Réttur


Réttur - 01.02.1921, Side 2

Réttur - 01.02.1921, Side 2
2 Réttur. í fyrsta lagi félög, sem eru bundin við ákveðinn flokk manna eða hafa viss inntökuskilyrði um hlutakaup, atkvæðis- rétt o. fl. í öðru lagi félög, sem eru opin til þátttöku hverj- um, sem ganga vill að starfi þeirra og stefnu. í fyrri flokknum teljast öll afmörkuð hlutafélög, t. d. til atvinnureksturs og gróða, hagsmunafélög vissra stétta, em- bættismanna, ukapmanna, atvinnurekenda, verkamanna o. s. frv. — í öðrum flokknum eru öll félög, sem veita frjálsan aðgang mönnum úr öllum stéttum, án fjárframlaga, að und- anskildum litlum aðgöngneyri, og jafnan atkvæðisréft félags- mönnum, án tillits til arðs og eigna. Hvort sem það er fé- lag um mentamál eða til samvinnu um viðskifti og vöru- framleiðslu. Áhrif þessa tvennskonar félagsskapar, á þjóðlífið í heild sinni, eru gagnólík. Hlutafélags-»klikkur» og hagsmunafélög einstakra stétta leiða ávalt til flokkaskiftingar og sundrungar á kröftum þjóðfélagsins; þau eru sífelt með gróða- og hern- aðarhug hvert í annars garð. Pau skipa félögum sínum virð- ingarsæti og störf, eins og mönnum á taflborði. Pau búast varnar- og sóknargögnum hvert fyrir sig, eins og kunnugt er um félög vinnukaupenda og verkamanna. Frjáls samvinnufélög leiða á hinn bóginn stóra og smáa, fátæka og ríka, atvinnurekendur og verkamenn friðsamlega að sameiginlegum áhugamálum og störfum. Undir merki óháðrar samrinnu geta allir safnast og unnið að hagsmunamálum sín- um með aðstoð heildarinnar og í fullu samræmi við hag hennar. Sá hagur eða sparnaður, sem veitist hverjum felags- manni, er í réttu hlutfalli við framlög hans og starf. þar gengur hver með sínum einstakiingseinkennum til samtaka með öðrum ólíkum. Skipulag þessa félagsskapar, sem bygt er upp að neðan, kemur í veg fyrir, að þessar samstæðu fylkingar búist við aðköstum og árásum hver frá annari. Þar ganga allir fram af sjálfshvötum, en ekki í nafni stéttahafurs eða flokksaga. Stéttafélagsskapur er aftur á móti bygður að ofan og mótaður af kreddum og lífskjörum, sem þjaka ein- staklingunum og gerir þá ófrjálsa. Samkvæmt því er hver

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.