Tíminn - 25.03.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.03.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & Bl LAPART ASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEIÐI • BÍLAPARTASALA Flugumýrl 18D • Mosfellsbæ Sfmar 668138 & 667387 I HÖGG- DEYFAR Verslió hjá fagmönnum mi UJ varahlutir Jd. ÞJONUSTA MÁLARAR geta bætt við sig málningarvinnu úti sem inni Vönduð og góð vinnubrögð Sími 670269 ÞÉTTING OG KLÆÐNING MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1992 Húsbréf út á 700 eldri íbúðir í janúar/febrúar í fyrra en aðeins 380 sömu mánuði í ár: Fasteignasala helmingi minni núna en fyrir ári Fyrstu tvo mánuði þessa árs er um að ræða 46% samdrátt í af- greiðslu húsbréfalána út á notað húsnæði og 16% samdrátt í ný- byggingum, miðað við sömu mánuði í fyrra, samkvæmt upplýsing- um Sigurðar Geirssonar forstöðumanns húsbréfadeildar hjá Hús- næðisstofnun ríkisins. Afgreiðslur lána út á notaðar íbúðir í janúar og febrúar voru um 700 í fyrra en aðeins um 380 sömu mánuði í ár. Mestur var þessi samdráttur í febrúar. f þeim mánuði voru 424 af- greiðslur í fyrra en aðeins 184 nú, sem þýðir 57% fækkun. ,Já, þetta er mjög lág tala, því það er talið að fasteignaviðskipti með notaðar íbúðir séu á bilinu 3.500 til 4.000 undanfarin ár, eða rúmlega 300 að meðaltali í hverjum mán- uði,“ sagði Sigurður. Árið 1991 voru afgreidd húsbréfalán út á um 3.140 notaðar íbúðir, eða um 260 að meðaltali á mánuði. En hvaða ástæður telur hann helstar fyrir svo miklum samdrætti á fasteigna- markaðinum? „Fyrst og fremst efnahagsástandið eins og það er. Það eru óvissutímar. Bæði hafa laun dregist saman hjá fólki, vegna minni fyrirvinnu, fækkunar starfsmanna hjá fyrir- tækjum vegna uppsagna og gjald- þrota. Auk þess eru kjarasamningar lausir og óvíst um samninga. Það leggst því allt á eitt til þess að hvetja menn til þess að halda að- eins að sér höndunum og fara ró- lega í verulegar fjárfestingar." Hvað vanskil snertir kveðst Sigurður samt ekki verða var við að þau hafi aukist hlutfallslega frá síðasta ári, né heldur að meira væri um vanskil en áætlað var við skipulagningu húsbréfakerfisins. Frá upphafi hafi verið búist við einhverjum vanskil- um vegna ófyrirséðra atvika svo sem atvinnumissis, veikinda, slysa og þess háttar. „Þar fyrir utan virðist svo sem töluverður hluti fólks sem borgar illa og jafnvel alls ekki af lánum, sama hvað þar er um að ræða. Við höfum dæmi um alveg hlægilega greiðslubyrði hjá fólki — t.d. fólk með ágætis laun með greiðslubyrði upp á 9% en borgar samt ekki krónu af sínum lánum." Er stofnunin ekki farin að grípa fyrr til aðgerða við vanskil en áður var? „í rauninni ekki, miðað við gamla kerfið eins og rekstur þess er nú orðinn," segir Sigurður. „Það gilda orðið sömu reglur bæði gagn- vart lána í gamla kerfinu og fast- eignaverðbréfa. Við tókum strax upp mjög stífa innheimtu í hús- bréfunum, m.a. á grundvelli dæma um það að greiðslur höfðu áður fyrr dregist allt of lengi. Það virtist nánast orðið ríkjandi viðhorf í Samningaviðræður halda áfram þrátt fyrir óánægju forystumanna launþega með svör ríkisstjórnarinnar: Býðst til að hætta að klípa af velferðinni Seint í fyrrakvöld kom ríkisstjómin fram með tilboð í velferðarmál- um sem samningamenn sem vinna að gerð nýs kjarasamnings hafa beðið eftir síðan fyrir helgi. Forystumenn launþega eru sáróánægð- ir með innihald