Tíminn - 02.03.1995, Qupperneq 10
10
fffCRI&tttt
Fimmtudagur 2. mars 1995
Skarphéðinn Njálsson
Skarphéðinn Njálsson var fœdci-
ur 29. mars 1899 í Kjós íÁmes-
hreppi í Strandasýslu. Hann lést
á þjónustudeild Hlífar, íbúðum
aldraðra á ísafirði, 3. febrúar
síðastliðinn. Foreldrar hans
voru hjónin Njáll Guðmundsson
og Súsanna Margrét Þorleifs-
dóttir. Skarphéðinn var elstur
þriggja systkina. Yngri systkinin,
Gunnar og Jósefína, eru einnig
látin.
Hinn 26. janúar 1939 kvœnt-
ist Skarphéðinn Steinvöru Ingi-
björgu Gísladóttur, f. 14. júlí
1920 á Blönduósi, en hún lést 6.
febrúar 1989. Þau eignuðust níu
böm. Átta þeirra komust á legg.
Þau eru: 1) Soffía Margrét, f.
1938, gift Gísla Jónssyni og eiga
þau sex börn. 2) Þórleif, f. 1939,
gift Konráð Jakobssyni og eiga
þau fjögur böm. 3) Grétar Njáll,
f. 1940, kvœntur Rut Árnadótt-
ur og eiga þau fjögur börn. 4)
Gísli, f. 1944, kvcentur Ingi-
björgu Sveinsdóttur og eiga þau
tvö böm og Gísli þrjú böm úr
fyrra hjónabandi. 5) Rósmund-
ur, f. 1947, kvœntur Kamillu
Thorarensen og eiga þau þrjú
böm. 6) Valdís, f. 1953, gift
Valgarð Valgarðssyni og eiga
þau tvö börn og Valdís þrjú frá
fyrra hjónabandi. 7) Krist-
mundur, f. 1955, kvæntur Jó-
hönnu Sigmarsdóttur og eiga
þau tvö böm. 8) Gissur, f. 1961,
kvœntur Emu Elíasdóttur og
eiga þau þrjú böm.
Skarphéðitm fór 15 ára gam-
all að heiman og stundaði ýnisa
vinnu, mest þó sjóvinnu á ísa-
firði, veturna 1926-1929 há-
karlaveiðar á Húnaflóa. Árið
1936 vann hann á Djúpuvík við
síld. Þar byggir hann íbúðarhús
og fer að búa með unnustu sinni,
Steinvöru. Árið 1943 fiytja þau
að Krossnesi í Strandasýslu og
búa þar til 1953, er þau flytjast
búferlum að Kirkjubóli í Skut-
ulsfirði og stunda búskap þar til
ársins 1963, er þau fiytja út á
ísafjörð í Fjarðarstrœti 39.
Fer Skarphéðinn þá að vinna
við smíðar hjá Óla Sigmunds-
syni og starfaði þar á meðan
heilsa leyfði, en síðustu œviár-
t MINNING
unum eyddi hann á Hlíf, fbúð-
um aldraðra á ísafirði.
Hann elskulegur afi minn er
dáinn.
Meö afa fer svo margt. Alltaf
var mjög kært með okkur
nöfnunum og eru þaö mínar
fyrstu minningar um afa er
hann kom viö á Seljalandsveg-
inum til aö leyfa mér meö sér
inneftir á Kirkjuból. Eftir aö ég
varð skipstjóri og farsíminn
kom til sögunnar töluðum viö
mikið saman, oft daglega ef
ekki tvisvar á dag. Ef ég hafði
borið mig illa að morgni, þá
hringdi hann aftur seinna að
deginum og spurði þá ævin-
lega: „Jæja, nafni, hefur ekki
lagast hjá þér veiðin?"
Hann fylgdist vel með okkur
öllum allt fram á síðasta dag.
Heimili afa og ömmu í Fjarö-
arstrætinu var áfangastaður.
Alltaf var fólk að koma og fara
og oft þéttsetinn bekkurinn og
þá var gripið hvert tækifæri
sem gafst til að grípa í spil. Það
var eitt það skemmtilegasta
sem afi gerði og spilaöi hann
reglulega lomber með vinum
sínum gömlu á Hlíf.
Elsku afi minn og nafni, mig
og fjölskyldu mína langar með
þessum fátæklegu orðum til
aö þakka þér allar þær ánægju-
stundir í lífi okkar, og biðjum
við góðan guð að geyma þig
og minningu þína.
