Tíminn - 26.04.1995, Blaðsíða 13

Tíminn - 26.04.1995, Blaðsíða 13
Mi&vikudagur 26. aprfl 1995 13 Vönduö fang- elsismynd Rita Hayworth & Shawshank-fangeisib (The Shawshank Redemption) ★★★ 1/2 Handrit: Frank Darabont. Byggt á smá- sögu Stephens King. Leikstjóri: Frank Darabont. Abalhlutverk: Tim Robbins, Morgan Freeman, Clancy Brown, William Sadler og Bob Gunton. Regnboginn. Bönnub innan 14 ára. Frank Darabont á ekki langa sögu að baki í kvikmyndagerb, en hann hristir hér fram úr erminni stórgott verk, byggt á skemmtilegri smásögu Stephens King. Aöalsöguhetjan er Andy Dufresne (Robbins), sem í upp- hafi sögunnar er dæmdur í lífs- tíðarfangelsi fyrir morb á konu sinni og elskhuga hennar og fluttur í Shawshank-fangelsið. Hann er ólíkur öðrum föngum, menntaður og hafði starfað í banka, en hann á það líkt með þeim að hann segist saklaus. Hann kynnist Red (Freeman), hagvönum fanga og „reddaran- um" á staðnum, sem sýnir hon- um hvernig hlutirnir virka. Dufresne fær þann starfa að halda bókhaldið fyrir fangelsis- stjórann, Norton (Gunton), sem notar fangelsið sem skálka- skjól fyrir verktakabrask. Þegar nýr fangi segist hafa hitt þann, sem raunverulega myrti eigin- konu Dufresne, tekur við bar- átta hans við að réttlætið nái fram að ganga. Hér er um verulega vandaða mynd að ræða, þar sem spenna og drama fara saman. Þrátt fyrir að hægt sé farið yfir sögu og per- sónur kynntar í rólegheitum KVIKMYNDIR ÖRN MARKÚSSON með vel skrifuðum samræðum og atburðarás, þá er langt frá því að myndin verði langdregin. Frásögnin er í höndum Reds, sem segir af kynnum sínum við Dufresne, og gengur þetta form mjög vel upp. Hann segir sög- una á raunsæjan og á stundum ljóðrænan hátt, sem samræmist vel lífi Dufresne og vina hans í fangelsinu. Þetta er einn sterkasti þátturinn í annars mjög góðu handriti, sem sam- einar drama, spennu og skemmtilegar og óvæntar flétt- ur. Þab er ekki erfitt að sjá hvers vegna Morgan Freeman var til- nefndur til Óskarsverölauna í ár fyrir leik sinn í þessari mynd. Hann gerir hlutverki Reds stór- kostleg og trúverðug skil með látbragbi sínu og fasi ásamt því hve honum ferst sögumanns- hlutverkið vel úr hendi. Tim Robbins er einnig mjög góbur í hlutverki hins rólynda, feimna en eldklára Andy Dufresne. Það er vel skipað í önnur veigamikil hlutverk, en Bob Gunton er þar fremstur meðal jafningja í hlut- verki fangelsisstjórans. Rita Hayworth & Shawshank- fangelsið er vönduð og heill- andi mynd, sem enginn kvik- myndahúsagestur ætti ab láta framhjá sér fara. ■ UMBOÐSMENN TÍMANS Kaupstabur Nafn umbobsmanns Heimili Síml Keflavík Katrín Sigur&ardóttir Hólagata 7, Njarövík 92-12169 Njarövfk Katrín Sigur&ardóttir Hólagata 7 92-12169 Akranes A&alhei&ur Malmquist Dalbraut 55 93-14261 Borgarnes Hrafnhildur S. Hrafnsdóttir Hrafnaklettur 8 93-71642 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgata 25 93-81410 Grundarfjör&ur Gu&rún j. jósepsdóttir Grundargata 15 93-86604 Hellissandur Gu&ni |. Brynjarsson Hjar&artún 10 93-61607 Búðardalur Inga G. Kristjánsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222 Reykhólar Adolf Þ. Gu&mundsson Hellisbraut 36 93-47783 ísafjörður Hafsteinn Eiriksson Pólgata 5 94-3653 Subureyri Kristín Ósk Egilsdóttir Túngata 14 94-6254 Patreksfjör&ur