Tíminn - 25.03.1992, Qupperneq 5

Tíminn - 25.03.1992, Qupperneq 5
Miðvikudagur 25. mars 1992 Tíminn 5 Efni til kjamorkuvinnslu til sölu á svörtum markaði? Svona sér teiknari fyrir sér atvikið þegar þýsk lögregla handtók tvo Rússa á bllastæöi þar sem þeir falbuöu úraníum úr bllskotti! Á eyðilegu bílastæði við hraðbraut- ina til Augsburg í Þýskalandi, hafði 36 ára sovéskur atvinnulaus ávaxta- og grænmetissali loks fundið kaupanda að vörunni sem hann bauð á kostakjörum, kassa af úrvals úraníum, öríítid bætt Verð- ið sem farið var fram á var 40.000.000 ísl. kr. kflóið. Kaupandinn sýndi sig hins vegar aldrei. í hans stað mættu 20 for- ingjar úr úrvalssveit lögreglunnar sem sátu fyrir seljandanum og beindu að honum vélbyssum og geigerteljara að Mercedesnum með opna skottinu. í blárri íþróttatösku, sem felin var undir rifnum frakka, var blýfóðraður kassi sem innihélt 1,2 kíló af úraníummolum, gráleit- um, á stærð við aspiríntöflur. Sovéskír mafíósar á ferð og flugi í viðskiptaerindum Gildran virtist vera vel heppnað tiltæki í stríðinu gegn kjamorku- smyglurum. Seljandinn og 46 ára samstarfsmaður hans, sem báðir eru frá Volgubökkum, höfðu verið undir eftirliti vikum saman. Tveim dögum síðar sendi franska sjónvarpið út leynilega tekna kvik- mynd af sovéskum mafi'ósum, þar sem þeir voru að semja um sölu á einu kílói af mjög styrktu úraníum við austurrískan lögfræðing. Áhorf- endur heyrðu þá tvo komast að samkomulagi um að 30.000.000 ísl. kr. yrðu lagðar inn á bankareining á Kaliningrad-svæðinu, sem nýlega var yfirlýst svæði frjáls framtaks, einum sólarhring eftir afhendingu. Táugaóstyrks gætti við viðræðum- ar og þær voru á stundum hvers- dagslegar. Lögfræðingurinn var áhyggjufullur um að upp kæmist og kvartaði: Ég get ekki bara orðið ósýnilegur. Þá fór seljandinn að missa sjálfsstjómina og sagði: Ef við náumst vil ég ekki að þeir haldi að ég eigi efnið. Lögfræðingurinn hughreysti hann: Hafðu ekki áhyggjur, það er hægt að kaupa hvaða tollgæslumann sem er. Ekki var gefið upp hvaðan úranumið kæmi, ef það þá í rauninni var til. Hrun Sovétríkjanna og máttlaust eftirlit ríkisins með kjamorkuefn- um hefur haft í för með sér það óhjákvæmilega, geislavirkt efni Iek- ur til vesturs um tilviljunarkenndar leiðir smyglhringa og einstakra sala sem reyna að græða sem mest á sem auðveldastan hátt Sumir sér- fræðingar gera grín að því sem fram er fært til sönnunar á viðskipt- unum og álíta það verk hrekkja- lóma en aðrir líta á það sem ógn- vekjandi þróun. Frá því í júní sl. hefur komist upp um 11 tilraunir til að selja eða smygla kjamorku- efnum að austan. Öryggisvörslu hnignað í fyrrum Sovétrílqum Tilraunir til að ákvarða nákvæm- Iega hversu mikið vandamál er hér um að ræða em hindraðar af því sem áður var valdamiki! kjamorku- áróðursvé! í fyrrum Sovétríkjum, sem spilar á ótta og þekkingarleysi Vesturlandamanna. Ekki alls fyrir löngu sagði Gennadi Novikov, yfir- maður séröryggisrannsóknarstof- unnar við Chelyabinsk 70 kjam- orkurannsóknastöðina, að öryggis- vörslu hefði „hnignað verulega ... nú er möguleiki á því að koma höndum yfir kjamavopn" til að nota við fjárkúgun. Leonid Kravt- sjúk, forseti Úkraínu, hefur hætt að flytja meðaldræg kjamorkuvopn til Rússlands og segir: „Við getum ekki verið vissir um að eldflaugamar sem við sendum burtu verði eyði- lagðar og falli ekki í hendur óvin- veittra aðila.