Skarphéðinn Gíslason
Móðurjörð, hvar maður fceðist,
mun hún eigi flestum kcer?
Þessar ljóðlínur Sigurðar
Breiðfjörð finnst mér eiga við
þegar ég minnist látins vinar
og forvera hér á Krossnesi,
Skarphéðins Njálssonar, haf-
andi í huga tryggð hans og
áhuga á þessu býli, öðrum
fremur, þótt víðar hafi vegir
og áfangastaðir legið á lífsleið
hans. Foreldrar hans, hjónin
Njáll Guðmundsson, Pálsson-
ar í Kjós og Súsanna Margrét
Þorleifsdóttir frá Egilsstöðum
á Vatnsnesi, fluttu hingað á
Krossnes aldamótaárið 1900
og bjuggu hér í 13 ár, en stofn-
uðu þá nýbýlið Njálsstaði í
Norðurfirði og áttu þar heima
til æviloka. Byggði Njáll þar
allt frá grunni, steinsteypt
íbúðarhús (sem stendur enn)
og öll útihús. Njáll var rómað-
ur röskleikamaður, smiður að
mennt og eftirsóttur til þeirra
starfa. Býlið bauð ekki upp á
mikla möguleika til búskapar
og munu smíöar og önnur
störf utan heimilis hafa átt
stærri þátt í afkomu heimilis-
ins, þótt greiðsla hafi sjálfsagt
ekki alltaf verið samkvæmt
fagmannstaxta né daglaun
innheimt að kveldi. Munu ófá
býli í hreppnum hafa notið
verka hans í nýbyggingu íbúð-
ar- og peningshúsa, auk þess
að búa látnum samsveitung-
um hinsta beð með líkkistu-
smíði, en þá iðju stundaði
hann meðan starfskraftar
leyfðu.
Synir Njáls (Gunnar og
Skarphéðinn) munu snemma
hafa tekið þátt í störfum föður
síns og voru báðir eftirsóttir
sem smiðir, þótt ekki hefðu
þeir fagpróf í iðninni. Erfðu
þeir í ríkum mæli verklagni
hans og atorku.
Býlið Njálsstaðir var byggt
úr landi Norðurfjarðar og því í
nábýli við bernskuheimili
mitt. Eldri systkin mín og
Njálsstaðabörn voru því leik-
félagar og nánast uppeldis-
systkin. Aldursmunur okkar
Skarphéðins var 15 ár og hann
því nær fulltíða maður er ég
man hann fyrst. En þær um-
sagnir, sem ég fyrst heyrði um
hann, voru á þá lund aö hann
væri röskur til vinnu og auk
þess hagur vel, mikill bóka-
ormur og meðal annars læs á
danskt mál af eigin rammleik.
Mun hann hafa verið vel
heima í fornbókmenntum
okkar og raunar alæta á þessú
sviði. Að ganga menntabraut
Guðrún Halldórsdóttir
60 ára
Guðrún Halldórsdóttir, skóla-
stjóri Námsflokka Reykjavíkur,
varð sextug þ. 28/2. Það kom
mér í opna skjöldu, því mér
dettur hvorki ár né aldur í hug
þegar hún á í hlut.
Guðrún er af húnvetnskum
ættum, kenndum viö Sveins-
staði og Bólstaöarhlíð. Foreldrar
hennar hétu Þorbjörg Jónsdóttir
og Halldór Jónsson. Hún er
fædd og upp alin í Reykjavík,
nánar til tekið í Laugarásnum.
Guðrún tók stúdentspróf í M.R.,
kennarapróf í Kennaraháskóla
íslands og B.A.-próf í dönsku og
sögu vib Háskóla íslands. Hún
kenndi í tíu ár við Lindargötu-
skólann og e.t.v. víðar.
Fyrir nám og með því vann
Gubrún sem gjaldkeri í Lands-
bankanum. Þar kynntumst við
fyrir rúmum' þrjátíu árum og
lögbum grunn að vináttu, sem
hefur dafnað vel í tímans rás. Ég
get því sagt með sanni: Það er
mikið traust í tilverunni og gæfa
að eiga Guðrúnu Halldórsdóttur
að vini. Eftir að hafa kennt við
Námsflokka Reykjavíkur í nokk-
ur ár veit ég, að þessi gæfa er
ekki einkaeign mín, heldur allr-
ARNAÐ HEILLA
ar þessar stóru, fjölþættu stofn-
unar og þeirra sem þar koma við
sögu, bæði nemenda og starfs-
fólks, auk óteljandi karla,
kvenna og barna á öðrum vett-
vangi.
