Réttur


Réttur - 01.02.1921, Page 11

Réttur - 01.02.1921, Page 11
Alþjóðafriður. 11 antiara ríkja í þessum efnum og hverjar heppilegar breyting- ar mætti gera á því. Verndartollarnir eru ein af aðalorsök- um styrjaldanna og þeir skapast af hugsunarhætti þeim, sem einkaréttindin eiga rót sína í. »Alt það, sem eg vinn, tek eg frá öðrum; hvert spor, sem eg stíg fram, ýtir öðrum jafnlangt aftur!« Þetta er gleðiboðskapur verndartolla og styrjalda. Lítum nú enn á eitt, sem ber Ijóst vitni um grundvallar- hugsun sérréttindanna. Ef einhver þjóð ákvarðaði af frjáls- um vilja, að seilast til yfirráða í öðrum löndum og vildi takast á herðar byrðar þær, sem af því hlytust, bæði með óbeinum sköttum og herþjónustu, þá yrði maður þó að láta hana sjálfráða um það, hversu furðulegt og ilt tiltæki sem manni annars þætti það. En því er ekki þannig farið. Pjóðirnar ráða nefnilega alls ekki fyrir sjálfum sér. í Þýzka- landi, Austurríki, Ungverjalandi og Tyrklandi er þátttaka þjóð- anna í ríkisstjórn og löggjöf enn þá mest takmörkuð.1) I Rússlandi var líkt ástatt, þar til fyrir fáum mánuðum, og um frámtíð þess er alt óvíst enn. í öllum þessum löndum fóru þjóðhöfðingjarnir, sem höfðu þegið tign sína að erfðum, með völdin. Auðvitað hafði hann að baki sér höfðingjalýðinn: aðalsmenn og auðkýfinga og svo embættismennina, sem hann hafði skipað, annaðhvort aleinn eða í samráði við fáa aðra. Afstaða hans til þessara manna er misjöfn, og fer allmikið eftir stjórnarhæfileikum hans. Stundum ræður hann einn mestu, en stundum líka taka þeir fram fyrir hendurnar á honum. En alt af hefir þetta skipulag ófriðarhættu í för með sér. Almenningur, senr jafnan hefir bezt af því, að friður hald- ist, hefir lítil ráð í þessum löndum. Áhrif hans á löggjaf- arþingin eru mjög lítil. í Englandi og Frakklandi eru stjórnarhættir að vísu aðrir, 1) Ritað fyrir ófriðarlok.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.