“ Ef Kravtsjúk hefur rétt fyrir sér, má kannski líta svo á að það sem klaufalegu sovésku útflytjendurnir sem gripnir voru glóðvolgir í Þýskalandi vom að gera sé ekki svo fáránlegt. Það sem byrjaði sem svartamarkaðssvindl gæti orðið að hættulegri viðskiptum. Það þarf um eitt tonn af náttúr- Iegu úraníum til að framleiða eitt kíló af hreinsuðu og styrktu útgáf- unni sem notuð er í kjamorku- sprengju. Sé það haft í huga virðast tilraunimar sem gerðar hafe verið að undanfömu til að selja geisla- virkt efni aumkunarverðar. Þannig tók t.d. lögreglan í Búdapest mann höndum fyrir nokkmm vikum þar sem hann var að reyna að selja 400 gr af úraníum, sem reyndist orðið gersneytt nýtanlegum efnum eftir vinnslu. Þeir sem rannsaka ólögleg úran- íumviðskipti em mjög áhugasamir um að komast að því hvort það úr- aníum sem náðst hefur sé fengið með tilviljunarkenndum þjófnaði eða hvort bófaflokkar hafi aðgang að miklu meira magni af efninu. Hins vegar er ekki til nein áreiðan- leg birgðaskrá. Nákvæmar upplýs- ingar em gloppóttar, jafnvel í Rúss- landi, en þar er álitið að hafi verið framleidd 100-150 tonn af plútón- íum hæfu til vopnaframleiðslu og 700-1000 tonn af mjög virku úran- íum. „Við höldum upplýsingum leyndum," viðurkennir Novkov, „jafnvel varðandi öryggismál ... og jafnvel hver fyrir öðrnrn." Freistingamar og viðskiptin færast í aukana Alþjóðlega kjamorkustofnunin, sem sendi eftirlitsmenn til að grandskoða írak eftir Persaflóa- stríðið, hefur sett upp innsiglaðar eftirlitsmyndavélar í kjamorkuver- um í 40 löndum til að fylgjast með hvort eitthvað er verið að fikta þar. En David Kyd frá stofhuninni segir að við það að eftirlit hefur fallið í rúst í fyrmm Sovétríkjum hafi fjöldi fólks misst vinnuna og sé reiðubúið að finna leiðir til að verða sér úti um peninga. „Freistingarnar og viðskiptin fær- ast í aukana. Einhvern tíma eigum við eftir að finna „þann stóra“ — það er heilmikið af kjamorkuefni úti um allt Hver getur sagt fyrir um hvað kann að gerast þegar Azer- ar og Armenar em komnir í hár saman,“ segir hann. íatlri upplausninni sem nú rikir i austurhluta Evrópu reynir hver að bjarga sér sem beturgetur. Meðal annars varnings sem nú er viða á boðstólum er alls kyns efni sem kennt er við kjarnorku vinnslu. Sumum stendur ógn af þessum viðskiptum en aðrir segja að hér sé sennilega í ðUum tilvikum um gabb aðrœða. Flestar tilraunir til að selja kjam- orkuvaming virðast hafa verið blekkingin ein. Einn glæpaflokkur, sem tekinn var við Como-vatn í október sl., var að reyna að selja plútoníum úr hjartagangráði sem búið var að fleygja. Aðrir sölumenn hafa boðið fram útnýtt úraníum, massann sem eftir er þegar að hinn dýrmæti klofnunarhæfi ísótóp U235 hefur verið fjarlægður. Nýnumið úraníum fer í gegnum mikla og dýra vinnslu sem skilur að og safnar saman hinu gífurlega virka efrii. Molar sem teknir em úr kjamorkueldsneytisstöfunum eins og þeir sem náðist til í Augsburg, kunna að vera nothæfir, en þá þyrfti að fá þá í svo miklu magni að smygl leikmanna hentar ekki. „Rautt kvikasilfur“ — hvað er það? Það kjamorkuefni á svarta mark- aðnum sem veldur mestum vanga- veltum er hið svokallaða „rauða kvikasilfur" sem erfitt er að henda reiður á — en samsetning þess er óþekkL ef það er þá í reyndinni tll. Sölumenn hafa í stómm stíl lagt leið sína til þriðjaheimsríkjanna og bjóða það á kostakjörum, 20.000.000 ísl. kr. kílóið. í janúar vom þrír Ungverjar teknir höndum í Mílanó fyrir slíka sölumennsku. Fyrir skemmstu stakk „rautt kvika- silfur" upp kollinum í Noregi, þegar samtök frá Volgograd gerðu tilraun til að selja innflutningsfyrirtæki þar eina sendingu. Þeir sem fella fyrir blekkingunum fá venjulega í sinn hlut flösku með kvikasilfri, sem lit- að hefur verið með litarefni úr dauðum skordýmm. Sumir vísindamenn halda að „rauðu kvikasilfri" sé ruglað saman við kvikasilfuroxýð. Aðrir, þ.