Það rýrir ekki manngildi
neins þótt ég segi, að ég þekki
engan, sem virðist eiga jafn
ótæmandi styrk og óbilandi
hjálparhönd handa öðrum og
Gubrún Halldórsdóttir. Mig
langar að minnast samtals við
nemanda minn og síðar góðvin.
Hann var lánsmaöur í öllu er
varbabi atvinnu og fjölskyldu,
en skólaganga hans og nám
hafði farið úrskeiðis og það lam-
aði mjög sjálfstraust hóns. Hann
sótti um inngöngu í Náms-
flokka Reykjavíkur, en þegar
hann kom að dyrum skólahúss-
ins þá brast hann kjark og tvisv-
ar eba þrisvar sneri hann frá
þeim. Ab lokum gekk hann þó
inn. „Og nú get ég talað um allt
við Guðrúnu," sagði hann. Þaö
verba ekki aubfundin fegurri og
meiri lofsyrbi en þessi ummæli
og þau segja í rauninni allt sem
þarf um þann anda, sem ríkir í
þessari merku stofnun. Þessi
maður er ekki hinn eini, sem
þangaö hefur sótt styrk og sjálfs-
traust, ég þekki það mætavel og
ég blygðast mín ekki fyrir að
hugsa og segja: Guði sé lof fyrir
Námsflokka Reykjavíkur og
Guðrúnu Halldórsdóttur. Heill
og blessun sé og verði þeirra
fylgdarlið.
Ásgerður Jónsdóttir
var á þessum árum ekki fært
öðrum en þeim sem áttu fjár-
sterka að, foreldra eða frænd-
ur, en fullvíst tel ég að ef leiö
hans hefði legið á þær slóðir
hefði hann orðið þar vel lið-
tækur. Ekki bar hann það þó á
torg allajafna að hann væri
öðrum fróðari af bókfýsn
sinni, enda ekki þeirrar gerðar
ab miklast af sjálfum sér, en
fáum mun þó hafa dulist, er
kynntust honum nánar, að
margt var honum tiltækt í
þessum efnum.
Sveitin okkar bauð ekki upp
á mikla möguleika í atvinnu-
málum og því fangaráð flestra
ungra manna að leita á önnur
mið, og þá einkum á vertíðir
(vestur eöa suður). Þangað lá
leið Skarphéðins og þá oítast
við vélgæslu á vertíðarbátujn.
Ekki var hann þó menntaður á
því sviði, en mebfædd eðlis-
greind gerði hann öðrum fær-
ari aö umgangast vélar og
tæki. Mun hann fyrstur
manna hér í hrepp sem aflaði
sér réttinda í bifreiðaakstri.
Þótt víða lægju vegir, átti
hann heimilisfestu á Njáls-
stöðum og stundaði vinnu á
heimaslóð eftir því sem til féll,
uns hann settist að á Djúpu-
vík, 1934, og vann við bygg-
ingu síldarverksmiðjunnar þar
og síðar við smíðar og fleiri
störf tengd rekstri hennar.
Byggði hann sér þar íbúöarhús
í sambýli við systur sína og
mág (Jósefínu og Guðmund
Þórðarson) árið 1939, en það
ár gekk hann í hjónaband
með unnustu sinni, Steinvöru
Gísladóttur frá Norðurfirði.
Höföu þau þá eignast tvö
börn, það fyrra fætt andvana.
Atvinna á Djúpuvík fór
minnkandi upp úr 1940 með
breyttum síldargöngum og brá
hann því á þaö ráð að festa
kaup á Krossnesi (sem þá losn-
aði úr ábúð) í félagi við
tengdaforeldra sína (Gísla Þor-
leifsson og Jónínu Jónsdótt-
ur). Bjuggu þau svo þar til árs-
ins 1955, er þáu fluttu aö
Kirkjubóli í Skutulsfirði og
ráku þar búskap í 9 ár, en á því
býli hafði hann áður verið
ráðsmaður í tvö ár (1930-32).
Næst lá leiðin til ísafjarðar og
vinna stunduð við smíðar full-
an vinnudag til 75 ára aldurs,
hægði þá á sér, en mun þó
ekki hafa setið auðum hönd-
um meðan starfskraftar
leyfðu. Árib 1988 fluttust þau
hjón svo í þjónustuíbúð á
dvalarheimilinu Hlíð á ísafirði
og þar átti hann heimili til
æviloka.