Snorri Gunnlaugsson A&alstræti 83 94-1373 Tálknafjörbur Margrét Gu&laugsdóttir Túngata 25 94-2563 Bíldudalur Haukur Már Kristinsson Dalbraut 9 94-2228 Þingeyri Kan'tas jónsdóttir Brekkugata 54 94-8131 Hólmavík júlíana Ágústsdóttir Vitabraut 13 95-13390 Hvammstangl Hólmfrí&ur Gu&mundsdóttir Fífusund 12 95-12485 Blönduós Snorri Bjarnason Ur&arbraut 20 95-24581 Skagaströnd Gu&rún Pálsdóttir Bogabraut 27 95-22722 Sau&árkrókur Gu&rún Kristófersdóttir Barmahlib 13 95-35311 Slglufjör&ur Gu&rún Au&unsdóttir Hafnartún 16 96-71841 Akureyri Sigrún Elva Hjaltadóttir Drekagil 19 96-27494 Dalvík Harpa Rut Heimisdóttir Bjarkarbraut 21 96-61816 Ólafsfjör&ur Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö 8 96-62308 Húsavík Þórunn Kristjánsdóttir Brúnager&i 11 96-41620 Laugar, S-Þing. Bókabúð Rannveigar H. Ólafsdóttur 96-43181 Reykjahlib v/Mývatn Da&i Fri&riksson Skútahrauni 15 96-44215 Raufarhöfn Sólrún Hvönn Indriöadóttir Ásgata 21 96-51179 Þórshöfn Matthildur Jóhannsdóttir Austurvegur 14 96-81183 Vopnafjör&ur Ellen Ellertsdóttir Kolbeinsgata 44 97-31289 Egilsstabir Páll Pétursson Árskógar 13 97-11350 Sey&isfjörbur MargrétVera Knútsdóttir Múlavegur 7 97-21136 Rey&arfjörbur Ragnhei&ur Elmarsdóttir Hæ&arger&i 5 9741374 Esídfjör&ur Björg Sigur&ardóttir Strandgata 3B 97-61366 Neskaupsta&ur Bryndís Helgadóttir Blómsturvellir 46 97-71682 Fáskrú&sfjörbur Ásdís jóhannesdóttir Skólavegur 8 97-51339 Stö&varfjör&ur Sunna K. Jónsdóttir Einholt 97-58864 Brei&dalsvík Davíð Skúlason Sólheimar 1 97-56669 Djúpivogur Ingibjörg Óiafsdóttir Borgarland 21 97-88962 Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Vikurbraut 11 97-81274 Nesjar Hanni Heiler Hraunhóll 5 97-81903 Selfoss Bár&ur Gu&mundsson Tryggvagata 11 98-23577 Hverager&l Þór&ur Snæbjamarson Heiömörk 61 98-34191 Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627 Eyrarbakkl Jóhannes Erlingsson Túngata 28 98-31198 - Laugarvatn Ásgeir B. Pétursson Stekkur 98-61218 Hvolsvöllur Ómar Eyþórsson Litlager&i 10 98-78269 Vík í Mýrdal Hugborg Hjörleifsdóttir Su&urvikurvegur 8A 98-71327 Kirkjubæjarklaustur Bryndís Gu&geirsdóttir Skri&uvellir 98-74624 Vestmannaeyjar Auróra Fri&riksdóttir Kirkjubæjarbraut 4 98-11404 Jim Carrey hefur nýlega slegið í gegn í þriðju grínmyndinni í röð. Ástæða þess er einföld: hann er af- ar fyndinn. En hvað er svona fyndið við Jim Carrey? Sennilega er skýringin fyrst og fremst líkamleg, þ.e.a.s. hann á sérstaklega gott með að fetta andlit og búk — svipbrigðin eru óteljandi — og það nægir til að aðdáendur hans rifna úr hlátri. Reyndar eru Evrópubúar síður á eitt sáttir um fyndni hans en Bandaríkjamenn, en hinir síðar- nefndu hafa löngum haft sérlega gaman af að hlæja að því sem þeim finnst heimskulegt og vit- lausara en þeir sjálfir. Samfelld sigur- ganga Það byrjaði með Ace Ventura og síðan Mask, en smellur ársins er Dumb and Dumber, sem nú er einmitt sýnd i Laugarásbíói við miklar vinsældir. Eftir þessa þriggja mynda sigurgöngu er Carr- ey oröinn svo hátt skrifaður að hann sló nýlega hinum þekkta gamanleikara Robin Williams við, er valið var í hlutverk „Jokersins" í þriðju myndinni um Batman, „Batman Forever". Miklir pening- ar eru í boði. Flestir vita sitthvað um einka- hagi nýju stjörnunnar, þ.