Réttur


Réttur - 01.02.1921, Síða 15

Réttur - 01.02.1921, Síða 15
Alþjóðafriður. 15 lendir gróðinn af þeim hjá honum. Mikill hluti þess lands, sém Lotidon slendur á er eign örfárra ætta. Til þeirra renn- ur það gífurlega verð, sem skapast við samkepnina um að fá að búa og starfa einmitl á þessum stað og við fúsleika manna til þess að borga háa leigu einmitt fyrir leyfi til þess. Þetta er það, sem einkennir þróunina hjá Englendingum og hinum stórþjóðutium. Pess vegna er eins og einhver undraöfl dragi fólkið frá ræktun landsins og til borganna. Og þetta ástand orsakar líka hina miklu auðsöfnun einstakra manna. Hún á sem sagt rót sína að rekja til einkaréttarins til að eiga landið og verðmæti þess, einkaréttarins til þess að eiga, ekki eingöngu það verðmæti, sem maður hefir skapað með sinni eigin vinnu á jörðunni, heldur einnig það verðmæti, sem skapast með þeim hætti, að fólkið hópast saman, býr, starfar og margfaldast á landeign hans. Orsakanna til þessarar þró- unar er að leita á löngu liðnum öldum; en eins og öllu öðru, miðar henni nú miklu örar en áður. Henni er farið al- veg eins og járnbrautarlestinni, sem gengur miklu hraðara nú en fyr á tímum, einnig þó hún sé komin inn á vitlaust spor. Menn hafa miklu meira vald á náttúruöflunum nú, og upp- finningar eru miklu fleiri. Og loks hafa peningarnir mótað alt félagslífið miklu skýrara en áður, en peningar safnast eins og menn vita örar á hendur einstakra manna heldur en kart- öflur og korn. Þessi auðsöfnun hefir gert London að stærsta peningamark- aði í heimi. Svo hafa einkum París, Wien, Berlín og New York komið á eftir. Og til þessara aðalstöðva má rekja upp- haf stórgróðafyrirtækjanna í öðrum heimsálfum, einmitt þeirra fyrirtækja, sem kveikt hafa ófriðarbálið í heiminum. Eins og jörðin er undirstaða alls atvinnureksturs, eins ér einkarétturinn til jarðarinnar undirstaða allra anuara einka réttinda, Hin ýmsu afbrigði einkaréttinda eru því ekki eins og óskyld öfl. Pau vinna í félagi. Pau leitast við að safnast saman hjá fáeinum mönnutn. Auðæfin safnast á hendur jarðeigendanna í borgum og sveitum, Peir sleppa tiltölulega bezt við skatt-

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.