Réttur - 01.02.1921, Side 23
Heillar aldar rangsleitni. 23
þess, þá var það þvingað til að greiða bresku stjórninni
skaðahætur.
»Fríveldið« segir sögumaðurinn Fronde »greiddi féð, en
greiddi það undir mótmælum, með gamaldags ákalli á guð
réttlætisins, sem þeir, þótt einkennilegt megi virðast, héldu
að væri í raun og veru til.
Það virðist eftir þessu, að það sé enginn staður til fyrir
réttlátan guð í enskri politík.
Við höfum, til þessa, fjallað um brottför okkar úr Höfða-
nýlendunum og aðferð þá er England notaði til að svifta
okkur Natal og Fríveldinu. En nú komum við til málefnis
Transvaal.
Suður-Afríku Lýðveldið.
Það hefir þegar verið sagt frá hinum hörmulegu örlögum
Trichardts leiðangursins. Flokkur Trichardts fann Transvaal
fult af hermönnum Moselikatse, konungs Matabela og föðu’r
Lobengulu. Allir aðrir þjóðflokkar í Transvaal voru »hundar«
hans eins og Kaffirar kölluðu það.
Jafnskjótt og hann heyrði að hinir útflytjandi Búar nálg-
uðust, þá sendi hann út her til að afmá þá algerlega. Her
þessum tókst að einangra og myrða einn eða tvo umrenninga,
en haim var sigraður við Vechtkop af hinum litla flokk Sarels
Celliers, þar sem kvenfólk Búanna varð frægt fyrir framúr-
skarandi hetjuverk.
Skömmu síðar héldu hinir útflytjandi Búar yfir fljótið Vaal
og hröktu Loselikaste og hjarðir hans eftir tvær orustur yfir
ána Limpopo og beint inn í hið núverandi Matabelaland.
Andries Pretorius hafði komið til Transvaal eftir innlimun
Natals og lifði þar í ró þrátt fyrir fé það, sem lagt hafði
verið til höfuðs honum eftir orustuna við Boomplaats. Breski
umboðsmaðurinn í Fríveldinu, sem um þetta leyti lá ennþá
undir Engiand, var neyddur til að viðurkenna í bréfi til
enska tandstjórans, að þessi sami Pretorius réði örlögum
Fríveldisins. Pað var fyrir hans áhrif að Moshesh hafði ekki
strádrepið hvern einasta enskan hermann. Fólk í Englandi