Réttur


Réttur - 01.02.1921, Síða 18

Réttur - 01.02.1921, Síða 18
18 Réitur. Stanley lávarður skipaði landstjóranum Napier 10. apríl 1842 að útiloka hina útfluttu Búa frá öllum samböndum og tilkyrina þeim, að breska stjórnin mundi styðja villimennina á móti þeim og skoða þá sem uppreisnarmenn. Okkur tókst tvisvar að hrinda af okkur setuliðinu. Peir voru fleiri af Englendingum, sem druknuðu á flóttanum en féllu fyrir kúlum okkar. Cloete umboðsmaður var síðar sendur til að innlima hið unga lýðveldi sem þóknun fyrir að vera orðið eitt að sið- menningariöndum heimsins. Innliinunin fór samt sem áður fram gegn sterkum mótmæl- um (Theol, 155 bls.). Pann 21. febr. 1842 sendi Fólksráðið (Volksraad) í Maritsburg, undir forsetu Joachims Prinsloo eftirfarandi bréf til Napier landstjóra: — »Vér vitum að til er guð, sem ræður yfir himni og jörðu, sem hefir vald og er reiðubúinn til að vernda þá, sem van- mátta eru og rangindum eru beittir, fyrir undirokurum þeirra. Á hann setjum vér traust vort og á réttlæti málefnis vors. Ef það er vilji hans, að vér verðum gersamlega í eyði lagðir með konum vorum og börnum og öllu, sem vér eigum, þá skulum vér með tilhlýðilegri undirgefni viðurkenna, að vér höfum til þess unnið af honum, en ekki af mönnum. Oss er kunnugt um vald Bretlands hins mikla, og vér höfum ekki í hyggju að rísa upp gegn því valdi. En vér getum þó ekki leyft að valdið skuli traðka réttlætið undir fólum án þess að gera alt, sem í voru valdi stendur, til að varna því.« Kvenþjóð Búa f Maritsburg tilkynti hinum Breska umboðs- manni, að þær vildu fyr ganga berfættar yfir Drakensberg til frelsis eða dauða, heldur en beygja sig aftur og þræla undir veldi Breta (Theol, bls. 179). Og þær stóðu við orð sín, eins og eftirfarandi atvik sýnir (Theol, bls. 244): Hinn hrausti foringi vor, Andrier Pretorius hafði riðið yfir til Grahams Town, í hundruð mílna fjarlægð, til að leggja sannleikann í málsfað vorum fyrir Pottinger landstjóra. Hann fór erindisleysu, því hann varð að snúa aftur án þess að hafa fengið áheyrn hjá Iandstjóranum, sem

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.