tilboðsins, en ákváðu samt að halda viðræðum áfram. Ríkisstjómin sagðist vera tilbúin til frekarí viðræðna og full- trúar launþega segjast ætla að halda áfram að þrýsta á ríkisstjóraina. Ríkisstjórnin tilkynnti fyrir helgina að hún væri tilbúin til að beita sér fyrir því að réttur launafólks til launa og lífeyrisréttar við gjaldþrot fyrir- tækja verði færður til samræmis við þær hugmyndir sem aðilar vinnu- markaðarins hafa kynnt. Jafnframt var því lýst yfir að réttur til atvinnu- leysisbóta og fæðingarorlofs á al- mennum markaði verði ekki skertur á samningstímanum. í fyrrakvöld bætti ríkisstjórnin um betur og bauðst til að hætta við gjaldtöku vegna heimsókna barna yngri en 6 ára til heimilislæknis og á heilsugæslustöðvar og að setja þak á gjaldtöku vegna heimsókna 6-12 ára barna verði lækkað um helming, úr 12 þúsund á ári í 6 þúsund. Einnig bauðst hún til að þak á útgjöld fjöl- þjóðfélaginu að það mætti geyma húsnæðislánin í það endalausa. Al- menna reglan núna er sú, að þegar tveir gjalddagar eru komnir í van- skil, þá er farið af stað með málið. Það þýðir í raun að fólk hefur ekki greitt af láninu í rúma þrjá mánuði. Fólki er þá send viðvörun og sagt nákvæmlega hvenær innheimtan fari til lögfræðings og hvað það muni þýða í aukakostnaði." Sig- urður segir það til skoðunar innan stofnunarinnar hvort rétt væri að breyta kerfinu á þann hátt að hægt væri að bjóða fólki að borga af hús- bréfalánunum sínum mánaðarlega. Greiðslan yrði þannig fastur mán- aðarlegur þáttur í heimilishaldinu hjá þeim sem vildu frekar hafa þennan háttinn á. Sigurður segir marga hafa óskað eftir þessu fyrir- komulagi. Hvort sem fólk borgar mánaðar- lega eða á þriggja mánaða fresti segir Sigurður fulla ástæðu til þess að láta húsnæðislánin hafa forgang. „Lánaupphæðir í húsbréfakerfinu eru í mörgum tilfellum mjög háar og afborganir þar af leiðandi líka mjög háar. Það þarf því ekki mjög marga gjalddaga í vanskil til þessa að það geti rústað gjörsamlega fjár- hag viðkomandi fjölskyldu." Sigurður segir þetta einmitt eina meginástæðuna fyrir hinni hörðu innheimtu. Menn vilji gera fólki strax grein fyrir því að vanskil séu alvarlegur hlutur. Komi þá í ljós að fólk ætli sér og geti komið sínum málum í lag sýni stofnunin samn- ingalipurð. Það sé hins vegar svolít- ið seint að koma daginn fyrir 3. uppboð og vera þá allur af vilja gerður. - HEI Má búast við aukinni flugum- ferð í íslenskri lofthelgi? ísland hefur nú opnað loft- helgina Gunnar Pálsson sendiherra undir- ritaði í gær á RÖSE ráðstefnunni í Helsinki, fyrir hönd íslenskra stjómvalda, samning um að opna lofthelgina. Gunnar undirritaði samninginn í fjarveru Jóns Bald- vins Hannibalssonar utanríkisráð- herra. Samningurinn felur í sér auknar gagnkvæmar yfirflugsheimildir fyr- ir flugvélar frá þeim ríkjum sem undirrita samninginn. Eitt höfuð- markmiða hans er að draga úr við- sjám og tortryggni ríkja í millum með því að draga úr hömlum á yfir- flugsheimildum á svæðinu milli Vladivostok og Vancouver. Öll ríki Atlantshafsbandalagsins hafa nú staðfest samninginn. Auk þeirra eiga aðild að honum ríkin fimm sem áður voru í Varsjárbanda- laginu, Hvíta Rússland og Úkraína. Gert er ráð fyrir því að öðrum þátt- tökuríkjum RÖSE verði boðin aðild að samningnum. skyldu vegna læknisþjónustu lækki sem þessu nemi. Þá var boðist til að gjaldtaka vegna notkunar hjálpar- tækja