Tíminn - 24.03.1995, Blaðsíða 14

Tíminn - 24.03.1995, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 24. mars 1995 Sr. Vigús Þór Arnason í Grafarvogssókn: Fermingarkóngur þribja árið í röð Þri&ja árib í röð vermir sr. Vigfús Þór Arnason, sóknarprestur í Grafarvogssókn í Reykjavík, þann titil a& vera fermingarkóngurínn. Er þá átt vi& a& hann fermir fleiri börn en allir a&rir prestar lands- ins, e&a alls um 200 þetta ári&. „Grafarvogssókn er barnmörg sókn. Hér er ný kynslób a& vaxa úr grasi og börin hér mörg og verða næstu árin," sag&i sr. Vigfús Þór í samtali við Tímann. Fyrst fermingarmessan í Grafar- vogssókn er nú á sunnudag og verða þær svo nokkrar á næstunni. Fræðsla og undirbúningur ferming- arfræðslu hófst í september á síð- asta ári og hefur sta&ið yfir í allan vetur. Segir Vigfús þetta hafa verið nokkuð stífa törn — en þó skemmtilega. Hann segir að næsti vetur verði þó sjálfsagt léttari því þá verður ráðinn aðstoðarprestur aö sókninni. Vigfús verður þó áfram formlegur sóknarprestur og ef að líkum lætur áfram fermingarkóng- ur. ■ „ Stíf en skemmtileg törn í fermingarundirbúningi," segir Vigfús Þór sem er fermingarkóngur þriöja árib íröö. Helgi Guömundsson, úrsmiöur í Reykjavík: „Ur er ekki leng- ur aðalgjöfin Helgi Guömundsson segir armbandsúr hafi misst vcegi sitt sem aöalgjöf- ina á fermingardaginn. Þau séu þó engu aö síöur vinsœl gjöfog góö. Hér er viömœlandi okkar í verslun sinni meö fjölbreytt úrval úra. Tímamynd CS dag var vandaö úr veglegasta gjöfin sem þeir fengu á ferm- ingardaginn. En nú eru aörir tímar. Helgi segir aö á síöasta áratug eða svo hafi armbandsúrið misst vægi sitt sem fermingar- gjöf frá foreldrum. Engu að síö- ur séu þau oft gefin af öfum og ömmum og eöa öörum ættingj- um. Verömæti slíkra úra rokka oft á bilinu 5 til 10 þús. kr. og getur farið í allt aö 20 þús. kr. Gjafir frá foreldrum séu oft dýr- ari og veigameiri, s.s. hljóm- flutningstæki eöa annað slíkt. Helgi segist hafa eignast sitt fyrsta armbandsúr nokkru fyrir fermingu. Hann kannast þó viö aö þetta hafi verið stærsta og besta fermingargjöf margra og sumir hafi átt þessi úr til fjölda ára og jafnvel áratuga. En tím- arnir breytast og mennirnir meö — og þá jafnframt gjafir þeirra í millurn. ■ „Nei, þaö er af sem áöur var aö fermingarbörn fái úr sem aö- algjöf á þessuin merkisdegi," sagöi Helgi Guömundsson, úr- smiöur á Laugarvegi 82 í Reykjavík, í samtali viö Tím- ann. Eins og fram kemur í viö- tölum viö marga í blaöinu í Á sjöunda ári Siömenntar veröa borgaralega fermd börn oröin 135 samtals: 29 böm hljóta borgaralega fermingu í Ráðhúsinu næstkomandi sunnudag „Þaö veröa 29 börn sem fermast borgaralegri fermingu á þessu vori, sem er stærsti hópurinn hingaö til," svaraöi Hope Knúts- son, forsvarsmaöur Siömenntar. Hún segir þetta stærsta hópinn sem fermst hefur borgaralega hingaö til. En þetta er sjöunda áriö sem borgaraleg ferming fer fram hér á landi. Aö þessum 29 barna hóp meötöldum veröa þau börn sem fermst hafa á þennan hátt oröin 135 samtals. Athöfnin fer nú fram í Ráöhúsi Reykjavíkur í fyrsta sinn og verð- ur klukkan 11 n.k. sunnudag, 26. mars. "Fyrsta áriö var athöfnin í Nor- ræna húsinu og þaö reyndist allt of lítiö. Næstu fimm árin þar á eftir höfum viö verið í Hafnar- borg, menningarmiöstöö Hafnar- fjaröar. En Hafnarborg var líka oröin of lítil. Svo við erum mjög þakklát aö viö skulum nú hafa fengiö leyfi til aö hafa athöfnina í Ráöhúsinu ab þessu sinni," sagbi Um helgina mun fara fram fyrsta fermingin í Ráöhúsi Reykjavíkur, borgaraleg ferming á vegum Siömenntar. Tímamynd Árni Bjarna Hope. Undirbúninginn aö borgara- legri fermingu segir hún vera 3ja mánaöa námskeið. „Viö byrjuð- um þennan undirbúning í nóv- ember s.l. meö fjölskyldufundum. Hópurinn hefur síöan komið saman vikulega frá því í byrjun janúar. Aö þessu sinni þurftum viö að skipta honum í tvennt og halda tvö námskeið á sama tíma. Annaö var í Reykjavík og hitt í Hafnarfirði, fyrir fólk í sveitarfé- lögunum utan Reykjavíkur. Nám- skeiöin snúast aballega um mannleg samskipti og rauöi þráð- urinn í gegn um þetta er ábyrgb —■ hvernig maður á aö veröa ábyrgur borgari," segir Hope Knútsson. Eins og ráöa má af framan- greindum tölum hefur hópurinn sem fermist borgaralega stækkaö hægt og rólega frá ári til árs. Til þessa hafa öll börnin veriö búsett í Reykjavík og nálægum sveitarfé- lögum. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.