Tíminn - 20.06.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.06.1995, Blaðsíða 10
10 ÍMtm Þribjudagur 20. júní 1995 Thatcher gagn- rýnir ESB-stefnu Ihaldsflokksins Útkoma annars bindis sjálfsævi- sögu lafði Thatcher vakti umtal í breskum fjölmiölum og varö til- efni viötala viö hana. I aðalfor- síðugrein Sunday Times 21. maí 1995 sagði: „í öðru bindi sjálfsævisögu sinnar setur hún fram róttæka stefnu- liði „til aö koma hlutunum í rétt horf". Hún krefst stórfelldra breytinga á stjórnarstefnunni ut- an lands sem innan. Og er þá efst á baugi endurheimt bresks fullveldis í evrópskum stofnun- um, höfnun Maastricht-samn- ingsins, yfirlýsingu án tafar um sjálfstæði sterlingspunds utan sameiginlegs evrópsks gjaldmið- ils og endurupptaka meginhug- mynda íhaldsmanna um gildi fjölskyldulífs og samfélags." „Vegna árásar hennar á stefnu Majors í Evrópumálum verður óróa vænst víöa og á ný meðal íhaldsmanna í sumar. ... Major er nú á höndum að fá landsfund íhaldsmanna í haust á sitt band, en honum er til trafala tap íhaldsflokksins í einum kosning- um af öðrum, minni vinsældir í skoðanakönnunum en nokkru sinni áður, auk þess sem á vitorði flokksmanna er, að forveri hans afneiti honum." Samfelling gagn- kvæmra greiðslna evrópskra seðlabanka „Peningastofnun Evrópu (EMI) hefur fallist á drög ab til- högun samfellingar gagn- kvæmra greibslna evrópskra seðlabanka á milli. Meb því móti er veriö að undirbúa upptöku eins evrópsks gjaldmiðils." Svo sagði í European 2. júní 1995, bls. 16. „Hvernig vextir verði ákvarð- aðir að upp teknum sameiginleg- um gjaldmibli er enn í athugun í EMI og á meðal sérfræðinga í seðlabönkum." ■ VIÐSKIPTI Ingvar Asmundsson skólameistari afhendir nemendum verblaun vib skólaslitin. Ibnskólanum slitib í Hallgrímskirkju Enn breikkar bilib Á 48. ársþingi Alþjóblegu heil- brigðismálastofnunarinnar í Genf í vor var lögð fram skýrsla um stöðu heilbrigðismála, „Bridging the Gap", Aö brúa bil- ið. í skýrslunni segir, að meira en fimmtungur hinna 5,6 millj- arða jarðarbúa búi við sára fá- tækt, nálega þriðjungur barna heims sé vannærður og helm- ingur jarðarbúa eigi ekki kost á nauðsynlegum lyfjum. Árlega deyja um 12,2 milljónir barna, ekki ósjaldan sakir þess að þeim býðst ekki meðferö, sem ein- ungis kosti $ 0,20. Mislingar valda enn dauða um milljón barna á ári. Vaxandi flokkadrættir í breska íhaldsflokknum vegna Evrópumála í vaxandi mæli segir til flokkadrátta í breska Ihalds- flokknum vegna ágreinings um Evrópusambandið (European Union). Á landsfundi íhalds- manna í Wales í Llangollen 10. júní s.l. hélt Michael Portillo at- vinnumálarábherra ræðu, sem Sunday Times daginn eftir skýrði svo frá á forsíöu: „í inngangi að varnaðarorðum sínum sagöi Portillo: „Ég vil ekki, að Bret- land fari úr Evrópska Samfélag- inu." Síöan gaf hann margar glöggar ábendingar um, að úr- sögn Bretlands mundi hann íhuga, ef Bretland ætti í vök ab verjast sakir ásóknar af hálfu annarra abildarlanda: „Við lát- um ekki teyma okkur út í vit- leysu. Viö látum ekki berast til Sambandsríkis Evrópu. ... Ef vib þurfum nokkru sinni að velja á milli, kjósum við fullveldishags- muni Bretlands. ... Uppi er þab óráöshjal, að um sé að ræða hægagang eða hraðferö inn í Sambandsríki Evrópu, um ab taka lest eða að missa af strætis- vagni, en ástæöulaust er að velja um að fara hægt eða hratt til staðar, sem við viljum ekki fara til." „Nánir samstarfsmenn Majors forsætisráðherra segja," að enn segir í þessari forsíðufrétt Sunday Times, „að hann muni gefa ýmsar yfirlýsingar gegn upptöku sameiginlegs evrópsks gjaldmiðils í anda þeirra orða hans í síðustu viku, að aldrei muni til þess koma, að til þess verði ástæða. ... Sögusagnir um, að Major hyggist koma til móts við efasemdamenn um evrópskt samstarf, berast um leið og vax- andi ábendingar eru um, að vinstri vængur íhaldsflokksins sé að snúa við honum baki, en innan hans vilja margir fá He- seltine viðskiptaráðherra fyrir flokksleiðtoga." „Skýrasta ábendingin til þessa um, að hægfara íhaldsmenn séu ab láta af stuöningi vib Major, er ab Sir Edward Heath, fyrrum forsætisráðherra, birtir í dag í Sunday Times gagnrýni á ríkis- stjórnina sakir taka hennar á