Tíminn - 22.03.1996, Síða 9
Föstudagur 22. mars 1996
Wmtimm
9
i
Framlag febgina til Evróvisjón:
„Svona Lennon og McCartney
eöa Gaukur og Mjöll"
„Þetta er svona Lennon og
McCartney eöa Gaukur og
Mjöll hjá okkur," sagöi Anna
Mjöll Ólafsdóttir um samvinnu
hennar og tónlistarmannsins
Ólafs Gauks, föbur hennar, viö
samningu Evróvisjónlags og -
texta, í samtali viö Tímann yfir
Atlantshafiö, en Anna Mjöll
býr nú og starfar í Los Angeles í
Bandaríkjunum.
Anna syngur lagið Sjúbídúa,
sem veröur framlag íslendinga til
hinnar margumræddu söngva-
keppni Evrópu, Eurovision, sem
menn ýmist skemmta sér vel yfir
með flögutrobinn maga eöa fyr-
irlíta frá kjarna síns fagurfræði-
lega anda. Reyndar er ekki alveg
frágengið aö lagib taki þátt í
sjálfri söngvakeppninni, því nú
eru ríflega 30 Evrópuþjóöir ab
bítast um þátttökurétt, en aöeins
22 lög veröa valin til að hljóma í
eyrum hlustenda þann 18. maí í
Noregi.
Verið er aö hlusta á lögin og
kanna hver eru þess verð aö
komast í söngvakeppnina og til-
kynnt veröur nk. föstudag, 22.
mars, hvaöa lög komast í keppn-
ina.
Mikil áskorun
Anna Mjöll segist því ekki þora
aö hugsa svo langt hvernig þab
leggist í hana aö fá kannski aö
birtast fyrir sjónum allmargra
Evrópubúa. „Ekki fyrr en það er
komið í ljós hvort viö erum inni
í keppninni. En ef af því verður,
þá verður þaö bara mikil áskor-
un."
— Hefur þátttaka kannski lengi
verið leyndur draumur þinn?
„Nei, reyndar ekki. Ég hef nú
lent í því aö gera lög tvisvar sinn-
um og ég ætlaði nú eiginlega
ekki ab vera aftur meö í þessu,"
sagði hún og hló hjartanlega (þó
aö klukkan væri tvö aö morgni í
borg englanna og stúlkan sjálf-
sagt þreytt). Hins vegar bendir
hún á að þó að óvíst sé ab þátt-
takan geti orðið henni til fram-
dráttar á tónlistarbrautinni, þá
skipti þab hana persónulega ein-
mitt mestu máli ab á staðnum
veröi hugsanlega nokkuð af
málsmetandi fólki úr tónlistar-
bransanum. „Það er auðvitaö
fullt af spennandi fólki sem tekur
Anna Mjöll Ólafsdóttir.
Tímamynd CVA
þátt í þessu, þannig ab það er
aldrei að vita út í hvað svoleiðis
þróast."
Stormskers-stefna í
textagerb
Heyrst hefur að mönnum þyki
textinn heldur einfaldur og hann
verið spyrtur saman við Storm-
skers-stefnuna í Evróvisjóntexta-
gerð. Aðspurð svarar Anna Mjöll
því játandi ab textinn hafi vilj-
andi veriö gerður einfaldur, enda
sé tungumálið flestum þjóðun-
um til trafala í keppninni nema
þeim sem syngi á ensku, ítölsku,
frönsku eða þýsku. „Ég finn það
bara sjálf, þegar ég er að hlusta á
lög frá ísrael eða Búlgaríu, aö ég
læri þau frekar ef þaö ér eitthvaö
sem ég get gripið í þeim. Þaraf-
leiöandi finnst mér þau
skemmtilegri ef ég get sungiö
eitthvað með, og það var það
sem vib vorum ab hugsa í þessu."
