Réttur - 01.02.1921, Side 3
Tvennskonar félagsskapur.
3
þeirra næstum því fyrirfram ákveðinn »sauður« eða »hafur«,
og verður peð í höndum þeirrar stjórnar, sem framfytgir
flokkskreddunum. Svipuðum afleiðingum verða einstakling-
arnir háðir undir stjórn og skipulagi jafnaðarmanna. Störfin
og launin fyrir þau eru þeim skipuð og skömtuð af æðri
stjórn, er hefir umsjón með þeim í nafni þjóðfélagsins. Peirn
er líka teflt fram eins og mönnum á skákborði, svo að sjálf-
stæð framsókn þeirra og athafnahvöt dofnar.
Tilgangur alls félagsskapar og skipulagsmála ræður eðlilega
miklu um áhrif þeirra og afleiðingar; og af þeirri skilgrein-
ingu, sem hér er gerð á þeim, má ráða svarið við spurn-
ingunni í byrjun þessarar greinar. Að þegar eigingirni,
gróðabrask og valdafíkn eru þeir máttarviðir, sem félögin eru
reist á, og vopnum þeirra snúið gegn öðrum, sem hljóta að
standa utan við, þá er eldur uppi, og engin samleið til. Að
þegar skipulagskröfurnar stefna í þá átt, að fjöldinn vinni
eins og þjónar gegn launum frá sveitarfélagi og ríki, þá eru
þroskameðul einstaklinga og starfsorka þeirra látin ónotuð.
Tilgangur skipulags samvinnufélaganna fer í gagnstæða átt.
Pað knýr félagsmenn til þess að beita öllum kröftum, það
útilokar enga en býður samfylgd; og gefur engum svigrúm
til þess að misbeita eigingirnr og völdum.
Samvinnuskipulagið hlýtur því að fullnægja beit og sam-
þýðast kjörorðum nútímans. Engin félög með öðru skipulagi
mættu fá heimild til að nefnast samvinnufélög — eðlisnrunur
þeirra er svo mikill. — Sá hluti þjóðarinnar er enn of fá-
mennur, sem þekkir eitikenni félagsskaparins og snýr í rétta
fylkingu.
F*að eru ótvíræð merki um ósamræmi og sundrung í þjóð-
félaginu, þegar háværar kröfur eins*akra stétta og braskara-
flokka mega sín meira, en málefni og samtök þeirra, sem
fylgja samvinnuhugsjóninni. F*að er góð og gömul líking,
að hugsa sér þjóðfélagið eina lífræna heild. Hvernig færi
um líkama mannsins, ef blóðkornin annars vegar, en t3Uga-
frumurnar hins vegar, hættu öllum skiftum, af því að hvert
yrir sig vildi ráða sambúðarskilyrðum? Dæmisaga forn-Róm-