at- vinnumálum, heilbrigðismál- um, ... fræöslumálum og dóms- málum." ■ Fyrir skömmu afhenti Rolf Jo- hansen, ræðismabur Mexíkó á íslandi, Landsbókasafni íslands — Háskólabókasafni bókagjöf frá mexíkönskum stjórnvöld- um. Til gjafarinnar er stofnab í tilefni af opnun safnsins í Þjób- arbókhlööu 1. desember sl. Bækurnar fjalla um bókmennt- ir, listir, sögu og menningu Mex- íkó og eru valdar í samráði við safnið og kennara í spænsku vib Háskóla Islands. Einnig fylgdu gjöfinni tvær myndbandsspólur meb fimm heimildaþáttum undir saniheit- inu „The Buried Mirror", sem fjalla á ítarlegan og áhrifamikinn hátt um samruna tveggja heima Iðnskólanum í Reykjavík var slitib föstudaginn 9. júní vib hátíblega athöfn í Hallgríms- kirkju. Á haustönn stunduðu 1865 nemendur nám vib skól- ann, en 1758 á vorönn. Út- skriftarnemendur skiptast á eft- irtalinn hátt milli iðngreina: Byggingargreinar 61 nemandi Málmiðngreinar 37 nemendur Rafiðngreinar 36 - Þjónustugreinar 67 - Starfsnám 9 - Stúdentar 12 - Meistaranám 37 - Verðlaun fyrir bestan námsár- angur á burtfararprófi hlaut Jó- hannes Eggertsson, nemandi í húsgagnasmíði. Verðlaun fyrir næst besta námsárangur á burt- fararprófi hlaut Halldór Karl Þór- isson, nemandi í bifreiðasmíði. Verölaun Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur fyrir hæstu einkunn samanlagt í teikningu og ástund- un hlaut Ruth Rauterberg, nem- andi í húsgagnasmíði. Verðlaun Samtaka iðnabarins fyrir hæstu einkunn í: Byggingargreinum: Jóhannes Eggertsson, nemandi í húsgagna- smíbi fyrir 500 árum og hvernig sá sam- runi mótaöi sögu og menningu Mexíkó og tilveru þeirrar þjóbar sem landið byggir. Þættirnir eru á ensku og leiðsögumaöur áhorf- enda í gegnum aldirnar er hinn kunni mexíkanski rithöfundur, Carlos Fuentes. Þá fylgdu einnig fyrirheit um mexíkanska tónlist á geisladiskum og áskrift að tímarit- inu VUELTA, sem fjallar um bók- menntir og listir og er ritstýrt af rithöfundinum og Nóbelsverð- launahafanum Octavio Paz. Safnib metur mikils þessa ágætu gjöf, sem stuðlar ab því að auka með landsmönnum þekk- ingu á Mexíkó og mexíkahskri menningu. ■ Mexíkönsk bókagjöf Málmiðnaðargreinum: Halldór Karl Þórisson, nemandi í bifreiða- smíði Rafiðnagreinum: Magnús Guð- jónsson, nemandi í rafeindavirkj- un Þjónustugreinum: Inga Kristín Gublaugsdóttir, nemandi í kjóla- saumi Á stúdentsprófi: Víkingur P. Aðal- steinsson Á meistaraprófi: Ágúst Jensson, húsasmibur í skólaslitaræðu sinni greindi skólameistari, Ingvar Ásmunds- son, frá altækri gæðastjórnun sem unnið hefur verið að í skólanum. Helstu þættir í gæðastjórnuninni eru: Stefnumótun, gæðahandbók og umbótastarf í gæðahópum. Með stefnumótun er reynt að tryggja að allir starfsmenn vinni að sama marki í því skyni að gera starfið markvissara og árangurs- ríkara. Unnið hefur verið að gerð gæðahandbókar, en hún hefur aö geyma verklagsreglur um starf- semina og er henni ætlað að tryggja betri vinnubrögð og ör- uggari, óháð því hvort starfs- menn eru vanir eða óvanir verk- unum. Mikið hefur verið unnið í svokölluðum gæðahópum og hafa verið gerðar ráöstafanir til að efla það starf á næstunni. Um helmingur starfsmanna hefur tek- ib þátt í því starfi. Þá hafa verið gerðar ýmsar kannanir á starfsem- inni í því skyni ab mæla árangur og fylgjast með því hvort um framfarir er að ræða og hve mikl- ar. Á skólaárinu var fagnað 90 ára afmæli skólans og í tilefni af því var haldin afmælishátíð og sýn- ing á starfsemi skólans. Gefið var út veglegt afmælisrit og kynning- arbæklingar og kynningarmynd- band. Unnið var að ýmsum kostnaðarsömum umbótum inn- an húss sem utan. Að undanförnu hafa verið tekn- ar upp ýmsar nýjungar í skóla- starfinu og má nefna iðnhönnun- arbraut sem innritaö er á í fyrsta skipti núna, lestrarátak, sumar- nám fyrir atvinnulausa sem nú fer í gang í þribja skipti, nýbúa- nám og slátraranám. í lokaorðum brýndi skólameist- ari það fyrir útskriftarnemendum að afköst og gæöi vinnu verði að fara saman og hvatti nemendur til að vinna öll störf sín vel. ■ Rolf johansen, rcebismabur Mexíkó á íslandi, Hanna C. )ónsdóttir, fulltrúi á rœbismannsskrifstofu Mexíkó, og Einar Sigurbsson landsbókavörbur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.