á m. prófessor Gyoergy Marx, yfirmaður kjamorkuvísindadeildar háskólans í Búdapest, em sannfærðir um að ósvikið efnasamband, sem gengur undir nafninu „rautt kvikasilfur 20/20“ geti valdið þeirri sprengingu sem þarf til að koma af stað kjama- klofningi. David Kay, aðalritari Úraníum- stofnunarinnar, hefur reynt að finna uppmna þessarar nútíma þjóðsögu. „Fyrir u.þ.b. 15 ámm komst orðrómur á kreik um að Sovétmenn hefðu fundið kjam- orkuundirstöðu — sem væri eitt- hvað í sambandi við kvikasilfur," segir hann. „Enginn vissi nákvæm- lega hvað þetta væri en allir urðu mjög spenntir. Við héldum að það gæti verið efni í vetnissprengju eða gæti gert auðveldara að kljúfa vatn undir þrýstingi. Þetta fór að ganga undir nafriinu „rautt kvikasilfur" eingöngu vegna þess að það var rússneskt Nú er fólk farið að reyna að selja venjulegt kvikasilfur með !it.“ Alþjóðleg lgamorkulögregla? Kay, sem stjómaði þrem eftirlits- hópum Alþjóðakjamorkustofnun- arinnar í írak á liðnu ári, sagði að gestgjafar hans þar hefðu sagt hon- um að þeir ættu tvær skjalaskúífur stútfullar af tilboðum á rauðu kvikasilfri. Eftir því sem hið gamla sovéska heimsveldi flosnar upp á saumunum og gabbið, svindlið og upptekt efna færist í aukana, spyrja sumir hvort rétt væri að setja á laggirnar alþjóðlega „kjarnorkulög- reglu" til að berja niður þessi nýju viðskipti. Alþjóðakjarnorkustofriunin hefur eftirlit með að fylgt sé samningum um takmörkun kjamavopna en hef- ur illa tök á því að fylgjast með smyglurum. Ríkin 113 sem ábyrgj- ast fjárlög stofnunarinnar höfnuðu nýlega tillögu um að setja á fót þriggja milljón dollara gagnabanka til að fyigjast með inn- og útflutn- ingi. „Við höfum komist að raun um á undanförnum 25 árum að heimurinn er reiðubúinn að greiða 60 milljónir dollara til að hafe 200 eftirlitsmenn í þjónustu sinni til að hafa eftirlit með 1000 stöðvum í 60 löndum," segir David Kyd. „Nema því aðeins meiriháttar brot á öryggi komi fyrir eru ríkisstjómir ekki reiðubúnar til að hrökkva nóg við til að setja á fót nýja stofnun." Frank Bamaby, fyrrverandi for- stjóri Friðarrannsóknarstofnunar- innar í Stokkhólmi, álítur að þess sé ekki langt að bíða að slíkur skell- ur verði. „Það er mikið þekkingar- leysi á ferðinni. Það er vissulega til- eftii til að stofna sérhæfða skrifstofu Sameinuðu þjóðanna með mikið vald. Hún þarf að vera kjamorku Interpol sem lætur til sín taka." Sú ógnun sem stafar af „kjam- orkumáIaIiðum“ var til umfjöllunar í yfirheyrslum á bandaríska þinginu í Washington fyrir skömmu. Dr. William Potter við Alþjóðarann- sóknastofnunina í Monterey segir: „Hið raunverulega gjaldþrot vam- argeirans í heild hefur myndað um- hverfi þar sem framtakssamir aðilar keppa um að fá í þjónustu sína vopnahönnuði og að versla með kjamorkuvarning erlendis." Ekkert tilfelli sannað Vestrænar öryggisþjónustur hafa látið til sín taka á undanfömum mánuðum. CIAhefur stofnað gervi- fyrirtæki og bankareikninga til að veiða kjamorkusmyglara í gildru, en árangurinn hefur ekki þótt merkilegur. „Ég veit ekki um eitt einasta tilfelli sem sönnur hafa ver- ið færðar á,“ segir heimildamaður í leyniþjónustunni. „Fullyrðingamar hafa skipt þúsundum en þegar er farið að kanna sannleiksgildi þeirra hefur ekkert staðið að baki þeim.“ Sumir vísindamenn álíta að lykill- inn að velheppnaðri herferð gegn smyglurum sé sá að kenna landa- mæravörðum hvemig bera megi kennsl á og meðhöndla kjamorku- efni. Bandaríkjamaður, sem vinnur að því að fylgjast með því magni kjamorkuefna sem kemst í umferð, segir að full þörf sé á auknu eftirliti. „í Rússlandi er fjöldinn allur af von- sviknum kjarnorkustarfsmönnum sem ekki hafa Iengur starf, en hafa þó aðgang að þekkingunni og efn- unum. Það er auðveldasti hlutur í heimi að finna hverjir eru glæpa- foringjamir á staðnum og færa til efhi.“

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.