Hvort sem Anna Mjöll gerir
garðinn frægan eða ekki hjá
frændum okkar í Noregi, þá er
nóg aö gera hjá henni vestanhafs
þar sem hún er aö taka upp lög
meö þarlendri hljómsveit, sem
stjórnað er af hljómborðsleikara
söngkonu nokkurrar sem nefnist
Amy Grant. Hljómsveitin hefur
gengið undir nafninu Garden of
Joy, en rætt hefur verið innan
hljómsveitarinnar að breyta
nafninu í Blizz. „Viö erum að
klára smápakka og tökum
kannski upp vídeó í London í
apríl." Með þessum upptökum er
svo ætlunin að heilla eitthvert
útgáfufyrirtæki, komast á samn-
ing og gefa út plötu.
Ekki áhyggjur af kjarn-
orkuárás
Ekkert skelfingaræði hefur
brotist út mebal íbúa Los Ange-
les, að sögn Önnu Mjallar, þó ab
Kínverjar hafi nú hótab því aö
senda kjarnorkusprengju á Los
Angeles, ef Kanar fara að skipta
sér af deilum þeirra við Taívan-
búa. „Nei, það hafa verið svo
margar hótanir í gegnum árin að
ég held að fólk sé bara hætt aö
kippa sér upp við svona. Al-
menningur virðist hafa ákveöið
ab stjórnvöld muni bara sjá um
þetta." LÓA
Jafnvel góbir skíbamenn þurfa ab lœra á snjóbretti frá grunni, þar
sem hreyfingar eru allt abrar:
Slysavarnafélagið bendir
á hættu af snjóbrettum
í kjölfar alvarlegs slyss, sem 17
ára piltur á snjóbretti varö fyr-
ir í janúar s.L, hefur Slysa-
varnafélag íslands sent frá sér
aövörun til snjóbrettamanna
og biöur þá ab gæta varúbar.
Vegna þess ab bindingar á fót-
um þeirra losna ekki vib fall,
myndist allt önnur og meiri
hætta á snjóbrettum heldur en
á skíbum. Þegar fætur haldast
bundnir saman og geti lítib
hreyfst, lendi högg af falli á
efri hluta líkamans — höfbi,
öxlum, úlnliöum og fingrum
— auk þess sem hálsinn veröi
oft fyrir alvarlegum hnykk.
Hættu á alvarlegum áverkum
sé hægt að minnka með því ab
fá góða leiðsögn um notkun
brettanna ásamt notkun hjálms
og hlífðarhanska meb úlnliðs-
hlíf. En jafnvel góbir skíðamenn
verði ab læra á brettin frá
grunni, þar sem um allt aðrar
hreyfingar sé að ræða. Þar sem
snjór er lítill sé enn meiri
ástæða til að fara varlega á snjó-
brettum.
Pdlturinn sem fyrr er getiö
hlaut alvarlegt brot á þriðja
brjósthryggjarlið. Hann gekkst
undir aðgerö þar sem flytja
þurfti bein úr mjaðmarkambi og
græða í liðbrotiö. Þótt hann sé
nú á batavegi, munu einhverjir
mánuðir líða áður en hann nær
sér að fullu, samkvæmt tilkynn-
ingu frá Slysavarnafélaginu. ■
Naubsynlegt ab tengja
starfsemi sérskóla betur
viö skólakerfi landsins
Björn Bjarnason menntamála-
ráöherra telur nauösynlegt aö
tengja starfsemi hinna ýmsu
sérskóla betur viö skólakerfi
landsins, en þeir heyra nú und-
ir ýmsa aöila. Hann sagöi aö
auöveldara væri um aö tala en
í aö komast, þar sem í sumum
tilfellum væri um grónar stofn-
anir aö ræöa og þar gætti
ákveöinnar viökvæmni þegar
fjalla ætti um róttækar breyt-
ingar.
Þetta sjónarmið ráðherrans
kom fram í svari við fyrirspurn
frá Hjálmari Árnasyni, þing-
manni Framsóknarflokksins, um
hver væri stefna rábherra varð-
andi starfsemi sérskólanna.
Hjálmar nefndi nokkra sérskóla
sem dæmi, þar á meöal Lögreglu-
skólann, Póstmannaskólann,
bændaskólana og fleiri stofnanir.
Hann sagði að takmörk væru á
möguleikum fólks til þess að
sækja þessa skóla, en í umræðum
um eflingu starfsnáms væri
nauösynlegt að tengja starfsemi
þeirra betur vib hiö almenna
skólakerfi landsins. -W