Réttur


Réttur - 01.02.1921, Page 6

Réttur - 01.02.1921, Page 6
Alþjóðafriður. (Tveir kaflar úr riti eftir Carl Koch: Verdensfred). I. Hin stórkostlegu atvinnu- og peningafyrirtæki, sem hafa orsakað svo miklar viðsjár með stórveldunum á síðasta mannsaldri, eiga rót sína að rekja til valdalöngunar; menn hafa viljað komast út í heiminn til þess að koma ár sinni fyrir borð. Pað er ennfremur einkennilegt við þessa lögun þeirra, að þeir láta sér ekki nægja að auka starfsvið sitt, þeir vilja einnig auka völd sín, leggja ný lönd undir yfirráð sín og bola öðrum frá þeim. Pað er alls ekki víst, að tveir menn, sem mætast á fram- sóknarbiaut sinni í lífinu, þurfi að verða andstæðingar; þeir geta alveg eins orðið vinir og samverkamenn. Aftur er það áreiðanlegt, að tveir menn, sem ekki láta sér nægja atvinnu- frelsið, en gera kröfur til einkaréítinda, til landeigna, fyrirtækja eða einhverra hlunninda — þeir hljóta að verða andstæð- ingar. Eigi svo samlandar þessara manna að tryggja einkaréttindi þeirra, þá veldur þessi árekstur ekki eingöngu erjum með þeim, heldur einnig ósamlyndi milli tveggja þjóða. Enn þá furðulegra virðist þetta, þegar hvor þessara manna krefst bæði einkaréttar gegnt útlendingum öllum og svo sinni þjóð, sem á að verja þenna rétt hans með vinnu sinni og jafnvel með blóði sínu. Hlunnindin eiga þá að koma einka- réttarhöfunum einum að notum og engum öðrum! En hvað er þó þetta móti því, þegar tvær eða fleiri þjóðir

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.