verði endurskoðuð, aukin fjár- veiting komi á móti flötum niður- skurði í heilbrigðiskerfinu þannig að minna verði um lokanir deilda, vext- ir í félagslega húsnæðiskerfmu verði ekki hækkaðir á samningstímanum og nefnd verði sett í að skoða mögu- leika á að setja þak vegna lyfjakostn- aðar. Þá bauðst ríkisstjórnin að lækka vexti á ríkisskuldabréfum um 1%, niður í 6,5%. Ríkisstjórnin telur að tilboð sitt muni kosta ríkissjóð um 500 millj- ónir króna. Stærstur hluti upphæð- arinnar, um 300 milljónir, er vegna áforma um að hækka ekki vexti í húsnæðiskerfinu. -EÓ Landeigendur við Geysi í Haukadal gætu tapað tugum milljóna vegna nýrra upplýsinga um eignarhald á Haukadalsjörðinni: Hver á Geysissvæðið? Á fjárlögum þessa árs er opin heimild til þess að kaupa allt land í einkaeigu innan girðingarinnar umhverfis Geysi í Haukadal, þegar svæðið verður friðlýst. Það er hins vegar ekki víst að heimildin verði notuð vegna þess að samkvæmt gömlum skjölum á ríkið sennilega mun stærri hluta svæðisins en áður var talið. Sé það rétt er ljóst að þeir, sem ræða 20-25 hektara land og á ríkið hingað til hafa verið taldir land- eigendur. koma til með að missa verulegan spón úr aski sínum. Hvorki fúlltrúi fjármálaráðuneyt- isins né landeigendur sem Tíminn ræddi við vildu staðfesta um hve marga hektara ríkið og landeig- endur deildu. Sömuleiðis var ekki unnt að fá upp hvað hver hektari innan Geysisgirðingarinar er met- inn á, en samkvæmt heimildum Tímans ætluðu landeigendur að fara fram á upphæð sem skipti milljónum króna á hvem hektara. Lögfræðigar ríkisins og landeig- enda fara nú yfir málið og á meðan ríkir eins konar biðstaða. Forsagan er sú að Náttúruvernd- arráð gerði tillögu um að svæðið innan girðingarinnar umhverfis Geysi yrði friðlýst. Þar er um að samkvæmt þinglýstu skjali 5,5 hektara af því, auk skika frá jörð- unum Haukadal og Laug. Um- hverfisráðuneytið auglýsti friðlýs- inguna og óskaði eftir athuga- semdum við hana. Athugasemdir bárust frá bændum, sem eiga land umhverfis Geysi og að hluta til innan girðingarinnar, þar sem þeir mótmæltu friðlýsingu nema þeir fengju bætur fyrir sitt land. í framhaldi af því voru haldnir fundir með landeigendum, þar sem farið var yfir hvað það væri sem friðlýsingin skerti af þeirra eignarrétti og möguleikum á nýt- ingu. Jafnframt var rætt um hvaða bætur þyrftu að koma fyrir. Það var síðan í kjölfar þessara við- ræðna, sem fjármálaráðuneytið fékk Tryggva Gunnarsson Iög- fræðing til þess að fara í gegnum eignarhald á allri Haukadalsjörð- inni. I greinargerð frá lögfræð- ingnum kemur fram að ýmislegt er óljóst varðandi eignarhald á þessu svæði. Að sögn Þórodds Þóroddssonar hjá Náttúruverndarráði var geng- ið frá skiptum á heimalandi jarð- arinnar haustið 1990. Fulltrúi frá landbúnaðarráðuneytinu átti sæti í nefnd er gekk frá því máli fyrir hönd ríkissjóðs. Þórhallur segir að sú skiptagerð hafi ekki verið stað- fest og líti út fyrir að ýmsir gallar séu á henni. Það er að segja að menn hafi ekki haft öll gögn við hendina og sér í lagi hvað varðar eignarhald ríkisins á Haukadals- jörðinni. Staðan í dag er þannig sú að menn eru að reyna að finna út hvað ríkið nákvæmlega á af svæð- inu innan girðingarinnar um- hverfis Geysi, til þess að vita hvað ríkið þarf að kaupa, eða hvort það þarf yfirhöfuð að kaupa landið. -ÁG.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.