Skarphéðinn átti því láni að
fagna ab vera heilsuhraustur
um dagana. Háan aldur bar
hann vel og hélt ótrúlegum
léttleika og þreki líkamlega og
andlega til æviloka. Á Djúpu-
víkurárum sínum varð hann
fyrir því slysi, í vélsög, að
missa vel hálfan þumalfingur
og allan vísifingur hægri
handar. Samlagaðist hann
þessari fötlun ótrúlega fljótt
og ekki sýnilegt að hún skerti
starfsgetu hans til muna.
Steinvör kona hans lést um
aldur fram árið 1989. Hafði
hún ekki gengið heil til skógar
síöustu æviárin, þótt hún bæri
það lítt á torg, en hélt sinni
léttu lund og dró hvergi af sér
til síðasta dags. Hafði hún þá
lokið ærnu starfi. Búið manni
og börnum heimili sem rómað
var fyrir gestrisni og greiða-
semi. Lundin ætíð létt og þrátt
fyrir annir á stóru heimili var
hún jafnan boðin og búin að
leysa annarra vanda, ef tök
voru á. Þótt aldursmunur
þeirra hjóna væri vel 20 ár,
sannaði sambúð þeirra mál-
tækið um „að karl gamall og
kvinnan rjóð, kærleik trúi ég
geymi".
Þau hjón eignuðust 9 börn
og eru 8 þeirra á lífi (3 dætur
og 5 synir), allt dugnaðar- og
atgervisfólk, sem getið hefur
sér góðan orðstír í hinum
ýmsu störfum í þjóðfélaginu,
til sjós og lands, og sama gegn-
ir um þau barnabörn sem
komin eru á starfsaldur. Má
því segja með sanni að arfur
forfeðranna hafi komið vel til
skila í afkomendunum, en
þeir munu nú vera um 52 á
lífi, en 3 látin ung.
Þó dvalarstaður Skarphéðins
hafi verið, eins og ábur er sagt,
að Hlíf síðustu 7 árin, var
hann í nánu sambandi við af-
komendur sína og dvaldi jafn-
an í návist þeirra um helgar.
Oftast þó hjá elstu dóttur
sinni, Soffíu, og hennar
manni (Gísla Jónssyni frá
Sléttu í Sléttuhreppi). Höfðu
þau hjón búið í sambýli við
foreldra hennar á Kirkjubóli
síðustu 2 búskaparár þeirra þar
og bjuggu þar áfram nokkur ár
eftir að gömlu hjónin hættu
búskap. Voru sérlega náin
tengsl milli þeirra Skarphéðins
og Gísla.
í upphafi þessa greinarkorns
gat ég um hin sterku tengsl
Skarphéðins við býlið Kross-
nes. Hér hafði hann átt heim-
ili í vel fjórðung ævinnar (25
ár), þar af bernskuárin 13. En
þab aldursskeið mun oftast
það tímabil sem lifir ljósast í
endurminningunni og þá
skýrast er aldur færist yfir. Hér
voru honum öll örnefni kunn
og sögur þeim tengdar. Þenn-
an hug sýndi hann á ýmsan
hátt, meðal annars með nær
árvissum heimsóknum eftir ab
annir búskaparáranna voru að
baki. Voru mér og mínu fólki
þessar heimsóknir þeirra
hjóna, og hans eftir hennar
dag, einkar kærar og ánægju-
legt að finna þann hug sem
þar lá að baki. Þetta hugarfar
virðist svo hafa gengið í erfðir
til barnanna, og eblilega mest
til þeirra sem áttu hér sín
æskuár og eru þau öll kærir
heimilisvinir okkar. Þau Soffía
og Gísli hafa nú innsiglað
þetta með byggingu sumarbú-
staðar hér í Krossneslandi.
Við andlát Skarphéðins er
lokið æviferli mæts manns,
sem gat á ævikvöldi litið til
baka meö rósömum huga yfir
óvenju langan og starfsaman
vinnudag og virt uppskeru
hans fyrir sér með velþóknun.
Enga óvini mun hann hafa
átt um dagana, enda óáleitinn
í annarra garð, en þeir sem
kynntust honum og áttu meb
honum samstarf munu minn-
ast hans með hlýjum huga og
þökk fyrir samfylgdina og á
þann veg er hugsun mín til
hans að leiðarlokum.
Börnum og öðrum aðstand-
endum sendi ég hugheilar
samúbarkvebjur.
Eyjólfur Valgeirsson
i