á m. ný- legan hjónaskilnað, en hitt vita færri að hann er Kanadamaður og á það sammerkt með ótrúlegum fjölda seinni tíma gamanleikara, sem slegiö hafa í gegn í Holly- wood. Til dæmis: Dan Aykroyd, Leslie Nielsen, John Candy, Rick Moranis og Catharine O'Hara. Þá eru ótaldir handritshöfundar „Groundhog Day" og „Ghostbust- ers", sem einnig koma frá Kanada. Peningar En hvernig má þetta vera? Nú Kanadamaburinn )im Carrey hefur ekki síbur ástœbu til ab hiæja ab Bandaríkjamönnum en þeir ab honum. hafa Kanadamenn aldrei haft sér- stakt orð á sér fyrir ríka kímnigáfu. Ástæðan er einföld: Peningar. Kanadamenn njóta þeirrar gæfu að tala góða ensku, ýmist sem fyrsta eða annað tungumál, og það greiðir þeim götuna í Banda- ríkjunum. Ef þeir ætla að helga sig leiklistinni í heimalandinu, geta þeir heppnustu vænst þess að þéna 1,4 milljónir ísl. króna, en hærra komast þeir ekki. Þarf ekki nema miðlungsleikara í c-mynd i Hollywood til að toppa þab og ef menn slá ærlega í gegn, líkt og Jim Carrey, geta þeir fariö fram á mörg hundruð milljónir króna fyrir eina mynd. Peningar geta nefni- lega keypt allt, ekki síður hæfi- leika en hvað annað. Bandaríkjamenn líta flestir svo á að Jim Carrey sé einn af þeim, þ.e.a.s. Bandaríkjamaður. Banda- ríkjamenn hafa alltaf haft gaman af að hlæja að því sem er reglulega heimskulegt. Það veit Jim Carrey og hann hegðar sér í samræmi við það. Hann er ekki einn af þeim, heldur Kanadamaður og þess vegna, eins og fjöldi kollega hans, hlær hann ekki með þeim, heldur að þeim. Kanadamenn sitja eftir með sárt ennið, vegna þess að þeir geta ekki borgað nóg. Enginn hef- ur nógu stóran markað til aö borga nóg, nema Hollywood. ■ Ótrúlegur fjöldi Kan- adamanna hefur slegiö í gegn í Hollywood Nancy Kerrigan skautadrottning: Ofsótt af misindismanni Skautadrottningin Nancy Kerrig- an prísaði sig sæla á dögunum yfir að vera ekki heima þegar vopnað- ur glæpamaður braust inn á heim- ili hennar. Þjófurinn, Jason Fields, hafði áreitt skautadrottninguna með bréfum og hótunum í síma og var nýsloppinn úr fangelsi þeg- ar atburðurinn gerðist. Jason haföi setið inni um hríð fyrir vopnað rán, þegar hann virð- ist hafa fengið sjúklegan áhuga á Nancy. Eftir að hafa ofsótt hana með símhringingum og bréfa- skriftum beið hann þess eins að sleppa út, og þegar sú stund rann upp beið hann ekki boðanna og braust inn til Nancyar. Þegar hún reyndist ekki heima, fór hann til móður Nancyar, Brendu Kerrigan, sem er blind, og hélt hún að hann væri kunningi Nancyar og hleypti honum inn. Skúrkurinn sat síðan í góðu yfir- læti, maulaöi súkkulaöi og hlust- í SPECLI TÍMANS Nancy Kerrigan. aði á gospeltónlist þangaö til ná- granni Brendu sá inn um glugg- ann að ókunnugur maður var í húsinu og hringdi á lögregluna. Þegar lögreglan handtók mann- inn reyndist hann vera með hníf og leðursvipu innan klæða, sem hann eflaust hefur ætlaö að nota á Nancy. Þetta er aðeins eitt af mörgum jason Fields. tilvikum að undanförnu þar sem truflaðir „aðdáendur" þekkts fólks gera því lífið leitt. Nancy er mjög brugðið eftir atburðinn og hefur hert öryggisgæslu við hús sitt í kjölfariö. Hægt er að ímynda sér að illa hefði farið, ef hún heföi verið heima þegar Jason Fields átti leið um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.