðherra í
Singapore styður grunsemdir
manna um að Nick Leeson hafi ekki
verib einn að verki, heldur hafi
hann átt hauka í horni, innan og
utan bankaútibúsins í Singapore.
Það er komið í ljós ab Nick Lee-
son veldur ekki hlutverkinu sem
sökudólgur í þessu máli. Til þess
hefur hann hvorki aldur né stöðu,
auk þess sem hann er ekki einu
sinni áþreifanlegur. Í Lundúnum er
orðrómur um að þess sé skammt aö
bíða aö nýr sökudólgur verbi leidd-
ur fram á sjónarsviðið, og muni sá
annað hvort koma úr rööum æðstu
stjórnenda Baringsbanka eða jafn-
vel úr Englandsbanka.
í Bretlandi hefur málið vakið gíf-
urlega hneykslun og reibi almenn-
ings í garð ríka fólksins. Blöðin tala
um þá skefjalausu græðgi sem fari
vaxandi meðal þeirra þjóðfélags-
þegna sem búi við allsnægtir og
galla þess kerfis sem sé jarðvegur
þess ranglætis að hinir ríku verði
ríkari á meðal hinir fátæku verði fá-
tækari.
John Major forsætisráðherra hef-
ur tekib undir gagnrýni af þessu tagi
og kveðst vera aö íhuga lagasetn-
ingu til að setja „þak" á há laun.
Liður í þeim umbrotum sem nú
eiga sér stað í Bretlandi vegna gífur-
legs launamunar er starfsemi þing-
nefndar, en abalforstjóri British
Gas, Cedric Brown, er bobabur á
fund hennar í næstu viku.
Alþjób bíður þess nú með mikilli
eftirvæntingu hvernig Cedric
Brown fari ab því að útskýra ástæbu
þess að hann hefur hingað til þagað
um sérstakan bónus sem hann fær
og leggst ofan á grunnlaunin og tal-
inn er geta tvöfaldað þau, en
grunnlaunin nema andvirði tæpra
49 milljóna á ári. ■
Framsóknarflokkurinn
Kópavogur —
Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofan a6 Digranesvegi 12, sími 41590, verbur opin kl. 16- 20 virka
daga og 10-12 laugardaga. framsóknarfélög Kópavogs
Gubni
Isólfur
Ólafía
Opnun kosningaskrifstofu
Framsóknarflokkurinn á Suburlandi opnar kosningaskrifstofu sína ab Eyrarvegi 15,
föstudagskvöldib 3. mars.
Ýmislegt verbur til gamans gert. Óvæntur gestur, skemmtiatribi ab hætti hússins,
léttar veitingar o.fl.
Húsib opnar kl. 22.00.
Allir velkomnir. Framsóknarfíokkurinn
FJÁRMALARÁÐUNEYTIÐ
Húsnæði óskast
Ríkissjóbur leitar eftir kaupum á 300-400 m2 skrifstofuhús-
næði ásamt 300-400 m2 verkstæbis- og/eba geymsluhús-
næbi á sama stab í Reykjavík.
Tilbob, er greini stabsetningu, stærb, byggingarár og -efni,
brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og sölu-
verb, sendist eignadeild fjármálarábuneytisins, Arnarhváli,
150 Reykjavík, fyrir 11. mars 1995.
Fjármálarábuneytib,
1. mars 1995.