Réttur


Réttur - 01.02.1921, Side 29

Réttur - 01.02.1921, Side 29
Heillar aldar rangsleiini. 29 höfðu beðið ósigur fyrir Kaffírum, þá var safnað her af Swazum og fríliðum. Fjölda Swazanna má ætla á af því, að 500 af þeim voru drepnir í ófriðnum. Grimdárverk þau, sem þessir Swazí, bandamenn Englendinga, frömdu á þjóð- flokki Secoecoenis voru sannarlega hroðaleg. Colenso biskup, sem fordæmir þetta atvik, segir, er hann ræðir um árangurinn af innlimun Iýðveldisins, að »bæði ófriðurinn við Zúlúmenn og eins við Secoecoeni hafi verið bein afleiðing af hinni óheillavænlegu innlimun Transvaals, sem hefði aldrei orðið framkvæmd, ef vér (Englendingar) hefðum ekki tekíð eignarhaldi á landinu eins og flokkur sjó- ræningja, sumpart með svikum og sumpart með oíbeldi«. A öðrum stað segir hann: »Og á þennan hátt innlimuðum við Transvaal, og það verk hafði Zúlúófriðinn í för með sér sem hefninorn*. Að breska stjórnin hafði ávalt álitið Zúlúmenn sem hent- ugt verkfæri til að gereyða Transvaalbúum, þegar hentugt tækifæri byðist, er augljóst af bréfi, sem yfirumboðsmaðurinn, Sir Bartle Frere, skrifaði til General Ponsonby, og þar sem hann segir: »A meðan lýðveldi Búa var keppinautur og hálf-óvinveitt ríki, þá hætti Natal hálfpart við að láta vel að Zúlúmönnum, alveg eins og maður léti vel að tömdum úlfi, sem að eins rifi í sig sauði nágranna manns. Við höfum alt af mótmælt, en fremur óákveðið, og nú, þegar báðir hóp- arnir heyra okkur til, þá erum við í hálfgerðum vandræðum með, að stoppa hervirki úlfsins*. (Martineau: The Trans- vaal Trouble, bls. 69). Og aftur í bréfi til Sir Robert Herbert (The Transvaal Trouble, bls. 76): »Búar sóttu á; Englendingar gerðu það ekki, og var þeim næst skapi, að hjáfpa Zúlúmönnum á móti Búum. Eg hefi orðið skelkaður við að komast að því, hve litlu hefir mun- að hjá fyrirrennurum núverandi stjórnar í aðstoð þeirra við Zúlúmenn á móti árásum Búa. Herra John Dunn, sem er enn þá launaður embættismaður stjórnarinnar hér, og sem fanst hann verða að gera grein fyrir þátttöku sinni í að út-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.