Réttur - 01.02.1921, Page 13
Alþjóðafriður.
13
utanríkismálunum. Þetta er deginum ljósara í hervaldsríkj-
unnm; en hið sama er einnig að segja um Frakkland og
England, þar sem stjórnirnar í öðru tilliti eru meira eða
minna undir eftirliti þjóðanna.®
Annar Englendingur segir:
»Eg hefi stundum spurt sjálfan mig, hvort ekki myndi
nauðsynlegt og gott í framtíðinni, að utanríkisráðgjafinn hefði
þing og þjóð meira með í ráðum, en venja hefir verið á
umliðnum tímum. Á seinni tímum höfum vér lifað atburði,
sem þjóð vor hefir engan grun haft um og ekki skilið fyr
en þeir hafa verið afstaðnir. Er nú hægt að stjórna sam-
kvæmt vilja lýðsins (demokratiskt) með þessum hætti?« Hér
er um stjórnarfarsatriði að ræða, sem felur í sér bæði sér-
réttindi og ófriðarhættu.
Þá kemur einkarétturinn fram í einu enn.
Hin margnefndu risafyrirtæki í öðrum heimsálfum eru at-
vinnufyrirtæki. Það er þessi gífurlegi auður einstakra manna
í Evrópu, sem getur ekki lengur sætt sig við gróðann á at-
vinnurekstri heima fyrir, en sækist eftir meiru en hann gefur
af sér. Þetta einkennir vora tíma. Hægt og hægt hafa Ev-
rópuþjóðirnar unnið upp aftur það efnatjón, sem þær urðu
fyrir í Nápóleons-styrjöldunum. Og nú ver veltuféð (kapital)
meira en nokkru sinni fyr. En hinn vaxandi auður hefir
safnast í hendur tiltölulega fárra manna, án þess að aðstaða
almennings hafi verulega batnað. Og þar sem skifting auðs-
ins hefir orðið ójöfnust, hafa þjóðfélagsmeinsemdirnar orðið
válegastar; þar kreppir auðurinn mest að, og þess vegna
leitar hann sér starfsviðs annarsstaðar þar, sem til mikils er
að vinna.
Orsökin til þessa ástands er skifting landsins.
Víðsvegar í Evrópu eru tiltölulega fáir af þeim, sem á jörð-
unum búa, eigendur þeirra. í Austur-Prússlaudi, Posen og
Pommern t. d., eru stórar jarðir, sem ganga að erfðum. Pað
eru leifar af gamla lénsskipulaginu, sem ekki skoluðust burtu
fyrir öldum frönsku stjórnarbyltingarinnar. Petta ástand hefir
tnjög víðtækar afleiðingar fyrir Pýzkaland, því enda þótt jarð-