Réttur


Réttur - 01.02.1921, Page 19

Réttur - 01.02.1921, Page 19
Heillar aldar ratigsleitni. 19 afsakaði sig með því, að hann hefði engan tíma til að taka á móti Pretoriusi. Þegar hann kom til Drakensberg'á heimleið- inni, þá fann hann næstum því alla þjóðina á leið yfir fjöll- in í burtu frá Natal og valdi Breta. Kona hans lá veik í vagninum og dóttir hans hafði orðið fyrir stórmeiðslum af uxunum, sem hún hafði orðið að leiða. Eftirmaður Pottingers, Sir Harry Smith, lýsir þannig á- standi hinna útfluttu Búa: »Þeir lifðu í slíku eymdarástandi, sem hann hafði aldrei séð líka til áður, nema þegar Massena gerði innrásina í Portugal. Það var sannarlega sárgrætileg og gagntakandi sjón.« Petta var það sem við urðum að þola af Bretastjórninni í sambandi við Natal. Við héldum aftur yfir Drakensberg til Fríveldisins, þar urðu sumir eftir en aðrir héldu norður á við yfir ána Vaal (Vaal River). Oraniu-Fríveldið. Samkvæmt lögum No. 6 & 7, Wiiliam IV. kapituli 57, þá skipuðu Englendingar fulltrúa í Fríveldinu. (Theol, bls. 256 — 64, Hofstede). En Pretorius gaf honum 48 stunda frest til að yfirgefa Iýðveldíð. Sir Harry Smith kallaði þá upp her, aðallega af svertingjum á móti oss hvítum mönnum, og barðist við oss við Boomplaats 29. ágúst 1848. Eftir harða orustu var Búi, sem Thomas Dreyer hét, tekinn höndum af sv'ertingjum úr her Smiths, og til ævarandi smánar fyrir orð- stír Englendinga, þá lét enski Iandstjórinn drepa hann fyrir þá einu sök, að hann hafði einu sinni fyrir mörgum árum verlð breskur þegn, og hafði nú dirfst að berjast á móti fána Hennar. Hátignar. Ennþá eitt morð og smánarverk í viðskiftareikningi Suður- Afríku við England! Á meðan á þessu stóð hafði Sír Harry Smith innlimað Fríveldið sem »Ríkið við Oraniu fljótið,« fyrir þá sök að 4/r> íbúanna væru hlyntir Breskum yfirráðum, og aðeins þyrðu 2*

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.